Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 11
aftur til fyrri tíma og baka sínar eigin smákökur og
hugsa út í hvort hægt sé að skipta út miður góðum hrá-
efnum fyrir hollari hráefni. Til dæmis með því að nota
hunang í staðinn fyrir hvítan sykur. Auk þess sem upp-
gefið sykurmagn í uppskrift getur verið helmingi meira
en þarf. Því getur verið ágætisbyrjun að minnka syk-
urinn um allt að helming þegar farið er eftir upp-
skriftum. „Svo er hægt að setja heil-
hveiti, spelt eða möndlumjöl í staðinn
fyrir hvítt hveiti. Svo má nota þurrkaða
ávexti og 70% súkkulaði,“ segir Berglind.
Það er ljóst að taka má mörg skref til að
gera mataræðið og baksturinn hollari og
alls ekki nauðsynlegt að taka öll skrefin í
einu.
Það er ekki úr vegi að huga að
breyttu mataræði skömmu fyrir jólin
þegar smákökur og konfekt er á hverj-
um stað.
Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Glúteinlaust Ekkert hveiti er í þessum piparkökum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
Ég er bölvaður klaufi íeldhúsinu. Það hefurverið hlegið að þvíhvernig ég sker papriku
og fussað yfir agúrkusneiðunum
mínum. Þetta helgast af æfing-
arleysi. En ég er samt sem áður
mjög fær í því að skola af diskum
og setja í uppþvottavél. Þess
vegna er uppþvottavél eitt mik-
ilvægasta tækið á heimilinu í mín-
um huga.
Til að varpa sem skýrustu ljósi á
málavexti, hef ég birt hér pistil
þar sem ég óskaði eftir því að
heimsækja tengdamæður vina
minna reglulega á matmálstíma í
von um að eitthvert góðgæti yrði á
boðstólnum. Ég kalla það nútíma
veiðimennsku. Stundum jafnvel
nútíma eldamennsku. Ég hef sem
sagt afar sjaldan eldað um ævina.
Frá því að sá pistill birtist ákvað
stúlka að taka mig upp á sína
arma. Hennar helsti draum-
ur er ég að verði mynd-
arlegur í eldhúsinu. En
þar hefur henni lítið
orðið ágengt þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir,
þannig ég hlýt að
gagnálykta, að ég sé
að minnsta kosti
ekki drauma-
prinsinn. Jæja,
ég get svo sem
búið við það.
Líkt og fram
hefur komið
er ég einkar
laginn þegar
kemur að því
að raða í upp-
þvottavélina.
En Adam var
ekki lengi í paradís.
Uppþvottavélin
okkar var að gefa
upp öndina. Við
frúin erum að leita
að stærra heimili og því þótti okk-
ur misráðið að fjárfesta í upp-
þvottavél, sem má ekki vera í fullri
stærð vegna plássleysis, fyrir
meira en hundrað þúsund krónur
og myndi þjóna okkur stutta
stund.
En þetta þýddi að staða mín á
heimilinu hafði veikst til muna.
Mín heimilisverk miðuðust mikið
til við að raða í þessa góðu vél.
En ég dó ekki ráðalaus. Um leið
og ég hafði keyrt uppþvottavélina í
Sorpu setti ég mig í samband við
góða fjölskyldu sem tekur að sér
að þrífa heimili og samdi
um að hún myndi
taka okkar að
sér. Þar með
tókst mér að
bæta örlít-
ið stöðu
mína á
heimilinu, sem
er vel. Jafnvel bráð-
nauðsynlegt.
Ps. Tengdamæður og
aðrir velunnarar Morg-
unblaðsins: Beta mín verð-
ur ekki heima frá og með
næsta miðvikudegi fram
yfir helgi. Ég bíð við sím-
ann og er reiðubúinn að
hitta ykkur um kvöld-
matarleytið alla þessa
daga.
»Það hefur verið hlegið að því hvernig
ég sker papriku og fussað
yfir agúrkusneiðunum
mínum. Þetta helgast af
gríðarlegu æfingarleysi.
HeimurHelga Vífils
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Berglind hvetur fólk til að búa til sína eigin
hollu útgáfu af uppáhaldssmákökunni eða búa
til nýjar uppskriftir. Tekið verður á móti smá-
kökum og uppskriftunum í húsnæði Bóka-
félagsins í Fákafeni 11 þann 28. og 29. nóv-
ember. Skilafrestur er til hádegis þann 29.
Þátttakendur mega skila inn 8-10 smákökum
og útprentaðri uppskrift. Í dómnefnd sitja hjón-
in Berglind og Sigurður og matreiðslubókahöf-
undurinn Rósa Guðbjartsdóttir. Fyrirspurnir má
senda á netfangið heilsurettir@gmail.com.
Uppskriftasamkeppnin
LEITIN AÐ BESTU HOLLU SMÁKÖKUNUM
Ljósmynd/Gunnar Konráðsson
Möguleikar 70% súkkulaði og þurrkaðaðir ávextir
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
MM Pajero 3,2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 27.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 8.790.000,-
MM Pajero 3,2 Intense
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 36.000 km, sjálfskiptur
MM Pajero 3,2 Intense
Árgerð 2009, dísil
Ekinn 102.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 8.190.000,- Ásett verð: 5.690.000,-
MM Pajero GLS 33”
Árgerð 2005, bensín
Ekinn 117.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.490.000,-
MM Pajero 3.5 GLS
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 100.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.990.000,-
MM Pajero 3,2 GLS 33”
Premium Árgerð 2006, dísil
Ekinn 116.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 3.990.000,-
Tilboð 1.990.000,-
Tilboð 3.590.000,-
Tilboð 2.190.000,-
MM Pajero Intense+
Árgerð 2008, dísil
Ekinn 120.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.190.000,-
ÚRVAL
NÝLEGRA
GÆÐAJEPPA
Á GÓÐU
VERÐI
NÚ ER ALLRA
VEÐRA VON