Morgunblaðið - 26.07.2013, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
AF TÓNLEIKUM
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
Fátt getur skákað ljúfri tón-list í bland við sólargeisla ábjörtu sumarkvöldi í
Reykjavík, en slík var stemningin
á tónleikum Sin Fang og Amiinu í
Fríkirkjunni í Reykjavík á mið-
vikudagskvöldið.
Sólargeislar teygðu sig inn
um glugga Fríkirkjunnar og hafði
Sindri Már Sigfússon, söngvari Sin
Fang, orð á því að þetta væri lík-
lega eina tækifærið sem gæfist til
þess að réttlæta notkun sólgler-
augna á tónleikum.
Berfættir tónleikagestir
Andrúmsloftið var afar af-
slappað og í hléi mátti sjá tónleika-
gesti viðra sig berfætta við
Tjörnina og stíga léttan dans á
gangstéttarbrúninni. Gestirnir
voru á öllum aldri, en sá yngsti var
líklega ungbarnið sem ýmist fylgd-
ist með af forvitni eða hallaði ró-
lega aftur augunum. Ferðamenn
virtust þá vera í töluverðum meiri-
hluta en það var hvað greinilegast
þegar Magnús Tryggvason Elias-
sen, trommuleikari hljómsveit-
anna beggja, bað þá sem ekki
kynnu íslensku að rétta upp hönd.
Dáleiðandi og
dreymin tónlist
Amiina sló tónleikana í gang
með angurværum tónum, en lög
hljómsveitarinnar falla á einhvern
hátt einstaklega vel að umhverfinu
í Fríkirkjunni. Lögin byrja oftast
með fremur rólegum hætti en ná
svo flugi þegar á líður og allir
hljóðfæraleikarar eru farnir að
þenja sig. Tónlistina má næstum
kalla dáleiðandi, en hún nær að
kalla fram dreymnar tilfinningar
og vekur löngun til þess að loka
augunum og láta hugann reika.
Hugmyndaríkar útsetningar
Eftir hlé steig Sin Fang á svið
og reif tónleikagesti úr hugleiðslu-
ástandinu. Lög hljómsveitarinnar
eru afar hugmyndarík og koma oft
á óvart með sérstökum tónum á
óvæntum stöðum. Raddsvið Sindra
er mjög vítt og skemmtilegt er
hvernig hann leikur sér að mis-
munandi raddútsetningum.
Botninn var sleginn í tón-
leikana með tveimur lögum sem
notið hafa hvað mestra vinsælda,
„Young Boys“ og „What’s wrong
with your eyes?“ „Young Boys“ er
raddað á hrikalega skemmtilegan
hátt og er afar grípandi og
fjörugt. Eitt af þessum lögum sem
fá mann til að vilja standa upp og
syngja með. Lokalögin skildu því
áhorfendur eftir í miklu stuði og
virtust flestir ganga út með stórt
bros á vör og nýkeypta plötu í
hendi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Amiina Lög hljómsveitarinnar byrja gjarnan á rólegum nótum en magnast og takast á loft þegar á líður.
Berfættir gestir og
dáleiðandi tónlist
Gestir Handboltahetjan Ólafur Stefánsson var meðal tónleikagesta.
Sin Fang Sindri leikur sér að mismunandi raddútsetningum í lögum hljómsveitarinnar Sin Fang.
Helgar
Alvöru
Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch
brunch
Steikt beikon
Spælt egg
Steiktar pylsur
Pönnukaka með sírópi
Grillaður tómatur
Kartöfluteningar
Ristað brauð
Ostur
Marmelaði
Ávextir
kr. 1740,- pr. mann
Barnabrunch á kr. 870
Ávaxtasafi og kaffi eð
a te fylgir.
H
ug
sa
sé
r!
H
ug
sa
sé
r!
Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu
Phone + 354 527 5000 www.grillhusid.is
Ótrúlega gómsæt byrjun
á góðum degi!
Alla laugardaga og su
nnudaga
frá kl. 11.30 til kl. 14
.30
Sýning myndlistarmannanna Ragn-
heiðar Gestsdóttur og Curvers
Thoroddsen, Fölblár punktur, verð-
ur opnuð í dag kl. 17 í Skaftfelli -
bókabúð, sýningarrými Skaftfells á
Seyðisfirði, miðstöð myndlistar á
Austurlandi. Ragnheiður og Curver
hafa dvalið í vinnustofum Skaftfells
nú í júlí og er sýningin samstarfs-
verkefni þeirra, afrakstur vinnu og
tilrauna. „Niðurstaðan er til-
raunakennd innsetning sem kannar
bæði óravíddir heimsins og tilbreyt-
ingarlausan hversdagsleikann á
sama tíma,“ segja þau um sýninguna
en þau vinna í ýmsa miðla, m.a.
skúlptúr, myndband og hljóð. Sýn-
ingin í Skaftfelli verður opin yfir
helgina, 27.-28. júlí, kl. 14-17.
Ragnheiður og Curver hafa sýnt
saman áður, í New York en vinna nú
saman myndlistarverk í fyrsta sinn.
Þau unnu hins vegar saman við gerð
tilraunakvikmyndarinnar Eins og
við værum og var hún byggð á sex
mánaða löngum gjörningi Ragnars
Kjartanssonar á Feneyjatvíær-
ingnum.
Um verk Ragnheiðar almennt
segir í tilkynningu að þau sam-
anstandi af innsetningu og vídeó-
verkum, í þeim kanni hún takmörk
og möguleika þeirra kerfa sem mað-
urinn hafi búið sér til í því skyni að
skilja veruleikann og það tungumál
sem hann noti til þess að tjá þessi
kerfi. Curver Thoroddsen hefur
komið víða við í listsköpun en hann
er liðsmaður hljómsveitarinnar
Ghostigital. Í myndlistinni notast
hann við blandaða miðla, m.a. gjörn-
inga, myndbandsverk, innsetningar
og venslalist til að kanna hugmyndir
um sjálfið, dægurmenningu og sam-
félagið, eins og því er lýst í tilkynn-
ingu.
Könnun Ragnheiður og Curver bjóða upp á tilraunakennda innsetningu
sem kannar óravíddir heimsins og tilbreytingarlausan hversdagsleikann.
Fölblár punktur
Ragnheiður Gestsdóttir og Curver
Thoroddsen sýna saman í Skaftfelli