Morgunblaðið - 08.11.2013, Page 44

Morgunblaðið - 08.11.2013, Page 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú vilt annaðhvort breyta vini þín- um eða hann þér. Kannaðu hvort eitthvert námskeið er í boði sem hentar þér og vertu víðsýnn og jákvæður. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er í lagi að láta sig dreyma ef þið bara haldið ykkur í raunveruleikanum. Jafnaðu ágreining milli þín og þinna, sama hvað það kostar og tekur langan tíma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Rannsóknir þínar leiða margt ánægjulegt í ljós. Gildismatið heldur þér á floti í lífsins ólgusjó, en suma dagana verð- ur þú að opna hliðið fyrir nýjum hlutum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu það ekki á þig fá, þótt sam- skipti þín við suma séu ekki öll á blíðu nót- unum. Hér er ekkert alvarlegt á ferðinni. Láttu alla sjálfsmeðaumkun lönd og leið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ágætt að staldra við, líta yfir sviðið og reyna að gera sér grein fyrir því, hvort málin þokast áfram eða ekki. En það verður lítið mál að finna neistann aftur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Svo virðist sem ákveðin persóna eigi erfitt með að þiggja aðstoð þína og þakka fyrir sig. Slíkt kemur órorði á þig og þú átt erfitt með að fá verkefni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hlutirnir sem gera heimili vogarinnar viðkunnanlegra auka líka sjálfstraust henn- ar. Láttu það eftir þér að skrifa niður það sem þér dettur í hug. Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú gerir til annarra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhvern veginn er eins og allt og allir fari í taugarnar á þér þessa stund- ina. Líttu á björtu hliðarnar. Mundu að aðr- ir eru álíka fastir fyrir og þú í þessum efn- um. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skoðanaágreiningur kemur hugsanlega upp á milli þín og einhvers ná- komins í dag. Ef þú hefur akkúrat þína hentisemi verður þetta lítið mál. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú leggur þig fram við að dekra við vini þína og gefa þeim gott að borða. Hikaðu ekki við að tjá vini þínum skoðanir þínar á því sem hann leitar til þín með. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Yfirboðskennd vinátta kemur og fer og þú gerir lítið úr því. Slappaðu af; það getur verið gaman að kynnast nýju fólki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er svo margt sem fiskurinn veit ekki um fólk sem hann sér nánast á hverj- um degi. Gakktu frá ákveðnum málum og stefndu ótrauður fram á við. Við dr. Sturla Friðriksson sitjumfyrirlestra Magnúsar Jóns- sonar sagnfræðings um Landnámu í Háskólanum. Á þriðjudagskvöld sagði hann við mig: Nú er hann kaldur, nú hef ég aldrei fyrri þykka, mjúka, þófróna þrenna brúkað vettlinga. Sturla hefur gaman af því að koma á óvart og spreyta sig á erf- iðum orðum og fágætum sem vísa til gamalla búskaparhátta. „Þófró- inn vettlingur“ er þæfður af róðri. Þorsti sótti á þá, sem urðu göngumóðir, eins og segir í göml- um húsgangi: Maður kominn úti er, ósa ljósa-brekka, biður um að beina sér blöndusopa að drekka. Björn Ingólfsson leikur sér að orðinu „símaskrá“: „Við allan rækallinn ríma má en rétt er að gefa sér tíma þá og hugsa sig vel um,“ kvað Valgeir á Melum, „ef síðasta orðið er símaskrá.“ Eysteinn Gíslason frá Skáleyjum orti gjarna um málefni líðandi stundar og hafði gaman af erfiðum rímorðum: Í kjálkunum þjáðir af þrasgigt, þreyttir á mengun og gaslykt, búsældarfórnun og brüsselskri stjórnun Baunverjar höfnuðu Maastricht. Guðmundur Arnfinnsson sendi Vísnahorni eina lauflétta limru, sem ber yfirskriftina „Eins dauði er annars brauð“: Símon á Siglufirði var sínum grönnum til byrði, en mest létti þó þegar hann dó Þangbrandi sálnahirði. Síðan víkur hann að því, að í helgarlimru frá sér (26. okt.) hafi verið innsláttarvilla, „sem líklega hefur verið til bóta, því að í stað „gætt sér á köku í Kakastan“, stóð „gætt sín á köku í Kakastan“, sem er prýðilegt, þar sem kakan sú hef- ur auðvitað verið baneitruð.“ Hann kannaðist ekki við Kasakstan, en kvaðst hafa gert í Pakistan stuttan stans og stigið þar dans, en gætt sér á köku í Kakastan. Pétur Stefánsson orti að kveldi dags: Nálgast óðum nóttin svört. Nú er hrím á grasi. Líða dagar. Lækkar ört í lífsins stundaglasi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Orðaleikir í vísum og limrum Í klípu „VIÐ SETTUM HANN Í ÖNDUNARVÉL. AÐALLEGA SVO HANN HÆTTI AÐ KVARTA OG KVEINA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „NÚORÐIÐ ER ÉG EKKI NEMA SEX MÍNÚTUR ÚT Í NÆSTU BÚÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að laga bágtið. 30 ÞÚ SETTIR GULLFISK Í SKÓINN MINN! JÓN Á AFMÆLI! ÞESSI KASTALI ER ALVEG EINSTAKUR! HANN ER TIL DÆMIS Á EINNI HÆÐ. AF HVERJU BARA Á EINNI HÆÐ? EIGANDINN VARÐ UPPISKROPPA MEÐ PENINGA. Heimilishundur Víkverja útskrif-aðist úr hundaskóla fyrir skömmu. Víkverji var stundum með honum á hlýðninámskeiðinu, lærði ýmislegt í hundaatferlisfræði og má orðið hundur heita en hvolpurinn lætur sér fátt um finnast nema hvað hann virðist hafa uppgötvað áður óþekkta kynhvöt í nálægð við aðra hunda. x x x Hundur og eigandi voru látnirgera ýmsar æfingar og þegar illa tókst til, sem gerðist oftar en ekki, var eigandinn skammaður, því hundur áttar sig ekki á skömmunum nema hann sé staðinn að verki og fái þá strax orð í eyra. Það gerist auð- vitað nánast aldrei. Hundurinn brosti því sem mest hann gat, hvað sem á gekk, kærði sig kollóttan þó hann tæki ekki eftir æfingunum svo framarlega sem hann fékk frið til þess að fylgjast með hinum hund- unum – og riðlast svolítið á þeim. x x x Víkverji var kallaður nafni hunds-ins og átti að gegna því. Snati (sem reyndar er ekki rétt nafn um- rædds hunds en notað hér til að hlífa honum við frekara áreiti á göngu um höfuðborgarsvæðið)! Ekki gera þetta, ekki tala stöðugt við hundinn, því hann skilur ekki íslensku, sagði kennarinn reglulega og Víkverji botnaði ekki neitt í neinu fyrr en leiðbeinandinn var kominn að tví- menningunum og tók við stjórninni. Í tímunum var hundurinn hundur þegar hann stóð sig vel og gerði hlutina rétt en ella var Víkverji hundurinn og fékk að heyra það hjá kennaranum. Snati! Ekki gera þetta, ekki gera hitt. Eins gott að þú ert ekki með stærri rakka. x x x Fólk sem hefur ekki umgengisthunda, á ekki hunda og hefur ekki farið á hlýðninámskeið fyrir hunda í hundaskóla talar um hunda- líf með niðrandi hætti. Orðabókin undir ritstjórn Marðar skilgreinir enda hundalíf sem slæmt líf eða illa ævi. Þetta er fjarri sanni. Hundalíf er eftir allt saman dásamlegt líf. Það hefur Víkverji sannreynt og borgaði meira segja vel fyrir reynsluna. víkverji@mbl.is Víkverji Alvæpni Guðs Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. (Efesusbréfið 6:10) Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is Fyrir hurðir og glugga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.