Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Side 38
*Föt og fylgihlutir Í alíslenskum vetrarkulda eru húfur, hanskar og loðkragar nauðsynlegir fylgihlutir »40
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Ég myndi lýsa stílnum mínum þannig að hann væri frekar af-
slappaður. Hérna áður fyrr var ég miklu uppstrílaðri, mikil kjóla-
manneskja og alltaf í hælum! Í dag, og þá sérstaklega eftir að ég
eignaðist seinna barnið mitt, sem stoppar ekki, er ég meira „casual“,
oftast í buxum, flottum topp og blazer. Það klikkar ekki, er alltaf
smart og auðvelt að dressa upp og niður með flottum fylgihlutum.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut?
Ég elska flottar leðurbuxur og uppáhaldsleðurbuxurnar mínar eru
frá Royal Extreme, þær eru „loose fit“ og sjúklega smart og þægi-
legar. Einnig elska ég flottar dragtir og mín uppáhalds er frá And-
ersen&Lauth, ullartweed-dragt, vel sniðin og klassísk.
Á að fá sér eitthvað fallegt fyrir veturinn?
Ég ætla að kíkja í second hand/vintage-búðir og reyna að fínna
mér skósíðan og hlýjan vintage-pels.
Hvað úr vetrartískunni ætlar þú að tileinka þér?
Það er fínt að hafa einhverja strauma til hliðsjónar en ég
hugsa að ég noti bara mitt tískuvit og „mixi og matchi“ eins og
ég er í stuði fyrir þann daginn.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó þegar kemur að fatakaupum?
Kaupa föt sem henta vaxtarlaginu. T.d. finnst mér mikill mis-
skilningur að konur sem eru með hold utan á sér klæði
sig í víð föt. Það gerir sjaldnast mikið fyrir viðkom-
andi. Frekar að reyna að vinna með og draga fram
þá líkamshluta sem einstaklingurinn er ánægður
með. Við erum öll svo misjöfn og ekki sjálfgefið
að sama „silhouettan“ eða tískan henti öllum.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Já, Elsa Schiaparelly er minn
uppáhaldshönnuður. Hún gerði
svo margt fyrir tískuheiminn.
Svo var hún líka mikill fem-
ínisti og var ein af þeim
fyrstu sem hönnuðu buxur og
stuttbuxur á konur. Hún
vann mikið með súrreal-
istunum og braut mikið upp
form og var mjög grafísk.
Svo er líka Nicolas Ghes-
quire í miklu uppáhaldi.
Hann vann fyrir Balen-
ciaga í 15 ár og var núna í
byrjun nóvember ráðinn til Lou-
is Vuittons þar sem hann tekur
við af Marc Jacobs og hannar
kvenfatnað. Það verður án efa
ótrúlega flott hjá honum enda
tekst honum með hverri línu að
koma með mjög sterkt og
flott lúkk að mínu mati.
Hvar kaupir þú helst föt?
Það fer algjörlega eftir
buddunni … Ég hef verið
það heppin undanfarin ár að vinna mikið við fatahönnun
og því gengið mestmegnis í hönnun eftir sjálfa mig eða
samstarfsfólk og vini. Annars versla ég æ meira á net-
inu og finnst það algjör snilld.
Hvað er í snyrtitöskunni?
CC cream frá L’Oréal, grænt te, blautur eyeliner frá
mac, naglalakk, kinnalitur, tveir varalitir; einn hvers-
dags og einn meira crazy eftir klukkan átta, og síð-
ast en ekki síst fyrir alla sem vilja hylja bauga og
vera sætari á núll einni …
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Hvítu Jordan-skórnir mínir árið ásamt Levis 501
voru fyrstu tískuflíkurnar sem ég eignaðist, keypt-
ir fyrir mig í Ameríku árið 1991 en þá var ég að-
eins tíu ára. Þessar flíkur höfðu gífurleg áhrif á
mig og ég fæ alveg nostalgíukast að hugsa til
þeirra.
Hvaða tískutímaritum/bloggi fylgistu með?
Ég fylgist mest með Costume, Cover, In style,
ID, Wallpaper, Vogue … Mér finnst alltaf gaman
að skoða facehunter, Style by Kling, The Sartorial-
ist, Fashionista og Advanced Style.
Elsa Schiaparelli
var mikill
brautryðjandi
í fatahönnun.
Una Hlín og
hundurinn Doddi.
Morgunblaðið/Rósa Braga
ALGJÖR SNILLD AÐ VERSLA Á NETINU
UNA HLÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, FATAHÖNNUÐUR
OG MARKAÐSFRÆÐINEMI, HEFUR UNDANFARIN ÁR
UNNIÐ VIÐ FATAHÖNNUN. UNA STOFNAÐI FATA-
MERKIÐ ROYAL EXTREME OG HEFUR HANNAÐ UNDIR
ÞVÍ MERKI ÁSAMT ÞVÍ AÐ STARFA SEM YFIRHÖNN-
UÐUR HJÁ TÍSKUHÚSINU ANDERSEN & LAUTH.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Langar
í skósíðan
pels
Leðurbux-
urnar frá
Royal
Extreme
eru í
miklu
uppáhaldi.
Una hefur mest gaman
af skandinavískum
tískublöðum.
Una ætlar að reyna
að finna sér skósíð-
an og hlýjan vintage-
pels fyrir veturinn.
Gullpenninn
frá YSL er
skyldueign.
Verð: 4.799 kr.