Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
BLÁTT Spírulína
gefur jafna
orku
sem endist
Aukið streituþol og bætir einbeitingu. Nærir taugakerfið.
Frábær meðmæli við athyglisbrest og eirðarleysi.
Fyrir þá sem eru undir miklu líkamlegu eða andlegu álagi.
Inniheldur lifræna næringu samtals 29 vítamín og steinefni, aminosýrur og
50% meira af Phycocyanin en annað Spírulína. Rannsóknir hafa sýnt að það
eflir ónæmiskerfið og styður getu tauga og líkama til þess að starfa eðlilega
þrátt fyrir streituálag. Phycocyanin er kallað undrasameindin sem eykur
virkni mikilvægra ensíma. Eingöngu ræktuð næringaefni, ekkert GMO.
Gæðastaðall: ISO 14001, ISO 22000.
Útsölustaðir: Lyfja, Hagkaup, Krónan,
Heilsuhúsið, Fjarðarkaup og Græn heilsa.
Hrein orka og einbeiting
BETRI FRAMMISTAÐA,
LENGRA ÚTHALD
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
K Tríó gaf nýlega út plötuna Meat-
ball Evening en þetta er þriðja
plata tríósins. Á plötunni er frum-
samið efni eftir Kristján Martins-
son píanóleikara, sem stofnaði tríó-
ið árið 2008 en þá gaf það út sína
fyrstu plötu samnefnda tríóinu.
Önnur plata tríósins kom út árið
2010 og heitir Rekaviður. Á fyrstu
tveimur plötunum skipuðu K Tríóið
þeir Pétur Sigurðsson bassaleikari
og Magnús
Trygvason Elias-
sen trommuleik-
ari ásamt Krist-
jáni en á nýju
plötunni hefur
þeim Pétri og
Magnúsi verið
skipt út fyrir Bretann Pat Cleaver
og Lettann Andris Buikis. „Ég
flutti til Hollands til frekara fram-
haldsnáms í tónlist árið 2009 og
síðan þá hefur verið erfitt og mjög
kostnaðarsamt að spila mikið með
Magnúsi og Pétri sem eru báðir af-
ar uppteknir og eftirsóttir tónlist-
armenn á Íslandi,“ segir Kristján
en hann stundar framhaldsnám við
Conservatorium van Amsterdam í
Hollandi. „Í Amsterdam hitti ég
Pat Cleaver, breskan bassaleikara
sem hefur verið búsettur í Frakk-
landi og Belgíu nánast alla sína
ævi, og Andris Buikis, trommuleik-
ara frá Lettlandi. Eiginlega frá
fyrstu tónum sem spilaðir voru
varð ég sannfærður um að þetta
væru réttu mennirnir til að vinna
að þessu verkefni með mér,“ segir
Kristján og bendir á að Buikis hafi
verið einn eftirsóttasti trommari í
Lettalandi áður en hann fluttist til
Amsterdam þar sem hann er einn-
ig mjög eftirsóttur enda að sögn
Kristjáns frábær trommuleikari.
Djass og rokkstjörnutaktar
Kristján hefur komið fram á
fjölda djasshátíða um alla Evrópu
og hlaut fyrstu verðlaun í keppni
ungra norrænna djasstónlistar-
manna vorið 2008. Tónlistina sína
segir hann vera fágaðan djass með
óútreiknanlegum rokkstjörnutökt-
um. „Tónlistin mín er afar blæ-
brigðarík og lifandi að mínu mati
en breytist auðvitað eitthvað frá
eldri plötunum. Á nýju plötunni
eru eðlilega breytingar enda með
aðra meðleikara en á fyrstu tveim-
ur plötunum og það breytir tónlist-
inni töluvert. Grunnorka tónlistar-
innar er þó sú sama og á fyrri
plötum.“
Öll lög plötunnar eru samin af
Kristjáni og segir hann það fara
mikið eftir laginu hvernig það verði
til og hversu langan tíma það tekur
hann að koma laginu niður á blað.
„Sum lög verða til á mjög skömm-
um tíma en þá skýtur þeim upp í
kollinum á mér og ég er búinn að
setja þau niður á blað á innan við
fimm mínútum. Önnur geta verið
að þvælast fyrir mér lengur og
sitja á skrifborðinu hjá mér mán-
uðum saman ókláruð. Það má líkja
ferlinum við fornleifagröft. Ég finn
fyrst einn part og mögulega þann
næsta eftir 4 mánuði eða jafnvel
aldrei, meðan aðrir koma upp í
heilu lagi.“
Djasstónlistin og næstu verk
Margt er á döfinni hjá Kristjáni
þessa dagana en hann segir vinnu
við næstu plötu sína þegar hafna.
„Ég fann töflu með gömlu vindstig-
unum og öllum 13 íslensku orð-
unum sem lýsa vindhraða. Þessi
orð veittu mér innblástur til að
byrja að vinna að nýrri tvöfaldri
plötu sem hefur vinnuheitið „13
vindstig í Berlín og París“ sem
inniheldur 13 lög á hvorri hlið. Eitt
lag fyrir hvert vindstig í hverri
borg,“ segir Kirstján sem hefur
verið búsettur í Berlín síðasta hálft
ár og verður búsettur í París
næsta hálfa ár þar sem hann mun
stunda EU-mastersnám í píanóleik.
Engin tímasetning er komin á
útgáfudag næstu plötu enda
skammt komin sem stendur. Þó má
gera ráð fyrir að platan verði í
djassdúr líkt og fyrri plötur Krist-
jáns.
Blæbrigðarík og lifandi tónlist
Meatball Evening nefnist nýútkomin plata K Tríósins Píanóleikarinn Kristján Martinsson semur
lög plötunnar en tónlistarmennirnir Pat Cleaver og Andris Buikis leika með honum á henni
Hlómsveitin Kristján Martinsson píanóleikara ásamt bassaleikaranum Pat Cleaver og trommuleikaranum Andris Buikis á sviði í Amsterdam.
Djass K Tríó spilar léttan og blæbrigðaríkan djass á nýju plötunni sinni.
Bók um Jón lærða Guðmundsson,
1574-1658, er nýkomin út hjá Hinu
íslenska bókmenntafélagi og ber
heitið Í spor Jóns lærða. Þar rekja
tólf höfundar spor Jóns lærða sem
er talinn einn sérstæðasti Íslend-
ingur á siðskiptaöld. Þrátt fyrir of-
sóknir og útlegðardóma skilaði
hann ótrúlegu ævistarfi og var í
senn listamaður, skáld, nátt-
úrufræðingur og þjóðfræðingur.
Bókin er prýdd fjölda mynda og
uppdrátta, m.a. af söguslóðum
Jóns lærða, af handritum og teikn-
ingum eftir hann, svo og af út-
skurði sem honum er eignaður.
Um þróun hvalveiða í norður-
höfum og Spánverjavígin á Vest-
fjörðum 1615 er fjallað í sér-
stökum kafla, en senn eru 400 ár
liðin frá þeim fáheyrða atburði.
Úrval ljóða, sumra áður óbirtra,
og þjóðsagnaefni úr fórum Jóns
lærða ætti að koma lesendum á
óvart.
Bókinni fylgir einnig hljóm-
diskur sem á eru viðtöl Berglindar
Häsler um ævi Jóns lærða, Sig-
ursveinn Magnússon og Sigrún V.
Gestsdóttir syngja og leika á forn
hljóðfæri, Sævar Sigbjarnarson les
ljóð, Sjón flytur kafla úr erindi um
skáldsöguna Rökkurbýsnir og loks
eru brot úr leikritinu Sönn frásaga
eftir Ásdísi Thoroddsen. Hönnun
bókarinnar var í höndum Sigrún
Sigvaldadóttir, sem hannaði kápu
og annan umbúnað.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bókmenntir Hjörleifur Guttormsson ritstýrði bókinni um Jón lærða en alls
komu tólf höfundar að verkinu, þar á meðal rithöfundurinn Sjón.
Ótrúlegt ævistarf
Jóns lærða