Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 35
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Í
samvinnu við Innovit Klak ehf. hefur Ar-
ion banki sett á fót Startup Reykjavík
sem er gert að erlendri fyrirmynd og er
nýnæmi á Íslandi. Verkefnið er við-
skiptasmiðja í tengslaneti Global Accelerator
Network þar sem tíu valin viðskiptateymi fá
tvær milljónir í hlutafé frá Arion banka
gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu. Auk þess fá
viðskiptateymin tíu vikna þjálfun frá men-
torum víðs vegar úr atvinnulífinu og frá
starfsfólki Klak Innovit ehf. og aðgang að
tengslaneti Global Accelerator Network. Á
lokadegi verkefnisins fá viðskiptateymin svo
að kynna sig fyrir fjárfestum. „Startup
Reykjavík er örfjárfestingarverkefni sem
gengur út á að uppfylla mikla þörf fyrir
aukna fjárfestingu í sprotafyrirtækjum. Við
útvegum teymunum allt sem þau þurfa á
fyrstu stigum og reynum svo að hjálpa þeim
að fara eins langt með hugmyndina og hægt
er á tíu vikum,“ segir Kristján Freyr Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri Klak Innovit ehf.
Yfir 200 hópar sóttu um
Engin sérstök skilyrði eru fyrir þátttöku, en
þetta mun vera annað árið í röð sem verk-
efnið er starfrækt. Yfir 200 viðskiptateymi
sóttu um í ár með fjöldann allan af við-
skiptahugmyndum, en að sögn Kristjáns
gengur þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í
fyrra vel að fóta sig á markaðnum. „Mörg
þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í fyrra hafa
fengið styrk frá Tækniþróunarsjóði sem ger-
ir þeim kleift að halda áfram í sínum verk-
efnum. Svo eru önnur fyrirtæki sem hafa
stækkað heilmikið og hafa ekki þurft á neinu
fjármagni að halda og hafa búið til sínar eig-
in vörur og þjónustu,“ segir Kristján.
Opinn dagur verður í höfuðstöðvum Arion
banka laugardaginn 31. ágúst kl. 13.00 þar
sem teymin í Startup Reykjavík 2013 munu
kynna hugmynd sína og viðskiptaáætlun fyr-
ir gestum og gangandi, auk þess að vera
með kynningarbása. „Þarna gefst gestum og
gangandi tækifæri til að sjá kynningarnar
og kynna sér betur hvað teymin voru að
bralla. Ég hvet alla til að mæta og ég held
að þetta verði mjög skemmtilegt,“ segir
Kristján.
Hjálpa sprotafyrirtækjum
NÝSKÖPUNARVETTVANGURINN STARTUP REYKJAVÍK GENGUR ÚT Á AUKNA FJÁRFESTINGU Í SPROTAFYRIRTÆKJUM EN TEYMIN SEM
TAKA ÞÁTT Í VERKEFNINU MUNU KYNNA HUGMYNDIR SÍNAR Í HÖFUÐSTÖÐVUM ARION BANKA Í DAG, LAUGARDAG.
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Fjárfestingadagur Startup Reykjavík var haldinn 23. ágúst en þar fengu teymin tækifæri til að kynna
hugmyndir sínar fyrir fjárfestum og öðrum gestum.
Daði Janusson verkfræðingur er einn
þeirra sem taka þátt í Startup Reykjavík.
Hópurinn hans hannaði vefhugbúnað og
app sem auðveldar golfkennurum og
golfnemendum að eiga samskipti, en
verkefnið ber heitið GolfPro Assistant.
„Þetta auðveldar golfkennurum að sinna
daglegum rekstri og auðveldar kennsluna
á milli kennara og nemenda að mörgu
leyti,“ segir Daði en hann ásamt hópnum
sem stendur á bak við verkefnið eru á
leið á Nordic Golf Fair, golfráðstefnu fag-
fólks á Norðurlöndunum, í október þar
sem varan verður kynnt.
Létta golfkenn-
urum lífið
Morgunblaðið/Ernir
Lítur alltaf vel út.
Líka í myrkri.
Audi Q3 lýsir upp veginn í orðsins fyllstu
merkingu með glæsilegum framljósum
sem bregðast sjálfkrafa við breytingum á
birtuskilyrðum. Þetta er enn eitt dæmið um þá
stefnu Audi að láta útlit og innihald alltaf haldast
í hendur. Audi Q3 kostar frá kr. 7.590.000.