Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Höskuldur Björnsson listmál-ari fæddist í Dilksnesi viðHornafjörð 26. júlí 1907.
Faðir hans var Björn óðalsbóndi og
oddviti þar, Jónssonar óðalsbónda
og söðlasmiðs á Hoffelli í Nesjum
Guðmundssonar, bónda og læknis í
Hoffelli, Eiríkssonar. Móðir Hösk-
uldar var Lovísa Eymundsdóttir
húsfreyja í Dilksnesi.
Eymundur Jónsson, faðir Lovísu,
lærði járnsmíði í Kaupmannahöfn og
þótti óvenju afkastamikill og
hugmyndaríkur smiður. Hann hafði
einnig áhuga á málaralist og tók
fljótt eftir því að Höskuldur var
flinkari að teikna og mála en önnur
börn. Þegar Höskuldur var í kring-
um 8 ára aldurinn fékk hann því sína
fyrstu liti og byrjaði að mála lands-
lagið við Dilksnes.
Höskuldur hélt til Reykjavíkur
rétt fyrir tvítugt og fór þar á sína
fyrstu málverkasýningu. sem var til
minningar um Mugg. Í framhaldi
lærði hann hjá þeim Ríkharði Jóns-
syni og Jóni Stefánssyni og fór fljótt
að sýna á Íslandi. Hann hafði ætlað
að fara til Kaupmannahafnar og
leggja stund á listnám en veiktist áð-
ur en komið var að brottför. Hann
fékk berkla, náði aldrei fullri heilsu
og ekkert varð af listnáminu í Dan-
mörku.
Höskuldur var prúðmenni sem
dró sig út úr „skarkala verald-
arinnar“ og sóttist lítt eftir vegtyll-
um. Hann sótti yrkisefni sín á
heimaslóðir í Hornafirði og var tal-
inn einn fremsti fuglamálari lands-
ins. Ríkharður Jónsson segir svo um
hann: „Með langvarandi óaflátan-
legri þjálfun og fegurðarsmekk, hef-
ur Höskuldi tekizt að skapa sinn eig-
in sérstæða listaheim, með verkum
sínum. Að vísu engan jötunheim; en
æ því fegurri heim.“
Kona Höskuldar var Hallfríður
Pálsdóttur frá Hvammi í Fljótum,
Skag., f. 25.3 1907, d. 15.1. 1987. For-
eldrar hennar voru Páll Arngríms-
son og Ingveldur Hallgrímsdóttir.
Þau bjuggu á Höfn í Hornafirði og
síðan í Hveragerði. Þau eignuðust
tvö börn, Halldór og Ingveldi.
Höskuldur Björnsson lést 2.11.
1963.
Merkir Íslendingar
Höskuldur
Björnsson
90 ára
Ásta Ebenharðsdóttir
Björg Karlsdóttir
85 ára
Sváfnir Sveinbjarnarson
80 ára
Gunnar Flóventsson
Blöndal
Hörður Arnórsson
Una Halldóra Halldórsdóttir
75 ára
Erna G. Sigurðardóttir
Guðlaug Gunnarsdóttir
Guðni Þ. Guðmundsson
Helga Guðrún
Eysteinsdóttir
Jón Þ. Brynjólfsson
Ragnheiður Sigurbj.
Árnadóttir
Sigríður Erla Ólafsdóttir
70 ára
Bryndís Kjartansdóttir
Ellert Steingrímsson
Helga Jóna Ásbjarnardóttir
Jón Guðbjörn
Guðbjörnsson
Kristján Róbertsson
Leó Kristjánsson
Sigurjón Þorvaldsson
Steindór V. Sigurjónsson
Þorsteinn Ingimundarson
60 ára
Einar Hrafnkell Haraldsson
Elías Ásgeir Jóhannsson
Halldór Sigurðsson
Karl Emil Ólafsson
Laufey J. Kristjánsdóttir
Ragnheiður G. Sövik
Þorsteinn Ólafsson
50 ára
Fjóla Hólm Ólafsdóttir
Guðrún Helga
Guðmundsdóttir
Hilmar Hákonarson
Rúnar Ingibergsson
Siggeir Þorsteinsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sigurður Björn Reynisson
Snorri Sigurhjartarson
Vilhjálmur Konráðsson
40 ára
Anna Parzych
Auður Ásta Þorsteinsdóttir
Ásgeir Ingólfsson
Dröfn Erlingsdóttir
Grétar Már Þorkelsson
Guðrún Sigríður
Helgadóttir
Heiðrún Guðmundsdóttir
Krasimir Nikolov Iliev
Páll Ásgeir Guðmundsson
Robert Stanislaw
Nehrebecki
Sævar Þór Helgason
30 ára
Ásta Kristín Bjartmars
Santos
Berglín Sjöfn Jónsdóttir
Edda Inga McKee
Gemma Taylor
María Kolbrún
Sigurðardóttir
Melissa Maria Munguia
Melgar
Tomos Owen
Vilhjálmur Þengill Jónsson
Þóra Ingimundardóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Ragnheiður er
Selfyssingur, fædd þar og
uppalin, og er kennari í
Sunnulækjarskóla.
Maki: Ævar Svan
Sigurðsson, f. 1973,
deildarstjóri hjá Advania.
Börn: Lena Rut, f. 1999,
og Arnar Svan, f. 2002.
Foreldrar: Gísli Grétar
Magnússon, f. 1938,
gröfumaður, og Lilja
Eiríksdóttir, f. 1949, af-
greiðslukona. Þau búa á
Selfossi.
Ragnheiður
Gísladóttir
30 ára Kristleifur er frá
Húsafelli í Borgarfirði, býr
í Hafnarfirði og er yfir-
matreiðslumeistari á
Serrano.
Maki: Tinna Rut Róberts-
dóttir, f. 1987, sjúkraliða-
nemi.
Börn: Birta Líf, f. 2008,
Ólafur Logi, f. 2009, og
Kristleifur Bjarni, f. 2011.
Foreldrar: Halldór
Bjarnason, f. 1957, og
Ingibjörg Kristleifsdóttir,
f. 1961, bús. í Reykjavík.
Kristleifur
Halldórsson
30 ára Bjarni er alinn upp
á Húsafelli og í Árbæ, þar
sem hann býr, og er kenn-
ari í Kelduskóla, Grafarv.
Maki: Hrönn Baldvins-
dóttir, f. 1983, rekur hár-
greiðslustofuna Skugga.
Sonur: Baldvin, f. 2011.
Foreldrar: Halldór
Bjarnason, f. 1957,
kennslustjóri á sérnáms-
braut FÁ, og Ingibjörg
Kristleifsdóttir, f. 1961,
formaður Félags leik-
skólastjórnenda.
Bjarni Þórður
Halldórsson
efni að verða skólastjóri í nýjum skóla
í Hafnarfirði og var þar í sex ár.“ Árið
2012 varð svo hún skólastjóri Vífils-
skóla, sem er fyrsti og eini miðstigs-
skóli Hjallastefnunnar, en hann er
fyrir börn á aldrinum 10 til 12 ára. Í
haust verða 138 nemendur í skól-
anum, sem er á Vífilsstöðum, en fjöld-
inn takmarkast fyrst og fremst af
húsnæðinu. Sara segir að núna sé
fyrst og fremst verið að þróa mið-
stigið þótt draumurinn sé sá að í
framtíðinni verði Hjallastefnan einnig
í boði fyrir eldri nemendur.
Hjallastefnan er kynjaskipt skóla-
starf sem byggist fyrst og fremst á
jafnréttisviðhorfi. „Við látum stelpur
leyfa sér að taka meira pláss og
styrkjum kjark þeirra og þor og
styrkjum drengi með því að gera þá
hæfari í félagslegum samskiptum.“
Sara var fyrsti fræðslufulltrúi Sam-
takanna 78 og gegndi því starfi frá
2000 til 2004. Hún var með fræðslu í
skólunum fyrir bæði nemendur og
kennara og var þetta í fyrsta sinn sem
fræðsla var einnig haldin fyrir fag-
stéttir. „Ég var kölluð atvinnulesbían.
Við fjölluðum m.a. um ættleiðingar
samkynhneigðra sem urðu leyfilegar
á þessum tíma.“
Af öðrum félagsstörfum má nefna
að Sara var formaður stúdentafélags í
Kennaraskólanum einn vetur.
Útivistarmanneskja
Sara hefur áhuga á alls kyns hreyf-
ingu og almennri útivist. Fjallgöngur,
hjólreiðar og fluguveiði eru þar á með-
al. „Ég er með bústað við Sogið í
Grímsnesi og veiði þar tvisvar til þrisv-
ar á sumri. Ég var tvo daga í Langá á
Mýrum í sumar og veiddi tíu laxa í
rigningartíðinni. Ég stunda einnig
fjallahjólreiðar, tók þátt í Bláa lóns-
mótinu í vor, 60 km leið. 600 manns
skráðu sig til leiks og var mikil stemn-
ing. Svo hjólaði ég einnig í kringum
Þingvallavatn í sumar og gekk Lauga-
veginn, eitt af því sem ég ætlaði að
vera búin að gera fyrir fertugt.“
Sara ætlar að fagna fertugsafmæl-
inu hressilega með góðum vinum og
fjölskyldu og verður slegið upp veislu
með öllu tilheyrandi.
Fjölskylda
Sara Dögg er gift Bylgju Hauks-
dóttur, f. 29.5. 1964, fiskidrottningu.
Hún vinnur fyrir bandarískt fyrirtæki
sem heitir North Coast Seefoods og
er einn af stærstu kaupendum á
ferskum fiski frá Íslandi. Hún er
þeirra starfsmaður á Íslandi og sér
um að láta kaupa ferskan fisk á mark-
aði og koma honum á áfangastað.
Foreldrar Bylgju eru Erla Finns-
dóttir matráðskona, f. 18.1. 1932, d.
24.12. 2004 og Haukur Magnússon
kennari, f. 5.2. 1932. Sara Dögg og
Bylgja eiga hundinn Skottu Bylgju-
Sörudóttur, f. 30.10. 2002.
Systkini Söru Daggar eru Dísa
Ragnheiður Tómasdóttir, f. 14.2.
1977, viðskiptafræðingur, bús. í Mos-
fellsbæ; Kristín Ingibjörg Tóm-
asdóttir, f. 14.2. 1981, er í barneign-
arleyfi, bús. í Garðabæ; María
Jónsdóttir, f. 19.8. 1978, þroskaþjálfi í
Reykjavík; Pétur Jónsson, f. 18.5.
1981, kokkur í Reykjavík, og Heiðrún
Jónsdóttir, f. 16.10. 1991, stúdent,
bús. í Reykjavík
Foreldrar Söru Daggar eru Svan-
hildur Sigurðardóttir, f. 7.12. 1953 og
Tómas Sigurgeirsson, f. 7.7. 1956,
uppeldisfaðir Söru. Svanhildur og
Tómas eru bændur á Reykhólum í
Reykhólasveit.
Úr frændgarði Söru Daggar Svanhildardóttur
Sara Dögg
Svanhildardóttir
Tómas Sigurgeirsson
b. og bréfhirðir á Reykhólum
Steinunn Hjálmarsdóttir
húsfr. í Miðhúsum og á
Reykhólum í Reykhólasveit
Sigurgeir Tómasson
bóndi á Mávavatni á Reykhólum
Dísa Ragnheiður Magnúsdóttir
ljósmóðir á Mávavatni
Tómas Sigurgeirsson
bóndi á Reykhólum
Ingibjörg Pálsdóttir
húsfreyja í Reykhólasveit
Magnús Sigurðsson
b. í Hólum í Reykhólasveit
Ólafur Einar Bjarnleifsson
skósmiður í Reykjavík
Brandís Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurður Ólafsson
járnsmiður í Kópavogi
Ísafold Guðmundsdóttir
starfskona Landspítalans
Svanhildur Sigurðardóttir
bóndi og forstýra
Sjávarsmiðjunnar á Reykhólum
Sigrún Jónasdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Gíslason
skósmiður í Reykjavík
Fjölskyldan Skotta og Bylgja.
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón