Morgunblaðið - 26.07.2013, Qupperneq 32
AF FRÆGUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Allt ætlaði um koll að keyra íbyrjun mánaðar þegarfréttist af því að leikarinn
og hjartaknúsarinn Ryan Gosling
væri kominn til landsins í þeim er-
indagjörðum að klippa væntanlega
kvikmynd sína, How To Catch A
Monster, þá fyrstu sem hann leik-
stýrir, með Valdísi okkar Ósk-
arsdóttur. Fjölmiðlar tóku að herja
á íslenska fylgdarmenn Goslings
(skv. áreiðanlegum heimildum þess
er hér ritar) um viðtöl við kauða en
án árangurs.
Það þurfti þó ekki að bíða
frétta lengi af sjarmörnum því
þann 10. júlí birtust fréttir af því á
vefmiðlum íslenskum að hann hefði
lent í árekstri á Sæbraut. Skömmu
síðar kom í ljós að það var alls ekki
Gosling sem lenti í árekstrinum
heldur einhver Júlíus sem á víst að
vera mjög líkur kvikmyndastjörn-
unni. Myndir af Júlíusi leiddu hins
vegar í ljós að hann er ekkert sér-
staklega líkur Gosling, nema
kannski þegar hann setur upp sól-
gleraugu.
Og í Gosling-gúrkunni tókufjölmiðlar heldur betur við sér
og fóru að grafa upp aðra tvífara
stjörnunnar sem reyndust ekki
heldur vera svo miklir tvífarar. Þá
var birt „frétt“ af því að Gosling
hefði farið í Bláa lónið en þangað
fór hann víst aldrei og ekki víst að
hann fari yfirleitt. Sá sem hér skrif-
ar frétti svo af því að Gosling hefði
nánast hlaupið niður blásaklausan
hárgreiðslumann skammt frá Selja-
vegi (en á þeirri götu sást hann
setja eitthvert dót í skottið á jeppa)
en þess má geta að leikarinn er
hreystimenni mikið með þvotta-
bretti og tilheyrandi, kvenfólki því
til augnayndis sem dáðst hefur að
honum á hvíta tjaldinu. Líklega var
það þó bara Júlíus sem reyndist svo
sprettharður og óvarkár. Gosling
var eflaust að tálga þvottabrettið í
Mjölni þegar tvífarinn meinti brun-
aði um götur miðbæjarins eins og
enginn væri morgundagurinn.
Það ærir óstöðugan aðfrægðarmenni séu hér í borg
án þess að gefa færi á sér, veita við-
töl, eiginhandaráritanir á pappír og
líkamsparta og stilla sér upp fyrir
myndatökur með þeim sem þess
óska. Þannig gerði Tom nokkur
Cruise nær útaf við aðdáendur sína
með því að þvælast um landið í
þyrlu, klifra í klettum og snæða á
veitingastöðum án þess að láta ís-
lenska fjölmiðla vita af því. Russell
Crowe var þó öllu alþýðlegri, enda
Nýsjálendingur, hélt meira að segja
óvænt tónleika á Hverfisgötunni!
Og nú er Ryan Gosling bara að
þvælast eitthvað í Reykjavík, fjöl-
miðlum til mikillar skelfingar.
„Hvar er Gosling?!“ hrópa fjöl-
miðlamenn í öngum sínum, leik-
arinn að renna þeim úr greipum
með hverjum deginum sem líður.
Jú, Gosling er væntanlega bara í
vinnunni, eins og ekkert sé sjálf-
sagðara. Sjarmatröllið sem heillaði
marga meyna í rómantísku ræm-
unni The Notebook, hörkutólið úr
Drive, hann situr líklega í myrku
klippiherbergi með henni Valdísi
og drekkur kaffi úr sjálfsala. Af því
hann er bara ósköp venjulegur 32
ára, 185 cm hár Kanadamaður sem
þarf að vinna eins og við hin, þó
betra væri að liggja í sólbaði í Naut-
hólsvík. Gosling, ef þú ert að lesa
þetta, endilega sláðu á þráðinn!
Hefur þú séð Ryan Gosling?
AFP
Sjarmörinn Ryan Gosling (t.v.) með danska leikstjóranum Nicolas Winding Refn á frumsýningu kvikmyndarinnar Drive í Cannes árið 2011.
Rómantík Gosling faðmar hýra mey, Rachel McAdams, í The Notebook.
»Myndir af Júlíusileiddu hins vegar í
ljós að hann er ekkert
sérstaklega líkur Gosl-
ing, nema kannski þeg-
ar hann setur upp sól-
gleraugu.
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá Reyni bakara
Bandaríski rapparinn Jay Z tók
upp á því 10. júlí sl. að flytja eitt
laga sinna, „Picasso Baby“, samfellt
í sex klukkustundir í galleríinu
Pace í New York. Er engu líkara en
Jay Z hafi með þessu verið að stæla
myndlistarmanninn Ragnar Kjart-
ansson og gjörninga hans sem
margir hverjir ganga út á að endur-
taka sama lagið eða laglínuna í sí-
fellu svo klukkustundum skiptir,
jafnvel dögum eða vikum. Má þá
sérstaklega nefna gjörning Ragnars
í listasafninu MoMA í New York, 5.
maí sl., þar sem hann fékk hljóm-
sveitina The National til að leika
lag hennar „Sorrow“ samfleytt í sex
klukkustundir, þ.e. jafnlengi og Jay
Z flutti sitt lag.
Á vefnum Complex.com er fjallað
sérstaklega um þessi líkindi með
gjörningum
Ragnars og Jay
Z, vísað í viðtal
sem tímaritið Art
Info tók við
Ragnar og birti í
fyrradag. Í því
spyr blaðamaður
Ragnar hvort
hann hafi frétt af
gjörningi Jay Z
og bendir á að
margir hafi líkt
honum við gjörning Ragnars og
The National. Ragnar svarar því til
að hann hafi verið virkilega ánægð-
ur með uppátækið, að Jay Z væri
að stæla sig eða stela frá sér. „Þú
getur ekki ímyndað þér hvað ég er
stoltur,“ segir Ragnar í viðtalinu
sem finna má á blouinartinfo.com.
AFP
Stæling Jay Z virðist vera hrifinn af listsköpun Ragnars Kjartanssonar.
Ragnar
Kjartansson
Ragnar stoltur
af stælingu Jay Z