Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
Stefán Hrafn Hagalín hefur verið
ráðinn deildarstjóri markaðsmála
og mannauðs hjá Odda, en þessar
deildir hafa verið sameinaðar hjá
fyrirtækinu.
Fram kemur í
fréttatilkynningu
frá Odda að Stef-
án Hrafn tekur
við af Arnari
Árnasyni og
Hönnu Þórunni
Skúladóttur, sem
hafa látið af
störfum. Stefán
Hrafn mun ann-
ars vegar stýra
verkefnum á sviði markaðsmála og
almannatengsla og „hins vegar
mannauðsverkefnum sem til dæmis
lúta að innri markaðssetningu,
þjálfun, endurmenntun og eflingu
liðsheildar,“ segir orðrétt í tilkynn-
ingu.
Þar kemur einnig fram að Stefán
Hrafn var forstöðumaður almanna-
tengsla og viðburða hjá Advania
um tveggja ára skeið. Fyrir þann
tíma gegndi hann starfi markaðs-
stjóra Skýrr í áratug, var markaðs-
stjóri Opinna kerfa um hríð og
starfaði við markaðsmál hjá Oracle
á Íslandi.
Nýr markaðs-
og mannauðs-
stjóri Odda
Stefán Hrafn
Hagalín
● Síminn hefur gert samninga við
Ríkiskaup sem fela í sér að Síminn
býður ríkisfyrirtækjum og stofnunum
upp á fjarskipta- og upplýsinga-
tækniþjónustu.
„Síminn hefur á síðustu árum
styrkt sig verulega í upplýsinga-
tækniþjónustu til þess að takast á við
öra þróun á síbreytilegum tæknimark-
aði,“ er haft eftir Guðmundi Stefáni
Björnssyni, framkvæmdastjóra Sölu-
og þjónustusviðs Símans, í frétta-
tilkynningu.
Þar kemur fram að Síminn geti
boðið ríkisstofnunum og ríkisfyr-
irtækjum hefðbundna hýsingarþjón-
ustu, gagnahýsingu, afritunarþjónustu,
tækni- og rekstrarþjónustu og kerf-
isveitu.
Síminn og
Ríkiskaup gera
með sér samning
Vörumerking ehf í Garðabæ er að
taka í notkun nýja prentvél sem er
stafræn vél af gerðinni WS6600 frá
Hewlett-Packard / INDIGO.
„Vélin sem er af nýjustu kynslóð
stafrænna prentvéla, er með svo-
nefndum „in-line-primer“ sem gerir
henni kleift að prenta á mismunandi
efni af rúllum, þ.e. hefðbundinn
pappír, plastefni, ál og fleira,“ segir
í tilkynningu frá Vörumerkingu.
Þar kemur fram að með vél-
arkaupunum hyggst Vörumerking
auka fjölbreytni umbúðamerkinga.
Vélin henti vel fyrir smá upplög þar
sem ekki sé þörf á klisjum við staf-
ræna prentun, sem stytti vinnslu og
þar með afgreiðslutíma til muna.
Tilkoma vélarinnar er sögð loka-
hnykkur á endurskipulagningu
Vörumerkingar ehf. „Þetta er stórt
skref inn í framtíðina,“ er haft eftir
Bjarna Hrafnssyni, rekstrarstjóra
Vörumerkingar, í tilkynningunni.
Hvítlist hf er umboðsaðili HP In-
digo á Íslandi.
Ný stafræn prentvél
hjá Vörumerkingu
Afhending Bjarni Hrafnsson tekur við vélinni af Guðjóni Sigurðssyni
í Hvítlist. Aðrir á myndinni eru stjórnarmenn fyrirtækjanna:
F.v. Jón Árni Jóhannsson og Jóhann J. Ólafsson frá Hvítlist hf. og t.h. eru
Ásgeir Þorvarðarson og Jóhann Oddgeirsson frá Vörumerkingu ehf.
Ákæruvaldið í Noregi hefur dæmt
laxeldisfyrirtækið Grieg Seafood til
að greiða háa fjársekt fyrir efna-
hagsglæp sem m.a. felst í því að hafa
falsað tölur um umfang laxalúsar í
laxeldisstöðvum. Fram kom á vef
norska sjónvarpsins í fyrrakvöld að
sektin næmi 2,3 milljónum norskra
króna, sem er jafnvirði um 47 millj-
óna íslenskra króna. Um er að ræða
hæstu sekt sem nokkurt laxeldisfyr-
irtæki í Noregi hefur verið dæmt til
þess að greiða.
Norskir fjölmiðlar greindu í fyrra-
dag frá þessu og jafnframt því að
framleiðslustjóri fyrirtækisins væri
ákærður fyrir að bera ljúgvitni.
Víða með laxeldi
Grieg Seafood er með laxeldi í sjó í
Finnmörku og á fleiri stöðum í Nor-
egi. Einnig rekur fyrirtækið laxeldi í
sjó í Kanada og Skotlandi. Sam-
kvæmt norskum fjölmiðlum hefur
fyrirtækið hvarvetna lent í útistöð-
um við hagsmunaaðila og umhverf-
issamtök.
Þá greindu norskir fjölmiðlar frá
því að Ríkisendurskoðun í Noregi
hefði ítrekað bent á hættur viðvíkj-
andi laxeldi í sambandi við óheyri-
lega mengun, útbreiðslu á laxalús og
fleiri annmarka sem valdið hefðu
miklum náttúruspjöllum á flestum
þeim svæðum sem laxeldi hefur ver-
ið reynt.
Á fréttavef E24 í fyrradag kom
m.a. fram að Grieg Seafood hefði
ítrekað látið undir höfuð leggjast að
veita upplýsingar um lúsafjölda í
löxum sínum, en norska reglugerðin
um laxeldi er mjög skýr hvað kröfur
um slíkar upplýsingar varðar.
Upphæð hinnar háu sektar nú er
m.a. sögð hafa ráðist af því að við síð-
asta opinbera eftirlitið hjá laxeldis-
stöðinni í Finnmörku kom á daginn
að lúsafjöldinn var 5,3 sinnum yfir
leyfilegu hámarki.
Aud Slettemoen, ríkissaksóknari
hjá efnahagsbrotadeild norsku lög-
reglunnar, sagði m.a. í rökstuðningi
sínum fyrir sektinni, að stjórnvöld
teldu að röng upplýsingagjöf Grieg
Seafood um heilbrigði laxanna og
lífsskilyrði græfi undan atvinnu-
greininni í heild og einnig væri hún
skaðleg fyrir þá sem sinntu eftirliti
með laxeldi í Noregi. Hún var einnig
í samtali við norska vefinn iLaks.no
þar sem hún sagði að brot Grieg
Seafood gæti þýtt allt að tveggja ára
fangelsi. Þar kom jafnframt fram að
Grieg Seafood hefði fallist á að
greiða sektina, en talsmaður fyrir-
tækisins, Morten Vike, neitaði að
öðru leyti að tjá sig um málið.
agnes@mbl.is
Grálúsugur Við hefðbundið eftirlit með laxeldisstöð Grieg Seafood kom á
daginn að meira en fimmfalt leyfilegt magn lúsar var í eldislaxinum.
Laxeldisfyrirtæki í
Noregi fær háa sekt
Gaf rangar upplýsingar um laxalús
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Hádegistilboð