Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 ✝ Anna S. Árna-dóttir fæddist í Reykjavík 9. febr- úar 1944. Hún lést á Landspítala Landakoti 30. október 2013. Foreldrar Önnu voru Sigríður Anna Sigurð- ardóttir húsmóðir og blómaskreyt- ingakona, f. 5.12. 1919, d. 9.1. 2003, dóttir Sig- urðar Þorgrímssonar og Hólm- fríðar Halldórsdóttur, N- Ísafjarðarsýslu og fósturdóttir hjónanna Önnu Hallgrímsson og Sveins Hallgrímssonar, Reykja- vík, og Árni Kr. Þorsteinsson, deildarstjóri hjá Olíufélaginu hf., sonur Ástu Jónsdóttur og Þorsteins Árnasonar, Reykja- vík. Systkini Önnu eru 1) Ásta, f. Anna ólst fyrstu árin upp á Túngötu 16. Fjölskyldan bjó síð- an um tíma á Hofsvallagötu 55. Þá byggðu foreldrar hennar fjölskyldunni heimili í Grana- skjóli 10 þar sem Anna ólst upp þar til að hún flutti að heiman. Anna bjó sér og dóttur sinni heimili á Öldugranda 1 í Reykja- vík og bjó þar lengst af, eða þar til snemma á þessu ári. Þá flutti hún að Hofakri 5 í Garðabæ. Anna starfaði um árabil hjá Loftleiðum, síðar Flugleiðum, fyrst á símanum í Reykjavík og síðan við farþegaafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Árið 1980 hóf hún störf hjá Seðlabanka Ís- lands, þar sem hún starfaði þar til að hún fór í veikindaleyfi haustið 2012, lengst af í bók- haldsdeild bankans. Anna tók ennfremur að sér hin ýmsu aukastörf í gegnum árin. Útför Önnu verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 8. nóvember 2013, og hefst at- höfnin klukkan 13. 16.10. 1949, maki Böðvar B. Kvaran, f. 27.11. 1949, 2) Þorsteinn, f. 10.11. 1950, maki Hrefna Elenora Leifsdóttir, f. 10.4. 1950, 3) Sveinn, f. 11.9. 1952, maki Sig- urlína Vilhjálms- dóttir, f. 10.2. 1953, 4) Erna Þórunn, f. 15.12. 1954, maki Benedikt Sigmundsson, f. 9.10. 1950, 5) Ingibjörg Hólmfríður, f. 12.1. 1965. Einkadóttir Önnu er Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, f. 8.4. 1972, maki Atli B. Guðmundsson, f. 28.5. 1971. Fyrir átti Sigríður soninn Huga Snæ Hlynsson, f. 13.9. 2000, og eiga þau Atli sam- an dótturina Hörpu Lind Atla- dóttur, f. 5.2. 2005. Það var þriðjudagur, óvenju fallegur haustdagur í lok októ- ber. Ég sat hjá þér, elsku mamma mín, í stofunni þinni á Landakoti og horfði til skiptis á þig og út um gluggann. Útsýnið frá glugganum var póstkorti lík- ast og þú svo falleg. Mér fannst ótækt að þú héldir ekki þínum skvísustandard og hafði því séð til þess að þú værir með varó, maskara og lakkaðar rauðar neglur. Ég man ekki eftir þér öðruvísi en með lakkaðar rauðar neglur og þannig skyldir þú vera. Það var ró yfir andar- drættinum þar til að kvöldaði og náttaði en með órólegum and- ardrætti var eins og grámi og óróleiki færðist yfir úti fyrir glugganum. Þannig var það líka á miðvikudeginum og það var engu líkara en náttúran sem hafði verið svo óvenju fögur að líta dagana áður væri að láta vita að nú væri kveðjustundin komin. Þú varst búin að vera svo veik og síðusta dagana voru veikindin farin að leika þig þannig að við vissum hvert stefndi. Ég upplifði mikið órétt- læti fyrir þína hönd. Þú varst aðeins 69 ára og hefðir með réttu átt að fara að eiga náðuga daga framundan. Ekki að þér færi það vel að slappa af. Þú varst athafnasöm með eindæm- um. Ég sá samt fyrir mér að þú myndir kannski læra það á efri árum að slaka á og njóta en af því verður víst ekki, að minnsta kosti ekki hér á jörðu. Mér var umhugað um að fá að leiða þig á leiðarenda og er svo innilega þakklát yndislega starfsfólkinu á L-4 á Landakoti fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að gista hjá þér þessar síðustu nætur. Ég sat hjá þér og nú var hlut- verkunum snúið við. Mömmur eru nefnilega þær sem leiða börnin sín í gegnum súrt og sætt, hlúa að þeim í veikindum og þerra tárin þegar þau eru hrædd eða líður illa. Ég veit að þú hlýtur að hafa verið hrædd og leið, elsku mamma mín, þessar síðustu vik- ur og mánuði, þó svo að veik- indin þín hafi gert það að verk- um að þú gætir lítið tjáð þig undir það síðasta og mikið fannst mér ég vera hjálparvana að geta ekki meira við því gert. Við vorum alltaf bara tvær og við það skapast sérstakt sam- band. Því fannst mér ég þurfa að vera sterk og leiða þig þín síð- ustu spor í þessu lífi. Ég sagði þér að allt yrði í lagi, ég myndi leiða þig alla leið. Ég hélt þann- ig að ég yrði betur undir loka- kveðjuna búin en samt streymdu tárin, líkaminn hrísl- aðist og tómleikahnútur mynd- aðist í maganum. Mamma mín var farin og ég var ekki tilbúin. Við vorum órjúfanlegur hluti af lífi hvor annarrar og hvað nú? Börnin mín tvö, Hugi Snær og Harpa Lind, hafa sömuleiðis misst mikið. Ömmur eru nú einu sinni þær sem að dekra hvað mest og alltaf er hægt að leita til þegar mömmur og pabbar hafa ekki „réttu“ svörin og sitja þau nú eftir með sorg í hjarta. Það er því mitt hlutverk að halda utan um þau og styðja. Ég er þó svo heppin að hafa stuðning frá honum Atla mínum sem er ómetanlegt. Ég veit að þú munt líka dvelja í hjörtum okkar allra sem eftir sitjum um ókomin ár. Ég sendi þér því kossa og knús, mamma mín, inn í eilífðina. Ég elska þig. Þín dóttir, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir. Elsku besta amma Anna. Okkur langar að senda þér fullt af kossum og knúsum og þakka þér fyrir allt sem þú varst okkur. Við fengum að kveðja þig með kossi á spít- alanum en munum alltaf eftir þér eins og þú varst áður en þú varðst veik. Dvel ég í draumahöll og dagana lofa. Litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa. Sígur ró á djúp og dal, dýr til hvílu ganga. Einnig sofna skolli skal með skottið undir vanga. (Kristján frá Djúpalæk) Góða nótt og sofðu rótt, elsku amma. Þín ömmubörn, Hugi Snær Hlynsson og Harpa Lind Atladóttir. Anna S. Árnadóttir var starfsmaður Seðlabanka Íslands frá janúar 1980 til september 2012. Anna starfaði fyrst í lána- deild bankans, en frá því í júlí 1997 í bókhaldsdeild, síðar á fjárhagssviði. Í september 2011 fluttist hún svo yfir á svið rekstrar- og starfsmannamála. Áður en Anna kom til Seðla- bankans vann hún hjá Loftleið- um hf., en þar starfaði hún frá árinu 1966 til ársbyrjunar 1980. Anna sinnti störfum sínum í Seðlabanka Íslands ætíð af miklum dugnaði og trúmennsku. Hún var mjög talnaglögg, vand- virk, samviskusöm og nákvæm, jákvæð í framkomu og virðuleg. Það var ætíð þægilegt að vera í návíst Önnu. Hún var mannblendin, ræðin og skemmtileg. Fyrir hönd starfs- manna í Seðlabankanum votta ég aðstandendum Önnu okkar dýpstu samúð. Stefán Jóhann Stefánsson. Elsku Anna mín. Það er kominn kaldur og dimmur vetur, þú hefur kvatt okkur allt of fljótt, allt of skjótt. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst jafn góðri vinkonu og samstarfsfélaga og þér. Sum- arið 2004 byrjaði ég í Seðla- bankanum og þú tókst mig und- ir þinn verndarvæng, kenndir mér svo vel og vandlega allt sem ég þurfti að læra, alveg eins og allt annað sem þú tókst að þér. Við urðum fljótt mjög góðar vinkonur og gátum rætt allt milli himins og jarðar. Ég gat leitað til þín með allar mínar vangaveltur og vandamál, þú áttir alltaf svar. Við hlógum líka ansi mikið saman og vorum oft fljótar að sjá spaugilegu hlið- arnar á sumum málum. Ekki leiddist þér nú að tala við mig um sambandsmálin, þú hafðir mjög ákveðnar skoðanir þar og sem betur fer virtumst við vera með alveg sama smekk svo ég fékk auðveldlega sam- þykki þitt ef nýr kærasti bank- aði upp á. Okkur fannst líka alltaf svo merkilegt að feður okkar unnu saman í mörg ár hjá Olíufélaginu, og svo við dæt- urnar í bankanum. Elsku Anna, mér þykir þetta svo sárt, þú áttir að fá meiri tíma til að njóta þín með fallegu fjölskyldunni þinni. Eftir lifa góðar minningar sem aldrei gleymast, hlátur þinn, brosið þitt, koss á báðar kinnar. Eitt stendur þó upp úr, alltaf þegar þú kvaddir mig þá sagðir þú svo blítt: „I love you“, og ég svaraði á móti: „I love you too.“ Ég veit að þú ert núna á góð- um stað, laus við veikindin og munt fylgjast áfram með dóttur þinni og barnabörnum. Ég bið Guð um að blessa þau og gefa þeim styrk í þeirra miklu sorg. Þakka þér fyrir okkar tíma saman, elsku Anna, minningin lifir. „I love you“. Guðrún Elín Herbertsdóttir. Anna S. Árnadóttir ✝ RögnvaldurBergsson fæddist í Sæborg í Glerárþorpi 9. des- ember 1923. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð 3. nóv- ember 2013. Foreldrar hans voru Guðrún Andr- ésdóttir, f. 24. ágúst 1897, d. 6. október 1970, og Bergur Björnsson, f. 14. nóv- ember 1896, d. 27. október 1975. Systkin Rögnvaldar voru: 1) Guðmundur, f. 9. júlí 1922, d. 30. júlí 2006. 2) Freygerður, f. 11. júlí 1925, d. 23. febrúar 2008. 3) Bergþóra, f. 4. nóv- ember 1928, d. 13. október 2008. 4) Andrés, f. 7. júlí 1931, d. 16. maí 2009. 5) Kristinn, f. 6. september 1933. 6) Njáll, f. 12. ember 1954, maki Hörður Bene- diktsson, f. 21. september 1955. Börn þeirra: a) Rögnvaldur, b) Berglind. Barnabarn er eitt. 3) Magnús, f. 17. ágúst 1958, d. 8. apríl 1959. 4) Edda Björk, f. 22. maí 1960, maki Sigurjón Sveinbjörnsson, f. 24. nóvember 1957. Börn þeirra: a) Anna Dögg, b) Ingibjörg Ösp, c) Andri Már. Barnabörnin eru sjö. 5) Sólveig, f. 6. apríl 1964, maki Friðrik Sigurðsson, f. 29. júlí 1969. Börn þeirra: a) Guð- rún María, b) Daði Freyr, c) Elvar Bjarki, d) Heiðar Flóvent. Barnabörnin eru sex. Rögnvaldur ólst upp í Glerár- þorpi, hann vann ýmis störf til sjós og lands. Vann hann hjá K. Jónssyni og co, síðan fór hann til vinnu hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga og var í fyrstu við versl- unarstörf en 1966 varð hann verksmiðjustjóri hjá Efnagerð- inni Flóru og vann þar til 67 ára aldurs. Jarðarför Rögnvaldar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 8. nóvember 2013, og hefst at- höfnin kl. 13.30. mars 1935, d. 29. október 2006. 7) Júlíus, f. 16. júlí 1938. 8) Ásta, f. 5. janúar 1941, d. 29. apríl 2012. Rögnvaldur kvæntist 6. ágúst 1950 Ingibjörgu Magnúsdóttur, f. 23. október 1927, d. 29. desember 1983. Foreldrar Ingi- bjargar voru, Steinunn Gunn- laugsdóttir og Magnús Gunn- arsson. Börn Ingibjargar og Rögn- valdar: 1) Steinunn Guðrún, f. 12. júlí 1951, maki Bjarni Bald- ursson, f. 2. janúar 1949. Börn: a) Magnús Þór, b) Steingrímur Már, látinn, c) Tinna Brá, d) Oddný Elva, fósturdóttir. Barnabörnin eru þrjú. 2) Hafdís Freyja, f. 7. sept- Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn; þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Blessuð sé minning þín, elsku pabbi okkar. Guð geymi þig. Þínar dætur, Steinunn, Freyja, Edda og Sólveig. Elsku afi, við þökkum allar stundir sem við áttum með þér og kveðjum þig með ljóði sem amma okkar orti. Við kveðjum þig afi kyrrt og hljótt, klökk við bjóðum góða nótt og biðjum guð þig að geyma. Andi þinn lyftist á æðra svið, og amma þar bíður það vitum við þið eigið um eilífð þar heima. (Ingibjörg Magnúsdóttir) Hvíl í friði og guð geymi þig. Magnús Þór, Tinna Brá, Oddný Elva, Rögnvaldur, Berglind, Anna Dögg, Ingibjörg Ösp, Andri Már, Guðrún María, Daði Freyr, Elvar Bjarki og Heiðar Flóvent. Elsku afi. Við erum svo þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir afa. Alla okkar barnæsku komst þú daglega út á Berghól til að heimsækja okkur og borða með okkur. Vorum við því svo heppin að fá að eyða með þér ómældum tíma. Þú varst ávallt stór partur af fjölskyld- unni. Þú varst vel kunnugur öll- um okkar vinum og vorum við iðulega öfunduð af því að eiga svona skemmtilegan afa. Þú varst alltaf með á nótunum um það hvað var að gerast í lífi okk- ar hverju sinni og sýndir því ómældan áhuga. Þú varst dug- legur að styðja okkur í því sem við vorum að gera og skutla okk- ur hingað og þangað. Það var alltaf hægt að hringja þig, elsku afi, ef okkur vantaði eitthvað, t.d. ef einhver læsti sig úti sem var oft. Þú varst mikill húmoristi. Þú sagðir okkur svo mikið af skemmtilegum sögum og tilsvör- in þín voru oft á tíðum stórkost- leg. Þú fórst með okkur á rúnt- inn og sýndir okkur bátana og skemmtiferðaskipin sem hingað komu og sagðir okkur frá sjó- mennsku þinni. Þú varst mál- kunnugur mörgum á Akureyri og það var alveg sama hvert við fórum, þú spjallaðir við alla og áttir kunningja á ótrúlegustu stöðum. Við gætum skrifað hér endalaust af skemmtilegum minningum sem við höfum átt með þér, elsku afi, en þær geymum við í hjarta okkar, minningar sem aldrei gleymast. Það er afar sárt að horfa á eftir þér á annan stað og þín verður sárt saknað. Við erum afar þakklát fyrir allan þann tíma sem við áttum með þér og allan þann tíma sem þú gafst okkur og litlu pjökkunum þínum sem sjá óskaplega mikið eftir afa sín- um. Við trúum því nú að loksins sért þú kominn á þinn rétta stað við hlið Imbu ömmu sem hefur beðið þín lengi. Þú munt skilja eftir stórt skarð sem við munum reyna að fylla saman með því að halda minningu þinni á lofti og halda áfram að vera stolt af þér, elsku afi, og þínum frábæru uppátækjum. Viltu guð minn vaka hjá og vernda um dimmar nætur, lýsa þeim er ljósið þrá og líkna þeim sem grætur. Við kveðjum þig að sinni, elsku afi. Anna Dögg, Ingibjörg Ösp og Andri Már. Rögnvaldur Bergsson ✝ Helena RakelMagnúsdóttir fæddist í Stykk- ishólmi 16. ágúst 1924. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 24. sept- ember 2013. Foreldrar henn- ar voru María Magnúsdóttir, hús- móðir frá Litla- Laugardal í Tálknafirði, og Magnús Odds- son, húsasmíðameistari frá Kleifastöðum í Gufudalssveit á Barðaströnd. Helena Rakel átti einn bróður sammæðra, Ljót Ingason, og hálfbræður sam- sjö. 2) María Hafdís, f. 9.7. 1951, gift Sigtryggi Stefánssyni, börn hennar og fyrrverandi maka, Birgis Kjartanssonar eru Hel- ena Lind, f. 6.5. 1971, Lilja Dís, f. 12.7. 1976 og Þóra Björg, f. 1.2. 1984. Barnabörnin eru átta. Þau hjónin hófu sinn búskap í Hafnarfirði og bjuggu þar upp frá því, lengst af að Sunnuvegi 10 í sambýli við móður Rakelar og hennar sambýlismann, Inga Kristjánsson. Á tvítugsaldri fór Helena Rakel í húsmæðraskól- ann á Staðarfelli og að námi loknu lærði hún kjóla- og kápu- saum í Feldinum. Hún vann lengst af á Bólstraraverkstæði Ragnars Björnssonar í Hafn- arfirði en síðar vann Helena Rakel við aðhlynningu á Sól- vangi og við ræstingar í Bóka- safni Hafnarfjarðar og Víð- istaðaskóla. Útför Helenu Rakelar fór fram 4. október 2013. feðra, þá Odd og Þorstein Magn- ússyni. Helena Rakel giftist Markúsi B. Þorgeirssyni, f. 14. ágúst 1924, d. 24. nóvember 1984. Foreldrar hans voru Þorgeir Sig- urðsson og Katrín Markúsdóttir. Börn Helenu Rakelar og Markúsar eru 1) Katrín, f. 4.12. 1949, gift Pétri Th. Péturssyni, þau eiga þrjú börn, Markús Elv- ar, f. 14.1. 1974, Guðbjörgu Huld, f. 28.7. 1976 og Rakel Ýr, f. 7.5. 1980. Barnabörnin eru Elsku Rakel amma mín kvaddi þennan heim í septem- berlok eftir langa og góða ævi. Þú varst yndisleg amma, svo þolinmóð og góður félagi. Það var alltaf gott að heimsækja þig og spjalla við litla eldhúsborðið þitt því þú varst svo áhugasöm um allt sem við spjölluðum um, hvort sem það var fjölskyldan, handavinna eða hvað eina. Sem barn var ég stundum í næturgistingu hjá þér en þær stundir voru algjörar gæða- stundir þar sem við meðal ann- ars leystum saman krossgátur og spiluðum. Yfirleitt áttirðu líka til uppáhalds eftirréttinn minn sem ég fékk bara hjá þér og hvergi annars staðar því þú varst sú eina sem vissir hvað mér þóttu perur úr dós góðar. Á haustin áður en skólinn byrjaði fékk ég stundum að fara með þér í vinnuna þar sem við höfðum það verkefni að þurrka af bókunum í bókasafni Víð- istaðaskóla og ég man sérstak- lega eftir því hvernig þú straukst af hverri bókinni á fæt- ur annarri og passaðir að engin þeirra gleymdist. Á þessum tíma fannst mér þetta ekki skemmti- legasta verk í heimi en samt sem áður hlakkaði ég alltaf til þessa verks því þá fékk ég að vera með þér, elsku amma. Ég á eftir að sakna þín, amma mín, og mig langar að kveðja þig með sömu orðum og við sögðum saman fyrir nóttina í þau skipti sem ég gisti hjá þér. Góða nótt, sofðu rótt, í alla nótt. Guð geymi þig og takk fyr- ir daginn. Hvíl í friði. Rakel Ýr. Helena Rakel Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.