Morgunblaðið - 08.11.2013, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
✝ Jónína Finsenfæddist í
Reykjavík 23. júní
1928. Hún lést á
hjúkrunar- og
dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi
4. nóvember 2013.
Foreldrar Jón-
ínu voru hjónin
Kristjana Guð-
brandsdóttir
Norðdahl og Ás-
kell Norðdahl pípulagn-
ingamaður. Þau bjuggu allan
sinn búskap í Reykjavík. Jón-
ína átti þrjá bræður, Erling og
Gunnar Davíðssyni og Guð-
þau tvö börn og tvö barna-
börn.
Jónína ólst upp í Reykjavík
og flutti upp á Akranes 1947
þar sem hún bjó síðan. Hún
stundaði sjúkraliðanám, sótti
kennslu í því til Reykjavíkur
og lauk fullu námi og varð hún
fyrsti sérmenntaði sjúkraliðinn
við Sjúkrahúsið á Akranesi.
Síðar bætti Jónína við sig
námi sem röntgentæknir,
geislafræðingur, og hlaut full
og óskert réttindi á því sviði
og varð hún yfirröntgentæknir
á Sjúkrahúsi Akraness um ára-
bil.
Útför Jónínu fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 8. nóv-
ember 2013, og hefst athöfnin
kl. 10.30.
mund Grétar Norð-
dahl, en þeir eru
allir látnir.
Jónína giftist
Niels Finsen árið
1947. Foreldrar
hans voru Ingi-
björg Ísleifsdóttir
og Ólafur Finsen,
héraðslæknir á
Akranesi.
Jónína og Níels
áttu tvö börn,
Björn Inga, kvæntur Guðrúnu
Engilbertsdóttur og eiga þau
þrjú börn og fjögur barnabörn,
og Kristjönu Áslaugu, sem er
gift Roel Woudstra og eiga
Elsku hjartans mamma mín:
Lífið þekki ég ekki án þín. Þó
að fjarlægðin hafi oft verið mikil
og þótt heimshöfin hafi skilið okk-
ur að, þá fylgdumst við alltaf vel
hvor með hinni. Samband okkar
var sterkt og þegar við gátum ver-
ið saman, sem alltaf var a.m.k.
einu sinni til tvisvar á ári, ríkti
mikill fögnuður og ánægja.
Minningin um einstaka konu,
sem þú varst, bæði sjálfstæð og
sterk, mun lifa í hjarta mínu.
Takk fyrir lífið sem þú gafst
mér í allri sinni litadýrð og þrosk-
ann að takast á við það.
Ástarþakkir, mamma mín. Ég
elska þig.
Þitt ástarblóm,
Áslaug.
Tengdamamma mín, Nína,
Jónína Steinvör Finsen, lést á
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi 4. nóvember sl.
rösklega 85 ára gömul.
Jónína giftist Níels Finsen,
gjaldkera hjá Haraldi Böðvars-
syni & Co á Akranesi, árið 1947 og
áttu þau saman og ólu upp tvö
börn, Björn Inga og Kristjönu Ás-
laugu. Á Akranesi vann Jónína í
fyrstu sem heimavinnandi hús-
móðir, eins og það er kallað, en
síðar fór hún í og lauk sjúkraliða-
námi að hvatningu góðs manns á
sjúkrahúsinu og seinna aflaði hún
sér fullra réttinda sem röntgen-
tæknir, geislafræðingur. Hún
starfaði um árabil sem yfirgeisla-
fræðingur á sjúkrahúsinu á Akra-
nesi.
Ég kynntist Nínu, sem verð-
andi tengdasonur hennar, er ég
kom fyrst til Íslands árið 1966.
Mér er það enn í fersku minni hve
vel hún og maður hennar tóku
mér, reynslulitlum útlendingnum
og væntanlegum tengdasyni, á
þessu tiltölulega erfiða tímabili á
Íslandi, þegar erfitt var að fá at-
vinnu hvort sem það var við höfn-
ina í Reykjavík, á eyrinni eða á
öðrum stöðum. Síðar rættist úr í
vinnumálum þegar ég þakklátur
fékk kærkomna atvinnu á Akra-
nesi við sementsverksmiðjuna,
sem þá var tiltölulega nýrisin.
Bjuggum við Áslaug fyrstu hjú-
skaparmánuði okkar, á fyrsta eig-
inlega heimili okkar hjá Nínu og
Níels á neðri hæðinni á Vestur-
götu 42 á Akranesi. Sambúðin á
milli hæða á Vesturgötunni gekk
vissulega mjög vel og bar ekki
skugga á.
Síðan skipuðust mál þannig að
vík varð milli vina er við hjóna-
kornin ákváðum að setjast að í
heimalandi mínu, Hollandi, þar
sem við Áslaug bjuggum um ára-
bil. Það var alltaf tilhlökkunarefni
að koma í heimsókn til Íslands og
að fá tengdaforeldrana í heimsókn
til Hollands. Náðum við fjögur að
ferðast mikið saman á Íslandi, í
Hollandi og að fara, bókstaflega,
um víða veröld í áranna rás. Dæt-
ur okkar Áslaugar, Nína Gréta og
Thelma Ýr, fengu einnig tækifæri
til að kynnast ömmu sinni og afa á
Íslandi og þegar þau komu í heim-
sóknir til Hollands og lærðu sína
íslensku að miklu leyti hjá þeim.
Það var gott.
Þegar Nína var orðin ekkja
kom hún nokkrum sinnum til okk-
ar til Spánar þar sem við Áslaug
búum nú, en heilsa hennar brást
og ferðir hennar þangað lögðust
af. Síðustu árin átti tengda-
mamma heima á Hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi
þar sem starfsfólk allt sinnti
henni svo að til fyrirmyndar var.
Ég kveð með þessum fátæklegu
orðum góða tengdamömmu mína
og mun sakna hennar.
Roel Woudstra.
Þegar amma fæddist var heim-
urinn öðruvísi og oft þurfti hún á
lífsleiðinni að taka á vandamálum.
Hún hélt þó alltaf áfram að vera
sterk á sinn máta.
Þrátt fyrir fjarlægðina – en við
systurnar ólumst upp í Hollandi –
höfum við alltaf verið í mjög
sterkum tengslum við ömmu.
Nær því á hverju ári fórum við til
Íslands eða amma kom til okkar
og það er henni að þakka að við
tölum sæmilega íslensku.
Við lítum til baka með mikilli
ánægju á sumarfríin sem við nut-
um saman í æsku okkar systra.
Okkur kom mjög vel saman við
ömmu, vorum miklir vinir og
gaman var að fara í tjaldferðir
með henni, til dæmis til Laugar-
vatns.
Í minningunni nutum við þess
að heyra í drynjandi eldfjallinu
Heklu í nágrenninu. – Í svefnpok-
unum skulfum við af ótta en
amma hvíldist vel á milli okkar og
hraut hátt. Við gleymum heldur
aldrei mörgum ferðum um landið
hennar, til dæms til Flateyjar og í
Þórsmörk og mörgum sinnum
fórum við í bíó.
Ég minnist þess einnig að eitt
sinn sagði hún við okkur systurn-
ar: „Stelpur. Nú skulum við fara
og skoða „líkin“ – eins og við
skildum hana – og okkur varð
ekki um sel. Reyndar misskildum
við hana þarna því að hún vildi
fara að skoða læk en „lækur“ og
„lík“ eru svipuð orð á hollensku og
íslensku. Hún fór svo með okkur
framhjá kirkjugarði til þess að
skoða fallegan, tæran læk nálægt
Nauthólsvík. Okkur létti mikið
þegar við sáum að líkið var lækur.
Við vorum ungar þá. Við höfum
oft hlegið að þessum misskilningi.
Ömmu þótti gaman að mat-
reiða og gerði það vel. Það er ekki
skrítið því að mamma hennar var
matreiðslumaður. Mikið nutum
við matar ömmu og okkur fannst
enginn elda betri íslenskan mat.
Okkur fannst hún líka vera „töff“
þegar hún gat sjálf reytt rjúpur
um jólaleytið og matreitt þær svo.
Þetta hefðum við aldrei treyst
okkur til að gera, að slíta fjaðrir af
fuglum, þótt dauðir væru.
Amma var gestrisin og vildi
láta gestum líða vel hjá sér. Oft
sátu gestir langtímum saman hjá
henni í eldhúsinu við Vesturgötu.
Það skipti hana einnig miklu máli
að hún liti vel út og hún vildi vera
„tipptopp“ í fínum fötum og með
vel snyrtar neglur. Við vorum
ánægðar að eiga svona „moderne“
ömmu sem þorði að bera ný föt og
veski. Gjarnan gekk hún í rauð-
um, háhæluðum skóm og við vor-
um stoltar þegar við gengum við
hlið hennar í bæjarferðum. Amma
var einnig „sniðug“ í handavinnu
og bjó til föt á barbie-dúkkurnar
okkar. Henni þótti afar gaman
lesa og að spila brids og hún
kenndi okkur að spila á spil. Mikið
fundum við til með henni þegar
sjón hennar fór að versna. Hún
vildi þó halda áfram að spila því
kollurinn var vel í lagi.
Á seinni árum flugum við
stundum saman um jólin frá Hol-
landi til Spánar til pabba og
mömmu og á leiðinni áttum við oft
ánægjuleg samtöl um liðna tíma,
sem skipti mig miklu máli.
Í minningunni verður hún ætíð
hlý amma með jákvætt hugarfar,
viljastyrk, opinn huga og staðföst
var hún. Ég mun sakna hennar af-
ar mikið.
Hví í friði, elsku amma.
Nína-Greta
Rulkens-Woudstra.
Ég minnist margs í sambandi
við þig, amma Nína, og svo margs
að einungis er unnt að nefna sumt.
Þú varst með hlýjan persónu-
leika sem barst um allt nálægt
þér. Þú naust þess að umgangast
fólk og ræða málin við það.
Andi þinn var alltumlykjandi
og mér þótti gott að vera nálægt
þér.
Þú þekktir margt sem „amma“
á að vita um. Ef við þurftum svar
við einhverju, jafnvel því sem
tengdist tilteknum lyfjum, kunnir
þú alltaf svarið. Þér þótti vænt um
hundana þína og hundana okkar
og þú naust þess að spila brids.
Þú fylgdist vel með tískunni,
gekkst oft með fallegar handtösk-
ur og varst með afar fallegar negl-
ur.
Þér þótti gott að elda mat
handa öðrum og bjóst til frábær-
an mat. Ég man vel eftir því að fá
„saltkjöt og baunir ömmu“ þegar
ég var í heimsókn hjá þér á Ís-
landi. Og síðast en ekki síst varstu
sú besta amma sem ég hefði getað
fengið. Mér finnst það gott að
hafa átt þig sem ömmu og ég mun
alltaf muna eftir þér, amma mín.
Thelma Ýr Woudstra.
Jónína S. Finsen
✝ Ármann Jóns-son fæddist í
Vestmannaeyjum
27. ágúst 1928.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 31. október
2013.
Foreldrar hans
voru Jón Finnbogi
Bjarnason, f. 28.
febrúar 1886, d.
1966, fæddur í Ár-
múla, N-Ís., trésmiður og lög-
reglumaður á Ísafirði, síðar
veitingamaður í Vest-
mannaeyjum, og barnsmóðir
hans, Sigríður Ingibergsdóttir,
f. 31. maí 1911 í Vest-
mannaeyjum, d. 29. janúar 2002.
Fóstri hans var Jóhann V. Guð-
laugsson, f. 1906, d. 2002, en
hann kvæntist Sigríði 19. októ-
ber 1935. Foreldrar Sigríðar
voru Ingibergur Hannesson, f.
15. febrúar 1884 að Votmúla í
Flóa, Árn., d. 3. september 1971,
bóndi og sjómaður í Hjálmholti í
Vestmannaeyjum, og Guðjónía
Pálsdóttir, f. 14. febrúar 1884 á
húsmóðir. b) Valgarður Ár-
mannsson, f. 16. febrúar 1958,
vélstjóri, kona hans er, Elínborg
Þorsteinsdóttir, f. 2. febrúar
1960, þau skildu. Börn: 1) Þor-
steinn Víðir, f. 29. maí 1983, d. 6.
júlí 2005, 2) Margrét, f. 31. júlí
1986, 3) Einar Ármann, f. 28.
maí 1992. c) Guðbjörn Ármanns-
son, f. 12. júlí 1963. Kona hans
er Stefanía Ástvaldsdóttir, f. 28.
febrúar 1964, börn þeirra: 1)
Birkir Már, f. 2. mars 1991, og
Guðrún María, f. 11. nóvember
1993. Fóstursonur Ástvaldur
Helgi Gylfason, f. 12.maí 1984.
d) Einar Bergur Ármannsson, f.
6. júlí 1970, d. 16. ágúst 1992.
Ármann hóf ungur störf á sjó.
Starfaði lengst af við sjó-
mennsku á skipum og togurum,
auk annarra verkamannastarfa.
Seinni hluta starfsævinnar
starfaði hann í álverinu í
Straumsvík. Hestamennsku
stundaði hann af kappi í ára-
tugi. Hélt hann hesta og hesthús
í Hafnarfirði eins lengi og heils-
an leyfði. Síðustu æviárin bjó
hann í Sunnuhlíð.
Útför Ármanns fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 8. nóv-
ember 2013, og hefst athöfnin
kl. 11.
Kirkjubóli í Miðnes-
hreppi, d. 19. des-
ember 1948, hús-
freyja í Hjálmholti í
Vestmannaeyjum.
Sammæðra Ár-
manni eru: Ingi-
björg Edda Jó-
hannsdóttir, f.
1932, Guðlaugur
Reynir Jóhannsson,
f. 1944. Samfeðra
Ármanni: Páll Jóns-
son, f. 1909, d. 1927, Ragnhildur
Ingibjörg Ásgeirsdóttir, f. 1910,
d. 1981, Bjarni Gíslason Jóns-
son, f. 1911, d. 1987, Magnús
Jónsson, f. 1916, d. 2012, Ásgeir
Jónsson, f. 1919, d. 2004, Guð-
rún Kolbrún Jónsdóttir, f. 1929.
Ármann kvæntist Margréti
Sigríði Einarsdóttur, f. 21. mars
1930, d. 3. október 2010, sauma-
konu og húsmóður, 28. febrúar
1958. Þau skildu. Börn: a) Hauk-
ur Ármannsson, f. 15. sept-
ember 1955, fyrri kona He Xi
Rong, f. 20. október 1950, þau
skildu, seinni kona Þórey Að-
alsteinsdóttir, f. 29. mars 1946,
Saddur lífsdaga og hrakandi
heilsan undanfarin ár hafði tek-
ið sinn toll. Það bar æ oftar á
góma hjá þér að þú hefðir þínar
efasemdir um að bókhaldið hjá
Pétri í efra væri rétt fært.
Sagðir að öll ættum við okkar
kerti sem kveikt væri á þegar
við fæddumst og fyrir löngu
væri búið að ákveða hvenær á
því slokknaði, um það hefðum
við ekkert að segja. Sagðir að
þessi vísdómur sem eldri skips-
félagi þinn mælti við þig hefði
róað þig þegar öldurnar hefði
virst ætla að kaffæra skipið
sem þú varst á sem unglingur.
Nú nær loginn þinn ekki að
lýsa okkur lengur.
Það var ekki mulið undir
hann pabba. Ungur varð hann
að standa fyrir sínu. Skóla-
ganga var stutt í miðri kreppu.
Sjómennskan varð stór hluti af
hans ævi. Hann varð hjálpar-
kokkur á togara aðeins 14 ára
gamall, réri með frændum sín-
um á Reyni VE-15, eftirsóttur
sjómaður sem fylgdi aflasælum
skipstjóra af togarum Sigurði
RE-4 yfir á Hólmatind frá
Eskifirði og síðan yfir á nýjan
skuttogara frá Þingeyri. Marg-
ar voru þær sögur sem hann
sagði okkur um aðbúnað sjó-
manna svo sem þriggja mánaða
saltfisktúra til Grænlands þar
sem vatnið var naumt skammt-
að, eða þá byltingu sem þér
fannst verða við tilkomu kraft-
blakkarinnar, þegar sjómenn
þurftu ekki lengur að draga nót
síldarskipanna með handafli að
skipshlið. Hann lauk vinnuferl-
inum í Straumsvík þar sem
honum þótti gott að vera í hit-
anum af framleiðslunni í
steypuskálanum.
Honum fannst gaman að
taka í spil, hvort sem það var
brids, manni, vist, kasína eða
rússi. Ekki gagnaðist það mót-
spilurum að reyna að reikna
hann út, því hann hafði ekki
fyrir því að sortera spilin, en
gat rakið spil sem voru komin
út, fjölda trompa, legu sorta og
annað eftir því. Sömuleiðis var
áhugi á skák mikill. Hann
sökkti sér niður í skákþrautir
sem birtust í dagblöðunum
fram undir það síðasta. Einatt
þurfti maður að fara yfir þetta
með honum og gefa sitt álit á
því hver lausnin væri.
Upp úr 1980 hellti hann sér
út í hestamennsku af miklum
krafti, jókst hún stig af stigi.
Keypti hann sér hesthús í
Hafnarfirði sem varð fljótt
hans líf og yndi. Þar átti hann
góðar stundir, næmleiki hans í
umgengni við dýr var eftirtekt-
arverð. Í honum bjó örugglega
massíft bóndagen. Átti hann
hrafn að kunningja í mörg ár.
Ef Ármann sýndi sig ekki úti
við átti hrafninn til að vappa að
hurð sem lá að kaffiaðstöðunni
og banka með svörtum gogg-
inum í tréverkið. Það var eft-
irtektarvert á hvern hátt hross-
in hans brugðust við þegar
hann ræddi við þau um fram-
göngu þeirra, það var eitthvað í
röddinni sem þau skildu.
Barnabörnin sóttust eftir að
komast í hesthúsið með afa. Að
moka flórinn var ekki talið eftir
sér.
Ármann mátti sjá á eftir
yngsta syni sínum, Einari
Bergi, sem lést af slysförum
aðeins 22 ára. Tók það mikið á
hann
Á efri árum lagði Ármann
land undir fót og heimsótti
ferðamannastaði á Spáni, Kan-
aríeyjum, Króatíu og Kúbu.
Hafði hann mikið álit á Kúbu
eftir þá ferð, vildir meina að
Kastró hefði ekki staðið sig illa.
Þinn sonur,
Guðbjörn.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Elsku Ármann, mig langar
að þakka þér fyrir að hafa
fengið að vera hluti af lífi þínu,
en þau kynni hófust þegar ég
fór að vera með Guðbirni syni
þínum. Hann ætlaði að skreppa
og leysa af í Vestmannaeyjum í
nokkra mánuði en síðan eru lið-
in 24 ár. Það var oft erfitt að
vera svona langt í burtu frá
þér, ekki síst núna í veikindum
þínum.
Takk fyrir að vera svona
góður afi barnanna okkar. Þau
elskuðu að fá að fara til afa upp
í hesthús. Þér tókst ekki að
gera mig að hestakonu enda
skíthrædd við hesta, hélt mig
alltaf í hæfilegri fjarlægð frá
þeim svo lítið bæri á. Því ekki
vildi ég láta börnin mín sjá að
ég væri skelfingu lostin við
þessar stóru skepnur sem þú
og þau elskuðu. Fékk mér held-
ur „kaffi“ í hesthúsinu á meðan.
Það gerði ég bara einu sinni því
þetta var það allra versta kaffi
sem ég hef smakkað. Þér
fannst það alveg ágætt, það gaf
þér yl í kroppinn eftir góðan
útreiðartúr.
Hvað með það þó að það
hafði staðið á hellunni allan
daginn. Það var þér mjög erfitt
þegar þú þurftir að láta hest-
ana eftir að heilsan gaf sig og
þú treystir þér ekki á bak. Ég
sé þig alveg fyrir mér núna
þeysast um himininn á hest-
baki. Þú elskaðir lopapeysuna
sem ég prjónaði handa þér með
hestunum á. Það var erfitt að
fá þig til að fara úr henni, sama
hvað hjúkkurnar reyndu. Þú
hættir ekki fyrr en þér var
leyft að sofa í henni líka, sagðir
að þú fengir annars lungna-
bólgu.
Við erum búin að sitja og
rifja upp góðar og skemmti-
legar stundir sem við áttum
með þér. Það er yndislegt að
sjá hvað börnin ljóma þegar
þau rifja upp allar sögurnar
með afa.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Þín tengdadóttir,
Stefanía.
Takk fyrir allt sem þú hefur
sagt okkur, sýnt okkur og
kennt okkur. Alltaf þótti okkur
vænt um það þegar við fórum
til þín í kaffi í Kópavoginn, þar
sem þú sagðir að veðrið væri
hvergi betra. Þú tókst alltaf svo
vel á móti okkur og hafðir svo
gaman af öllu sem við tókum
okkur fyrir hendur. Fá að fara
með þér í hesthúsið þar sem
kom fyrir að neitað var að fara
heim fyrr en við fengum að
moka flórinn, ekki veit ég enn
þá hvernig þú fékkst okkur til
að vilja gera það.
Hestarnir hans, Strákur,
Mosi og Krummi skildu þig
líka, það var oft ótrúlegt hvað
þeir hlýddu alveg eins og við.
Þegar afi fór inn í hesthús þá
eltu þeir og sátum við þá
stundum á baki.
Alltaf þótti okkur vænt um
það þegar þú komst upp í bú-
stað í heimsókn og annað okkar
fékk oft að æfa hvernig ætti að
keyra beinskiptan bíl fyrst und-
ir þinni leiðsögn sem var fróð-
legt, mikilvægar kennslustund-
ir í því hvernig ætti að
bregðast við mismunandi áreiti
frá öðrum ökumönnum, og
hvernig best væri að svara á
ýmsan hátt.
Alltaf hafðirðu þinn góða
(létt svarta) húmor sem gerði
hverja heimsókn einstaka og
létti manni lundina, það er eitt-
hvað sem við munum alltaf
eiga.
Þín barnabörn,
Birkir Már, Guðrún María
og Ástvaldur.
Ármann Jónsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýs-
ingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa
borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi
borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar