Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Kristín Sverrisdóttir, eigandi Ísfugls, fagnar fimmtugsafmælisínu í dag, en í tilefni af því ætlar hún ásamt eiginmanni sín-um, Jóni Magnússyni Jónssyni, að „skreppa af landi brott“ í
dagsferð til Vestmannaeyja. Þau hjónin eiga og reka Ísfugl, en að
sögn Kristínar eru þau einu kalkúnabændur landsins. „Svo erum við
með fullt af hrossum, það er svona áhugamál hjá okkur,“ segir
Kristín.
„Svo ætlum við að borða saman um kvöldið ásamt fjölskyldunni,“
segir Kristín sem bætir við að fjölskyldan ætli að borða saman á
Eyrarbakka. Spurð að því hvort hún eigi von á einhverjum gjöfum í
tilefni dagsins segir hún svo ekki vera. „Ég ætla reyndar að halda
upp á afmælið mitt einhvern tímann í haust,“ segir Kristín. Að sögn
Kristínar var hún á æskuárum sínum ávallt upp í sveit þegar hún
átti afmæli. „Það hefur alltaf verið brakandi þurrkur og eiginlega
aldrei afmælisveisla,“ segir Kristín, en hún ólst upp á Oddgeirs-
hólum í Flóa. „Það var alltaf sól og blíða og því heyskapur í sveitinni
á mínum afmælisdegi. Ég hafði alltaf fullan skilning á því að hey-
skapurinn gekk fyrir í þá daga það var svo sem alltaf líf og fjör í
heyskap, búin að steingleyma hvað var erfitt að rogast með þunga
bagga,“ bætir Kristín við. skulih@mbl.is
Kristín Sverrisdóttir er 50 ára í dag
Hestakona Kristín Sverrisdóttir ásamt hestunum sínum í sumarblíð-
unni. Hún ætlar að eyða deginum í Eyjum ásamt eiginmanni sínum.
Skreppur til Eyja í
tilefni stórafmælis
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigurjón R. Þorvaldsson er
sjötugur í dag, 26. júlí. Í tilefni
þess ætlar hann að hafa opið
hús á heimili sínu, Furulundi
15a á Akureyri, laugardaginn
27. júlí, frá kl. 15 og fram eftir
degi. Vinir og ættingjar eru
hjartanlega velkomnir.
Árnað heilla
70 ára
Reykjanesbær Emma Sjöfn fæddist
16. febrúar kl. 22.58. Hún vó 3.976 g
og var 53 cm löng. Foreldrar hennar
eru Ruth Kjærnested og Einar Haukur
Björnsson.
Nýir borgarar
Garðabær Signý Daniela fæddist 4.
september kl. 14.57. Hún vó 3.430 g
og var 50 cm löng. Foreldrar hennar
eru Viviana Jacqueline Viveros Can-
tero og Karl Jóhann Ásmundsson.
Allt
á einum stað!
Lágmarks
biðtími www.bilaattan.is
Bílaverkstæði
Dekkjaverkstæði
Smurstöð
Varahlutir
S
ara Dögg fæddist í Reykja-
vík 26. júlí 1973 en er alin
upp á Reykhólum í Reyk-
hólasveit. Hún gekk í
Reykhólaskóla. „Ég var
síðan einn vetur í unglingaskólanum
á Reykjum í Hrútafirði en svo var
hann lagður niður og ég kláraði
grunnskólann í Kópavogsskóla og
varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla 1993. Ég fór svo að vinna í
nokkur ár við eitt og annað, m.a. á
Kópavogshæli og hjá Leðuriðjunni.
Svo vann ég á leikskóla og í kjölfarið
var ég orðin nokkuð ákveðin í að
leggja kennslu fyrir mig, fór í Kenn-
araháskóla Íslands og lauk grunn-
skólakennaraprófi árið 2001.“
Stýrir nýjum skóla á nýju stigi
Sara byrjaði að kenna í Háteigs-
skóla eftir námið og var þar í þrjú ár.
Þá frétti hún af því að Hjallastefnan
var að fara í grunnskólarekstur og
sótti þar um. „Ég kenndi drengjum í
tvö ár í Hjallastefnunni í Garðabæ og
í framhaldinu var mér sett það verk-
Sara Dögg Svanhildardóttir, skólastýra í Vífilsskóla – 40 ára
Við Sogið Búið að landa einum vænum í einni veiði sumarsins. Þar var veitt í góðra vinkvenna hópi.
Skólastýra á miðstigi
í Hjallastefnunni
Áð á Þingvallaleið „Ég hjólaði hringinn í kringum vatnið með góðri vin-
konu og fleira góðu fólki. Þetta var önnur af tveimur stærri hjólaferðum
sumarsins, þar sem hin var keppnisferð, þ.e. Bláalónsþrautin.“