Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
A
ð koma í Bókina á
Klapparstíg er eins
og að stíga aftur í
tímann. Engar tölvur
og snjallsímar að
áreita mann, bara bækur, tímarit
og vínylplötur. Og fleiri bækur.
Upp um allt og út um allt. Samt
ekki þannig að maður komist ekki
áleiðis, það er skipulag í óreiðunni.
Það leynir sér ekki. Á veggjum
vaka þokkagyðjur á borð við Mari-
lyn Monroe og Bryndísi Schram
yfir öllu. Með blik í auga.
Skyndilega rekur maður með
mikið hrokkið hár kollinn upp úr
einum staflanum. „Nei, velkomnir!“
segir hann glaður í bragði við okk-
ur Morgunblaðsmenn. „Liggur
ekki vel á ykkur í dag?“ Fasið allt
er bráðsmitandi og fyrr en varir
erum við komnir á bólakaf í ryk-
fallnar skræður. Heimskautabók-
menntir skulu það vera, að beiðni
ljósmyndarans. Sá hrokkinhærði
finnur umbeðna bók eins og skot.
Sá er aldeilis á heimavelli hér,
hvað hefði Ari Gísli Bragason
mögulega getað orðið annað en
fornbókasali? Mér er spurn.
Innsiglaði frið á markaði
Fornbókaverslunin Bókin hf. var
stofnuð í Reykjavík árið 1964 og er
því elsta starfandi fyrirtækið á
þessu sviði. Stofnendur voru þeir
Guðmundur Egilsson, sem veitti
Bókinni forstöðu fyrstu fjórtán ár-
in, Stefán Oddur Magnússon for-
stjóri, Ægir Ólafsson forstjóri og
fleiri menn. Árið 1977 tók Gunnar
Valdimarsson frá Teigi við stjórn
Bókarinnar og með honum starfaði
lengstum Snær Jóhannesson, með-
eigandi hans að fyrirtækinu, en áð-
ur hafði Ingvar Þorkelsson, kunnur
maður í bókamannakreðsum, starf-
að þar um árabil. Ari Gísli Braga-
son keypti Bókina ehf. 1998 og
hefur rekið hana síðan, frá 2002 á
Klapparstíg 25-27.
„Við innsigluðum eiginlega frið á
fornbókamarkaði þegar ég keypti
Bókina af þessum heiðurs-
mönnum,“ útskýrir Ari Gísli. „Mik-
il samkeppni hafði ríkt fram að því
og margir verið um hituna. Nú er
öldin önnur, Bókin er eina forn-
bókaverslunin í Reykjavík í dag
enda þótt víðar sé hægt að kaupa
gamlar bækur, svo sem í Kolaport-
inu og Góða hirðinum.“
Dálítill þrældómur
Þetta eru hinar öfgarnar og Ari
Gísli viðurkennir að hann sakni
samkeppninnar. „Það myndi ekki
hryggja mig að fá eina til tvær
búðir í viðbót. Markaðurinn þolir
það alveg. Það er alltaf jafnleið-
inlegt að geta ekki vísað fólki
áfram finni það ekki bókina sem
það leitar að hjá okkur.“
Spurður um reksturinn segir Ari
Gísli hann ganga ágætlega. „Það
er dálítill þrældómur að standa í
þessu en vel þess virði. Ég gerði
mér fulla grein fyrir því þegar ég
tók húsnæðið hér á Klapp-
arstígnum á leigu að það yrði á
brattann að sækja og að vel þyrfti
að ganga til að maður gæti staðið
við sínar skuldbindingar. Ég setti
mér alveg ákveðna reglu með það
og hún var svona: Ef ég gæti ekki,
þó ekki væri nema einu sinni,
borgað húsaleigu og greitt skatta
og opinber gjöld þá myndi ég loka
búðinni. Mér hefur tekist að
standa við þetta og er stoltur af
því að hafa getað komið fyrirtæk-
inu á koppinn.“
Ari Gísli segir menn seint verða
ríka af sölu fornbóka enda sé það
ekki markmiðið. „Standi reksturinn
undir sér er ég sáttur með
hádegisverð og einn latte á dag –
kannski tvo. Bóksala er köllun og í
raun og veru trúboð. Eigum við
ekki að segja að ég sé alltaf að
komast nær og nær sannleik-
anum.“
Hann brosir.
Bakland Ara Gísla er líka gott.
„Mér hefur tekist þetta með hjálp
góðs fólks, svo sem konu minnar,
Sigríðar Hjaltested, og auðvitað
föður míns en við höfum alla tíð
stutt hvor annan gegnum súrt og
sætt, ekki síst í þessu starfi og það
var mikill heiður og góður skóli að
vinna með honum,“ segir Ari Gísli.
Líka á netinu
Faðir hans, Bragi Kristjónsson,
landskunnur bóksali í áratugi, hef-
ur nú dregið sig í hlé en þeir feðg-
ar eru í miklu sambandi og segir
Ari Gísli ómetanlegt að geta leitað
til hans með ráð, til dæmis þegar
hann gefur út bókalista fyrir sína
dyggustu viðskiptavini eins og
hann hefur gert undanfarin tíu ár.
Á bilinu 40 til 60 þúsund titlar
eru í búðinni og þar ef eru um 9
þúsund komnir inn á netið, bok-
in.is. Þar er vitaskuld opið allan
sólarhringinn og viðskiptavinum
fjölgar ört, að sögn Ara Gísla.
„Bókasafnarar eru löngu búnir að
taka netið í sína þjónustu. Inni á
bokin.is eru ekki bara titlar, heldur
líka fróðleikur um fjölmargar bæk-
ur. Við höfum reynt að gera vefinn
aðlaðandi og höfum fengið fín við-
brögð. Bókaviðskipti eru alltaf að
færast meira og meira inn á net-
ið.“
Regluleg endurnýjun er lífs-
spursmál fyrir fornbókabúð og Ari
Gísli upplýsir að hann hafi nýverið
fest kaup á þremur bókasöfnum,
alls á sjöunda hundrað kössum.
„Þetta erum við búin að bera inn í
búðina, setja í hillur og verð-
merkja.“
Ari Gísli skipulagði búðina, sem
er 150 fermetrar, ásamt föður sín-
um og hefur alla tíð lagt áherslu á
að fylla hana ekki um of. „Það er
grunnregla að aðgengi sé gott.
Fólk verður að geta gengið um
búðina og skoðað bækurnar. Það
er lítið gagn í bókum sem enginn
sér eða kemst að.“
Til að hjálpa gestum enn frekar
er bókunum skipt í tuttugu efn-
isflokka.
Auk þess að selja bækur í búð-
inni og á vefnum, bokin.is, tekur
Ari Gísli þátt í Bókamarkaðnum í
Perlunni. „Við styðjum líka Rauða
krossinn og leggjum til verðlaun
vegna skákmóts hjá Vin á Hverf-
isgötunni. Það er okkar framlag til
góðagerðamála.“
Um tíma var Bókin í samstarfi
við Gallerí Fold um bókauppboð og
voru á bilinu sex til átta hundrað
bækur seldar þar. Nú hafa upp-
boðin færst inn á netið, uppbod.is,
og fer það næsta fram í lok þessa
mánaðar. Jólauppboðið verður svo
haldið í endaðan nóvember.
Ætlaði ekki í bóksölu
Ari Gísli ólst upp innan um bækur.
Móðir hans heitin, Nína Björk
Árnadóttir, var rithöfundur og fað-
ir hans hefur alla tíð haft brenn-
andi áhuga á bókum. Opnaði fyrst
fornbókabúð á Skólavörðustíg þeg-
ar Ari Gísli var átta ára.
Ari Gísli ætlaði eigi að síður
aldrei að verða fornbóksali. „Þegar
ég kom heim úr námi fyrir tuttugu
árum fór ég að vinna með pabba
en hann rak á þeim tíma forn-
bókabúð í Hafnarstræti 4. Það átti
að vera tímabundið, ég hafði ekki
hugsað mér að festast í þessu. Það
bara gerðist. Núna er engin leið
út!“
Hann hlær.
Hægt er að festast á verri stöð-
um í þessu lífi og Ari Gísli kveink-
ar sér heldur ekki. „Ég fæ heil-
mikla næringu úr þessu, ekki bara
úr bókunum, heldur líka gestunum
í búðinni. Margir koma hingað
bara til að spjalla um daginn og
veginn og oftar en ekki er líf í
tuskunum. Það er líka gaman að
Bókin
sigrar
alltaf!
ARI GÍSLI BRAGASON SELUR EKKI FORNBÆKUR TIL AÐ
VERÐA RÍKUR. BAKSLAG KOM Í FORNBÓKASÖFNUN UM
TÍMA EN ARI GÍSLI FULLYRÐIR AÐ SAFNARAR SÉU AÐ NÁ
VOPNUM SÍNUM Á NÝ, EINS SÉ UNGT FÓLK AÐ FÆRA SIG
UPP Á SKAFTIÐ. SJÁLFUR HEFUR HANN MEST GAMAN AF
TINNA OG GÓÐUM LJÓÐUM. TÍMINN OG VATNIÐ ÆTTI
AÐ VERA SKYLDULESNING FYRIR ALLA ÍSLENDINGA.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Feðginin inni í búðinni á Klapparstígnum. Meira en 40.000 titla er þar að finna.