Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
starf félagsins. Það var gert með
því að þeir sem komu að málum
lögðu eigur sínar að veði fyrir lán-
um til kaupanna. Einnig var
byggður skálinn Þristur í Esju-
hlíðum á þessum árum. Við þessi
verk sem eru án efa hornsteinn að
því hvað Skátafélagið Kópar er í
dag lá Friðrik aldrei á kröftum
sínum, var hann einkar laginn við
að fá fólk til liðs við sig. Við sem
erum það gömul að muna þann
tíma sem við komum að byggingu
skálans minnumst hans með mik-
illi ánægju. Þar fengum við sem
börn og unglingar að takast á við
að byggja okkur eigin skála með
aðstoð Friðriks og foreldra okkar
eða annarra sem vildu leggja
verkefninu lið.
Friðrik skóp þá umgjörð um
Skátafélagið Kópa sem gerði það
að verkum að starfið var gott, fé-
lagið óx og skátunum leið vel og
starf félagsins var í sönnum skáta-
anda.
Þetta er eitt af því sem við sem
gegnt höfum foringjastörfum fé-
lagsins á eftir Friðriki höfum
reynt að hafa að leiðarljósi í störf-
um okkar.
Við skátar sendum Steinu,
Haraldi, Finni, Dröfn og fjölskyld-
um þeirra samúðarkveðju og
þökkum þeim þeirra þátt í starfi
Friðriks fyrir skáta í Kópum.
Við skátar í Kópum viljum
þakka Friðriki fyrir hans framlag
í uppbyggingu skátastarfs í Kóp-
um. Við óskum Friðriki góðrar
ferðar í ferð sinni heim.
Þökkum þegar sólin blikar
þökkum fyrir regn og vor,
þökkum er lax í straumi stikar
stökkin kalla á þor.
Þökkum þegar eldur brennur,
þökkum fyrir söngsins mál.
Þökkum er áfram ævin rennur,
alveg laus við tál.
Þökkum þegar finnst oss gaman,
þökkum fyrir söng og þrá.
Þökkum er allir syngja saman,
sækjum brattann á.
Þökkum þegar tjöldin rísa,
þökkum hverja fjalla sýn.
Þökkum er landið elds og ísa
augunum við skín.
Þökkum þegar kvölda tekur,
þökkum fyrir nýjan dag.
Þökkum allt sem vorið vekur;
vorsins fagra lag.
Þökkum þennan æskuskara,
þökkum fyrir glaða lund.
„þökkum þeim sem koma og fara
þökkum helgistund“.
(Hörður Zóphaníasson.)
F.h. Skátafélagsins Kópa.
Þorvaldur J. Sigmarsson.
Kveðja frá Landssambandi
bakarameistara
Í dag verður borinn til grafar
einn af frumkvöðlum íslenskrar
brauðmenningar, Friðrik Har-
aldsson.
Landssamband bakarameist-
ara þakkar honum það frum-
kvöðlastarf sem hann vann með
því að nútímavæða íslenskar
baksturshefðir. Fyrirtæki hans,
Ömmubakstur í Kópavogi, var í
fararbroddi í bakstri á flatkökum,
kleinum og öðrum þjóðlegum
bakstri.
Persónuleg kynni mín af þeim
hjónum Friðriki og Steinu byrj-
uðu þegar ég var ungur drengur.
Mér er minnisstætt að foreldrar
mínir nefndu nöfn þeirra ætíð með
hlýju og virðingu. Þegar ég fór að
læra bakaraiðn vildi svo skemmti-
lega til að við bakarasynirnir Har-
aldur og ég sátum saman í Iðn-
skólanum og tókst með okkur góð
vinátta. Friðrik og Steina tóku
virkan þátt í öllu félagsstarfi bak-
ara og létu sig ekki vanta þegar
veislur eða ferðalög voru annars
vegar.
Við kveðjum í dag góðan dreng
sem gott var að fá að kynnast og
fyrir það ber að þakka.
Jón Albert Kristinsson,
formaður.
✝ Dagbjört BorgÞórðardóttir
fæddist á Borg í
Arnarfirði 1. mars
1934. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 31.
mars 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Þórður
Ólafsson, f. 5.3.
1893, d. 16.8. 1978,
og Bjarnveig Dag-
bjartsdóttir, f. 26.9. 1892, d.
11.7. 1983. Systkini Dagbjartar
eru: Sigurður Kristján Schev-
ing, f. 21.8. 1918, d. 9.3. 1977;
Valdimar, f. 14.4. 1920, d. 18.6.
1965; Gunnar, f. 9.8. 1922; Aðal-
er Ingunn Péturs, f. 7.11. 1971.
Barn þeirra er Gabríel Pétur og
fyrir átti Óðinn dæturnar Dag-
björtu Fjólu og Sigurveigu
Huldu. Fyrir átti Dagbjört Borg
soninn Sævar Arnfjörð Hreið-
arsson, f. 23.9. 1954.
Dagbjört Borg ólst upp á
Borg í Arnarfirði. 21 árs gömul
ræður hún sig til vinnu við
Mjólkurárvirkjun. Þar kynnist
hún eiginmanni sínum og starfa
þau saman við virkjunina þar til
þau flytja til Bíldudals og stofna
fjölskyldu, þar búa þau til 1970.
Upp úr því flytja þau til Reykja-
víkur. Leiðir þeirra skilur árið
1973. Dagbjört bjó það sem hún
átti ólifað í Reykjavík og vann
hún við umönnun barna, m.a. á
Múlaborg og víðar allt þar til
hún hætti að vinna við 70 ára
aldur.
Dagbjört verður jarðsungin
frá Digraneskirkju í dag, 9. apr-
íl, og hefst athöfnin kl. 13.
heiður Dís, f. 24.11.
1923, d. 2.6. 2002;
Þórey Ragnheiður
Vídalín, f. 4.1. 1932.
Árið 1958 giftist
Dagbjört Ágústi
Sörlasyni, f. 31.8.
1939, d. 12.3. 2002.
Börn þeirra eru: 1)
Kristjana Guð-
björg, f. 25.9. 1960.
Sambýlismaður
hennar er Skúli
Hafsteinn Gíslason, f. 24.9. 1952.
Börn Kristjönu eru Ágúst Tóm-
asson, María Lena Argríms-
dóttir og Arngrímur Daði Arn-
grímsson. 2) Óðinn Sörli, f.
29.10. 1963. Sambýliskona hans
Elsku mamma mín, ég trúi því
ekki að þú sért farin. Ég elskaði
þig svo mikið. Ég er í svo mikilli
sorg en ég veit að þú ert komin á
góðan stað. Veikindi þin voru
mjög erfið og tóku mikið á þig.
Þegar ég hugsa um allar góðu
stundirnar okkar saman hugsa
ég til ferðarinnar sem við fórum
saman í síðasta sumar til Akur-
eyrar í frí. Alla leiðina hlustuðum
við á tónlist og sungum hástöfum
með. Þú varst svo hress og ung
og falleg. Við ferðuðumst saman
til Kanarí mörgum sinnum og
áttum alltaf okkar bestu stundir,
hlógum, dönsuðum, dunduðum
okkur á mörkuðum og búðum og
löbbuðum ströndina berfættar og
möluðum. Elsku mamma mín, nú
hef ég engan til að tala við eins og
við gerðum oft á dag. Nú hringir
þú ekki í mig. Ég bíð alltaf eftir
að síminn hringi og það sé
mamma mín. Mamma mín eins
og ég sagði alltaf við þig á hverju
kvöldi og segi núna; sofðu rótt
elsku mamma mín. Nú kveð ég
þig í hinsta sinn. Ég elska þig svo
mikið. Sofðu rótt.
Þín dóttir,
Kristjana.
Elsku mamma mín, það er svo
erfitt að kveðja þig. Þú hefur ver-
ið svo stór þáttur í lífi mínu síð-
ustu ár. Sorgin er mikil en það
hjálpar mér að vita að þú ert
komin á betri stað.
Tveimur dögum áður en þú
kvaddir okkur sagðir þú við mig
að hvíti hesturinn væri fyrir utan
og væri kominn til að sækja þig
og að þú værir að fara að hitta
pabba, enda voru hestar í miklu
uppáhaldi hjá þér eins og glöggt
mátti sjá á heimili þínu.
Já, þú vissir alltaf í hvað
stefndi þegar við fengum þessi
slæmu tíðindi að þú værir með al-
varlegan sjúkdóm sem væri
ólæknanlegur. Þú valdir erfiðu
leiðina til að kaupa þér tíma með
okkur og reyndir við lyfjameð-
ferð sem var þér hættuleg.
Mamma, þú hefur alltaf verið
sterk og sjálfstæð og þú fórst
þetta á hnefanum, þvílík barátta
sem þú háðir mamma mín. Mér
líður undarlega þegar ég hugsa
til þess að fá aldrei tækifæri til að
rökræða við þig enda varstu með
ákveðnar skoðanir á sumum hlut-
um. Þú hringdir í mig oft í viku til
að ræða hin ýmsu mál sem ég var
glaður að geta greitt úr með þér
enda var góður trúnaður á milli
okkar og það róaði þig í lífsins
baráttu.
Ég kveð þig með fullt af góð-
um minningum sem ég ætla að
halda út af fyrir mig en miðla
áfram til barna minna og barna-
barna.
Gabríel Pétur minn kveður þig
með miklum söknuði og grætur
síðustu ömmu sína, en þú varst í
miklu uppáhaldi hjá honum. Þú
vafðir hann ávallt ást og um-
hyggju og naust til hins ýtrasta
návista við hann. Enda eins og þú
varst alltaf að segja við hann og
okkur að það hefðu verið mikil
forréttindi að fá hann inn í líf þitt
þar sem hin barnabörnin væru
orðin svo stór. Þú ætlaðir honum
stórt hlutverk í fjölskyldu okkar
og mun hann gera allt sitt besta
fyrir ömmu sína.
Mamma mín, ég held loforð
mitt við þig, hvíl í friði.
Þinn sonur,
Óðinn Sörli.
Mikið lifandis skelfing var hún
Daja frænka móðursystir mín
kát, skemmtileg og hjartahlý
kona. Hún var einstaklega góð
við mig og syni mína, var uppá-
haldsfrænkan okkar. Hlökkuðum
ávallt til að koma til hennar í
heimsókn og njóta frásagnar-
gleði og smitandi hláturs.
Ein af mörgum fallegum
minningum sem ég á eru hádeg-
ishléin mín er ég vann örstutt frá
frænku, bjó hún þá á Snorra-
brautinni og ég vann hjá Ríkis-
skattstjóra. Smurði hún ávallt
handa mér brauðsneið með kæfu
eða eggi. Á þessum tíma var ég
barnshafandi af frumburðinum
Erni Braga og greip ég stundum
með mér litlu prjónasokkana eða
-vettlingana sem ég var að baksa
við að prjóna með tilheyrandi
munstri og gekk misvel. Þá var
frænka alltaf reiðubúin að að-
stoða mig. Það var svo gott að
finna nálægðina frá henni.
Hún var uppáhaldsfrænka
sona minna, var alltaf svo einlæg
og góð við þá. Tilhlökkun að
heimsækja Daju frænku, eins og
þeir kölluðu hana ávallt, var með
eindæmum. Fengu nánast alltaf
appelsín, jólaköku og mola af
gotteríi, Mackintosh sem þeim
fannst svo gott. Það var svo gott
að finna grönnu, mjúku og hlýju
hendurnar hennar sem umvöfðu
mig og mína.
Móðir mín, Þórey, og hún voru
mjög nánar systur alla hennar
ævi. Voru litlu systurnar í sex
manna systkinahópi. Það var
yndislegt að fá að njóta samveru-
stunda þeirra og heyra þær
spjalla saman um heima og
geima og auðvitað var spunnið
þvílíkt með alls kyns krúsídúllum
í sögurnar og þegar Gunnar
bróðir þeirra var með var ekkert
til sparað. Það ríkti svo mikil
gleði í kringum þær saman og
hlátursköstin frá þeim úr eldhús-
inu voru dásamleg.
Sumarið 2012 fórum við
mæðgurnar (Þórey, Sunna og
Eygló systir mín) vestur á Bíldu-
dal og tókum Daju frænku með.
Heimsóttum við æskustöðvar
þeirra systra, Borg í Arnarfirði,
og fleiri æskuslóðir þeirra. Er ég
svo þakklát fyrir að hafa fengið
að njóta nærveru hennar í þess-
ari ferð.
Síðastliðið haust í september-
mánuði veiktist hún og við tók
hörð barátta sem lagði hana að
velli. En skömmu áður en hún
greindist áttum við hjónin og
móðir mín yndislega kvöldstund
með henni í tónleikahöllinni
Hörpu sem hún hafði aldrei inn í
farið. Hlustuðum á gömlu góðu
lögin þeirra Dúmbó og Steina. Að
sjá gleðina skína úr augum henn-
ar og fallega brosið allan hring-
inn fá engin orð lýst. Eftir sitja
einstaklega góðar og ótal minn-
ingar um elskulega frænku okkar
sem við söknum svo sárt. Við
sendum fjölskyldu hennar inni-
legar samúðarkveðjur.
Sunna Svanhvít Söebeck
og fjölskylda.
Dagbjört Borg
Þórðardóttir
Elsku Njalli minn, nú er þinni
lífsgöngu lokið og margs að
minnast og þakka, eftir sam-
fylgdina með ykkur Lóu alla
mína tíð. Umhyggja þín fyrir
mér og mínum var einstök og
áttum við margar samveru-
stundir í Fannborginni eftir að
þið fluttuð þangað og þá spurðir
þú alltaf frétta af kunningjum
þínum í Borgarnesi og fannst
þér ég ekki alltaf með nægar
upplýsingar fyrir þig. Þegar við
Snæþór hittum þig síðast rúmri
viku áður en þú kvaddir varstu
nokkuð hress og spjallaðir og
skjallaðir okkur og takk fyrir
falleg og hughreystandi orð sem
Njáll Þorgeirsson
✝ Njáll Þorgeirs-son fæddist á
Helgafelli í Helga-
fellssveit 11. nóv-
ember 1927. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
aðfaranótt 27. mars
2014.
Útför Njáls fór
fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 4.
apríl 2014.
þú laumaðir að mér
þegar við kvödd-
umst. Guð blessi
minningu þína
frændi minn og
styrki bestu Lóu
mína, Þórð, Jó-
hönnu, Þorgeir og
fjölskyldur á þess-
um sorgartíma.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að
una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Sædís Björk Þórðardóttir
og fjölskylda Borgarnesi.
✝
Okkar ástkæri
AGNAR HÖRÐUR HINRIKSSON
lést mánudaginn 31. mars.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 11. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á reikning sem
stofnaður hefur verið á nafni dóttur hans,
Ásrúnar Emblu Agnarsdóttur, kt 130513-2550, 0701-18-540990.
Fyrir hönd aðstandenda,
Óla Steina Agnarsdóttir og Hinrik Halldórsson.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RÖGNVALDUR GÍSLASON,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
mánudaginn 7. apríl.
Útförin verður gerð frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 25. apríl kl. 14.00.
Eiríkur Rögnvaldsson, Guðrún Ingólfsdóttir,
Nanna Valgerður Rögnvaldardóttir,
Guðrún Rögnvaldardóttir, Bjarni Þór Björnsson,
Sigríður K. Rögnvaldsdóttir, Þórir Már Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GÚSTAV KRISTJÁN GÚSTAVSSON,
til heimilis að Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést mánudaginn 31. mars.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 11. apríl kl. 13.00.
Inga Gústavsdóttir, Gunnar Einarsson,
Gústav Kristján Gústavsson, Margrét Sólveig Ólafsdóttir,
Ásdís Heiðdal Gústavsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SÓLBORG S. SIGURÐARDÓTTIR,
lést að hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn
5. apríl.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.00.
Álfheiður Steinþórsdóttir, Vilhjálmur Rafnsson,
Sigurður Steinþórsson, Kristjana Ólafsdóttir,
Magnús Steinþórsson, Margrét Ragnarsdóttir,
Steinþór Steinþórsson, Bjarnþóra Egilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Hnjúki,
Mýrarbraut 25,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
sunnudaginn 30. mars.
Útförin fer fram frá Blönduóskirkju föstudaginn 11. apríl
kl. 14.00.
Jarðsett verður frá Þingeyrakirkjugarði.
Jón Sigurðsson, Þorkatla Sigurgeirsdóttir,
Magnús Sigurðsson, Anna Eiríksdóttir,
Steindór Sigurðsson, Aasne Jamgrav,
Laufey Sigurðardóttir, Reidar Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Skálholtsvík
lést sunnudaginn 6. apríl á Hrafnistu í
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Jensdóttir,
Margrét J. Gunnarsdóttir.