Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Karl Ísfeld Níelsson Lillien-dahl, rithöfundur og þýð-andi, fæddist á Sandi í Að- aldal 8. nóvember 1906. Hann var sonur Niels Lorenz Thorvalds Lilli- endahls, kaupmanns á Akureyri, og Áslaugar Friðjónsdóttur, hálfsystur Guðmundar Friðjónssonar, skálds frá Sandi, Sigurjóns, skálds, oddvita og alþingismanns á Litlu-Laugum, og Erlings, kaupfélagsstjóra og al- þingismanns. Karl lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1932 og stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 1932-35. Karl var blaðamaður á Alþýðublaðinu 1935-44, ritstjóri Vinnunnar, tíma- rits Alþýðusambands Íslands, 1944- 50 og blaðamaður hjá Vísi 1954-58. Karl var skáldmæltur og gaf út frumsamin og þýdd ljóð. Hans verð- ur þó lengst minnst sem eins fremsta þýðanda hér á landi. Hann þýddi m.a. Kamelíufrúna eftir Alexandre Dumas yngri, Jóla- ævintýri eftir Charles Dickens, Ævintýri góða dátans Svejks í heimsstyrjöldinn eftir Jaroslav Ha- sek, Kátir voru Karlar eftir John Steinbeck og Og sólin rennur upp og Einn gegn öllum eftir Ernest Hemingway. Karl þótti einn ritfærasti maður landsins og hlaut fyrstu blaða- mannaverðlaunin fyrir vandað mál og góðan stíl úr Móðurmálssjóði Björns Jónssonar á aldarafmæli hans 1946. Sumar þýðingar sínar vann hann í samvinnu við Sigríði Einarsdóttur frá Munaðarnesi, systur Málfríðar skáldkonu. Á það ekki síst við um bundið mál, s.s. þýðingar á finnsku goðsagnakvæðunum Kalevala. Þau áttu einn son, Einar, fyrrverandi skrifstofumann í Reykjavík, f. 1935. Karl var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðný Sigurðardóttir. Þau skildu en eignuðust einn son, Sigurð Ísfeld bakara, f. 1941. Seinni kona Karls var Hildur Helgadóttir Zoëga. Sonur Karls með Þórheiði Sigur- þórsdóttur var Birgir Ísfeld, f. 1937, lektor í Árósum. Karl Ísfeld lést á Landakots- spítala 28.9. 1960. Merkir Íslendingar Karl Ísfeld 90 ára Hulda Ragnarsdóttir 85 ára Harriet Margareta Otter- stedt 80 ára Eyjólfur Þorsteinsson Inga Erna Þórarinsdóttir Þórunn Héðinsdóttir 75 ára Ásta Marteinsdóttir Birgir Guðjónsson Reynir Þorsteinsson 70 ára Elísabet Kolbrún Hans- dóttir Kristján Björnsson Ólafur Eggertsson Rútur Jónsson 60 ára Dísa Pálsdóttir Fjóla Grímsdóttir Guðmundur Birgir Salómonsson Guðvarður Gíslason Herdís Snæbjörnsdóttir Ragna Rut Garðarsdóttir Torfhildur Stefánsdóttir Þorsteinn Jóhannsson 50 ára Ásta Guðríður Björnsdóttir Daiga Jirjena Helga Kristín Kolbeins Hildur Björk Betúelsdóttir Kenný A Hentze Hallbjörnsdóttir Mai Thi Tran Margrét Einarsdóttir Rögnvaldur S Hilmarsson Steinunn Ósk Konráðsdóttir Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson 40 ára Aðalheiður María Þráinsdóttir Biljana Ilievska Björk Ína Gísladóttir Daniela Irene Poggi Freyr Hákonarson Gunnar Örn Stefánsson Hreinn Ómar Smárason Karen Hrönn Óskarsdóttir Kristinn Jens Kristinsson Sigrún Heiða Hilmarsdóttir Sigurbjörg H Kristjánsdóttir Stefán Ólafsson Sunna Ósk Logadóttir Þórhallur Baldursson 30 ára Adolf Örn Adolfsson Gauti Þórarinsson Guðbjörg Ólafsdóttir Hrönn Baldvinsdóttir Jóhannes Geir K ristjánsson Magnús Þór Guðmundsson Mariya Mayburd María Markovic Sigríður Magnea Albertsdóttir Stefanía Reynisdóttir Thelma Baldursdóttir Örvar Fanngeirsson Til hamingju með daginn 40 ára Ómar er Vest- mannaeyingur, en býr í Hafnarfirði og er leyfis- og markaðsstjóri hjá KSÍ. Maki: Hafrún Jónsdóttir, f. 1979, vinnur á leikskóla. Börn: Arnar Frank, f. 2007, Ásgeir Bent, f. 2008, og Esther Jara, f. 2011. Foreldrar: Smári Guð- steinsson, f. 1939, v. í Húsasmiðjunni, og Eygló Einarsdóttir, f. 1944. v. á Hrafnistu, Hafnarfirði. Hreinn Ómar Smárason 30 ára Thelma er Mos- fellingur og starfar sem sjúkraliði á Grund í Reykjavík, bús. í Mosfellsbæ. Maki: Valur Örnólfsson, f. 1981, húsasmíðameist- ari. Börn: Lena Líf, f. 2002, og Diljá Dögg, f. 2003. Foreldrar: Baldur Jóns- son, f. 1963, smiður, og Hugrún Svavarsdóttir, f. 1965, Davis-ráðgjafi. Þau eru bús. í Mosfellsbæ. Thelma Baldursdóttir 30 ára Hrönn er Reykvík- ingur, hárgreiðslumeistari og rekur hárgreiðslu- stofuna Skugga á Hverfisgötu. Maki: Bjarni Þórður Hall- dórsson, f. 1983, kennari. Sonur: Baldvin, f. 2011. Foreldrar: Baldvin Bald- vinsson, f. 1943, d. 1989, knattspyrnumaður hjá KR og ferðamálafræðingur, og Monika Helgadóttir, f. 1956, leikskólaliði í Reykjavík. Hrönn Baldvinsdóttir ingastaðnum Rauða húsinu á Eyr- arbakka. Á Rauða húsinu verða viskíkynn- ingar og sérmatseðill er á staðnum þar sem viskí er notað í réttina og eru réttirnir útbúnir þannig að þeir henti með ákveðnum viskítegundum. Stefán hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars náði hann 4. sæti fyrir kokteil ársins 2003 í Þýskalandi, og náði 3. sæti sem viskí-þekkjari (Kenner) ársins í Þýskalandi 2004. Með fjölbreytileg áhugamál „Ég hef afskaplega gaman af því að vera á skíðum þótt lítill tími hafi gefist til þess að undanförnu, hef oft farið í skíðaferðir erlendis og þá til Austurríkis aðallega. Einnig finnst mér gaman að ferðast og prófa nýja og öðruvísi veitingastaði. Ég fór t.d. í haust til Tenerife og á afskaplega skemmtilegt steikhús þar sem maður velur sér sjálfur steikurnar úr stórum kæli og valdi ég mér „rib-cut“ (framhrygg) af uxa. Einnig prófaði ég skelfisk sem lítið hefur verið í boði hér á landi einhverra hluta vegna. Viskí er gífurlegt áhugamál hjá mér. Ef maður ætlar að fara að bera þetta saman við annað sterkt áfengi þá er svo miklu meira í boði í viski- ínu, bragðmöguleikarnir eru svo miklu meiri. Þegar fólk segir að því finnist viskí vont þá segi ég að það hafi ekki fundið sitt viskí. Þetta er eins og að segja að bílar eða málverk séu ljót. Í viskíi eru um 1.600 mis- munandi bragðtegundir, enginn ann- ar drykkur er jafnflókinn. Rauðvín og kaffi, sem talin eru flóknir drykk- ir, ná upp í 800 bragðtegundir. Óvan- ir ná ekki að greina á milli bragðteg- unda og heilinn svavar með því að segja að þetta sé vont.“ Stefán hefur einnig mikinn áhuga á eðlisfræði, stjörnufræði og vís- indum almennt og er mikill bíla- áhugamaður. Fjölskylda Kona Stefáns er Stefanía Björg- vinsdóttir, f. 27.1. 1987. Hún rekur grillvagn á Hellu sem heitir Sveita- grill Míu. Foreldrar hennar eru Björgvin Pálsson, f. 22.1. 1955, veit- ingamaður og fyrrv. ljósmyndari á Morgunblaðinu, og Sigrún Stella Karlsdóttir, f. 1.2. 1954, en hún sér um matseld á Skógasafni. Dóttir Stefáns og Stefaníu er Sunna Stella Stefánsdóttir, f. 19.5. 2011. Systkini Stefáns eru Þór Ólafsson, f. 26.6 1970, sölumaður; Anna Hulda Ólafsdóttir, f. 16.1. 1985, dokt- orsnemi í verkfræði; Friðrik Boði Ólafsson, f. 1.3. 1990, tölvunarfræði- nemi við HÍ. Foreldrar Stefáns eru Ólafur Jón Stefánsson, 19.7. 1949, fyrrverandi aðstoðarútibússtjóri og yfirmaður faktoring-deildarinnar hjá Glitni, er núna húsumsjónarmaður í Hóla- brekkuskóla í Reykjavík, og Guðrún Þórsdóttir, f. 28.6. 1951, d. 25.5. 2010, kennari í Hólabrekku- skóla, vann hjá Námsflokkunum og var skólastjóri Vinnuskólans í Reykjavík. Hún átti þátt í að koma Nýsköpunarkeppni grunnskólanna á laggirnar og var aðaldriffjöðrin að baki henni. Guðrúnarbikarinn, sem er veittur fyrir aukaverðlaun í keppninni, er til minningar um hana. Úr frændgarði Stefáns Ólafssonar Stefán Ólafsson Kristrún Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sveinn Jóhannesson trésmíðameistari í Rvík. Anna Hulda Sveinsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þór Þorsteinsson verslunarmaður í Reykjavík Guðrún Þórsdóttir skólastjóri í Reykjavík Ólafía Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorsteinn Jóhannes Finnsson vélstjóri í Rvík Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Atlastöðum, síðar á Ísafirði Júlíus Geirmundsson bóndi á Atlastöðum í Sléttuhr. Júdith Júlíusdóttir iðnrekandi í Reykjavík Stefán Ólafsson iðnrekandi í Reykjavík Ólafur Jón Stefánsson fyrrv. bankamaður í Reykjavík Þóra Jóhannsdóttir saumakona á Ísafirði Ólafur Stefánsson skósmiður á Ísafirði Jóhann Júlíusson útgerðarmaður á Ísafirði Guðmundur Júlíusson útgerðarmaður á Ísafirði Fjölskyldan Stefanía og Sunna Stella að klappa lambi í sveitinni. Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Síðumúla 35 www.jens.is Kringlunni og Íslensk hönnun og handsmíði - Falleg jólagjöf Vatnajökull 7.900.- Eyjafjallajökull 5.900.- Jöklaskálar Norðurljós 12.800.- 6.900.- 6.900.- 13.900.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.