Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 1
Unnið er að því að þróa nýjar aðferðir til að greina örsmáar ryk- og öskuagnir í andrúms- loftinu. Hér á landi starfa að verkefninu Pavla Dagsson Waldhauserová doktorsnemi og Har- aldur Ólafsson, veðurfræðingur og prófessor. Loftbelgur ber á loft lítið tæki. Það dregur í sig andrúmsloft, lýsir á það með leysigeisla og mælir endurkast frá ögnunum. Loftmælitæki var sent á loft í gær og var reiknað með að það færi í 30-35 km hæð. Ísing olli því að belgurinn fór ekki nema í 22 km hæð og féll svo í miðjan Hvalfjörðinn. Tækið sýndi dálítið af ryki upp í um 200 metra hæð en fyrir ofan 1.000 metra var mjög tært loft. Búnaðinn má nota til að mæla ösku frá eldgosum og aðrar agnir í loftinu. Loftið mjög tært þegar komið var í 1.000 metra hæð Morgunblaðið/RAX Loftbelgur ber tæki sem mælir agnir í andrúmsloftinu á leið hans upp í háloftin F Ö S T U D A G U R 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 3  260. tölublað  101. árgangur  VILL DRAGA ÚR SYKURNEYSLU UNGS FÓLKS ARNAR KVEÐUR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ FORMLEGA BESTI SÖNGVARINN Í MÚSÍKTILRAUNUM FRÁ STOKKSEYRI NÆR SÁRSAUKAMÖRKUM 46 100 DAGA HRINGFERÐ 21HOLLARI SMÁKÖKUR 10 ÁRA STOFNAÐ 1913  Greiðslumiðlunarfyrirtækið Per- fect Money í Hong Kong er eitt af þúsundum erlendra aðila sem hafa kosið að skrá vefsíðu sína undir höf- uðléninu .is. Að sögn Jens Péturs Jensen, framkvæmdastjóra Internets á Ís- landi (ISNIC), völdu forsvarsmenn Perfect Money .is-lén fyrir greiðslu- gættina vegna traustsins sem það nýtur. Síðan mun nýta DNSSEC- öryggiskerfið sem ISNIC er nýbyrj- að að bjóða upp á fyrir .is-lén. Aðilar með aðsetur erlendis eru rétthafar um fjórðungs allra .is- léna. Tekjur af útflutningi á lénum hafa komið íslenskum rétthöfum til góða en unnt hefur verið að lækka gjöld fyrir lénin vegna þeirra. »26 Fyrirtæki í Hong Kong með .is-lén Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Mér fannst þetta vera ágætur fundur,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir fund samninga- nefndar ASÍ með þremur ráðherr- um í gær. Samninganefndin óskaði eftir fundinum til að fá svör um vilja stjórnvalda til aðgerða varðandi komandi kjarasamninga. Gylfi taldi svör hafa fengist um vilja stjórn- valda til að koma að málinu. Hann sagði að samninganefndin hefði ósk- að eftir fundinum til að fá skýrari svör um vilja stjórnvalda til aðgerða vegna komandi kjarasamninga. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að atriði sem nefnd voru hefðu flest snúið að því að auka stöðugleika, ná niður verðbólgu og renna þannig stoðum undir það sem hann vildi kalla kaup- máttarkjarasamninga, þ.e. með áherslu á aukinn kaupmátt en ekki eingöngu nafnlaunahækkanir. „Öll atriði sem geta stuðlað að slíku eru um leið atriði sem við höfum áhuga á,“ sagði Bjarni. Sumt af því sem nefnt var á fundinum kosti ekki auk- in útgjöld heldur t.d. aðra nálgun á lækkun tekjuskatts. „Ég lýsi mig reiðubúinn að ræða slíka hluti enda er til mikils að vinna að stuðla að friði á vinnumarkaði og auknum stöðugleika í samfélaginu,“ sagði Bjarni. Ráðherranefndin mun hittast í dag. Stefnt er að því að koma með hugmyndir um hvernig búa megi um samstarfið á gildistíma slíks kjara- samnings og í aðdraganda hans. MKallað eftir viðbrögðum... » 2 Vilja fá skýrari svör  Samninganefnd ASÍ fundaði með ráðherrum vegna komandi kjarasamninga  Fjármálaráðherra segir stjórnvöld vilja stuðla að friði á vinnumarkaðnum Kjaramálin » Í samninganefnd ASÍ sitja formenn aðildarsambanda og verkalýðsfélaga í ASÍ. » Forsætis-, fjármála-, félags- mála- og iðnaðarráðherra skipa ráðherranefndina. Morgunblaðið/Golli Kjaramál Ráðherrar funduðu með samninganefnd ASÍ í gær. Morgunblaðið/Gunnar Kolgrafafjörður Dauð síld í hrönnum.  Kynntar hafa verið í ríkisstjórn hugmyndir um aðgerðir í Kolgrafa- firði til að koma í veg fyrir síldar- dauða þar. Fjórar leiðir eru helst taldar koma til greina, en eftir er að útfæra þær allar. Samkvæmt grófu mati er talið að kostnaður við að opna fjörðinn og gera nýja brú á vegfyllingu myndi kosta um 800 milljónir. Lokun fjarðarins er talin geta kostað 5-600 milljónir, en báðar þessar fram- kvæmdir tækju nokkurn tíma. Þriðja leiðin er um 1100 metra girð- ing utan brúar með veifum til að fæla síldina frá. Slík lausn er talin kosta 60-80 milljónir. Fjórða leiðin er að dæla súrefni í fjörðinn þegar vart verður við súrefnisskort. »18 Mismunandi að- gerðir gætu kostað 60-800 milljónir „Okkur blöskra yfirlýsingar þungavigtarmanna í þjóðfélag- inu,“ segir Aðalsteinn Á. Bald- ursson, formaður Framsýnar stéttarfélags á Húsavík, en stjórn félagsins sendi frá sér harðyrta ályktun í gærkvöldi um kjaramál. Þar eru gerðar alvar- legar athugasemdir við mál- flutning Samtaka atvinnulífsins og seðlabankastjóra varðandi kröfur verkafólks um hækkun lægstu launa. Aðalsteinn sagði að þeir væru fylgjandi skammtímasamningi til allt að 12 mánaða. Á meðan yrði unnið að gerð langtíma kjarasamnings. Blöskra yfir- lýsingarnar FRAMSÝN ÁLYKTAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.