Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
Maður vill hvorki skjóta nið-ur væntingar fólks néhugmyndir sem líta ágæt-
lega út á pappír en ég get með góðri
samvisku sagt að ég hafi búist við
meiru,“ segir Vilhjálmur Bjarnason
ekki fjárfestir, formaður Hagsmuna-
samtaka heimilanna, um hveiti-
brauðsdaga rík-
isstjórnarinnar.
„Það sem við hjá
hagsmunasamtök-
unum erum ósátt-
ust við er að ekki
skuli ennþá vera
búið að stöðva
nauðungarsölur og
gjaldþrot og stöðva
umboðsmann skuldara í að henda
fólki út af heimilum sínum, jafnvel út
af ólöglegum erlendum lánum. Það
gengur ekki. Embættið hefur ekki
virkað og leggja þarf það niður hið
fyrsta og koma fram með heildar-
úrræði fyrir skuldendur í staðinn.
Úrræði sem virka. Búið er að boða
aðgerðir, með þingsályktunartillögu
forsætisráðherra, sem eiga að gefa
fólki kost á því að sitja áfram í eign
sinni og verða ekki gjaldþrota. Það
gefur fólki vissulega von en það er
ekki nóg að leggja fram þingsálykt-
unartillögur, fylgja verður þeim eft-
ir,“ segir Vilhjálmur.
Skuldir ekki aðalvandinn
Hann segir heldur ekki mega
gleyma því að skuldir séu ekki að-
alvandi Íslendinga, heldur fram-
færsla. „Finna þarf út hvað það
kostar að lifa hófsömu, mannsæm-
andi lífi á Íslandi. Þegar búið er að
því er fyrst hægt að gera sér grein
fyrir því hver lágmarkslaun og -bæt-
ur eiga að vera.“
Forsvarsmenn samtakanna fund-
uðu með forsætisráðherra, fjár-
málaráðherra og fleiri ráðherrum í
vikunni. Skipst var á skoðunum og
segir Vilhjálmur fundinn hafa gefið
sér von. „Ég gat ekki heyrt betur en
ríkisstjórnin hefði ennþá áform um
að koma til móts við illa stödd heim-
ili í þessu landi en ég óttast að bákn-
ið standi þeim áformum fyrir þrif-
um. Hrista þarf upp í því.“
Að hans mati er það rót vandans.
„Af hverju er svona fyrir heimilum
landsins komið? Vegna þess að ein-
hver stóð ekki sína plikt í aðhaldi,
eftirliti, boði og bönnum. Neyt-
endalöggjöfin er í fínu lagi, það er
bara ekki farið eftir henni.“
Vindi ríkisstjórnin sér í það sem
hér hefur verið nefnt mun hún
kaupa sér frið næstu mánuðina, að
áliti Vilhjálms. „Geri hún það ekki
glatar hún trúverðugleika sínum.“
Morgunblaðið/Ernir
Bjóst við
meiru
Vilhjálmur
Bjarnason
Að áliti Gunnars Helga Kristinssonar mun þrennt mæða sérstaklega
á ríkisstjórninni á komandi vetri.
Í fyrsta lagi hvernig stjórnarflokkunum gangi að koma sér
saman um þær meginaðgerðir sem þeir boðuðu eftir
kosningar. „Þar ber auðvitað hæst hvernig þeir hyggjast
lækka skuldir heimilanna. Ekki var litlu lofað,“ segir hann.
Í öðru lagi mun reyna á ríkisstjórnina í þeim kjarasamn-
ingum sem standa fyrir dyrum.
Í þriðja lagi eru það sveitarstjórnarkosning-
arnar næsta vor. Þá fyrst verði verk stjórn-
arinnar lögð í dóm kjósenda.
E
itt meginverkefni okkar
á næsta kjörtímabili
verður að leggja fram
raunhæfar tillögur um
hvernig leysa megi, eða
létta mjög, vanda þeirra sem eru í
fjötrum skulda og vonleysis. Það
verður ekki létt verk, en það skal
verða okkar meginmál. Það er lof-
orð. Framsóknarflokkurinn getur
alls ekki unað því að stórir hópar í
samfélaginu búi við þessi ömurlegu
skilyrði. Þetta er aðalmálefni kom-
andi kosninga og mikilvægasta úr-
lausnarefni næsta kjörtímabils.
Ríkisstjórnin hefur brugðist þessu
fólki. Það munum við ekki gera.“
Þannig komst Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, að orði í ræðu
sinni á flokksþingi framsókn-
armanna fyrir kosningarnar síðast-
liðið vor. Í krafti þessa boðskapar,
öðru fremur, er hann nú orðinn for-
sætisráðherra og hefur verið síð-
ustu hundrað dagana. En hvernig
miðar honum og ríkisstjórninni al-
mennt?
Spennti bogann hátt
„Frá sjónarhóli mínum sem stjórn-
málasálfræðingur þá glímir þessi
ríkisstjórn við a.m.k. tvenns konar
vanda. Vanda sem hún raunar deil-
ir með fyrri ríkisstjórn,“ segir
Hulda Þórisdóttir, lektor við stjórn-
málafræðideild Háskóla Íslands. „Í
fyrsta lagi er það samskiptavand-
inn, en henni hefur gengið illa að
eiga í samræðu við kjósendur og
skapa þá tilfinningu að ákvarðanir
séu teknar í samvinnu við þá. Í
öðru lagi og kannski ekki ótengt
samskiptaleysinu glímir þessi rík-
isstjórn, rétt eins og ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur, við ákveðinn
væntingavanda. Hún spennti bog-
ann hátt og hefur ekki getað staðið
við loforðin enn sem komið er. Þá
er ég fyrst og fremst að tala um
Framsóknarflokkinn, hann tók mun
dýpra í árinni í kosningabaráttunni
en Sjálfstæðisflokkurinn.“
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, segir vissan viðvan-
ingsbrag hafa einkennt fyrstu
hundrað daga ríkisstjórnarinnar.
Það þurfi ekki endilega að koma á
óvart enda hafi enginn ráðherranna
gegnt slíku embætti áður. „Það er
talsverður munur á því að vera
óbreyttur þingmaður að þenja sig
og ráðherra þar sem hvert orð er
brotið til mergjar og jafnvel út úr
því snúið.“
Þegar talað er um hundrað daga
valdatíð segir Hulda að hafa beri í
huga að ríkisstjórnin hafi, líkt og
algengast er hér á landi, tekið við
að vori. „Það þýðir að sumarið er
framundan og þá snúast hjól sam-
félagsins hægar en á öðrum árstím-
um. Í því ljósi þarf ekki að koma á
óvart að hlutirnir gangi hægar fyrir
sig en ella.“
Það breytir ekki því, að áliti
Huldu, að ríkisstjórnin þurfi að
fara að láta verkin tala. „Það bíða
allir. Bæði þeir sem vilja lánaleið-
réttingar og líka hinir sem telja
þær hugmyndir afleitar og vilja að
þær séu slegnar út af borðinu.“
Gunnar Helgi segir að fyrst muni
reyna á stjórnina í vetur. Hann
grunar að þolinmæði almennings sé
frekar lítil og því verði stjórnin að
bretta upp ermar. Fylgi við hana
fari þegar dvínandi í skoðanakönn-
unum og það sé ákveðið viðvör-
unarmerki.
Gömul stjórnkænska
Gunnar Helgi segir engin áberandi
mistök hafa átt sér stað þessa
fyrstu hundrað daga. Auðvitað hafi
einstaka ráðherrar misstigið sig en
ekki meira en gengur og gerist.
Lækkun veiðigjalds og boðun af-
náms auðlegðarskatts eru mál sem
sett hafa svip á fyrstu hundrað
daga ríkisstjórnarinnar. „Rík-
isstjórnin réði ekki tímasetningunni
á veiðileyfagjaldinu. Þá ákvörðun
þurfti að taka á sumarþingi,“ segir
Hulda. „Ég tek enga efnislega af-
stöðu til þessara tveggja mála en
auðvitað er það gömul stjórn-
kænska að hespa óvinsælu mál-
unum af sem fyrst. Mögulega
hefur ríkisstjórnin haft það í
huga, fyrst hún mat það svo að
veita þyrfti þessum málum braut-
argengi. Þegar þau eru frá
getur hún vonandi snúið
sér af fullum krafti að
öðru nú með haust-
inu.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í Héraðsskólanum á Laugarvatni fyrir eitt hundrað dögum.
Morgunblaðið/Eggert
ÞRJÚ MEGINVERKEFNI
Gunnar Helgi
Kristinsson
Glímir við samskipta-
og væntingavanda
EITT HUNDRAÐ DAGAR ERU UM HELGINA FRÁ ÞVÍ RÍKISSTJÓRN
FRAMSÓKNAR- OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKS TÓK VIÐ VÖLDUM Í LANDINU. ÞAR MEÐ ER
HVEITIBRAUÐSDÖGUNUM FORMLEGA LOKIÐ OG ALVARAN TEKUR VIÐ. HVER ER STAÐAN?
*… það [er] gömul stjórnkænska aðhespa óvinsælu málunum af sem fyrst.Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingurÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is