Morgunblaðið - 08.11.2013, Side 33

Morgunblaðið - 08.11.2013, Side 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 ✝ Jóna GuðleifSigurjónsdóttir fæddist í Reykja- vík 19. febrúar 1933. Hún lést í Reykjavík 6. októ- ber 2013. Foreldrar henn- ar voru Sigurjón Óskar Gíslason, f. 1910, d. 1986 og Anna Árnadóttir, f. 1913, d. 1993. Systir hennar er Guðrún Jóna Sigurjónsdóttur, f. 1936. Sonur: Baldur Þór Baldursson, f. 1961. Barnsfaðir Jónu var Björn Birta, f. 1979. Maki: Sveinn Logi Sölvason, f. 1978. Börn þeirra eru Herdís Anna, f. 2006 og Óttar, f. 2009. b) Brynja, f. 1982. Maki: Hjörtur Jóhann Jónsson, f. 1985. Móðir Birtu og Brynju er Áslaug Óttars- dóttir, f. 1957 c) Björn Brynj- úlfur, f. 1988. d) Arnaldur, f. 1991. 3) Sverrir Sigurjón Björnsson, f. 1958. Maki: Ás- laug Harðardóttir, f. 1958. Börn: a) Hrefna Björk, f. 1981. Dóttir hennar og Bjarna Sig- urðssonar, f. 1981, er Ronja, f. 2006. b) Sunneva, f. 1992. 4) Helga Hrönn Hilmarsdóttir, f. 1964. Maki: Hörður Valtýsson, f. 1959. Börn: a) Hjalti, f. 1990. b) Signý, f. 1992. c) Anna, f. 1996. Minningarathöfn verður haldin fyrir nánustu vini og vandamenn. Brynjúlfur Björns- son, f. 1910, d. 1972. Eiginmenn Jónu voru: 1) Hilmar Snær Hálf- dánarson, f. 1934. 2) Karl Guðmunds- son, f. 1931, d. 2006. 3) Alan Vi- ner Goldingay, f. 1938, d. 2007. Börn Jónu eru: 1) Anna Björnsdóttir, f. 1954. Maki: Halldór Guðmunds- son, f. 1945. 2) Björn B. Björns- son, f. 1956. Maki: Hrefna Har- aldsdóttir, f. 1958. Börn: a) Jóna tengdamóðir mín var eft- irminnileg kona. Hún var stór- glæsileg Reykjavíkurmær, skarp- greind og skemmtileg, víðlesin og með einstaklega góðan húmor. Hún kom auðveldlega auga á það skrýtna og skemmtilega í kringum sig og var mikil sögu- kona. Jóna hafði mjög gott minni og skarpa sýn og skoðanir á mönnum og málefnum. Reykjavík bóhemanna og fjölbreytilegs hóps samtímamanna hennar og vina á sjötta og sjöunda áratugnum varð ljóslifandi í frásögn hennar sem við fjölskyldan nutum að hlusta á. Allt var sveipað rómantík, dulúð og húmor í hennar frásögn, þó að sennilega hafi veruleikinn ekki alltaf verið þannig. Hún var lengst af einstæð móð- ir og lífið gat því oft verið snúið og erfitt. Þá reyndi á útsjónarsemi, góðan húmor og hæfilegt kæru- leysi Jónu, en þeir eiginleikar hjálpuðu henni án efa oft að finna leiðir til að gera lífið léttara. Jóna var bókelsk með eindæm- um og las frá unga aldri allt sem hún komst yfir; skáldskap frá öll- um heimshornum, reyfara, sögu- legan fróðleik og allt þar á milli. Hún var fastagestur á bókasöfn- um, í bókabúðum og hjá fornbóka- sölum. Það var gaman að ræða við Jónu um bækur og hægt að fletta upp í henni um allt milli himins og jarðar; hún hafði alltaf lesið um það einhvers staðar. Síðustu árin leið henni best heima við með góða bók og kisu í grennd. Þegar Jóna bjó erlendis um langt árabil, lengst af í Bretlandi, héldum við alltaf góðu sambandi með bréfaskriftum, enda var hún alla tíð mikil sendibréfakona. Hún náði aldrei alveg tökum á tölvu- póstinum eftir að hann kom til, en kunni miklu betur að meta póst- kort og sendibréf. Hún var ljóm- andi góður penni og hafði fallega rithönd. Jóna var mjög þakklát fyrir fólkið sitt og sýndi því mikla ást og áhuga, hrósaði óspart og hvatti áfram. Hún var heppin með börn- in sín, sem hafa alltaf verið jafn- ingjar hennar og nánir vinir og staðið með henni í gleði og mót- læti. Barnabörnin hafa hvert með sínum hætti tengst ömmu Jónu og munu eiga minningar um ömmuna sem var ólík öllum ömmum og barnabarnabörnin þrjú náðu líka góðum tíma með langömmu – og kisu. Jóna var í eðli sínu bóhem sem hafði ekkert vit á peningum og átti lítið af þeim um ævina, en ef henni áskotnaðist aur, notaði hún alltaf tækifærið og sló upp veislu eða gaf fólkinu sínu gjafir. Hún var fordómalaus mann- eskja og opin fyrir nýjungum og breytingum eins og líf hennar bar merki; hún var oft langt á undan sinni samtíð og gat verið frumlegri í hugsun og skoðunum en korn- ungt fólk. Að leiðarlokum hugsa ég til minnar kæru trúnaðarvinkonu og tengdamóður með söknuði og trega, en um leið miklu þakklæti fyrir tæplega þrjátíu ára skemmtilega samfylgd. Hrefna. Mig langar aðeins að minnast tengdamóður minnar með nokkr- um orðum. Af mörgu er að taka og veit ég varla hvar ég á að byrja. Jóna Sig- urjónsdóttir var ótrúlega sterkur karakter og eftirminnileg. Mér er minnisstætt þegar ég var að kynn- ast Sverri, Bjössa og Helgu og kom til þeirra á Tjarnargötu hvað Jóna tók mér fagnandi, eins og mér fannst hún taka öllum, hvort sem það voru vinir krakkana, stór- útgerðarmenn eða einhver sem mátti sín lítils af götunni. Það voru alltaf allir velkomnir. Ég kynntist Jónu árið 1976, þá var ég nú bara unglingur, svo var það á Þorláksmessu að ég var eitt- hvað að þvælast heima hjá henni og ætlaði að fara að koma mér heim, þá segir hún: „Ert þú ekki til í að sitja með mér, ég þarf að undirbúa jólamatinn og við getum spjallað smávegis? Jú, jú, ég var alveg til í það. Þessi nótt varð þannig að ég hjálpaði henni með undirbúninginn og hún sagði mér ótrúlegar sögur af sér og vinum sínum og við grétum úr hlátri alla nóttina. Jóna gat sagt svo ótrúlega skemmtilega frá og hafði frá svo mörgu að segja. Mér fannst eins og hún hefði lifað mörgum lífum strax í þá daga. Við áttum oft eftir að spjalla saman langt fram eftir nóttu eftir þetta. Jóna var víðlesin og fylgdist vel með allt fram á síð- asta dag. Maður kom aldrei að tómum kofa unum hjá henni. Ég minnist hennar með hlýhug og þakklæti, blessuð sé minning hennar. Áslaug Björg Harðardóttir. Í dag kveðjum við gáfaða, skemmtilega og sérstaka konu sem fetaði ekki hefðbundnar slóð- ir. Við Jóna kynntumst á balli. Við vorum að fagna sigri vinstri flokk- anna í borgarstjórnarkosningun- um í júní 1978. Alþýðubandalagið hélt kosningavöku í Sigtúni þetta kvöld og þar hittumst við Jóna, ég um tvítugt, hún rúmlega fertug. Eftir að hafa rabbað við hana góða stund fannst mér tilvalið að sýna henni strákinn sem ég hafði líka kynnst þetta kvöld. Þá kom það í ljós að þau voru mæðgin. Ég hafði sem sagt kynnst tilvonandi eigin- manni mínum og tilvonandi tengdamömmu sama kvöldið. Eftir að stelpurnar mínar fæddust var hún alltaf kölluð amma Jóna. Hún var yfir sig hrif- in þegar við sögðum henni að hún væri að verða amma og var alla tíð afskaplega ánægð með öll ömmu- börnin sín. Sambandið við þau var nú reyndar stopult þar sem Jóna bjó erlendis í mörg ár. Dætur mín- ar náðu þó báðar að heimsækja hana þegar hún bjó í Tutbury á Englandi. Við vorum alltaf í bréfa- samskiptum árin sem hún bjó úti, ég reyndi að standa mig í því að senda henni myndir af stelpunum og hún sendi mér reglulega uppá- haldskonfektið mitt. Þau ár sem hún var tengda- mamma mín voru samskiptin góð. Hún var reyndar ekki sátt við klæðaburðinn á mér, gat ekki skil- ið það að ung kona kysi helst að ganga í smekkbuxum og fótlaga skóm. Ég gleymi því aldrei þegar hún sá mig í fyrsta sinn uppábúna í kjól og á háum hælum. Það kom frá hjartanu þegar hún hrópaði upp yfir sig: „Áslaug, ladylike at last.“ Sjálf gekk hún alltaf um á háum hælum á þessum árum, m.a.s. inniskórnir hennar voru með háum hælum. Á kveðjustund set ég rúllur í hárið, lit á varir og klæði mig upp á. Það hefði ömmu Jónu líkað. Ég sendi börnunum hennar Jónu og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Áslaug Óttarsdóttir. Þó að ef til vill sé ekki til nein uppskrift af hinni hefðbundnu ömmu, erum við systur á því að amma Jóna myndi seint flokkast sem hin hefðbundna amma. Hún var amman sem djúp- steikti frauðkenndar bleikar og gular kökur þegar við vorum í heimsókn og kallaði flögur. Hún var amman sem keðjureykti með barnabörnin blaktandi beltislaus í aftursætinu á bílnum upp úr miðjum níunda áratugnum. Hún var amman sem mætti í stelpup- artí til okkar fyrir nokkrum árum, skálaði við gesti og gangandi og sagði sögur sem fæstar viðstaddra höfðu heyrt ömmur segja áður. Amma Jóna átti skrautlega ævi en hún flutti af landi brott þegar við vorum enn börn að aldri. Hún var dugleg að skrifa okkur bréf í gegnum tíðina og nokkrar frá- sagnir frá þessum árum hafa rat- að til okkar í sögum frá henni sjálfri nú síðari ár. En þó að við höfum ekki fylgst mjög grannt með heimshornaf- lakki ömmu í nokkur ár leið okkur eins og hún hefði fundið sinn ham- ingjustað í Tutbury á Englandi með Alan sínum. Þar leið henni vel og með honum leið henni vel. Enda varla annað hægt, Alan var góðmennskan og glaðværðin holdi klædd. Það var alltaf gott og gam- an að vera með þeim ömmu og Al- an og allir viðstaddir fundu fyrir gagnkvæmri vináttu þeirra og virðingu fyrir hvort öðru. Við systur heimsóttum ömmu og Alan í litla húsið þeirra í Tut- bury í sitthvort skiptið og þá hafði Alan ávallt mokað samviskusam- lega úr sælgætishillum hverfis- verslunarinnar svo okkar beið góðgæti í kassavís. Þó að sælgæti hafi sannarlega verið ofarlega á óskalistanum hjá unglingunum var ekki vinnandi vegur að gera öllum þessum kræsingum skil svo vel væri, en Alan bauð þar fram aðstoð sína svo um munaði. Amma saknaði Alans mikið eft- ir fráfall hans og þótti að mörgu leyti erfitt að flytja aftur heim til Íslands. Við fundum þó sannar- lega að henni þótti gott að vera í fyrsta sinn í mörg ár nálægt þeim hluta fjölskyldunnar sem býr hér á landi. Hún bjó sér og kettinum Kela notalegt heimili, þar sem bókastaflar voru einkennandi. Amma las alla tíð mikið, hún fylgdist vel með öllu og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún var róttæk fram á síðasta dag og þoldi illa hvers kyns óréttlæti og ójöfnuð. Hún var góð fyrirmynd fyrir ungar og óharðn- aðar systur, fróðleiksfús og eld- klár, kona sem ekki vílaði fyrir sér að viðra skoðanir sínar í blaða- greinum eða í skipulögðum mót- mælum á Austurvelli. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst ömmu betur síðustu árin. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt ömmu Jónu, sem var öðruvísi. Birta og Brynja Björnsdætur. Það er ekki gaman að skrifa minningargreinar, sérstaklega ekki um fólk sem manni þykir vænt um. 3.000 slög duga heldur engan veginn til að segja frá lífs- hlaupi, milljónum augnablika sem hafa raðast upp í 80 ára langa keðju, frá fyrsta andardrætti til þess síðasta. Smámyndir sem skipta máli fyrir þá sem lifa. Jóna með bók í höndunum. Afi Árni orðinn blindur fær hana fjög- urra ára gamla til að lýsa fyrir sér útliti bókstafanna og segir henni hljóm hvers og eins. Fimm ára les hún fyrir hann á hverjum degi, hefst þá ástarsamband sem stend- ur alla ævi. Hún hefur yndi af því að lyfta andanum í góðum fé- lagsskap, meistari Þórbergur og Laxness eru lesnir reglulega sem og Kurt Vonnegut og margir, margir fleiri. Ef hún kemst í góða bók les hún hana tvisvar í beit. Fyrst til að nema bókina og svo aftur til að njóta hverrar setning- ar fyrir sig. Það sem Jóna gat les- ið. Síðustu árin voru heilu bóka- söfnin lesin upp til agna, Kolaportið fastur viðkomustaður í leit að góðum bókum; börn, tengdabörn og barnabörn keppt- ust við að bera í hana bækur. Lestur er líkamsrækt hugans og minni hennar var með ólíkindum, allt fram til þess síðasta féll henni aldrei bók úr hendi. Jóna ung einstæð móðir að hræra skyr. Börnin hangandi á borðbrúninni full tilhlökkunar þó þetta sé þriðji dagurinn í röð sem skyr er í kvöldmatinn. Hvernig skyr verður í kvöld? Blátt? Rautt? Gult? (Trikkið er matarlitur löngu fyrir daga unninna mjólkurvara.) Það er gult. Namm namm. Öll fara þessi börn síðar í listaskóla. Þó efnin séu ekki mikil er nóg af ást og skemmtilegheitum, endlaust verið að segja þeim sögur og bregða birtu á heimsmyndina. Hún telur þeim trú um að þeim séu allir vegir færir og blessuð börnin trúa henni. Nóg til af öllu – nema peningum. Jóna alsæl með Helgu Hrönn nýfædda í fanginu heima á Reyð- arfirði, úti geisar stórhríð um kvistana á íbúðinni, hafísár og hamingja. Jóna í góðra vina hópi á Holts- götunni uppáklædd og glæsileg. Vinkonurnar Lilja, Edda, Ásdís og Emma mættar, Flosi sem og góðvinurinn Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur. Ekkert „small talk“ í boði heldur leiftrandi frá- sagnir þar sem snillingar fyrri daga fara ljóslifandi um stofuna og takast á um atburði liðinna tíma við partígestina. Samræðan svo lifandi að aldirnar renna saman í eitt, nú er gaman. Jóna áttræð uppi á vagni á Austurvelli. Norðanstormurinn næðir ískaldur um völlinn og þær fáu hræður sem hafa hætt sér á útifundinn. „Ég er enn jafn undr- andi og þá á að fólk láti bjóða sér óréttlætið sem hér ríkir ofar öllu.“ Orðin fjúka og enginn gerir neitt í málinu. Sterk réttlætiskennd og mikil samkennd með þeim sem standa höllum fæti. Vinstrimann- eskja, fyrrum starfsmaður Þjóð- viljans, Alþýðubandalagsins og Dagsbrúnar. Komin af verkafólki og sjómönnum langt aftur í ættir, veit að verkalýðsbaráttan skapaði velferðarsamfélagið og það þarf að verja. Jóna í bjartri íbúðinni sinni síð- asta sumar, situr með Kela kisa í fanginu, brosandi með blik í auga að segja skemmtilega sögu. Sverrir Björnsson. Jóna Sigurjónsdóttir ✝ Bjarni Stef-ánsson fæddist í Gröf í Lund- arreykjadal 24. október 1928. Hann lést á Dvalar- og Hjúkrunarheim- ilinu Höfða á Akra- nesi 1. nóvember 2013. Foreldrar hans voru Stefán Jóns- son, f. 14. febrúar 1900, d. 19. desember 1977 og El- ísabet Sigurbjörnsdóttir, f. 20. apríl 1902, d. 14. september 1990. Börn þeirra voru fjögur og var Bjarni elstur þeirra. Systkini hans eru: Þórunn, f. 11. janúar 1930, Jón Ársæll, f. 20. ágúst 1931 og Fríða Fanney, f. 16. ágúst 1938. Bjarni giftist eiginkonu sinni, Benný Sigurgeirsdóttur, f. 9. september 1929, d. 3. september 2008, þann 3. júlí 1954, þau eign- uðust tvær dætur. Þær eru: 1) Jóna Birna, f. 18. desember 1953, gift Guðmundi Reyni Reynissyni, f. 9. október 1951. Börn þeirra eru: Benný, f. 12. september 1973, Valdimar Bjarni, f. 27. september 1974, Jóhann Bene- dikt, f. 21. júní 1978, Hafþór, f. 2. ágúst 1982, fyrir átti Guð- mundur Reynir son. Barnabörn þeirra eru tíu talsins. 2) Elín, f. 19. nóvember 1955, gift Guð- mundi Teitssyni, f. 26. janúar 1954, d. 26. janúar 2006. Börn þeirra eru: Þórdís Bjarney, f. 21. febrúar 1975, Sigurgeir Fannar, f. 18. desember 1978, Rannveig Helga, f. 26. desember 1981, Bald- vin Þór, f. 28. október 1982. Barnabörn þeirra eru átta talsins. Benný átti fyrir son- inn Jóhann þegar hún kynntist Bjarna. Bjarni gekk honum í föðurstað og ól upp sem sinn eigin son. Jó- hann er fæddur 4. júlí 1948, kvæntur Guðlaugu Að- alsteinsdóttur, f. 8. mars 1949. Börn þeirra eru: Aðalsteinn Dav- íð, f. 26. júlí 1972, d. 16. júlí 2007, Bjarni Borgar, f. 25. maí 1973, Benedikt Heiðar, f. 18. sept- ember 1978. Barnabörn þeirra eru fjögur. Bjarni ólst upp í Gröf í Lund- arreykjadal og fluttist svo með foreldrum sínum til Akraness. Bjarni og Benný bjuggu alla sína búskapartíð á Akranesi, lengst af á Suðurgötu 67. Bjarni vann hin ýmsu störf um ævina, lengst af vann hann sem bílstjóri, rak m.a. sinn eigin vörubíl og síðar meir vann hann sem starfsmaður hjá Esso og Skeljungi allt þar til hann lét af störfum sökum ald- urs. Eftir andlát eiginkonu sinn- ar bjó Bjarni áfram á Suðurgötu 67, þar til hann flutti á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfða fyrr þessu ári. Útför Bjarna fer fram frá Akraneskirkju í dag, 8. nóv- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku afi. Það er margs að minnast, allra útileganna, veiði- ferðanna og kaffisopanna. Við þökkum fyrir allar samveru- stundirnar og geymum minning- arnar í hjörtum okkar. Hvíl í friði, elsku afi okkar, afi á hjólinu. Ég þakka Guði löngu liðinn dag sem lét mig eignast þig að ævivin. Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið með ilm og fegurð hresstu og glöddu mig. Og birtan sem þú breiddir yfir allt sló bjarma á lífið allt í kringum þig. Svo líða dagar, ár og ævitíð og ýmsum blikum slær á loftin blá. Í sorg og gleði alltaf varstu eins og enginn skuggi féll á þína brá. Svo brast á élið, langt og kólgukalt og krafan mikla um allt sem gjalda má. Og fljótið niðar enn sem áður fyrr og ennþá flúðin strýkur næman streng. Við blæþýtt ljóð, um blóm og sumaryl og bjarta kyrrð – í minningu um þig. (Oddný Kristjánsdóttir.) Þín Rannveig, Gunnar, Steinar Bragi og Snædís Lilja. Bjarni Stefánsson Þær voru fæddar í Norðurfirði á Ströndum systur tvær Sesselja og Súsanna Margrét, elstar sex barna Valgerðar Guðrúnar Val- geirsdóttur og Gunnars Njálsson- ar sem þá voru bændur á Njáls- stöðum þar í sveit. Þar ólust þær upp í systkina- og frændsystkina- hópi því skyldleiki var mikill milli bæja. Þegar þær systur voru orðn- ar gjafvaxta kom síldin í Húnafló- ann og síldinni fylgdi vinna og framfarir í Árneshreppi. Verk- smiðjur risu og unga menn dreif víða að. Tveir þeirra bundust systrunum frá Njálsstöðum, Maggi heillaðist af Sesselju og Óli féll fyrir Möggu. Þær fylgdu ást- inni, yfirgáfu sveitina sína og fluttu suður í húsnæðisleysið. Keyptu með mönnum sínum sinn hvorn braggann í Vesturbæ Reykjavíkur og hófu búskap sælar með sitt. Börnin tíndust í heiminn hjá þeim systrum og þrengja tók að í híbýlum þeirra. Tækifæri dugnaðar og kjarkmikils ungs fólks kom þegar Smáíbúðahverfið Sesselja Gunnarsdóttir ✝ Sesselja Gunn-arsdóttir fædd- ist í Norðurfirði á Ströndum 18. ágúst 1928. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 21. októ- ber 2013. Útför Sesselju fór fram frá Bú- staðakirkju 29. október 2013. byggðist og þar fengu þær systur ásamt mönnum sínum lóð fyr- ir parhús í Akurgerð- inu. Húsið reis fyrir eigin hendi og með að- stoð hjálplegra handa eins og tíðkaðist á þess- um árum um og upp úr miðbiki síðustu aldar. Börnunum fjölgaði. Hjá Sesselju og Magga hlupu að endingu úr húsi fjórir fallegir og skemmtilegir strákar, frændur okkar systranna fjögurra og bróður í húsinu við hliðina. Samgangur var eðlilega mikill okkar í milli og mikið leikið saman. Alltaf var gott að leita til Sesselju ef mamma okkar var af einhverjum ástæðum ekki tiltæk. Bæði húsin voru opin okkur öllum eins og vera ber hjá góðri, stórri fjölskyldu. Þannig leið æskan hjá okkur. Einhvern veginn er ekki hægt að hugsa sér hana öðruvísi eða betri. En allt hefur sinn tíma. Við frændsystkinin fluttum smátt og smátt úr foreldrahúsum og sú stund kom að þær systur slitu loks nærbýli sínu sem þær höfðu átt fram yfir miðjan aldur og svo kom að ævikvöldi. Menn þeirra kvöddu, fyrst Maggi, þá Óli og síðan Magga. Nú hefur Sesselja einnig kvatt. Fari hún í friði þessi góða frænka og blessuð sé minning hennar. Hún hefur skilað sínu. Fyrir hönd systkinanna úr Ak- urgerði, Jón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.