Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 50
Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013 Þ etta er Baðhúsið eins og mig dreymdi alltaf um,“ segir Linda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins, en nýlega gerði hún samning við fasteignafélagið Regin sem felur í sér að Baðhúsið flytur í nýtt húsnæði í Smáralind í Kópavogi seinna á þessu ári. Áætlað er að starfsemi Baðhússins í Smára- lind hefjist í desember í glæsilegu og rúm- góðu húsnæði. „Ég stofnaði Baðhúsið fyrir tuttugu árum og það hefur verið í sextán ár í Brautarholti og það er gaman að fara á nýjan stað,“ segir Linda. „Í nýja húsnæðinu er allt glænýtt og við þurfum ekki að laga okkur að húsnæðinu heldur er það lagað að okkar þörfum. Þetta er búið að vera langt og strangt ferli og það er mikill sigur að ná þessum samningi.“ Þú ert búin að reka Baðhúsið í tuttugu ár. Þegar þú stofnaðir fyrirtækið vissirðu þá nákvæmlega hvað þú værir að gera? „Ég vissi ekkert hvað ég var að gera. Ég var tuttugu og fjögurra ára og hafði áhuga á heilsu og fegurð og hafði unnið í þeim geira sem fegurðardrottning og fyrirsæta og mig vantaði eitthvað að gera og ákvað því að stofna fyrirtæki. Ef ég hefði vitað hvað væri framundan næstu árin er ég ekki viss um að ég hefði farið út í slíkan rekstur, en í dag er ég gríðarlega fegin að ég tók slaginn. Reksturinn er bæði vinna mín og áhugamál. Rekstrarumhvefið hefur stundum tekið á og það þarf oft mikla lagni og útsjónarsemi til að hlutirnir gangi upp. Í dag þarf að hafa miklu meira fyrir að útvega fjármagn til framkvæmda og breytinga en áður og þá reynir á persónulega styrkleika. Ég er eini eigandinn og er vakin og sofin yfir fyrirtæk- inu sem er opnað sex á morgnana og lokað klukkan tíu á kvöldin. Stundum hugsa ég með mér að það væri gott að hafa félaga sem gæti stutt við bakið á mér þegar ég þarf á því að halda en ég hef engan annan en sjálfa mig. Lífið hefur kennt mér að styrkur minn eykst þegar ég tekst á við hlutina, hvort sem það er að vera einstæð móðir eða atvinnurekandi með fjörutíu manns í vinnu. Það er mikilvægt að tapa ekki trú á sjálfum sér þegar á móti blæs. Munurinn á mótlæti og meðbyr er sá að hlutirnir taka lengri tíma í mótlæti. Þá er um að gera að vera staðfastur, með skýr markmið og gefast ekki upp heldur halda áfram.“ Finnst Gróa á Leiti frábær Hver var erfiðasti tíminn í rekstrinum? „Reksturinn var erfiður eftir kreppu og ég finn að margir hafa mun minna á milli handanna en áður. En á móti kemur að eftir kreppu fór fólk að huga betur að heilsunni og fljótlega varð gífurleg aukning hjá mér og fyrirtækið hélt áfram að blómstra. Við viljum öll vera við góða heilsu því án heils- unnar býður lífið ekki upp á mjög mikið. Íslendingar eru mjög duglegir að hugsa um sig og áhugi á heilsu og útliti hefur auk- ist með árunum. Fyrir tuttugu árum var al- gengt að fólk segði upp kortunum sínum á sumrin en í dag er líkamsrækt hluti af lífs- stíl. Fólk veit að til þess að láta sér líða vel þarf það að hugsa um heilsuna, bæði and- lega og líkamlega. Það er líka hluti af sjálfs- virðingu að hugsa vel um sig. Þær konur sem koma í Baðhúsið eru ekki þar til að sýna sig fyrir karlmönnum heldur koma ein- vörðungu fyrir sjálfar sig. Þær eru þarna til að bæta heilsu sína og eiga samfélag við aðrar konur. Þetta er ekki kjötmarkaður.“ Gagnrýni á fegurðarsamkeppni hefur ver- ið áberandi undanfarin ár. Sérð þú eftir að hafa farið í fegurðarsamkeppni? „Nei, alls ekki. Ég vil helst ekki tengjast þessari umræðu því mér finnst hún á svo lágu plani. Það sem ég vil segja í sambandi við þetta er að mér finnst furðulegt að kon- ur sem eru að berjast fyrir réttindum kvenna kjósi á sama tíma að fara gegn kon- um sem taka aðrar ákvarðanir en þær sjálf- ar og tala niður til þeirra. Mér finnst það ekki rétt og er ósammála þeirri aðferð. Mér finnst að hver og einn einstaklingur eigi að ráða sínu lífi og hvaða leiðir viðkomandi kýs.“ Þú ert þekkt kona og færð mikla athygli og það er örugglega mikið horft á þig hvert sem þú kemur. Finnst þér það óþægilegt? „Ef ég væri að velta því fyrir mér hvað fólk hugsaði um mig myndi ég örugglega sturlast. En ég kippi mér ekki upp við það. Mér finnst Gróa á Leiti frábær.“ Af hverju? „Meðan fólk hefur mig og aðra til að tala um þarf það ekki að líta í eigin barm og huga að sjálfu sér. Það er sjálfsagt þægilegt fyrir suma.“ Hvernig er fyrir alheimsfegurðardrottn- ingu eins og þig að eldast? „Mér finnst gott að þroskast og mér líður vel í eigin skinni. Það er hluti af lífsstíl mín- Á réttum stað í lífinu LINDA PÉTURSDÓTTIR UNDIRBÝR AÐ FLYTJA BAÐHÚSIÐ Í SMÁRALINDINA. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN MEÐAL ANNARS UM FYRIRTÆKJAREKSTUR, GRÓU Á LEITI OG GILDIN Í LÍFINU. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * „Hamingjan er að safna góðum minningum oghafa alltaf eitthvað að hlakka til. Ég hef einlæga löngun til að vera ærleg manneskja“. RÝMINGARS ALA PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 3 2 4 0 9 VEIÐIVÖRUR50%AFSLÁTTUR AF ÖLLU FRÁ LOOP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.