Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 28
*Matur og drykkir Pítunachos var meðal þess sem boðið var upp á í lautarferð í Norðlingaholti í vikunni »32 D röfn Vilhjálmsdóttir er menntaður geislafræðingur og er með meistaragráðu í bókasafns- og upplýs- ingafræði. Undanfarin ár hefur hún stundað mat- arblogg á www.eldhussogur.com, en hún hefur að eigin sögn alltaf haft mikinn áhuga á eldamennsku. „Það skiptir ekki máli hvort ég er að baka eða elda. Mér finnst allt sem viðkemur eldamennsku skemmtilegt. Ætli mér finn- ist samt ekki skemmtilegast að búa til eftirrétti,“ segir Dröfn. Dröfn hefur alltaf verið nýjungagjörn í eldhúsinu en áður en hún byrjaði að blogga reyndi hún að prófa a.m.k. eina nýja uppskrift í hverri viku. „Síðan ákvað ég að byrja að blogga. Aðallega til þess að halda utan um mínar eigin upp- skriftir. Svo kom að því að ég var búin að skrá niður flest það sem ég venjulega eldaði en ég vildi halda áfram. Ég hélt því áfram að prófa mig áfram í eldhúsinu og nú næ ég sjaldnast að nýta sjálf uppskriftasafnið á síðunni minni því ég er stöðugt að bæta í safnið,“ segir Dröfn og bætir við að þess vegna sé sjaldan sami réttur tvisvar sinnum í boði á hennar heimili. Gæði hráefnis skipta að sögn Drafnar gríðarlega miklu máli, en hún reynir alltaf að nota gott hráefni og ræktar því m.a. sinn eigin grænmetisgarð. „Ég rækta sjálf grænmeti svo ég er sjálfbær um það á sumrin. Það munar bæði rosa- lega um að fá brakandi ferskt grænmeti í salatið og svo er það náttúrlega peningahliðin. Það er dýrt að kaupa gott hrá- efni svo ég mæli hiklaust með því að að fólk rækti sitt eigið grænmeti heima,“ segir Dröfn. Morgunblaðið/Styrmir Kári ALLTAF VERIÐ NÝJUNGAGJÖRN Nær ekki að nýta allar uppskriftirnar DRÖFN VILHJÁLMSDÓTTIR HEFUR ALLTAF HAFT GAMAN AF ELDAMENNSKU OG HELDUR ÚTI MATARBLOGGSÍÐU. HÚN LEGGUR MIKIÐ UPP ÚR GÓÐU HRÁEFNI OG RÆKTAR SINN EIGIN GRÆNMETISGARÐ. Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is UPPSKRIFT MIÐAST VIÐ SEX 400 g mascarpone-ostur 3 dl rjómi 150 g flórsykur 1 msk vanillusykur 1 vanillustöng 1½ msk Amaretto-líkjör eða annar góður líkjör (má sleppa) 250 g Toffypops-kex (2 pakkar) ber og ávextir til skreytingar, t.d. jarðarber, hindber, bláber, blæjuber og ástaraldin. Aðferð: Toffypops-kexið saxað fremur smátt og dreift yfir botninn á eldföstu móti. Rjóminn þeyttur. Vanillustöngin er klofin á lengdina og kornin skafin innan úr henni. Mascarpone-ostur, flórsykur, líkjör, van- illusykur og vanillukorn sett saman í skál og þeytt þar til blandan verð- ur létt. Þá er þeytta rjómanum bætt varlega saman við með sleikju. Mascarpone-þeytingnum er því næst smurt yfir Toffytops-kexið. Að lokum er skreytt með berjum. Fallegt er að sigta örlítið af flórsykri yfir berin í lokin. Kælt í ísskáp í minnst þrjá tíma áður en borið fram. Mascarpone-þeytingur með berjum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.