Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 29

Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 away.“ Blessuð sé minning Kristjáns Össurar Jónassonar. Bragi Leifur Hauksson. Starfsvettvangur Kristjáns Össurar Jónassonar þess sem kvaddur er nú í dag var hjá emb- ætti ríkisskattstjóra. Þangað réði hans sig að loknu prófi í við- skiptafræði á árinu 1967 og lauk störfum á árinu 2004. Þegar Kristján hóf störf að skattamálum var embættið sem stofnun að slíta barnsskónum. Að baki var bylting á skattaum- hverfi hérlendis en framundan voru umbrotatímar í samfélaginu sem og í álagningu og innheimtu skatta. Kristján gegndi starfi skrif- stofustjóra um áratugi. Fóru honum verkefnin vel úr hendi hvort sem um var að ræða gerð fjárhagsáætlana og uppgjör rekstrar að fjárhagsári liðnu eða að þjálfa nýliða sem hófu störf hjá stofnuninni. Ekki stjórnaði hann með fyrirmælum heldur með leiðsögn og kennslu í grein- ingu hvers máls. Reyndist hann alltaf hollráður. Skap átti Krist- ján og gat verið fastur fyrir þar sem það átti við. Kristján hafði umsjón með ýmsum flóknum málaflokkum þar sem verulega reyndi á skarpskyggni og tölulega úr- vinnslu gagna. Einkum lutu þessi störf hans að gerð skatt- matsreglna og útgáfu verklags- reglna og leiðbeininga. Stór þátt- ur í daglegum verkum fólst um árabil í endurákvörðun gjalda í þeim málum sem byggðust á skattrannsókn. Loks fjallaði Kristján um og afgreiddi erindi frá gjaldendum. Í öllum störfum sínum hjá ríkisskattstjóra vann hann fagmannlega og af óhlut- drægni. Flóknustu mál voru leyst vafningalaust hvort sem um var að ræða endurskoðun viðamikils skattaútreiknings í skattrannsóknarmálum eða er- indi frá skattþegnum sem leituðu ásjár vegna skattskulda og fjár- hagsvandræða og höfðu orðið fyrir áföllum í lífinu. Í öllum sín- um störfum var Kristján fagleg- ur, óhlutdrægur og vandvirkur. Hann greindi að jafnaði aðalat- riði hvers máls á örskotsstundu. Þarna komu hæfileikar bridds- spilarans í ljós, en Kristján var þrautþjálfaður og þekktur briddsspilari og keppnismaður í þeirri íþrótt um skeið. Áratugum saman gekk Krist- ján með góðum vinum til rjúpna- veiða enda var hann vel á sig kominn líkamlega meginhluta ævinnar. Voru skotveiðar og allt þeim tengt sérlegt áhugamál hans. Á vinnustað bar Kristján með sér andblæ hins akademíska hugsunarháttar. Hann var áhugasamur um hin aðskiljan- legustu málefni líðandi stundar og hafði brennandi áhuga á bók- menntum og listum. Hann var víðlesinn og gagnmenntaður. Hafði hann á reiðum höndum kvæði góðskálda, las heimsbók- menntir m.a. í ferðum sínum til og frá vinnu með almennings- vögnum og átti í sínum fórum ógrynni af lausavísum eftir sig og aðra. Rithönd hans var klass- ísk eirstunga skýr og læsileg og áferðarfalleg. Fyrir tíma rit- vinnslu og tölvutækni skipti slíkt verulegu máli. Kristjáni tókst á farsælan hátt að sinna fölskyldulífi meðfram annasömu embætti. Bera börn hans og afkomendur glögg merki þeirrar ástúðar og umhyggju sem hann sýndi þeim í uppvexti þeirra og augljós var sá áhugi sem fjölskyldufaðirinn sýndi öll- um þeirra viðfangsefnum í námi leik og starfi. Samstarfsmenn Kristjáns þakka að leiðarlokum löng og farsæl kynni. Börnum Kristjáns og fjöl- skyldu eru sendar innilegar sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsmanna hjá ríkisskattstjóra Steinþór Haraldsson. ✝ Ása Tuliniusfæddist í Reykjavík 28.4. 1941. Hún lést á Droplaugarstöðum 30.3. 2014 Foreldrar henn- ar voru Carl D. Tulinius fram- kvæmdastjóri, f. 19.7. 1902 á Eski- firði, d. 8.9. 1945 í Reykjavík, og Guðrún Magnúsdóttir Tulinius húsmóðir, f. 16.9. 1902 í Vest- mannaeyjum, d. 28.3. 1998 í Reykjavík. Systkini Ásu eru Magnús J. Tulinius trygginga- fulltrúi, f. 18.8. 1932, og Agla Tulinius læknaritari, f. 27.1. 1937, maki Sigurður Rúnar Guðmundsson efnaverkfræð- Vestur-Húnavatnssýslu. Jón Elís átti áður þrjú börn með Sjöfn Kristinsdóttur, Sigurð Kristin, Jónu Guðrúnu og Andreu, og fimm börn með Svövu Valgerði Kristinsdóttur, Tryggva, Ingibjörgu, Sigrúnu, Arthúr og Ingvar Birgi. Ása stundaði nám í Miðbæjarbarnaskólanum, Verslunarskóla Íslands og lauk verslunarprófi 1959. Hún sótti einnig námskeið í fjóra mánuði í Den Suhrske Husmoderskole 1964. Hún vann við skrifstofustörf á Póstmálaskrifstofunni, hjá Sjóvá og lengst af hjá Lands- banka Íslands. Útför Ásu fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 9. apríl 2014, kl. 13. ingur, látinn. Þeirra börn Guð- mundur Karl læknir og Þóra hjúkrunarfræð- ingur. Ása giftist 22.10. 1988 Jóni Elís Björnssyni, fyrrverandi bónda og starfsmanni Sandgerðisbæjar og síðar Mjólk- ursamsölunnar, f. 14.7. 1932 á Þverá, Núpsdal, Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. For- eldrar hans voru Björn Guð- mundsson, f. 23.2. 1885, d. 24.3. 1985, bóndi á Reynihól- um í Miðfirði, og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir, f. 9.12. 1891, d. 4.6. 1974, húsmóðir í Það var á sunnudegi sem hún Þóra systir mín lét mig vita að hún Ása frænka væri dáin. Þó að ég vissi að Ása hefði átt við mikil veikindi að stríða síðustu árin setti mig hljóðan um stund þar sem minningar um Ásu frænku stóðu mér á augabragði lifandi fyrir hugskotssjónum. Ása, móðursystir okkar Þóru var aldrei kölluð annað en Ása frænka í þeim ótal heimsóknum heima hjá okkur og svo heim- sóknum okkar til hennar í gegnum tíðina. Þannig er mín fyrsta minning um Ásu, ég sennilega um 5 ára þar sem Ása er úti að ganga í Skipholt- inu með okkur Þóru og hlær þessum eftirminnilega káta glaðlega hlátri sem einkenndi hana svo mjög. Heimsóknirnar voru margar og oft var hlegið dátt þar sem Ása gat komist einstaklega fyndnislega að orði, eitthvað svo blátt áfram og ein- læg en sá jafnframt skondnu hliðarnar á lífinu. Ása ólst upp í hjarta Reykja- víkur á Skothúsveginum, hún gekk í Verslunarskólann og lauk þaðan verslunarskólaprófi. Hún starfaði lengst af á sínum starfsferli í Landsbankanum. Ása var hlý og einlæg og gerði sér sérstakt far um að halda samskiptum við okkur systkinin en því miður settu veikindi sí- vaxandi strik í reikninginn. Þannig var í grunninn hin lífs- glaða og káta kona að lokum lögð að velli af Alzheimers- sjúkdómi. Ása giftist síðar á lífsleiðinni Jóni Elís Björnssyni, honum Ella, sem hefur stutt hana dyggilega í erfiðum veikindum hin síðari ár. Ása sveif yfir móðuna miklu í friðsemd svefnsins. Baráttu við illvígan sjúkdóm er nú lokið. Ég veit að ef einhver á erindi í Paradís er það hún Ása. Einhvern veginn sé ég hana þar fyrir mér, fulla friðsemdar og í minningunni ómar enn hinn glaðlegi káti hlátur. Guðmundur K. Sigurðsson og Þóra Sigurðardóttir. Ása var skólasystir okkar úr Verslunarskólanum. Hún var yngst þriggja systkina og ólst upp í hjarta borgarinnar, stein- snar frá Tjörninni, efst á Skot- húsveginum, í húsi sem pabbi hennar lét reisa, rétt ofan við Hallargarðinn. Hún fór í Versl- unarskólann úr gagnfræðadeild Miðbæjarbarnaskólans og lauk verslunarprófi 1959. Á skóla- árunum vann Ása í sumarvinnu í unglingavinnunni og á Póst- málaskrifstofunni en fór svo að vinna hjá Sjóvá eftir að skóla lauk og vann þar í nokkur ár. Síðan fór hún í Landsbankann þar sem hún vann til 1993. Þær Þórunn Sigurjónsdóttir, skóla- systir hennar, höfðu verið góð- ar vinkonur og fylgdust oft að í skólann og það gerði líka Jó- hanna Jónasdóttir en þær Ása unnu síðar saman í Landsbank- anum. Þórunn og Ása fóru saman til Kaupmannahafnar 1964 á húsmæðraskóla og voru í fjóra mánuði, Den Suhrske Husmoderskole. Þetta varð Ásu ánægjuleg upplifun og þar kynntist hún danskri stúlku, Önnu Søgaard, sem sýndi Ásu vinsemd og tryggð alla tíð. Þór- unn og Ása fóru oft saman um Ísland á unglingsárunum með Ferðafélagi Íslands og gerðu víðreist, báðum til mikillar ánægju. Ása naut þess að sækja leikhús, kvikmyndahús og tónleika. Hún mat líka mik- ils reglulega fundi okkar skóla- systranna og hlakkaði jafnan til þeirra. Við höfum haldið saman skólasysturnar sem útskrifuð- umst úr Verslunarskólanum 1959. Árið 1964 ákváðum við að stofna saumaklúbb og hann hefur haldist í 50 ár en er nú jafnan kallaður bekkjarklúbbur þar sem fæstar sýsla með handavinnu þó að alltaf sé nú prjónað eitthvað á barnabörn- in. Hins vegar höfum við kynnst betur en við þekktumst á skólaárunum og ofið þéttan samskiptavef í öll þessi ár, tengslanet sem hefur fært okk- ur sterk bönd vináttu og vel- vildar. Við höfum fylgst með lífshlaupi hver annarrar, börn- um og barnabörnum, velgengni og andstreymi og verið bak- hjarlar og veitt stuðning eftir föngum. Mest af öllu höfum við þó haft ánægju af reglulegum samvistum. Í hópnum sem út- skrifaðist með verslunarpróf 1959 voru 23 stúlkur og 60 pilt- ar. Af þeim eru sex stúlkur látnar og 14 piltar. Við höfum nú misst þrjár skólasystur með litlum fyrirvara síðan í jan- úarlok á þessu ári og söknum þeirra mjög. Ása var hæglát, hreinskilin og gat verið barns- lega einlæg. Hún var heiðarleg og samviskusöm og vildi ætíð vanda sig og standa sig vel, fylgdi vel eftir því sem hún hafði áhuga á. Hún naut sín betur í fámennum hópi en gat verið mjög orðheppin og fyndin og skaut oft að athugasemdum sem breyttu orðræðunni eða gáfu henni nýjan lit. Það var gæfuspor fyrir Ásu að giftast Ella sínum í október 1988. Sambúð þeirra var góð og hann reyndist henni vænn og traust- ur og annaðist hana vel, ekki síst eftir að heilsuleysi fór að hrjá hana undanfarin ár. Þessu sinnti Elli af alúð þó að hann ætti sjálfur við heilsuleysi að stríða. Við skólasysturnar úr Verslunarskólanum vottum Ella, fjölskyldu hans og systk- inum Ásu og öðrum ættingjum innilega samúð vegna andláts hennar. Blessuð sé minning Ásu Tulinius. Guðrún Agnarsdóttir. Ása Tulinius ✝ Páll Torp fædd-ist í Reykjavík 23. ágúst 1927. Hann lést í Taílandi 10. febrúar 2014. Hann var sonur hjónanna Mattheu Kristínar Páls- dóttur, f. 8.11. 1902, d. 12.12. 1946, og Christians Evalds Torp, f. 14.4. 1904, d. 11.12. 1965. Syst- ir hans sammæðra var Rannveig Böðvarsson, f. 8.7. 1924, d. 28.9. 2005. Bróðir hans samfeðra er Holger Torp, 21.7. 1950. Páll kvæntist 10.7. 1954 Lilju Elísabetu Auðunsdóttur Torp, f. 24.7 1933, d. 16.11. 2000. Þeirra börn eru: 1) Elísabet Auður Torp, f. 29.3. 1971, gift Erling Rúnari Huldarssyni, f. 26.7. 1970, og eiga þau þrjár dætur, Írisi Ósk, f. 5.8. 1993, Lilju Dögg, f. 21.7. 1999, og Erlu Björt, f. 6.12. 2007. 2) Krist- ján Eðvald Torp, f. 9.5. 1972, sambýlis- kona hans er Natta- ya Seeman og á hann eina dóttur, El- ísabetu Praowphilai Torp, f. 1.1. 2000. Páll byrjaði ungur á sjó og var sjómaður mestan hluta starfsævi sinnar. Hann lauk Stýrimanna- skólanum og var skipstjóri á skipum Jökla og á dönskum fragtskipum. Eftir að hann kom í land vann hann í Áburðarverk- smiðju ríkisins. Útför Páls fór fram 27. mars 2014, í kyrrþey að ósk hins látna. Kóngurinn í Síam og Páll skip- stjóri fæddust á sama ári. Kóng- urinn átti við heilsubrest að stríða síðasta áratug en Páll var aftur á móti nokkuð hress fram á síðasta ár. Í móðurætt var Páll kominn af sterkum vestfirskum ættum, bændum og sjómönnum í Arnar- firði, en föðurættin var frá Dan- mörku. Berklar fóru hörðum höndum um fjölskylduna því Páll og foreldrar hans smituðust. Páll nánast ómálga barn var á berkla- hæli í Danmörku þar til hann varð þriggja ára, foreldrarnir dvöldu þar líka. Faðir hans varð svo inn- lyksa í Danmörku í stríðinu. Páll bjó því stopult við nálægð foreldra og eldri systur í uppvextinum. Frá sjö ára aldri var hann í sveit í Sel- voginum og svo heilt ár hjá Hlín Johnson í Herdísarvík, skömmu eftir að Einar Benediktsson lést. Haustið 1941, þá 14 ára, réðst Páll á togara og var á sjó í nærri 40 ár. Hann átti langt og farsælt skip- stjórnarstarf um öll heimsins höf. Kona Páls og stoð hans og stytta var Lilja E. Auðunsdóttir, sem lést árið 2000. Þau voru mjög samhent, unnu náttúru og sögu Íslands og ferðuðust mikið. Eftir lát Lilju var Páll einn og eirðarlaus og virtist ekki finna sig í neinu. Haustið 2002 bauðst hon- um að fara sem stýrimaður á fiski- bát sem hafði verið seldur frá Akranesi til Ástralíu. Páll var ekki spenntur fyrir þessu, og eitthvað þurfti að ganga á eftir honum. Hann lét tilleiðast þegar hann sá að á heimleiðinni gæti hann stopp- að í Taílandi og hitt Kristján son sinn sem dvaldist þar oft. Þessi ferð var vendipunktur í lífi hans, þar sem hann kynntist góðri konu og þarna byrjaði nýr kafli hjá hon- um. Hann settist að í Taílandi og undi sér vel í sveitakyrrð og fal- legu landslagi. Hann naut þess að fara á mótorhjóli um sveitirnar og fylgjast með landbúnaði og rækt- un. Páll naut sín líka með nýju fjöl- skyldunni, konu og dóttur hennar með tvær dætur, sú yngri heitir Pálína. Tengdaforeldrarnir voru á hans aldri, en orðin útslitin gam- almenni sem höfðu stritað allt sitt líf. Þau lifðu síðasta áratug í skjóli Páls, sem af sínum íslensku elli- launum gat boðið stórfjölskyld- unni nýtt og betra líf. Páll var næmur á persónuleika fólks og hann var fljótur að kynn- ast fólki sem honum leist vel á. Hann gat einnig sýnt hrjúft við- mót, að ég held til að sjá viðbrögð fólks, en það var venjulega ekki langt í brosið. Eflaust voru þetta taktar sem góður skipstjóri þrosk- ar með sér til að þekkja vel sína áhöfn. Hann var mikill sögumaður og hafði frá mörgu að segja, eftir langt og viðburðaríkt líf – minni hans var einstakt. Konur okkar Páls voru systk- inabörn en þó var nánast heil kyn- slóð á milli okkar í árum. Ég mun sakna Palla, hann var einstakur maður og það var gaman að vera nálægt honum. Þau Lilja heim- sóttu okkur nokkrum sinnum í Frakklandi og við Elísabet heim- sóttum hann nokkrum sinnum í Taílandi. Við Elísabet og dætur okkar vottum börnum Lilju og Páls, Elísabetu og Kristjáni, og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúð, en góðar minningar um Palla munu varðveitast meðal okkar. Theódór Lúðvíksson, Cessy, Frakklandi. Páll Torp ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HÁKON ORMSSON, Skriðinsenni, Strandasýslu, lést mánudaginn 31. mars á Hjúkrunarheimili aldraðra, Hólmavík. Útför hans fer fram frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 12. apríl kl. 13.00. Lilja Jónsdóttir, Jón Hákonarson, Sigríður Einarsdóttir, Steinunn Kristín Hákonardóttir, Lýður Hákonarson, Margrét Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra DANÍELS HELGASONAR, fv. flugumferðarstjóra, Árskógum 8, sem lést mánudaginn 24. mars. Guðríður Gunnarsdóttir, Guðbjörg Daníelsdóttir, Snorri Gunnarsson, Hjördís Rósa Daníelsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar elskulega SIGTRYGGS VALDIMARSSONAR, Furulundi 15c, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga- deildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun og hlýju. Valborg Gunnarsdóttir, Svanhildur Sigtryggsdóttir, Frosti Meldal, Gunnar Sigtryggsson, Rósa Sveinbjörnsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Ingibjörg Tómasdóttir, Anna Ásgeirsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, SVALA HÓLM FRIÐBJÖRNSDÓTTIR, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 27. mars. Hún fæddist í Reykjavík 1943. Hún hefur verið búsett á Jótlandi í Danmörku frá 1973. Útför hennar hefur farið fram í Dronninglund á Jótlandi. Jens Peter Jensen, Jón Bergsveinn Þorsteinsson, Björn Þór Þorsteinsson, Unnur Þorsteinsdóttir, Carsten Arnor Nielsen, barnabörn, systkini og þeirra fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.