Morgunblaðið - 26.07.2013, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki ákveðna persónu vera í
óvissu með hvaða tilfinningar þú berð til
hennar. Komdu skipulagningu og reglu á
hlutina hjá þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert frábær sögumaður og ferð vel
með ljóð. Daður hefur aldrei reynst þér jafn
auðvelt. Ef ásetningur þinn er göfugur
færðu smá innspýtingu frá viðkomandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér veitist erfitt að sinna starfi
þínu af kostgæfni núna. Þú færð athygli án
þess að kalla sérstaklega eftir henni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að mynda stuðningshóp til
þess að hrinda í framkvæmd þeim áætl-
unum sem þú hefur um störf í þágu sam-
félagsins. Misskilningur er allsráðandi í
samskiptum ykkar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekkert að setja upp hunds-
haus þótt ekki séu allir sammála því sem
þú segir. Einhver reynir að ráðskast með
þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er komið að því að taka ákvörðun
svo þú verður að taka af skarið. Láttu ekk-
ert trufla þig á meðan því þá muntu verða
sáttur við útkomuna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert kannski ekki að leita að nýjum
verkefnum, en þau þefa þig uppi. Treystu
öðrum til að vinna störf þín í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er stutt í einhvern stór-
atburð sem þú þarft að vera reiðubúinn fyr-
ir. Gakktu um og ritaðu niður allt sem betur
má fara í íbúðinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Foreldrar eru skilningsríkir í
garð barna sinna en eitthvað er ekki eins
og það á að vera. Mundu að afbrýðisemi er
eyðileggjandi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér bjóðast að öllum líkindum
óvænt tækifæri til ferðalaga og framhalds-
menntunar þessa dagana. Ekki láta gab-
bast af tilfinningauppnámi eða sorglegri
sögu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert sjálfum þér nógur og leit-
ar lítt til annarra með þín mál. Reynslan
segir þér eitt, en Pollýannan innra með þér
segir annað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú vilt koma umbótum til leiðar í
vinnunni í dag. Kannski verðu fé til góð-
gerðarmála eða kaupir listaverk af trúar-
legum toga.
Ég var að taka til í bókaskápnumog rakst þá á Ársrit hins ís-
lenska fræðafélags í Kaupmanna-
höfn og opnaðist þar sem þessar lín-
ur stóðu:
Góður vinur er gulli betri
aumur er sá sem aldrei berst
Í því sama riti var skemmtileg og
fróðleg grein eftir Boga Th. Melsted
um Jón Þórðarson Thoroddsen:
„Ekki vissu skólabræður Jóns
Thoroddsens til þess, að hann fengist
við skáldskap eða yrti vísur eða kvæði
meðan hann var í skóla, en þó hafði
hann snemma borið við að yrkja, það
sýnir vísa um Barmahlíð hjá Reykhól-
um, sem hann orti 13 vetra:
Brekkufríð er Barmahlíð
blómum víða sprottin,
fræðir lýði fyrr og síð:
fallega smíðar drottinn.
Og ári síðar orti hann:
Til bókar er ég lítt lagaður,
lengi sit ei að;
ætli það verði úr mér maður?
– ekki held ég það.
1848 lentu Danir í ófriði við Þjóð-
verja út af hertogadæmunum, en
urðu að láta undan síga, eftir að
Prússar komu til hjálpar með ofurefli
liðs. Jón Thoroddsen gerðist sjálf-
boðaliði í liði Dana 19. apríl 1848, en
fékk lausn úr herþjónustu haustið
1849. – „Seinna bar það við í sam-
kvæmi Íslendinga í Höfn að Grímur
Thomsen, sem alþekktur var fyrir
glettur sínar og stríðni, skopaðist að
því við Jón Thoroddsen, að hann, eftir
bardagann við Slesvík hefði flúið með
Dönum yfir á Als. Þá orti Sveinbjörn
Egilsson, sem var viðstaddur, stöku
þá, sem stendur í kvæðabók hans:
Sá hefur brandi brytjað öld
bifað landi málma,
borið á sandi skarðan skjöld,
skotið grandi hjálma.
En Jón Thoroddsen kvað:
Þá í geira gný ég var
Grímur sat í holu,
hnipraði sig hetjan þar
og horfði undan golu
Við burtför Gríms frá Kaup-
mannahöfn orti Jón:
Heilum varpi héðan þér
hryssan Ránar löðurbarða,
en hvort kemur aftur, mér
ekki Grímur! þykir miklu varða.
Það var betra að gæta sín þar sem
Jón var. Björn í Lundi þótti mikill fyr-
ir sér og hafði hvefsað skáldið í orð-
um og átti þetta að hafa verið 1841:
Sagði guð við söfnuðinn
sem í heimi undi:
„Allt er gott nema andskotinn
og hann Björn í Lundi.
Halldór Blöndal
halldorblodnal@simnet.is
Vísnahorn
Af Jóni Thoroddsen
og Grími Thomsen
Í klípu
ÞAÐ VAR ERFITT AÐ SAKFELLA
SÁPUKÚLUMANNINN.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HEFUR EINHVER AF YKKUR ÞRÆLUNUM
SÉÐ SAMLOKURNAR MÍNAR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... full af góðum
ásetningi.
HVAÐ ER AÐ
HRÓLFUR?
VIÐ ERUM AÐ VERÐA BÚNIR MEÐ
MATINN OG ÉG ÓTTAST AÐ MENN-
IRNIR FÁI EKKI NÓG AÐ BORÐA!
NÚ, ÞÚ GETUR
EKKI ÁFELLST
ÞÁ …
… ÞEIR HAFA EKKI EINU
SINNI FENGIÐ
EFTIRRÉTT Í MÁNUÐ!
HVER ÆTLAR AÐ
SEGJA ÞAÐ FYRST?
OKEI, ÉG LÝSI
YFIR JAFNTEFLI!
ÞIÐ ELSKIÐ
MIG BÆÐI!
SÆ
LKER
VEITING
ÞÚ ERT AÐ BLEKKJA. STAÐREYNDIN
ER AÐ ÞAÐ VORU ENGAR ÁÞREIFAN-
LEGAR SANNANIR Á VETTVANGINUM
SEM VAR HÆGT AÐ
REKJA TIL MÍN.
Víkverji hefur gaman af bolta-leikjum, sérstaklega þar sem
fæturnir eru notaðir til að stjórna
knettinum. Ekki fyrir löngu birtist á
íslenskri vefsíðu, sem er tileinkuð
knattsparki, grein þar sem vísað er í
breska rannsókn á áhrifum knatt-
spyrnu á okkur mannfólkið. Rann-
sóknin leiddi í ljós að allt að 23 millj-
ónir Breta þjást af því sem kallað er
„fótboltaleysisröskun“ í sumar. En
eins og öllum er kunnugt er enski
boltinn og stærstu deildir Evrópu í
fríi yfir sumarmánuðina. Umrætt
röskun er sögð herja misjafnlega á
fólk en einkennin eru sögð geta verið
pirringur, skapsveiflur, eirðarleysi,
leiðindi og jafnvel minni kynhvöt.
x x x
Jafn vitlausar og áðurnefndar lýs-ingar hljóma þá kannast Víkverji
við að þekkja sparksjúklinga sem
raunverulega þjást á sumrin vegna
skorts á enska boltanum. Þó er óvíst
að umræddur skortur hafi áhrif á
andlega eða félagslega vellíðan áð-
urnefndra sparkfíkla. Í umfjöllun
Sky-sjónvarpsstöðvarinnar, sem var
reyndar í léttari kantinum, fylgdi
með að fótboltafíklar gætu horft á
undirbúningsleiki ensku liðanna en
þau eru í óðaönn að spila sig í form
fyrir komandi tímabil.
x x x
Verði vandamálið raunverulegt fyr-ir breska heilbrigðiskerfið þyrfti
einhver að benda yfirvöldum á að ís-
lenska knattspyrnan virðist í stór-
sókn þessa dagana. Þó aðdáendur
enska boltans hér á landi býsnist
margir hverjir yfir gæðum á Pepsi-
deildinni hér heima þá hefur spennan
sjaldnast verið meiri í deildinni. Hér-
lendum niðurrifsseggjum er gera lít-
ið úr gæðunum er bent á árangur ís-
lensku liðanna í Evrópukeppninni,
Blikarnir slógu út Austurríkismenn í
gær, lið sem hefur verið áberandi í
Evrópukeppni undanfarin ár. Þá
slógu FH-ingar litháensku meist-
arana út í undankeppni hinnar heil-
ögu Meistaradeildar.
Hér með er breskum heilbrigðis-
yfirvöldum bent á að lausnin fyrir
þarlend fórnarlömb „fótboltaleys-
isröskunar“ getur falist í að senda
þau hingað yfir sumartímann.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Innan skamms mun heimurinn ekki
sjá mig framar. Þér munuð sjá mig
því ég lifi og þér munuð lifa.
(Jóhannesarguðspjall 14:19)
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Sykur
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
100%
NÁTTÚRUL
EG
T
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar?
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnum magann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn