Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Hljómsveitin Ophidian I heldur brátt til Þýskalands þar sem hún mun leika
á þungarokkshátíðinni Wacken Open Air og keppa fyrir Íslands hönd í
þungarokkshljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle. Hljómsveitin mun
í kvöld halda tónleika á Bar 11, hita sig upp fyrir Wacken. Blood Feud leik-
ur á undan henni og hefjast tónleikarnir kl. 23. Annað kvöld er það svo
hljómsveitin Chinese Joplin sem treður upp á staðnum og hefjast tónleikar
hennar kl. 22. Aðgangur er ókeypis bæði kvöldin.
Wacken-farar Ophidian I fór með sigur af hólmi í Wacken-keppninni á Íslandi.
Ophidian I hitar upp fyrir Wacken
Og enn segir af Íslandsvininum
Ryan Gosling (sjá síðuna á móti) því
nú berast fréttir af því að hann
komi til greina í hlutverk sonar
Loga geimgengils í sjöundu
Stjörnustríðs-myndinni, Star Wars:
Episode VII. Þá er kollegi hans, Zac
Efron, einnig sagður koma til
greina í hlutverk í myndinni. Báðir
munu hafa sótt fundi hjá fyrirtæk-
inu Lucasfilm sem á réttinn að
Stjörnustríði en ekki er ljóst hvaða
hlutverk stendur Efron til boða. Í
frétt á vef NME segir að heyrst hafi
að leikarinn Leonardo DiCaprio
hafi hafnað hlutverki í myndinni
eftir að hafa rætt við ráðamenn hjá
Lucasfilm.
AFP
Stjörnustríðsmaður? Leikarinn Zac
Efron er rísandi stjarna í Hollywood.
Efron eða Gosling í
Stjörnustríði?
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tónlistarhátíðin Bræðslan verður
um helgina en um er að ræða tón-
leika sem verða í gömlu Bræðsl-
unni á Borgarfirði eystri. Gífurleg
aðsókn hefur verið á hátíðina sem
haldin er í níunda sinn en hún fór
fyrst fram árið 2005. „Miðar á tón-
leikana í Bræðslunni seldust upp á
tveimur dögum þegar við opnuðum
fyrir sölu á miðum í maí,“ segir
Áskell Heiðar Ásgeirsson, einn að-
standenda hátíðarinnar og
bræðslustjóri.
Einungis eru seldir 850 miðar á
tónleikana sem fara fram á laug-
ardaginn og segir Áskell þennan
takmarkaða fjölda vera vegna þess
að bæði húsnæðið sjálft taki ekki
meiri fjölda og bærinn geti ekki
þjónustað mikið fjölmennari hóp.
„Hér búa einungis 150 manns yfir
allt árið og það er því takmarkað
hvað við getum tekið við mörgum
hingað og þjónustað með góðu
móti.“
Viðburðir í kringum hátíðina
Bræðslutónleikarnir fara fram á
morgun og eru ekki aðrir skipu-
lagðir viðburðir á vegum Bræðsl-
unnar. Á tónleikunum koma m.a.
fram Ásgeir Trausti, John Grant,
Mannakorn og Bjartmar. Þrátt
fyrir að aðrir viðburðir séu ekki
skipulagðir af Bræðslunni segir
Áskell að ýmsir viðburðir verði á
svæðinu yfir helgina en það verði
þá eitthvað sem skipulagt er af
heimamönnum og öðrum áhuga-
sömum sem vilja standa fyrir
skemmtilegum uppákomum eða
viðburðum. „Tjaldstæðið verður
fullt og bærinn iðar af lífi yfir
helgina og fólk mun skemmta sér
og öðrum hérna í þessu frábæra
umhverfi. Síðan hafa verið settar
upp tískusýningar hérna þegar
Bræðslan fer fram og útimarkaður
af heimamönnum.“
Seldist upp á Bræðsluna
á tveimur dögum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónleikar Úrval tónlistarmanna mun koma fram á Bræðslutónleikunum á
morgun en meðal þeirra sem stíga á svið verður Ásgeir Trausti.
Mannakorn er meðal þeirra sem spila á Bræðslunni
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
GAMBIT KL.6-8-10:10
PACIFICRIM KL.2D:2 3D:5:15-8-10:45
PACIFICRIMVIP2D KL.2-5:15-8
MONSTERSUNIVERSITY ÍSLTAL3D KL.1:20-3:20
MONSTERSUNIVERSITY ÍSLTAL2D KL.1-2-3:20-5:40
MONSTERSUNIVERSITY ENSTAL2D KL.1-3:20-5:40-8-10:20
WORLDWARZ2D KL.5:30-8-10:30
WORLDWARZVIP KL.10:45
THELONERANGER KL.8
MANOFSTEEL2D KL.10:50
KRINGLUNNI
GAMBIT KL. 6:20 - 8:20 - 10:20
PACIFIC RIM 2D KL. 8 - 10:45
MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 3:20 - 4 - 5:40
MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL2D KL. 3:20
MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL3D KL. 5:40 ÓTEXTUÐ
WORLD WAR Z 2D KL. 10
THE BIG WEDDING KL. 8
THE WOLVERINE 3D KL. 3 - 5:20 - 8 - 10:40
PACIFIC RIM KL. 2D:5:15 3D:8 - 10:45
MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 3 - 5:40
MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL2D KL. 2:30
MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL2D KL. 8
WORLD WAR Z 2D KL. 8 - 10:30
THE LONE RANGER KL. 5 - 10:20
NÚMERUÐ SÆTI
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
AKUREYRI
GAMBIT KL. 8
PACIFIC RIM 3D KL. 8
MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 5:40
MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL2D KL. 5:40
WORLD WAR Z 3D KL. 10:45
THE LONE RANGER KL. 10
KEFLAVÍK
THEWOLVERINE3D KL.8-10:40
GAMBIT KL.5:50-8
PACIFICRIM2D KL.10
MONSTERSUNIVERSITY ÍSLTAL3D KL.5:40
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 2D OG 3D
10
12
12
Roger Ebert
Empire
Entertainment
Weekly
Stórkostleg teiknimynd frá snillingunum hjá
Disney/Pixar - Sýnd með íslensku í 2D og 3D
Í STÆRSTU ORUSTU ÆVINNAR
BERST HANN FYRIR SÍNU EIGIN LÍFI
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
L
GROWN UPS 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10:30
THE WOLVERINE 3D Sýnd kl. 8 - 10:10 (P)
R.I.P.D. 3D Sýnd kl. 8 - 10
SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3D Sýnd kl. 3:50
SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 2D Sýnd kl. 3:50 - 6
THE HEAT Sýnd kl. 5:30