Morgunblaðið - 08.11.2013, Side 35

Morgunblaðið - 08.11.2013, Side 35
stofnun til síns gamla yfirmanns, Bjarna Braga Jónssonar, sem var tekinn við hagfræðideild Seðla- bankans. Ég var fyrir nokkru byrjaður í deildinni, en Kristjón var eldri og reyndari og kunni skil á málum sem ég þekkti aðeins af óljósri afspurn. Við urðum mál- kunnugir og áttuðum okkur fljótt á því sem við áttum sameiginlegt, ómældan og almennan áhuga á efnahagsmálum, þar á meðal landbúnaðar- og sjávarútvegs- málum, sem þá bar hátt þótt þau röguðu ekki beinlínis upp á Seðla- bankann. Ég komst líka að því að Kristjón tók því af góðvild ef mað- ur sníkti af honum tölur. Hann var hafsjór af fróðleik, ekki síst um lánamál atvinnulífs og heim- ila, og hafði viðað að sér marg- víslegum gögnum, sem ekki voru á hverju strái, fimm árum áður en netið var lagt. Svo tengdi okkur einn angi tímatalsins, sem þvæld- ist þó fyrir með reglulegu millibili: Kristjón var tíu árum eldri en konan mín, upp á dag. Það setti strik í reikninginn á stórafmæl- um, en mátti grínast með á milli. Kristjón var glaðsinna og við- ræðugóður. Góður sprettur um efnahagsmál gat kveikt í honum, en best lá á honum ef hann gat sagt góðar fréttir af börnunum sínum eða Ingibjörgu, konu sinni. Honum leiddist heldur ekki að segja frá ferðum þeirra í sumar- hús fjölskyldunnar, Höfða, í Fljótshlíðinni. Þeim stað kynntist ég þegar þau hjónin tóku á móti hagfræðideildinni á einhverju sumarrápi sem hún gerði austur fyrir fjall. Höfðinginn Kristjón var heldur en ekki í essinu sínu þegar hann lýsti og skýrði fyrir okkur það sem fyrir augu bar, jöklana, hlíðina, Markarfljót, aur- ana og fjölmargt fleira, auk sög- unnar, sem tengdi það allt. Þau Ingibjörg létu ekki sitja við veit- ingarnar einar, því Kristjón fór með okkur að Hlíðarendakirkju og fékk vin sinn, Bergstein Giz- urarson, til að halda erindi og sýnikennslu um bogfimi sveit- unga þeirra í Njálu. Á slíkum degi furðar engan að Gunnar skyldi snúa aftur. Síðustu árin urðu Kristjóni erf- ið, allnokkru fyrir þann tíma sem við langlífisdekraðir Íslendingar ætlumst nú til að hjara. Krabbinn sótti að honum. Í tvígang heyrðist mér hann ætla að snúa skepnuna af sér, en fyrr á þessu ári náði hún undirtökunum. Í gegnum allt þetta stóð fjölskylda Kristjóns við bakið á honum eins og klettarnir við Markarfljót. Þrátt fyrir krabba og annan krankleika komst hann austur í sumar með drengjunum sínum og hefur ef- laust notið þess í botn og af öllum kröftum. Ingibjörg gerði ekki heldur endasleppt við hann. Hún hélt utan um hann í erfiðleikunum og bjó honum skjól á heimilinu svo lengi sem fært var og gott bet- ur. Það hlýtur að vera auðveldara að horfa á eftir ástvini, þegar maður hefur gert fyrir hann allt sem í mannlegu valdi stendur. Við Júlía sendum Ingibjörgu, Guðbjörgu, Páli, Sigurði og afa- börnunum hans Kristjóns innileg- ar samúðarkveðjur. Nú hefur Kristjón gengið sína götu á enda hérna megin. Ég er handviss um að hann finnur nýja vegi í heið- ríkjunni fyrir austan. Markús Möller. Okkar kæri samstarfsmaður, Kristjón Kolbeins, er fallinn frá. Kristjón starfaði um árabil sem hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabankans. Hann hóf störf í hagfræðideild bankans 1. október 1986 og starfaði á hagfræðisviði þar til í ársbyrjun 2008. Á starfstíma sínum í Seðla- bankanum sinnti Kristjón ýmiss konar hagskýrslugerð af mikilli eljusemi, auk þess sem hann sinnti stundakennslu við fram- haldsskóla. Var Kristjón mikil hamhleypa til verka þegar mikið lá við. Hann hafði jafnframt brennandi áhuga á efnahagsmál- um í víðara samhengi og ritaði fjölmargar greinar um hugðarefni sín í dagblöð. Kristjón tók virkan þátt í ýmsu félagslífi starfsmanna, var dag- farsprúður og viðræðugóður. Ut- an vinnu sinnti hann öðrum hugð- arefnum sínum af mikilli natni, meðal annars hestamennsku. Hann var jafnframt einstaklega hjálpsamur og örlátur við sam- starfsfélaga sína. Minnisstætt er heimboð Kristjóns og eiginkonu hans þegar hann bauð öllu hag- fræðisviði bankans í frístunda- heimili sitt að Höfða í Fljótshlíð. Var einstaklega vel að því heim- boði staðið og sá Kristjón til þess að uppfræða okkur um staðhætti og sögu sveitanna. Við þökkum Kristjóni fyrir ánægjulegt samstarf og vináttu á liðnum árum og vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson, Þórarinn G. Pétursson, Rannveig Sigurðardóttir. Við andlát Kristjóns Kolbeins koma upp í hugann ljóðlínur Ein- ars Benediktssonar: – Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með. Betra á dauðlegi heimurinn eigi. Ég kynntist Kristjóni í hesta- ferðum sem Kristjón og Páll, son- ur Kristjóns og Ingibjargar, fóru ásamt Bergsteini föður mínum, nánast árvisst inn á Emstrur, af- réttarland Rangæinga. Var þá rið- ið frá Höfða, sveitasetri þeirra hjóna í Fljótshlíð, inn í Mosa á Emstrum, þaðan sem riðnar voru styttri dagleiðir. Eftir fráfall föður míns hefur Sigurður, bróðir Páls, slegist í hópinn. Í skálanum við Mosa voru oftar en ekki rædd málefni líðandi stundar á meðan horft var á kvöldsólina tindra á jökulröndina. Kristjón var skarpgreindur, heið- arlegur og viðræðugóður. Hann hafði einstaklega þægilega nær- veru og augljóst að hann lét sér annt um þá sem stóðu honum nærri og allt umhverfi sitt. Enda þótt hann benti óhikað á það sem hann taldi að betur mætti fara, var hann ávallt nærgætinn. Upp í hugann koma ótal góðar minning- ar, svo sem ferðir að Entujökli þar sem skoðaðir voru Kolbeinsfossar og Bergsteinsfoss. Eftir situr fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast Kristjóni og fjölskyldu hans. Ég votta Ingibjörgu, Páli, Sig- urði, Guðbjörgu og öðrum að- standendum djúpa samúð. Gizur Bergsteinsson. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 ✝ Helgi Björns-son fæddist í Ólafsvík 4. októ- ber 1922. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. október 2013. Hann var sonur hjónanna Björns Jónssonar og Kristínar Bjarna- dóttur. Börn þeirra voru: Fríða Jenný Björnsdóttir, f. 1918. Bjarndís Inga Björnsdóttir, f. 1918. Jón Valdimar Björnsson, f. 1920. Sigríður Guðrún Björnsdóttir Bjarklind, f. 1925. Þorgils Björnsson, f. 1928. Kristbjörg Bára Björns- dóttir, f. 1930. Ingveldur Birna Björnsdóttir, f. 1936. Þorgils er einn eftirlifandi systkinanna. Helgi giftist Kristínu Petr- ínu Gunnarsdóttur, f. 4. júní 1922, d. 15. desember 2011, frá Kasthvammi í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýrslu, þann 22. desember 1946. Þau eign- uðust þrjú börn. Þóru Krist- ínu, f. 8. apríl 1947, d. 2. sept- ember 2013, Bjarna, f. 12. nóvember 1948, d. 4. október 1965 og Öldu Kolbrúnu f. 30. maí 1951. Bjuggu þau lengst ævi sinnar í Ásgarði 5, Garðabæ. Þóra Kristín giftist Höskuldi Þráins- syni en þau skildu. Börn þeirra eru Bjarni, María og Kristín Dögg. Bjarni er giftur Önnu Gerði Guð- mundsdóttur og eiga þau börnin Halldóru Kristínu, Guðmund Helga, Jönu Valborgu og Þráin Mar- íus. María er gift Jóni Gísla Þorkelssyni, þau eiga synina Þorkel, Höskuld Þór og Frey Jökul. Kristín Dögg er gift Steina Jónssyni, þau eiga syn- ina Jón Leví og Þór Leví. Alda Kolbrún er gift Sig- urði Ottóssyni, þau eiga börn- in Ottó og Helgu. Sambýlis- kona Ottós er Karen Lilja Sigurbergsdóttir, þau eiga börnin Breka og Anítu. Sam- býlismaður Helgu er Kári Þór Guðmundsson, þau eiga dótt- urina Eygló Tinnu. Útför Helga fer fram frá Garðakirkju í Garðahverfi í Garðabæ í dag, 8. nóvember 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Í dag kveðjum við Helga frænda og með því lýkur form- lega kafla í lífinu sem á vissan hátt lauk fyrir tæplega 2 árum þegar Didda frænka dó. Eins lengi og ég man, þá hefur það að „fara til Diddu og Helga“ verið mikilvægur hluti af lífi mínu. Heimili þeirra hefur verið félags- heimili stórfjölskyldunnar, þar hittumst við öll og þannig héld- ust tengslin innan fjölskyldunn- ar. Didda og Helgi voru ekta hjón, samhent og samstillt. Þau lögðu alúð við að hugsa vel um börnin sín, heimilið og alla gest- ina sem komu til þeirra til lengri eða skemmri dvalar. Ég minnist margra góðra stunda á heimili þeirra og hve vel var tekið á móti mér. Alltaf var tekið á móti manni með frábærum veitingum og þær voru svo góðar, að í eina skiptið á ævinni sem ég fékk heimþrá úti í útlöndum var þegar mig dreymdi að ég væri í Ásgarði 5 að borða draumatertuna henn- ar Diddu. Upp frá því var þess líka vel gætt að alltaf þegar ég kom heim í frí var tekið á móti mér með draumatertunni góðu. Annað sem Didda og Helgi voru sérstaklega lagin við var að sýna áhuga á gestum sínum. Þegar ég var í skólanum var pabbi oft að hjálpa mér með heimanámið og að því loknu fór- um við í kvöldkaffi upp í Ásgarð. Þegar þangað var komið var spurt hvernig gengi og hlustað á mann lýsa í smáatriðum verkefn- unum og hvernig þau höfðu verið leyst. Svona var þetta líka með allt annað, ég gat alltaf sagt þeim frá hvað ég væri að vinna við, hvað ég hefði verið að bauka og þeim fannst allt mjög áhugavert og lögðu sig fram við að setja sig inn í hvaða málefni sem var. Þetta finnst mér alveg einstakt og sérstaklega aðdáunarvert. Helgi frændi var hæglátur og góðlátur maður og ég minnist þess hvernig hann brosti við frá- sögnum mínum. Eftir að ég fór að veiða, þá gátum við endalaust talað um veiði og veiðisögur og hina ýmsu staði við Laxá í Lax- árdal þar sem gott væri að veiða með þessari eða hinni flugunni. Núna síðast í sumar var ég að segja honum sögur af því hvernig sá stóri hefði sloppið og við hlóg- um saman að veiðitöktunum og spennunni sem fylgir veiðinni. Frændi minn tók sig svo til fyrir nokkrum árum og gaf mér flugu- boxið sitt og verður að segjast eins og er að það er ein af merki- legustu gjöfum sem mér hafa verið gefnar. Kæri frændi, þetta veiðibox verður alla tíð varðveitt sem ein af mestu gersemunum sem ég á. Didda og Helgi eru tvö orð sem eru svo samofin að ekki er hægt að kveðja Helga nema kveðja Diddu á sama tíma. Núna á kveðjustundinni er huggun að dvelja við minningarnar og hugsa um þá fyrirmynd sem þessi góðu hjón voru okkur öll- um. Ég er Diddu og Helga þakk- lát fyrir svo ótalmargt og svo margt sem þau kenndu mér með- vitað og ómeðvitað, sem ég vil hafa til eftirbreytni. Nú þegar fé- lagsheimilis fjölskyldunnar nýt- ur ekki lengur við, þá hvílir það á okkur frændsystkinunum að halda áfram tengslunum og halda minningunum á lofti. Elsku Alda frænka, ég sendi þér og þínum mínar dýpstu sam- úðarkveðjur og mundu að við stöndum öll hjá þér. Þóra Valný Yngvadóttir. Helgi Björnsson Komið er að kveðjustund. Það eru alltaf erfiðar stundir. Við kvöddum okkar kæra vinnustað St. Jósefsspítala fyrir nokkrum árum með miklum trega. Þar var unnið göfugt og gott starf og þar starfaði samhent og frábært starfsfólk. Hún Guðríður okkar var þar á meðal. Þessi yndislega kona kom til starfa fyrir um tutt- ugu árum og vann hjá okkur þar til stofnuninni var lokað. Guðríð- ur var ákaflega falleg kona, ljós yfirlitum og hafði mikla útgeisl- un. Það var mikill sómi af að hafa konu eins og hana í móttöku skjólstæðinga stofnunarinnar. Hún tók á móti öllum með sínu fallega brosi og leysti úr öllum málum af yfirvegun og rósemi. Guðríður var mjög samviskusöm og dugleg og bar aldrei skugga á okkar samstarf. Guðríður var einstök kona. Leiðir okkar lágu síðast sam- an fyrir ári í Hafnarborg en hennar samstarfskonur buðu mér að koma til að hitta þær í Guðríður Guðmundsdóttir ✝ Guðríður Guð-mundsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 26. júní 1947. Hún lést á Landspítalanum í Kópavogi 10. októ- ber 2013. Útför Guðríðar fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 22. október 2013. einum af þeirra mánaðarlegu sam- verustundum. Mikið er ég þakklát fyrir þessa stund og geymi hana í minn- ingunni. Þar var Guðríður hressust allra, geislaði af lífs- gleði og hamingju þrátt fyrir að hún var orðin veik aftur af krabbameini. En þannig var Guðríður, lét ekki mikið uppi um sín veikindi eða líðan heldur hugsaði meira um líðan annarra og vildi alltaf gleðja alla. Guðríður var hvers manns hugljúfi og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Það er sárt að kveðja svo kær- leiksríka konu sem Guðríður var og við vonum að hennar bíði göf- ug verkefni á nýjum stað. Eig- inmanni og aðstandendum henn- ar votta ég samúð mína og bið góðan Guð að gefa þeim styrk í þeirra miklu sorg. Valgerður Kristjánsdóttir, fv. skrifstofustjóri St. Jósefsspítala. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR PÁLL GUÐFINNSSON, lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar miðvikudaginn 30. október. Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00. Guðfinnur D. Pálsson, Herdís Agnarsdóttir, Kolbrún Pálsdóttir, Oddur Guðmundsson, Bára M. Pálsdóttir, Einar Pálsson, Arndís Harpa Einarsdóttir, Áslaug B. Pálsdóttir, Richard M. Wilson, Steinunn Pálsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Bjarki Pétursson, Páll Pálsson, Bára Einarsdóttir, Sigurbjörg Pálsdóttir, Helgi R. Auðunsson, Harpa Pálsdóttir, Víkingur Traustason, Nanna Pálsdóttir, Eggert Matthíasson, Finnbogi H. Pálsson, Nicola Bryant Pálsson, Kristjana G. Pálsdóttir, Guðni Rafnsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Kær faðir okkar, HUGI KRISTINSSON, andaðist þriðjudaginn 5. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 13.30. Anna Guðrún Hugadóttir, Hjalti Hugason, Ragnheiður Sverrisdóttir, Kristinn Hugason, Guðlaug Hreinsdóttir. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR SIGURBJÖRN HALLDÓRSSON, Hrófbergi, Steingrímsfirði, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hólmavík þriðjudaginn 29. október, verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 13.00. Pétur H. Halldórsson, Sigurbjörg H. Halldórsdóttir, Friðgeir Höskuldsson, Hreinn Halldórsson, Jóhanna G. Þorsteinsdóttir, Ragnheiður H. Halldórsdóttir, Þorbjörn Valur Þórðarson, Jón H. Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR, Austurvelli, Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Vinafélag Ljósheima. Fyrir hönd aðstandenda, Þórhildur Gísladóttir, Einar Kjartansson, Kristján Gíslason, Ólöf Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Gísladóttir, Guðbjörn Ólafsson, Margrét Bragadóttir, Bjarni Jakobsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, afi og langafi, HÁKON SVEINN DANÍELSSON, Hvassaleiti 56, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 30. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. nóvember klukkan 15.00. Valgerður Proppé, Elísabet Hákonardóttir, Halldór Valdimarsson, Marteinn Hákonarson, Helgi Daníelsson, Sigrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.