Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Afkoma Marels á fyrri helmingi árs-
ins 2013 endurspeglar krefjandi
markaðsaðstæður og áframhaldandi
töf á fjárfestingu á helstu mörkuð-
um félagsins. Ekki má búast við við-
snúningi á mörkuðum fyrr en á
næsta ári og gerir félagið því ráð
fyrir lækkun tekna fyrir árið í heild.
Marel kynnti afkomu félagsins á
kynningarfundi í höfuðstöðvum fé-
lagsins í gærmorgun. Árshlutaupp-
gjörið olli töluverðum vonbrigðum,
en til marks um það féllu hlutabréf
félagsins um 3,9% í verði í gær. Eins
og fram kom í frétt Morgunblaðsins
í gær dróst hagnaður Marels saman
á milli ára, en hann nam um 1.700
milljónum króna á fyrri hluta þessa
árs en um 3.200 milljónum á sama
tímabili á því seinasta. Fram kom í
máli Theo Hoen, forstjóra Marels, á
kynningunni að velta félagsins hafi
verið 9,4% minni en á sama tímabili í
fyrra. Benti hann á að efnahagsleg
óvissa hafi valdið töfum á stórum
fjárfestingum viðskiptavina og að
aðstæður á erlendum mörkuðum
væru enn erfiðar.
Þrátt fyrir minni hagnað en
margir fjárfestar höfðu reiknað með
er afkoman í takt við væntingar
Marels.
Jákvæð teikn á lofti
Á fundinum gerði Theo Hoen
grein fyrir stöðu Marels á þeim
mörkuðum sem félagið starfar á.
Þannig sér hann jákvæð teikn á lofti
á markaðinum fyrir kjúklingakjöt,
sérstaklega í Bandaríkjunum, en
bandaríska landbúnaðarráðuneytið
hefur spáð því að framleiðsla á kjúk-
lingakjöti muni aukast á næstu
misserum, meðal annars vegna
lækkandi fóðurkostnaðar. Þá munu
markaðir fyrir bæði kjöt og fisk
taka við sér á seinni hluta ársins.
Undirliggjandi vöxtur þessara
markaða er til staðar, að mati Hoen,
og er fjárfestingarþörfin þess vegna
hægt og bítandi að byggjast upp.
Benti hann einnig á að Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna geri ráð fyrir 2,9% aukn-
ingu í fiskframleiðslu í heiminum.
Aukin áhersla á nýmarkaðsríki
Hoen sagði skýr batamerki sjást í
Bandaríkjunum en að enn sé lægð á
evrópskum mörkuðum. Hins vegar
séu merki um, ef marka má PMI-
vísitöluna, aukinn stöðugleika á
evrusvæðinu. Forstjórinn lagði
mikla áherslu á nýmarkaðsríkin og
hratt vaxandi eftirspurn þaðan.
Neysla próteina hefur vaxið stöðugt
undanfarna tvo áratugi og skipar sí-
fellt stærri sess í mataræði íbúa
þessara ríkja. Þá kalli ríkin eftir
auknu fæðuöryggi. Félaginu hefur
tekist vel upp við að sækja inn á ný-
markaði undanfarin ár en fram kom
á fundinum að mikilvægar pantanir
hafi borist meðal annars frá ný-
markaðsríkjum eins og Brasilíu og
Mexíkó.
Afkoma endurspegl-
ar erfiðar aðstæður
Uppgjör Marels fyrir annan ársfjórðung olli vonbrigðum
Marel Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður og Theo Hoen forstjóri.
Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum.
Minnkandi velta
» Marel kynnti afkomu sína
fyrir annan ársfjórðung í gær-
morgun.
» Hagnaður félagsins dróst
verulega saman milli ára.
» Forstjóri Marels segir efna-
hagslega óvissu hafa valdið
töfum á fjárfestingum við-
skiptavina.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Kínversk stjórnvöld kynntu í gær
nýjar aðgerðir sem eiga að örva
hagvöxt. Snúast aðgerðirnar meðal
annars um að veita litlum fyrir-
tækjum skattaívilnanir, lækka
gjöld á þá sem standa í útflutningi
og að leggja nýjar járnbrautir.
Horfur í efnahagslífi Kína hafa
versnað seinustu
mánuði og hafa
sérfræðingar á
kínverskum fjár-
málamarkaði
áhyggjur af því
að hægja muni
enn frekar á
vexti hagkerf-
isins. Kínversk
stjórnvöld hafa
hins vegar sagt
að efnahagslífið
gangi með venjubundnum hætti en
nú sé markmiðið að skapa meiri
stöðugleika, segir í frétt BBC.
Reiknar með minni hagvexti
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
fyrr í mánuðinum gerir fjármála-
ráðherra Kína ráð fyrir 7% hag-
vexti á þessu ári, sem er mun minni
hagvöxtur en verið hefur undan-
farin ár. Dregið hefur úr útflutn-
ingi, sem bendir til þess að eft-
irspurn eftir kínverskum vörum sé
að dragast saman, og hefur
Kínverjum gengið erfiðlega að
mæta því með aukinni neyslu heima
fyrir.
Þá hafa kínversk stjórnvöld
ákveðið að gefa þeim fyrirtækjum
sem eru með minni sölu en 20 þús-
und yuan, tæpar 400 þúsund krón-
ur, á mánuði frest til að greiða virð-
isauka- og veltuskatt.
kij@mbl.is
Kínverjar
vilja örva
vöxt
Stjórnvöld
grípa til aðgerða
Lou Jiwei Fjár-
málaráðherra.
Sala á eignarhlut ríkisins í bönkun-
um er augljós upphafsleikur í þeirri
viðleitni að minnka skuldir og draga
úr vaxtakostnaði ríkisins. Það er
ekki hlutverk ríkisins að standa í
miklum bankarekstri. Þetta er á
meðal þess sem fram kemur í Hagsjá
hagfræðideildar Landsbankans sem
birt var í gær. „Ríkissjóður stuðlaði
á sínum tíma að enduruppbyggingu
bankakerfisins með hlutafjárfram-
lagi og lánveitingum þar sem eignir
standa á móti þeim stuðningi sem
veittur var,“ segir hagfræðideildin
og bendir á að áform um sölu þess-
ara eigna hafi gengið hægt en í ljósi
þess að um 15% tekna ríkisins fari í
vaxtagreiðslur hljóti eignasala að
koma til greina.
Segir hagfræðideildin að sala á
eignarhlut ríkisins í Arion banka og
Íslandsbanka dugi skammt til þess
að létta á skuldabyrðinni. „Með því
að selja 30% í Landsbankanum og
allan hlutinn í hinum bönkunum væri
verið að losa um 100 ma.kr. bók-
færða eign ríkisins í fjármálastofn-
unum. Það eru einungis um 7% lang-
tímaskulda, sem aftur sýnir hversu
stór skuldavandinn er.“ kij@mbl.is
Mikill skuldavandi
Slæm skuldastaða ríkisins kallar á
sölu eigna Góð viðbót við markaðinn
Morgunblaðið/Kristinn
Bankar Í ljósi skuldavanda ríkisins hlýtur eignasala að koma til greina.
● Hagnaður af
rekstri Facebook
nam 333 milljónum
dala, andvirði um
40 milljarða króna,
á öðrum ársfjórð-
ungi. Uppgjörið
stóðst væntingar
fjárfesta og hækk-
uðu hlutabréf fé-
lagsins í verði, að
því er segir í frétt
BBC. „Áhersla okkar á að innleiða Face-
book í farsíma hefur skilað góðum ár-
angri og er sterkur grunnur fyrir fram-
tíðina,“ sagði Mark Zuckerberg,
stofnandi Facebook, í yfirlýsingu.
Facebook er stærsta samfélags-
netið í heiminum.
40 milljarða hagnaður
Zuckerberg Stofn-
andi Facebook.
● Tvö félög tengd Helga Magnússyni,
fjárfesti og stjórnarmanni í Marel, seldu
í dag 600 þúsund hluti í Marel fyrir
rúmar 80 milljónir króna. Varðberg
ehf., sem er að fullu í eigu Helga, seldi
200 þúsund hluti og Eignarhaldsfélag
Hörpu ehf., þar sem Helgi er stór hlut-
hafi, seldi 400 þúsund hluti.
Hvor tveggja viðskiptin fóru fram á
genginu 136, að því er fram kemur í til-
kynningu, sem þýðir að söluandvirðið
hafi numið rúmum 80 milljónum króna.
Helgi selur í Marel
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+12./+
++3.45
,+.4/2
,-.41
+1.525
+,/
+.,+-1
+1,.22
+5/.53
+,+.,5
+15.40
++3.0/
,+.253
,-.22
+1.5//
+,/.40
+.,+24
+1,./1
+0-.-,
,+5.,3+5
+,+.52
+15.1+
++1.-4
,+.5,
,-.5
+1.054
+,/.3,
+.,+31
+14.5,
+0-.23
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Legur og drifbúnaður
Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi