Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
BAKSVIÐ
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
Tiltekin steypireyður vekur mikla
athygli vísindamanna um þessar
mundir, en hægt er að fylgjast með
ferðum hennar í gegnum gervihnött.
Gervihnattasendi var skotið á hval-
inn aðfaranótt 12. júlí og hann hefur
nú sent vísindamönnum upplýsingar
um ferðir hvalsins í tvær vikur.
Athygli vekur hvað hvalurinn fer
hratt yfir og hvað hann ferðast víða,
að sögn Gísla Víkingssonar, hvala-
sérfræðings hjá Hafrannsóknastofn-
un, en enn er margt á huldu um ferð-
ir og hegðun steypireyða. Hvalurinn
virðist geta falið sig í sjónum stóran
hluta ársins og það er merkilegt í
ljósi þess að þetta er stærsta dýr
sem lifað hefur á jörðinni.
Steypireyðurin kemur upp að
landinu á vorin og dvelur hér fram á
haust. Um fengitímann leitar steypi-
reyðurin suður á bóginn en vetrar-
stöðvar hennar eru óþekktar.
Komin framhjá Færeyjum
„Hvalurinn var í 2-3 daga á svæð-
inu þar sem við merktum hann. Síð-
an hélt hann í austurátt og tók svo
stefnuna suður á bóginn og virðist
ekkert hafa stoppað af viti eftir það,“
segir Gísli, en steypireyðurin er
komin framhjá breiddargráðu Fær-
eyja eftir tveggja vikna ferðalag.
Gísli þakkar fyrir hvern einasta
dag sem sendirinn tollir á hvalnum.
„Við vitum mjög lítið um þessi dýr
vegna tæknilegra erfiðleika við að
merkja þau,“ segir Gísli, en slíkir
gervihnattasendar eru hannaðir til
að senda út upplýsingar í heilt ár.
Vandamálið er hins vegar að sendir-
inn festist í spiklaginu á hvalnum og
hann losar sig við hann eftir til-
tölulega stuttan tíma.
Skjóta sendi úr loftbyssu
„Það er mun auðveldara að merkja
landdýr og minni hvali en stórhveli,“
segir Gísli en höfrungar hafa verið
handsamaðir í gegnum tíðina til að
festa betur á þá sambærilega senda.
„Slíkt er að sjálfsögðu ómögulegt í
tilviki stórhvala enda ekki auðvelt að
komast í návígi við slíkar skepnur.“
Gervihnattasendinum er skotið í
hvalinn með sérstakri loftbyssu.
Mikilvægt er að hitta ofarlega í hval-
inn og að sendirinn snúi upp, því
hann hefur ekki nema örfáar sek-
úndur til að ná sambandi við gervi-
hnött er hvalurinn kemur upp til að
anda.
Steypireyðurin kemur upp þrisvar
til fimm sinnum í röð til að anda áður
en hún leggur í djúpköfun sem varir í
sjö til tíu mínútur.
„Vísindamenn um allan heim eru
að reyna að finna upp sendi sem fest-
ist betur við hvalinn. Slík vinna hefur
staðið yfir í tæpa tvo áratugi en enn
bólar ekki á lausn.“
Gríðarlega mikið gildi
Gervihnattamerkingar hafa gríð-
arlega mikið gildi að mati Gísla því
þær veita vísindamönnum fræðilegar
upplýsingar um ferðir steypireyða.
Gísli vonast til að geta svarað spurn-
ingunni um hvar vetrarstöðvar
þeirra eru, en þær eru enn óþekktar.
Þetta hjálpar einnig sérfræðingum
að átta sig á fjölda stofna í Atlants-
hafinu, en slík vitneskja skiptir miklu
máli fyrir stjórnun og verndun teg-
undarinnar.
Hafrannsóknastofnun merkti eina
steypireyði í Skjálfandaflóa í júní
2009 og síðasta merkið barst frá
henni í september sama ár. Sá hval-
ur synti í fyrstu í gagnstæða átt við
hvalinn sem merktur var í sumar,
þ.e. í vesturátt til Grænlands, en
hann hélt síðan í suðurátt. Síðasta
merkið frá honum barst 8. sept-
ember 2009 en þá var hvalurinn í ná-
grenni við Vestmannaeyjar.
„Vonandi helst þessi sendir á
hvalnum jafn lengi eða lengur en síð-
ast,“ segir Gísli.
Hægt verður að fylgjast með ferð-
um hvalsins inn á heimasíðu Haf-
rannsóknastofnunar fljótlega eftir
verslunarmannahelgi.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar
Íslandsvinur Steypireyður stefnir nú hraðbyri suður á bóginn. Vísindamenn
vita ekki enn hvar þetta stærsta dýr jarðar heldur sig yfir vetrartímann.
Athygli vekur
hvað hvalurinn
fer hratt yfir
Hafrannsóknastofnun fylgist með
steypireyði í gegnum gervihnött
Heimild: Hafrannsóknastofnun
TA
KT
IK
/4
03
0/
22
.j
ul
13
í 3 þykktum
fáanlegt
Bónus grill
grísakótelettur
Vinsæla grillkjötið í Bónus
Ali hunangs kótilettur
Léttreyktar hunangs
grísakótelettur í
BBQ sósu
Léttreyktar
hunangs
grísakótelettur.
1798
KR. PR. KG.
1798
KR. PR. KG.
1198
KR. PR. KG.
1879
KR. PR. KG.
1879
KR. PR. KG.