Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Innlent Skjárinn hefur hleypt af stokkunum nýrri sjónvarpsþjónustu, Skjár- Krakkar, þar sem áskrifendur geta fengið ótakmarkaðan aðgang að tal- settu barnaefni í gegnum VOD- þjónustu Símans og Vodafone. Mán- aðargjald fyrir þjónustuna er 1.490 krónur. Latibær, Strumparnir, Skoppa og Skrítla, Bubbi byggir og Pósturinn Páll verða meðal þess efnis sem verður í boði í þjón- ustunni en lukkudýr stöðvarinnar er mar- íubjallan Óskar. Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjás- ins, segir þjónustuna skref í átt að sjónvarpsveitum á borð við NetFlix. Með henni sé verið að mæta þörfum barnafólks en núverandi leigufyrirkomulag, að leigja einn og einn þátt eða kvikmynd í einu, henti þeim e.t.v. ekki sem best. „Við vitum hvernig neysla barna er, þau vilja horfa á hlut- ina aftur og aftur, og að mörgu leyti má segja að þetta módel, að leigja einn hlut í hvert skipti, henti ekkert sérstaklega vel fyrir barnafjölskyld- una,“ segir Friðrik. Hann segir þjónustu af þessu tagi ekki munu leysa gamla leigufyrirkomulagið af hólmi, heldur sé um við- bót að ræða. holmfridur@mbl.is Ótakmarkaður aðgang- ur að talsettu barnaefni Þeir knapar sem náðu bestum ár- angri á síðasta ári eru tilnefndir í val á knöpum ársins. Fimm eru til- nefndir í hverjum flokki og verða úr- slitin tilkynnt á uppskeruhátíð hestamanna sem fram fer á Broad- way annað kvöld, laugardag. Við val á knapa ársins eru til- nefndir tveir heimsmeistarar frá Berlínarleikunum og þrír Íslands- meistarar frá síðasta ári. Þeir eru Árni Björn Pálsson, Bergþór Egg- ertsson, Jakob Svavar Sigurðsson, Jóhann Rúnar Skúlason og Sig- urbjörn Bárðarson. Jóhann varð tvöfaldur heimsmeistari á Heims- leikum íslenska hestsins í Berlín og Bergþór vann þar það afrek að verða heimsmeistari í fjórða skipið í röð í 250 metra skeiði, í öll skiptin á sama hestinum, og var sæmdur knapaverðlaunum FEIF í mótslok. Jakob Svavar varð fjórfaldur Ís- landsmeistari í Borgarnesi á síðasta ári og keppti á Heimsleikunum í Berlín. Árni Björn og Sigurbjörn unnu einnig Íslandsmeistaratitla og stóðu sig vel á öðrum mótum. Þessir menn eru tilnefndir í fleiri flokkum en flokkarnir eru þessir: Íþróttaknapi: Árni Björn Pálsson, Hinrik Bragason, Jakob Svavar Sig- urðsson, Jóhann Rúnar Skúlason, Sigurbjörn Bárðarson. Gæðingaknapi: Eyjólfur Þor- steinsson, Ísólfur Líndal, Sigurður Vignir Matthíasson, Sigurður Sig- urðarson, Steingrímur Sigurðsson. Skeiðknapi: Bergþór Eggertsson, Eyjólfur Þorsteinsson, Konráð Val- ur Sveinsson, Sigurbjörn Bárðarson, Teitur Árnason. Efnilegasti knapinn: Anna Krist- ín Friðriksdóttir, Birgitta Bjarna- dóttir, Konráð Valur Sveinsson, Svandís Lilja Stefánsdóttir, Skúli Þór Jóhannsson. Kynbótaknapi: Árni Björn Páls- son, Guðmundur Björgvinsson, Jak- ob Svavar Sigurðsson, Helga Una Björnsdóttir, Þórður Þorgeirsson. Þá verða veitt verðlaun fyrir ræktun keppnishesta og eru fjögur bú tilnefnd: Auðholtshjáleiga, Efri- Rauðalækur, Kvistir, Þóroddsstaðir. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Heimsleikar Knapar íslenska landsliðsins og áhorfendur gátu fagnað góð- um árangri í nokkrum greinum á Heimsleikunum í Berlín. Bestu knaparnir útnefndir á hátíð Verðlaun og hátíð » Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Broadway laug- ardagskvöldið 9. nóvember. Auk annars verða þar veitt heiðursverðlaun LH, bestu knaparnir verðlaunaðir sem og ræktandi keppnishesta. » Guðmundur Friðrik Björg- vinsson var útnefndur knapi ársins í fyrra, Jóhann Skúlason árið þar á undan og Sigurbjörn Bárðarson 2010. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kítti og þéttiefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.