Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Page 63
Skálmöld heldur barnatónleika á laugardag
klukkan fjögur á Gamla Gauk.
Morgunblaðið/Eggert
„Það má ekkert skilja krakkana eftir út-
undan. Við höfum gert þetta áður og það er
alveg stórkostlega fallegt og skemmtilegt.
Börn virðast vera metalhausar að upplagi,“
segir Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari í
Skálmöld en bandið, ásamt Dimmu og
Strigaskóm nr. 42, mun spila á þungarokks-
tónleikum fyrir allan aldur laugardaginn
31.ágúst á Gamla Gauk. Síðar um kvöldið
verða síðan tónleikar fyrir 20 ára og eldri.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Skálmöld
leikur fyrir yngstu aðdáendur sína sem eru
fjölmargir. „Ég var einmitt að rifja það
upp hvað mig langaði alltaf að fara á tón-
leika með Strigaskóm nr. 42 [sem er uppá-
halds íslenska hljómsveitin hans Snæbjörns
frá upphafi] en var of ungur. Það var
hreinlega ósanngjarnt. Núna, meira en 20
árum seinna, er þess vegna geðveikt að
geta spilað fyrir krakkana, hafa Striga-
skóna með og Dimmu að auki. Mér finnst
hreinlega eins og við séum að leiðrétta
gamlan misskilning með þessu. Við höldum
líka verðinu niðri til að fólk ráði við að
koma með alla fjölskylduna. Svo er bara
bjór um kvöldið,“ segir Snæbjörn fullur til-
hlökkunar. „Þetta verða síðustu tónleikarnir
okkar á Íslandi um óákveðinn tíma, eftir
þetta tekur við 6 vikna Evróputúr og svo
beint heim í tónleika með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Ég held að það sé allra skemmtilegasta
sem ég geri í heiminum að spila fyrir Ís-
lendinga og það verður gaman á morgun, ég
lofa – fyrir alla konur og kalla, fullorðna
sem börn.“
Barnaþungarokk á Gamla Gauk
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 63
ÞJÓÐLEIKHÚSKORT
Á VILDARKJÖRUM
1
3
-2
2
4
3
–
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Arion banki býður viðskiptavinum í Vildarþjónustu Leikhúskort
Þjóðleikhússins á sérstökum vildarkjörum.
Veldu þér fjórar sýningar af spennandi efnisskrá Þjóðleikhússins
og settu þær á Leikhúskortið þitt.
Almennt kort 11.900 kr. – fullt verð er 13.900 kr.
Ungmennakort fyrir 25 ára og yngri 5.900 kr. – fullt verð er 7.900 kr.
Gildir á sýningar á miðvikudögum.
Afslátturinn gildir ef greitt er með greiðslukorti frá Arion banka.
Gildir til og með 4. september nk.
Leikhúskortin fást í miðasölu Þjóðleikhússins. Miðasalan er opin alla
daga milli 12 og 18 og síminn er 551 1200.
Þú finnur allt um efnisskrána á leikhusid.is
Freyr Alexandersson var í gær ráð-
inn landsliðsþjálfari kvenna í fót-
bolta. Freyr tekur við landsliðsþjálf-
arastarfinu af Sigurði Ragnari
Eyjólfssyni sem tók þá ákvörðun að
hætta eftir sjö ára farsælt starf.
Freyr er einn allra efnilegasti þjálf-
ari landsins og hefur mikla reynslu
þrátt fyrir ungan aldur. Stýrir hann
Leikni frá Breiðholti af festu.
Freyr er stjúpsonur Hans
Steinars Bjarnasonar, íþróttafrétta-
manns á Ríkissjónvarpinu, og fær
RÚV því væntanlega góðan aðgang
að nýja landsliðsþjálfaranum.
Freyr stýrði Val til Íslandsmeist-
aratitla í kvennaboltanum.
Morgunblaðið/Eggert
Freyr og
Hans Steinar
Gríðarleg eftirvænting er fyrir tón-
leikum hljómsveitarinnar Of Mon-
sters and Men, sem haldnir verða á
Vífilsstaðatúni í dag. Má búast við
margmenni þrátt fyrir óhagstæða
veðurspá. Ókeypis verður á tón-
leikana en engin bílastæði eru held-
ur fríar strætóferðir að túninu.
Eftir tónleikana mun bandið fá
kærkomna hvíld en hljómsveitin er
búinn að spila á yfir 100 tónleikum á
þessu ári.
Þegar herlegheitunum er lokið
mun Ragnar Þórhallsson söngvari
halda til Danmerkur þar sem kær-
asta hans býr og slaka á.
Ragnar slær á létta strengi.
Morgunblaðið/Golli
Ragnar til
Danmerkur