Morgunblaðið - 26.07.2013, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2013
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir mun
fagna útkomu fjórðu breiðskífu sinnar
með tónleikum í heimahögum, eins og
vanalega, og verða þeir að þessu sinni
haldnir í íþróttahöllinni á Húsavík. Um
plötuna nýju segja Ljótu hálfvitarnir
að hún sé með „húsvískasta móti“,
umbúðirnar prýði mynd byggð á alt-
aristöflunni í Húsavíkurkirkju með
hljómsveitarmeðlimum í hlutverkum
frelsarans, „nýrumskaðs Lazarurar og
furðulostinna lærisveina“. Á tónleik-
unum munu Ljótu hálfvitarnir flytja
plötuna í heild sinni auk laga af fyrri
plötum. Þá munu leynigestir slást í
hóp með hálfvitum sem stefna að því
að spila fallega. Tónleikarnir hefjast kl.
21, að lokinni setningarathöfn Mæru-
daga, bæjarhátíðar Húsvíkinga. Um
miðjan ágúst munu Ljótu hálfvitarnir
leika í Íslensku óperunni þannig að
þeir sem komast ekki til Húsavíkur í
dag þurfa ekki að örvænta.
Ljótir hálfvitar leika
á Mærudögum
Ný heimildar-
mynd um eldgosið
í Eyjafjallajökli ár-
ið 2010, Aska,
verður frumsýnd í
Iðnó í kvöld í loka-
hófi þeirra sem að
henni komu en
sýningin er aðeins
fyrir boðsgesti.
Höfundar myndarinnar eru Herbert
Sveinbjörnsson og Hildur Mar-
grétardóttir. Myndin hlaut fram-
leiðslustyrk úr Kvikmyndasjóði Ís-
lands í fyrra en það er fyrirtækið
Edison lifandi ljósmyndir sem fram-
leiðir hana. Eins og sjá má hér til hlið-
ar er veggspjald myndarinnar til-
komumikið, líkt og umfjöllunarefnið.
Heimildarmyndin
Aska sýnd í Iðnó
Eyjamenn féllu úr leik í forkeppni Evr-
ópudeildarinnar í knattspyrnu í gær-
kvöld þrátt fyrir hetjulega baráttu
gegn hinu fornfræga liði Rauðu
stjörnunnar. ÍBV tapaði einvíginu
samtals 2:0. Lið-
ið fékk víta-
spyrnu undir
lok leiks í
gær en
spyrna Gunn-
ars Más Guð-
munds-
sonar var
varin. »2
Eyjamenn úr leik eftir
hetjulega baráttu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ferð Áhafnarinnar á Húna II afl-
aði björgunarsveitunum alls tæp-
lega 24 milljóna króna. Miðasala á
hverjum stað rann til björgunar-
sveitarinnar á staðnum. Hljóm-
sveitin, aðstoðarfólk og áhöfnin á
Húna II gáfu öll vinnu sína. Sam-
starf við RÚV tryggði greiðslu út-
lagðs kostnaðar.
Það var Jón Þór Þorleifsson
sem átti hugmyndina að hljóm-
leikahringferð Húna II. Hann kom
fyrst um borð í bátinn fyrir einum
þremur árum í tengslum við gerð
auglýsingar. Hann hitti félaga í
Hollvinum Húna II, fór í siglingu
og hreifst af bátnum.
„Þetta sat lengi í mér og mig
langaði að gera eitthvað. Ég var
búinn að ræða við fullt af fólki
eins og vinkonu mína Önnu Svövu
Knútsdóttur leikkonu um hvort
við ættum að gera leikhús í Húna
II. Í Haglélstúrnum létum við
okkur dreyma um að fara jafnvel
næsta túr siglandi,“ sagði Jón Þór.
„Svo kom augnablikið í vetur þeg-
ar við Jónas Sigurðsson vorum að
keyra frá Höfn til Reykjavíkur.
Ég sagði Jónasi frá hugmyndinni
og þá fór allt í gang.“
„Titlaði mig túrpabba“
Þeir stilltu upp hljómsveit sem
varð Áhöfnin á Húna II. Haldinn
var fundur með Húnamönnum í
desember og þeir voru til í tuskið.
Eftir það fór undirbúningurinn á
fullt.
„Ég titlaði mig „túrpabba“.
Hlutverk mitt var að halda utan
um þetta frá A-Ö. Við vorum alltaf
20 um borð. Svo óku fjölskyldurn-
ar á milli hafna. Björgunarsveitir
á hverjum stað buðu okkur í
kvöldmat. Það var mjög gaman að
kynnast öllu þessu fólki og vinna
með því,“ sagði Jón Þór. Hann
segir það auka lífsgæði fólks úti á
landi að fá tónlistarfólk í heim-
sókn því það vilji verða útundan í
þeim efnum. Jón Þór sagðist hafa
sterkar taugar til landsbyggð-
arinnar og því lá vel við að sigla
hringinn.
„Við hefðum viljað stoppa víðar
en við gerðum, en það er ekki allt
hægt á skömmum tíma,“ sagði Jón
Þór. Hringferðin gekk vel og
Áhöfnin á Húna II slapp að mestu
við sjóveiki. Menn fundu aðeins til
fyrsta daginn og voru smá das-
aðir. Veðrið var stundum vont og
áætlunin raskaðist vegna brælu.
Í lok ferðarinnar hvatti Mugison
fólk til að senda Jóni Þór SMS til
að þakka honum frumkvæðið.
Honum bárust 17.106 SMS-skeyti
um síðustu helgi. Þau voru enn að
detta inn í símann hans í gær.
Tónlistin eykur lífsgæði fólks
Hugmyndin að
Áhöfninni á Húna
kviknaði í bíl
Ljósmynd/Matthías Árni Ingimarsson
17.106 SMS Jón Þór Þorleifsson, rokkstjóri og túrpabbi Áhafnarinnar á Húna II, fékk flóð af smáskilaboðum. Fólk
vildi með því þakka honum fyrir frumkvæðið að hringsiglingunni með tilheyrandi tónleikahaldi víða um landið.
Jón Þór Þorleifsson, „túrpabbi“ áhafn-
arinnar á Húna II, starfar dags daglega við
framleiðslu sjónvarpsauglýsinga.
Hann hefur verið rokkstjóri hátíðarinnar
Aldrei fór ég suður, sem haldin er á Ísa-
firði um páska, í þrjú ár og verið viðloð-
andi hátíðina frá því á öðru ári hennar.
Jón Þór vann Haglélsverkefnið með
Mugison og var „stóri bróðir“ hans í verk-
efninu sem sneri að plötunni Hagléli.
Jón Þór er mikill Ísfirðingur í sér en ekki innfæddur. Hann rekur ættir
sínar að hluta til Dýrafjarðar. Jón Þór á hlut í íbúð á Ísafirði og dvelur
mikið fyrir vestan. En borðar hann hnoðmör eins og sannur Ísfirðingur?
„Nei, mér finnst hann ógeð,“ sagði Jón Þór.
Túrpabbinn og rokkstjórinn
JÓN ÞÓR ÞORLEIFSSON HEFUR MÖRG JÁRN Í ELDINUM
Vélbáturinn
Húni II.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Sjómanns leitað
2. Játar að hafa verið á 190 km hraða
3. Magnús greiðir hæstu skattana
4. Leit að sjómanninum hætt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á laugardag Fremur hæg austlæg átt eða hafgola. Skýjað með
köflum og sums staðar síðdegisskúrir, en líkur á þokulofti við
ströndina, einkum austantil. Hiti 14 til 20 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri eða hafgola og yfirleitt léttskýjað
inn til landsins, en víða skýjað og þoka við ströndina. Léttir heldur
til nyrðra. Hiti víða 11-18 stig, en allt að 23 stigum í innsveitum.
VEÐUR
Breiðablik er komið í 3.
umferð forkeppni Evrópu-
deildar karla í knattspyrnu
eftir frækinn sigur á Sturm
Graz í Austurríki í gær, 1:0,
þar sem Ellert Hreinsson
skoraði sigurmarkið.
Breiðablik hefur nú haldið
marki sínu hreinu 4 Evr-
ópuleiki í röð. Blikar halda
til Asíuhluta Kasakstan í 3.
umferðinni þar sem þeir
mæta Aktobe hinn 1.
ágúst. »3
Blikar bókuðu
ferð til Asíu
Fyrsta keppnisdegi er lokið á Íslands-
mótinu í höggleik á Korpúlfsstöðum.
Morgunblaðið ræddi við þau Harald
Franklín Magnús og Guðrúnu Brá
Björgvinsdóttur sem eru með foryst-
una að loknum 18 holum af 72. Bæði
voru þau sallaróleg yfir stöðu mála
og voru ekki að kippa sér of mikið
upp við það þau þó séu efst eftir
fyrsta hring. »1
Forystusauðirnir tóku
stöðunni með ró
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á