Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 20
SUÐURLAND DAGA HRINGFERÐ STOKKSEYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hvað eiga ljón, gíraffi, antílópa, sebrahestur og strútur sameiginlegt? Öll þessi dýr og fjölmörg önnur bæði af erlendum og innlendum slóðum er að finna á Veiðisafn- inu á Stokkseyri. Reyndar eru þau uppstoppuð, svo því sé nú haldið til haga, en eigandi dýranna og safnsins er Páll Reynisson sem einnig skaut þau langflest. „Ég hef líklega veitt um 98% af dýrunum,“ segir Páll. „Hér heima, í Grænlandi, Norður-Ameríku, Sví- þjóð og Suður-Afríku. Ég er rétt að byrja, listinn er langur yfir þau lönd sem mig langar til að veiða í.“ Hvert var upphafið að Veiðisafninu? „Safnið byrj- aði með tveimur uppstoppuðum fuglum. Áður en ég vissi af var ég búinn að sprengja utan af mér þrjú hús í Reykjavík. Ég flutti hingað á Stokkseyri með safnið mitt 1999, sífellt fleiri vildu skoða dýrin mín og þegar meira en 1.000 manns höfðu gengið í gegnum eldhúsið mitt á hálfu ári, hugsaði ég með mér að ég gæti alveg eins sett upp safn með auglýstum tíma og öllu því sem fylgir. Það gerði ég árið 2004 ogðan hefur safnið stækk- að um meira en helming.“ Á Veiðisafnið kemur fjöldi gesta á ári hverju. Auk dýranna sem Páll hefur fellt eru á safninu ýmsir munir frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Þá er þar alltaf byssu- sýning fyrstu helgina í mars. Til sýnis eru um 250 gripir og þegar skotvopn eru til sýnis bætast um 50 slík við. Sum þeirra skotvopna eru byssur sem Páll hefur fellt dýrin með, önnur eru safngripir. Ljón með sætu bragði Nánast öll þau dýr sem Páll skýtur erlendis lætur hann stoppa upp í viðkomandi löndum og flytur þau þannig hingað heim. „Ég sækist eftir þeirri sérþekkingu sem er til staðar í heimalandi dýrsins.“ Hann skipuleggur allar sínar veiðiferðir án milli- liða. „Ég vinn þetta algjörlega sjálfur frá A til Ö. Ég bý til skotin, veiði dýrið, smíðaði húsið sem safnið er í, set upp sýningar og þar með er talin öll hönnunarvinna og lýsing, ljósmyndun, merkingar og textagerð. Allt saman nema uppstoppunin.“ Páll segist vera söfnunarveiðimaður. „Munurinn á mér og svokölluðum kjötveiðimanni er sá að hjá mér er allt dýrið gjörnýtt, en kjötið er selt öðrum. Hefur þú snætt eitthvað af dýrunum í safninu? „Já, allt saman.“ Hvernig bragðast ljón? „Það er nokkuð sérstakt, með sætum keim. Krókódíll er býsna góður, sömuleiðis antíl- ópa og sebrahestur.“ Í safninu eru t.d. ljón, vígalegur tígur, krókódíll og Páll á fullt hús af villtum dýrum  Hefur veitt dýr víða um heim og segist vera rétt að byrja Morgunblaðið/Ómar Veiðimaður Páll hefur veitt nánast öll þau dýr sem eru til sýnis í Veiðisafninu. Meðal þeirra eru þessi tvö ljón sem hann veiddi í Afríku. Þau voru stoppuð upp þar, en Páll lætur stoppa dýrin upp í löndunum sem þau eru veidd í.  Stytta af tónskáldinu Páli Ísólfssyni var afhjúpuð á Stokkseyri 12. október síð- astliðinn. Reyndar var þetta í annað skiptið sem styttan var afhjúpuð, en hún hafði áður staðið við Ísólfsskála í 40 ár. Nú stendur hún til móts við Þuríðarbúð og var flutt þangað í tilefni af 120 ára fæðingarafmæli Páls. Páll fæddist á Stokkseyri 12. október árið 1893. Hann lagði stund á nám í org- el- og píanóleik í Reykjavík, Leipzig í Þýskalandi og í París og hélt orgeltónleika víða um Evrópu. Páll var einn forystumanna í íslensku tónlistarlífi, hann var t.d. stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur um áratugaskeið og skólastjóri Tónlistar- skólans í Reykjavík. Páll Ísólfsson lést árið 1974. annalilja@mbl.is Stytta tónskálds á nýjan stað Morgunblaðið/Ómar Minnismerki Ragnar Kjartansson myndhöggvari gerði styttuna af Páli. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Rammíslenskir draugar og for- ynjur, mórar, skottur og annað ill- þýði hefur hreiðrað um sig í um 1.000 m² rými í Draugasetrinu sem er í fyrrverandi hraðfrystihúsi við höfnina á Stokkseyri. Draugasetrið er myrkt völundarhús, þar sem draugar leynast í skúmaskotum og rísa upp, reka upp baul eða önnur óhljóð þegar síst skyldi. „Sumir halda að við séum ein- hvers konar tívolí,“ segir Einar Ingi Magnússon hjá Draugasetrinu. „En svo er ekki, heldur eru hér sagðar sögur 24 drauga, margir eru meðal frægustu drauga lands- ins, aðrir eru af svæðinu. Svona „lókal“ draugar.“ Flestar draugasögur um fátækt fólk Einar segir fjölmargar draugasögur ættaðar frá Stokks- eyri og nágrenni. „Hér bjó svo margt fólk. Þar sem er fólk, þar eru líka draugar. En það er ekkert sér- stakt sem einkennir draugasögur Mórar, skottur og ýmiskonar illþýði  Ísland er kjörlendi fyrir drauga Morgunblaðið/Ómar Á Draugasetrinu Einar Ingi segir myrkrið á Íslandi hafa ýtt undir að draugasögurnar urðu til.  Fjölmargir sem hafa látið að sér kveða í samfélaginu, hver með sínu móti, eru frá Stokkseyri eða eiga rætur þar. Fyrst má nefna Margréti Frímannsdóttur, fv. alþingismann og nú fangelsisstjóra á Litla-Hrauni. Hún er alin upp eystra og ættmenni hennar voru meðal annars karlar sem fyrr á tíð létu að sér kveða, til dæmis í verkalýðsfélagi staðarins. Sjálf var Margrét, sem nú býr í Kópa- vogi, áhrifamanneskja í þessari heimasveit sinni og varð oddviti Stokkseyrarhrepps kornung. Frá bænum Móhúsum er Kristín Guðjónsdóttir, eiginkona Karls Sig- urbjörnssonar, fyrrverandi biskups Íslands. Bróðir Kristínar er Jón Adolf, sem lengi var bankastjóri Bún- aðarbanka Íslands. Frá Ranakoti á Stokkseyri er Hin- rik Bjarnason sem starfaði í áratugi hjá Sjónvarpinu og var í fyrndinni umsjónarmaður barnatíma þess. Bærinn Holt er nokkuð ofan við Stokkseyri. Fjölmenn ætt er kennd við bæinn og meðal fólks af henni má nefna Hákon Sigurgrímsson sem lengi var framkvæmdastjóri Stétt- arsambands bænda. Aðrir Holts- menn eru t.d. Guðmundur Vernharðs- son sem rekur gróðrarstöðina Mörk í Fossvogi í Reykjavík og Bjarki Svein- björnsson tónlistarfræðingur sem meðal annars hefur verið umsjón- armaður ýmissa útvarpsþátta. Kunnastur Stokkseyringa fyrr og síðar er sennilega Páll Ísólfsson dómorganisti. Hann var frá Ísólfs- skála en margir þekktir borgarar eru af því kyni. Þar má ýmsa tiltaka, svo sem sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur. Hún þjónar við Dómkirkjuna í Reykjavík, en var til skamms tíma prestur í af- leysingum eystra og þjónaði þá sóknunum á Stokkseyri, Eyrarbakka og í Gaulverjabæ í Flóa. Frá bænum Grund, sem er austast á Stokkseyri, er Ásta Stefánsdóttir lögfræðingur sem sl. þrjú ár hefur verið framkvæmdastjóri sveitarfé- lagsins Árborgar. Fer vel á því að Stokkseyringur sinni starfinu, en ár- ið 1998 sameinuðst Stokkseyrar-, Eyrarbakka- og Sandvíkurhreppur Selfossi. Úr varð sveitarfélagið Ár- borg. Íbúar þess eru í dag 7.826 og þar af eru Stokkseyringar 465. sbs@mbl.is Margir kunnir borgarar eiga rætur sínar á Stokkseyri Margrét Frímannsdóttir Kristín Guðjónsdóttir Skálinn veitingahús 483 1485 Við veitum góða þjónustu á Stokkseyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.