Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Svissneskir sérfræðingar, sem rann-
sökuðu sýni úr líkamsleifum Yassers
Arafats, sögðu í gær að niðurstöður
þeirra hvorki sönnuðu né afsönnuðu
þá kenningu að eitrað hefði verið fyr-
ir hann með póloni, geislavirku
frumefni sem er baneitrað ef það
kemst í líkamann.
Áður hafði arabíska sjónvarpið Al-
Jazeera skýrt frá því að svissnesku
vísindamennirnir hefðu komist að
þeirri niðurstöðu í nýrri skýrslu að
rannsókn þeirra benti til þess að
Arafat kynni að hafa dáið af völdum
eitrunar. Þeim hefði „komið á óvart“
hversu mikið af póloni-210 hefði
fundist í sýnunum og niðurstöðurnar
styddu „miðlungsvel“ þá tilgátu að
Arafat hefði verið byrlað eitur.
Leiðtogar Frelsissamtaka Palest-
ínumanna (PLO) sögðu skýrsluna
„sanna“ að eitrað hefði verið fyrir
Arafat og kröfðust rannsóknar á því
hverjir hefðu verið að verki.
„Niðurstöður rannsóknarinnar
sönnuðu að eitrað var fyrir Arafat
með póloni og þetta efni er í eigu
ríkja, ekki manna, sem þýðir að það
var ríki sem framdi glæpinn,“ hafði
fréttaveitan AFP eftir Wasel Abu
Yusef, sem á sæti í framkvæmda-
stjórn PLO, samtaka Arafats. „Rétt
eins og skipuð var nefnd til að rann-
saka drápið á Rafiq Hariri [forsætis-
ráðherra Líbanons] þá ætti að skipa
alþjóðlega nefnd til að rannsaka
drápið á Arafat forseta.“
Ekkja Arafats, Suha, tók í sama
streng í viðtali við Al-Jazeera og
sagði að skýrslan sýndi að hann hefði
dáið af völdum „morðtilræðis“ og
„pólitísks glæps“.
Margir leiðtoga Palestínumanna
hafa sakað Ísraela um að hafa byrlað
Arafat eitur en stjórnvöld í Ísrael
hafa alltaf neitað því. Utanríkisráðu-
neyti landsins sagði í gær að rann-
sóknir sérfræðinga á málinu líktust
„sápuóperu frekar en vísindum“.
Með innanæðastorknun
Yasser Arafat varð forseti palest-
ínsku heimastjórnarinnar árið 1993
og dó á sjúkrahúsi í París 11. nóv-
ember 2004, 75 ára að aldri. Læknar
gátu ekki tilgreint dánarorsökina og
lík hans var ekki krufið, í samræmi
við beiðni ekkju Arafats.
Líkamsleifar Arafats voru grafnar
upp í nóvember 2012 og sýni tekin,
m.a. til að rannsaka hvort honum
hefði verið byrlað eitur. Sýnunum
var skipt á milli svissneskra og rúss-
neskra sérfræðinga og fransks hóps
sem rannsakar þau að beiðni ekkju
Arafats. Rússneskir embættismenn
sögðu í síðasta mánuði að ekki hefðu
fundist neinar leifar af póloni í sýn-
unum sem rússnesku sérfræðing-
arnir fengu.
Tilgátan um að eitrað hefði verið
fyrir Arafat fékk byr undir báða
vængi eftir að fyrrverandi rússnesk-
ur njósnari, Alexander Litvinenko,
sem hafði gagnrýnt stjórnvöld í
Kreml, dó af völdum póloneitrunar í
London árið 2006. Bresk yfirvöld
hafa sakað fyrrverandi njósnafor-
ingja rússnesku leyniþjónustunnar
um að hafa byrlað Litvinenko eitur.
The New York Times birti sjúkra-
skýrslur Arafats árið 2005 og þar
kom fram að hann veiktist fjórum
klukkustundum eftir að hann borð-
aði kvöldverð 12. október 2004 í
höfuðstöðvum sínum í borginni Ra-
mallah á Vesturbakkanum. Ísr-
aelskar hersveitir höfðu þá haldið
honum í einangrun í höfuðstöðvun-
um í þrjú ár og sakað hann um að
standa á bak við hrinu mannskæðra
árása Palestínumanna í Ísrael.
Arafat fékk uppköst, var með
niðurgang og þjáðist af iðraverkjum
næstu tvær vikurnar, en fékk ekki
hita. Sjúkragögnin sýndu að Arafat
fékk ekki nein sýklalyf fyrr en 27.
október, fimmtán dögum eftir að
hann veiktist. Tveimur dögum síðar
var hann fluttur með þyrlu til Jórd-
aníu og þaðan á hersjúkrahús nálægt
París. Franskir læknar komust þá að
þeirri niðurstöðu að Arafat væri með
bráða innanæðastorknun (DIC), en
það er sjúkdómsástand sem veldur
blóðtöppum í smáum æðum, skertu
blóðflæði og súrefnisskorti í vefjum.
Þeim tókst þó ekki að bjarga lífi
hans. Arafat féll í svefndá 3. nóvem-
ber, fékk heilablóðfall 8. nóvember
og dó þremur dögum síðar.
Efast um kenninguna
Fram kemur á fréttavef BBC að
margir breskir læknar eru efins um
að Arafat hafi dáið af völdum pólons
og sjúkdómseinkennin, sem lýst var í
sjúkraskýrslunum, eru ekki talin
benda til þess.
Pólon-210 er geislavirkt efni sem
finnst í náttúrunni og gefur frá sér
alfageisla sem eru mjög skamm-
drægir. Slík alfageislandi efni eru
hættulaus á meðan þau eru utan lík-
ama en hættulegri en önnur geisla-
virk efni ef þau komast inn í hann.
„Geislun í litlu magni eykur t.d.
áhættu á að fá krabbamein síðar á
ævinni. Sé geislunin mjög mikil, þá
veldur mikill frumudauði líffræðileg-
um áhrifum sem geta reynst ban-
væn,“ segir á vef Geislavarna ríkis-
ins.
Helmingunartími pólons-210 er
138 dagar, þ.e. geislunin minnkar um
helming á þeim tíma. Talið er að ekki
sé hægt að greina pólon-210 í sýnum
sem eru eldri en átta ára og rétt tæp
átta ár eru liðin frá því að Arafat dó.
Hvorki sannað né afsannað að
eitrað hafi verið fyrir Arafat
PLO vill rannsókn á „drápi“ á Arafat Ísraelar lýsa málinu sem „sápuóperu“
AFP
Skýrslan kynnt Svissneskir sérfræðingar kynna skýrslu um rannsókn á beinum Yassers Arafats á blaðamanna-
fundi í Lausanne í gær. Þeir sögðu skýrsluna styðja „miðlungsvel“ tilgátu um að Arafat hefði verið byrlað eitur.
Bendir til „þriðja aðila“
» „Við getum ekki sagt að pól-
on hafi valdið dauða hans [Ara-
fats] … og við getum ekki held-
ur útilokað það,“ sagði einn
svissnesku vísindamannanna,
François Bochud.
» Hann sagði að pólon-
magnið sem fannst í sýnunum
hefði verið allt að 20 sinnum
meira en eðlilegt teldist. „Það
bendir til aðildar þriðja aðila.“
AFP
Ekkjan Suha Arafat tekur við
skýrslu svissneskra sérfræðinga.
Borgarstjóri To-
ronto í Kanada,
Rob Ford, er nú
enn einu sinni
kominn í kland-
ur, í þetta sinn
vegna mynd-
skeiðs þar sem
hann sést hóta að
myrða óþekktan
mann. Borgar-
stjórinn hefur beðist afsökunar á
atvikinu og segist hafa verið „af-
skaplega, afskaplega ölvaður“.
Áður hafði borgarstjórinn neyðst
til að viðurkenna að hann hefði
reykt krakk. Blaðamenn skýrðu frá
því í maí að þeir hefðu séð mynd-
band þar sem Ford sæist reykja
krakk en borgarstjórinn vildi ekki
viðurkenna það fyrr en á þriðju-
daginn var. Hann baðst þá afsök-
unar á því að hafa reykt krakk og
bar því við að hann hefði gert það í
„fyllirísrugli“.
Ford hefur neitað að segja af sér
og segist ætla að sækjast eftir
endurkjöri á næsta ári. Gamlir
bandamenn hans í borgarstjórninni
segja að þótt þeir treysti honum
ekki lengur geti þeir ekki vikið
honum frá nema hann verði dæmd-
ur fyrir lögbrot. bogi@mbl.is
Drukkinn
borgarstjóri
hótaði morði
Rob Ford
Svíþjóðardemó-
kratar vilja að út-
lendingum verði
bannað að betla í
landinu. Flokkur-
inn vill að brjóti
fólk bannið verði
hægt að refsa því
með fangelsisvist
eða brottvísun.
Svíþjóðar-
demókratar kom-
ust fyrst á þing árið 2010. Þeirra
helsta baráttumál var hert löggjöf
um innflytjendur. Flokkurinn bind-
ur vonir við að koma enn fleiri
fulltrúum á þing í næstu kosningum
í september á næsta ári. Kannanir
sýna að flokkurinn hefur nú á bilinu
8-12% stuðning meðal sænskra kjós-
enda.
Samkvæmt stefnuyfirlýsingu
flokksins eru tvær tegundir betlara í
Svíþjóð. Þeir segja betlara koma til
landsins til að gera betl að atvinnu
sinni. „Við getum ekki borið þá sam-
an við sænska betlara sem betla oft
af því að þeir eru heimilislausir eða
háðir eiturlyfjum og áfengi,“ segir í
stefnuyfirlýsingunni.
Svíþjóðardemókratar segja að
„atvinnubetlarar“ eigi ekki heima í
Svíþjóð. sunna@mbl.is
Vilja að útlend-
ingum verði
bannað að betla
SVÍÞJÓÐ
Sænskir lög-
reglumenn.
Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg
náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í
almennt sorp að notkun lokinni.
Efnamóttakan leggur heimilum og
fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda
söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja
í hann ónýt smáraftæki.
Kassinn er margnota og hann má nálgast á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga.
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Rafhlöðukassi
Það má losa úr kassanum á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga
(endurvinnslustöðvum). Einnig er víða
tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar
rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs.
Hvert á að skila?