Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Við fyrstu sýn líst okkur bara nokk- uð vel á nýgerðan kjarasamning framhaldsskólakennara. Þetta er klárlega það viðmið sem við munum setja,“ segir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, um samninginn sem undirritaður var 4. apríl sl. Leikskólakennarar eru meðal þeirra kennarahópa sem standa í kjaraviðræðum við hið op- inbera en samningur þeirra rennur út 30. apríl nk. „Við höfum verið að ræða litlu mál- in fyrst og klára þau en við eigum stóru málin eftir,“ segir Haraldur um gang viðræðnanna. Hann vill ekki nefna ákveðnar tölur í þessu sam- hengi en segir leikskólakennara hafa miðað sig við framhaldsskólakennara. „Staðan er sú að áður en fram- haldsskólakennarar gerðu þennan ágæta samning vorum við 10% frá þeim í grunnlaunum. Svo eru þeir að gera þennan nýja samning og það mun þá draga enn meira í sundur. Þannig að klárlega verður þeirra samningur viðmiðið, ásamt því að leiðrétta muninn á okkur og fram- haldsskólakennurum,“ segir Harald- ur. Hann segir engin rök fyrir því að laun kennara séu í hlutfalli við hæð nemenda. Félag háskólakennara mun funda með samninganefnd ríkisins í dag en í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort boðað verður til verkfalls í Háskóla Íslands 25. apríl til 10 maí. Kröfur háskólakennara snúa m.a. að því að öllum akademískum starfs- mönnum verði varpað í sömu launa- töflu en félagsmenn FH hafa dregist verulega aftur úr prófessorum í laun- um. Að óbreyttu mun einnig koma til verkfalls hjá háskólakennurum á Ak- ureyri, dagana 28. apríl til 12. maí, en kröfur þeirra eru samhljóða kröfum FH. „Þetta er leiðrétting sem okkur var lofað að yrði unnin á milli samn- inga en hefur ekki skilað sér og þess vegna erum við í svona harkalegum aðgerðum,“ segir Hjördís Sigur- steinsdóttir, formaður Félags há- skólakennara á Akureyri. Sér ekki fyrir endann Grunnskólakennarar funduðu með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær og segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara, viðræður mjakast hægt áfram. Hann segir samning framhaldsskólakennara hvatningu fyrir grunnskólakennara, sem telja sig eiga inni 25-30% hækkun. „Við erum enn að skoða með hvaða hætti er hægt að ná þessu saman með það fyrir augum að brúa launamuninn og sjá þá hvað þarf að koma til þannig að svo megi verða,“ segir Ólafur. Hann segist ekki sjá fyrir endann á vinnunni en aukinn kraftur hafi verið settur í viðræður síðustu daga. Morgunblaðið/Eggert Verkfall? Um 3.300 einstaklingar hafa skorað á ráðamenn að afstýra verkfalli háskólakennara á www.9april.is. Hugnast samningur framhaldsskólakennara  Kennarar kappkosta að klára kjarasamninga Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ákvörðun dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur um að segja sig frá máli hjóna gegn Íbúðalánasjóði verður kærð til Hæstaréttar. Dómarinn upplýsti við dómþing 28. mars síðastliðinn að hann hefði sjálfur tekið lán hjá Íbúðalánasjóði árið 2007 og væru uppreiknaðar eft- irstöðvar þess ríflega 26 milljónir króna. Í ljósi þess taldi hann að hægt yrði að draga óhlutdrægni hans í málinu í efa og kvað því upp úrskurð um að hann viki sæti. Þórður Heimir Sveinsson, héraðs- dómslögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, fer með mál hjónanna gegn Íbúðalánasjóði. Hann taldi að kæran yrði jafnvel send til Hæsta- réttar í dag eða á morgun. „Við telj- um okkur hafa ákveðin rök fyrir því að halda dómaranum inni,“ sagði Þórður. Hann sagði ákvörðun dóm- arans hafa komið sér á óvart. Þórður sagði málið snúast um framkvæmd Íbúðalánasjóðs varð- andi upplýsingagjöf til lántakenda verðtryggðra íbúðalána um heildar- lántökukostnað samkvæmt lögum um neytendalán (121/1994). Þegar skjólstæðingar Þórðar tóku lán hjá Íbúðalánasjóði á sínum tíma sáust ekki verðbæturnar í greiðsluáætlun sem þeim var afhent vegna lántök- unnar. „Vegna þess að verðbæturnar sáust ekki teljum við að ekki hafi verið fullnægt upplýsingaskyldu samkvæmt neytendalánalögum um heildarlántökukostnað. Hann þarf að liggja fyrir við töku láns,“ sagði Þórður. Þar eð heildarlántökukostn- aður lá ekki fyrir telja þau að lán- takendurnir þurfi ekki að borga neinn lántökukostnað, ekki einu sinni vexti af láninu. Hann segir að sú varakrafa sé lögð fram að fella eigi út verðbæturnar vegna þess að þær séu ekki tilgreindar í heildar- lántökukostnaði. Dómari ákvað að víkja sæti  Skuldar sjálfur Íbúðalánasjóði og því hægt að efast um óhlutdrægni hans Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í gær voru tilboð opnuð í bygging- arrétt á lóðum númer 6 og 7 við Austurhöfn í Reykjavík, en Ríkis- kaup auglýstu lóðirnar fyrir hönd félagsins Situsar ehf., sem er í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar og fer með málefni lóðanna við Austur- höfn. Alls bárust þrjú tilboð í lóðirnar tvær. Linnet ehf. og Landsbankinn hf. buðu í lóð númer 6 en Auro In- vestments ehf. var eitt um að senda inn tilboð í lóð númer 7. Auro In- vestments hefur þegar gert kaup- samning við Situs um hótellóð á hafnarbakkanum við hliðina á reit 7. Auro Investments er í eigu ind- verskra fjárfesta hjá Auro Invest- ment Partners LLC, Mannvits og T-Ark. Stórir byggingareitir Á lóð nr. 6 er um að ræða bygg- ingarrétt þar sem heimilt bygging- armagn ofanjarðar er 12.000 fer- metrar miðað við núverandi deiliskipulag en byggingarmagn of- anjarðar gæti aukist. Heimilt er að byggja allt að 2.000 fermetra neð- anjarðar. Á lóð nr. 7 er um að ræða byggingarrétt þar sem heimilt byggingarmagn ofanjarðar er 500 fermetrar samkvæmt deiliskipulagi. Þá er heimilt að byggja allt að 2.500 fermetra neðanjarðar á reitnum. Eingöngu voru lesin upp nöfn bjóðenda en ekki tilboðsfjárhæðir þegar tilboðin voru opnuð. Næsta skref hjá Ríkiskaupum er að fara yfir tilboðsgögn en tilboðin eru met- in út frá tilboðsfjárhæð og öðrum þáttum sem geta haft áhrif á til- boðin. Tilboð Ríkiskaup opnuðu tilboð í byggingarreiti við Austurhöfn. Tilboð í byggingarrétt við Austurhöfn opnuð Samkvæmt nýundirrituðum samningi hækka laun framhalds- skólakennara um 2,8% vegna al- mennrar launahækkunar og um 4% vegna breytinga skv. samn- ingi frá 1. mars sl. Þá hækka launin um 5% 1. ágúst nk. vegna breytinga skv. samningi, um 2% 1. janúar 2015 vegna almennrar launahækkunar, um 8% 1. maí 2015 vegna nýs vinnumats og um 2% 1. janúar 2016 vegna al- mennrar launahækkunar. Gert er ráð fyrir að frá og með skólaárinu 2015-2016 verði tekið upp nýtt vinnumatskerfi sem skiptir vinnu kennara í þrjá þætti; A, B og C. „Í A þætti eru kennsla og þættir tengdir henni samkvæmt vinnumati. Í B falla þau verkefni sem eru fastur hluti vinnuskyldunnar við annað en kennslu og allir kennarar þurfa að sinna að lágmarki og í C falla verkefni/viðbótarstörf sem kennarar taka að sér í samráði við skólameistara,“ segir í samn- ingnum. Almenn ársvinnuskylda verður 1.800 klst. að frádregnu lágmarksorlofi og helgidögum. Breytingar NÝR SAMNINGUR Varúðarskilti verður sett upp við Urriðafoss í Flóahreppi. Sveitar- stjórn hreppsins samþykkti að kosta gerð skiltisins eftir að Einar Har- aldsson, bóndi á Urriðafossi, sendi sveitarstjórninni erindi vegna að- gengismála við fossinn. „Eins og veðráttan er búin að vera í vetur hef- ur úði frá fossinum lagst að bökk- unum, ísað þá og gert þá glerhála og stórhættulega. Ég hef ekki hugmynd um hver mín réttarstaða er ef ein- hver slasar sig við ána og því þarf að gera fólki grein fyrir hættunum og að það er á þessu svæði á eigin ábyrgð,“ segir Einar. Umferð ferðamanna að Urriða- fossi hefur vaxið verulega síðustu ár. Einar áætlar að 40.000 manns hafi komið að fossinum í fyrra. Þá taldi hann, á einum og hálfum klukkutíma, 21 einkabíl og 3 rútur sem stoppuðu við fossinn mánudagsmorgun nýver- ið. Hann hefur áhyggjur af því hvern- ig muni fara ef ferðamannastraum- urinn verður áfram slíkur. „Landið hjá mér, þar sem fólk fer niður að fossinum, er að fara í drullu og ógeð. Þá skilur allur þessi fjöldi eftir sig allskonar rusl sem ég tíni upp,“ segir Einar og bætir við að það sé heilmikil aukavinna að hafa svo fjölsóttan stað á landi sínu. „Ég fylg- ist vel með umræðunni um gjaldtöku á ferðamannastöðum. Ef landeigandi á að sjá um að halda landinu hreinu og mannsæmandi og að ferðmenn komist með góðu móti að náttúru- perlunni, af hverju má hann ekki hafa upp í kostnað við það? Ég er alls ekki að tala um gjaldtöku í hagnaðarskyni heldur til að vernda svæðið. Það er morgunljóst að það verður að gera eitthvað þarna til að vernda svæðið við ána.“ ingveldur@mbl.is Þarf að bæta úr aðgeng- ismálum við Urriðafoss Morgunblaðið/Sigurður Bogi Urriðafoss Neðsti foss í Þjórsá.  Landið við ána að breytast í svað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.