Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 35
hjá Opnum kerfum þar sem hún
sinnti markaðsmálum en tók svo að
sér framkvæmdastjórn bókaútgáf-
unnar Crymogeu þegar útgáfan var
að feta sín fyrstu spor á markaði. Á
síðastliðnu hausti tók Helga Dögg
svo við starfi skrifstofu- og markaðs-
stjóra Microsoft á Íslandi.
Helga Dögg hefur löngum verið
virk í félagsstarfi og haft mikinn
áhuga á samfélagsmálum. Í skóla
tók hún virkan þátt í öllu félagsstarfi
en síðari ár hefur hún starfað tals-
vert innan Sjálfstæðisflokksins og
gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Helga Dögg er mikill femínisti og
situr í stjórn Landssambands sjálf-
stæðiskvenna og í stjórn Kvenrétt-
indafélags Íslands þar sem hún
gegnir starfi ritara.
Undanfarin ár hefur Bollywood-
dans átt hug Helgu Daggar og dans-
ar hún vikulega með góðum hópi vin-
kvenna undir styrkri stjórn Mar-
grétar Erlu Maack: „Við byrjuðum á
þessu fyrir fjórum árum en flestar
okkar höfðu þekkst áður – verið vin-
konur eða kunningjakonur.
Þetta er auðvitað afskaplega
skemmtilegt. Dansarnir eiga rætur í
Bollywood-kvikmyndum og eru yf-
irleitt einhvers konar sambland af
magadansi, flamenco-dansi og ind-
verskum þjóðdönsum. Sumir dans-
anna eru teknir beint upp úr Bol-
lywood-myndum en aðra hefur
Margrét Erla samið upp úr slíkum
myndum. Við komum fram á stóra
sviðinu fyrir neðan Arnarhólinn 17.
júní í fyrra, og vonumst auðvitað til
að verða þar aðalnúmerið í ár.“
Fjölskylda
Eiginmaður Helgu Daggar er
Bjarni Hauksson, f. 5.9. 1969 hæsta-
réttarlögmaður. Foreldrar hans eru
Jóhanna Borgþórsdóttir, f. 1.8. 1940,
kennari í Reykjavík, og Haukur
Bjarnason, f. 4.5. 1934, lögmaður í
Reykjavík.
Börn Helgu Daggar og Bjarna eru
Björgvin Haukur Bjarnason, f. 21.1.
2002, grunnskólanemi í Reykjavík;
Inga Sif Bjarnadóttir, f. 18.2. 2005,
grunnskólanemi í Reykjavík; Stefán
Gauti Bjarnason, f. 3.3. 2011, leik-
skólanemi í Reykjavík
Systkini Helgu Daggar: Bára
Björgvinsdóttir, f. 24.4. 1970, d. 5.12.
1991; Ragnheiður Björgvinsdóttir, f.
13.3. 1980, ráðgjafi í Reykjavík.
Foreldrar Helgu Daggar eru Est-
her R. Guðmundsdóttir, f. 10.7. 1948,
þjóðfélagsfræðingur í Reykjavík, og
Björgvin Óli Jónsson, f. 28.1. 1941,
tannlæknir í Reykjavík.
Úr frændgarði Helgu Daggar Björgvinsdóttur
Helga Dögg
Björgvinsdóttir
Torfi Jónsson
útvegsb. í Kollsvík
Guðbjörg Ólína
Guðbjartsdóttir
húsfr.
Jón Torfason
útvegsb. á
Patreksfirði
Samúel Torfason
iðnrekandi í Rvík
Halldóra Guðbjört
Torfadóttir
húsfr. á Lambavatni
á Rauðasandi
Anna Guðrún
Torfadóttir
húsfr. í Stakkadal
á Rauðasandi
Árni Samúelsson
kvikmyndahúsaeigandi
Torfi Ólafsson
nú nýlátinn, var
deildarstj. í Seðla-
bankanum og
formaður Félags
kaþólskra leikmanna
Ólafur Torfason
kvikmyndarýnir
Bergþóra Egilsdóttir
húsfr. á Patreksfirði
Ólafía
Egilsdóttir
ljósmóðir á
Hnjóti
Egill Ólafsson
safnvörður á
Hnjóti
Gíslína
Egilsdóttir
húsfr. í
Hafnarf.
Egill Hansen
bifvélavirki
og hús-
vörður
Björgvin Óli Jónsson
tannlæknir í Rvík
Egill Árnason
bóndi, Sjöundá
Jónína Helga Gísladóttir
húsfr., Sjöundá
Pétur Ásbjörnsson
sjóm. í Ólafsvík
Guðmundur G. Pétursson
ökukennari Rvík
Esther Guðmundsdóttir
þjóðfélagsfr. í Rvík
Bára Sigurðardóttir
verslm. í Rvík
Sigurður Guðbjartsson
bryti í Rvík
Esther Helga Ólafsdóttir
húsfr.í Rvík
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfr. í Ólafsvík
Gunnleifur Kjartansson
lögreglufulltr. í Hafnarfirði
Gunnleifur V. Gunnleifsson
fyrrv. landsliðsmarkm. í
knattspyrnu
Sigurjón
M. Egilsson
dagskrár-
gerðarm.
Gunnar
Smári
Egilsson
álitsgjafi
Hafsteinn
Egilsson
KR-ingur og
veitingam.
á Rauða
ljóninu
Magnús Torfi Ólafsson
alþm. og ráðherra
Halldóra Sigrún
Ólafsdóttir kennari í
Kópavogi
Kolbrún Halldórsdóttir
leikstj. og fyrrv. alþm.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
INNRÉTTINGA- OG
SKÁPAHÖLDUR
Í MIKLU ÚRVALI
UM
400
GER
ÐIR
!
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Ólöf frá Hlöðum fæddist áSauðadalsá á Vatnsnesi 9.4.1857 og ólst þar upp í litlu
koti með torf í hólf og gólf. For-
eldrar hennar, Sigurður Sigurðsson
og Magðalena Tómasdóttir, voru
bláfátæk framan af en efnuðust með
fádæma sparsemi.
Í ritgerðinni „Æskuheimili mitt“
lýsir Ólöf nöturlegum húsakynnum,
miskunnarlausri sparsemi og and-
lausum fábreytileika uppvaxtarár-
ana og dregur ekkert undan.
Ólöf flutti til Reykjavíkur er hún
var 19 ára, lærði ljósmóðurfræði hjá
Jónassen lækni í Reykjavík og
stundaði framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn í einn vetur. Hún var síð-
an ljósmóðir í Reykjavík um fimm
ára skeið. Þar kynntist hún Reykja-
víkurskáldum, ekki síst Þorsteini
Erlingssyni sem hafði varanleg áhrif
á skoðanir hennar og skáldskap.
Ólöf giftist 1887 Halldóri Guð-
mundssyni, sveitunga sínum, og þau
fluttu að Hlöðum í Hörgárdal sem
Ólöf kenndi sig við síðan.
Þau hjónin virtust ekki sérlega
samrýmd og ljóð hennar benda ekki
til þess að hjónabandið hafi verið
ástríkt, þó að Halldór hafi eitthvað
fengist við ritstörf eins og hún. Hún
var tilfinningarík, ör og skapheit en
hann fremur hæglátur og umburð-
arlyndur. Hún sinnti samt bústörf-
um af myndarskap, ræktaði blóm og
grænmeti, var orðlögð hann-
yrðakona og stundaði auk þess bók-
lestur, skáldskap og ritstörf.
Halldór féll frá 1920. Skömmu síð-
ar fluttir Ólöf til Akureyrar, en bjó í
Reykjavík síðustu æviárin.
Ólöf var kvenréttindakona sem
hélt mjög eindregið fram skýlausum
rétti kvenna til að ráða einkalífi sínu,
velja sér maka og eins að ala einar
upp börn sín. Á efri árum hallaðist
hún svo að spíritisma og guðspeki.
Hún orti talsvert, alla ævina og
skrifaði sögur og ævintýri. Hún gaf
út ljóðasafnið Nokkur smákvæði,
1888, og aftur, mjög aukið, 1913. Rit-
safn hennar kom út 1945 með yfirliti
yfir æviferil.
Ólöf lést 1933.
Merkir Íslendingar
Ólöf Sigurðardóttir
85 ára
Kristín Friðbjarnardóttir
Pétur Jónsson
Unnur Jörundsdóttir
Valur Benediktsson
80 ára
Jessy Friðriksdóttir
Kristín Björnsdóttir
Sigurður Daníelsson
75 ára
Ágúst Þorsteinsson
Birgir Sigurðsson
Jakob G. Pétursson
70 ára
Ágústa Garðarsdóttir
Ásdís Kristinsdóttir
Bragi Bjarnar Karlsson
Hafdís Guðbergsdóttir
Kristinn Sigurðsson
Valgeir Jónasson
60 ára
Bjarnfinnur Sverrisson
Eggert Björnsson
Guðmundur Gíslason
Guðmundur Ólafsson
Gunnar Svanur Hafdal
Haraldur al Lahham
Jón Magnús Jónsson
Kristinn Janus Magnússon
Mariusz Antoni
Kruszewski
Matthías Helgi Sverrisson
Sigurður Ingvi Björnsson
Sigurður I. Sveinbjörnsson
50 ára
Áslaug Gylfadóttir
Bjarki Gunnarsson
Björgvin Birgisson
Guðný Sigurþórsdóttir
Halldóra Jóhannesdóttir
Harpa Björk Viðarsdóttir
Helena Gunnarsdóttir
Jóhann H. Bjarnason
Kjartan B. Sigurðsson
Leifur Eiríksson
Magnús Magnússon
Magnús Már Magnússon
Móses Kjartan Jósefsson
Ragna Þóra Ragnarsdóttir
Róbert Boulter
Sigríður Þorkelsdóttir
Thelma Jóna Björnsdóttir
40 ára
Aðalheiður Kristín Jurado
Anna Rut Þráinsdóttir
Arnar Karl Magnússon
Eiríkur Rúnar Eiríksson
Geert A.K.Cornelis
Ína Björg Össurardóttir
Jón Baldvin Jónsson
Jón Óttar Birgisson
Júlíus Björn Árnason
Linda Theódóra
Tómasdóttir
Óskar Þór Óskarsson
Sigrún Lilja Einarsdóttir
Sigurður Björgvin
Sigurðsson
30 ára
Anna Christine Aclipen
Davíð Karl Sigþr.
Davíðsson
Dorothee Hippel
Heli Alina Johanna Tiitinen
Janusz Krzysztof
Duczek
Karl Gunnarsson
Magdalena Alina Fojut
Matt Nicholas Paul Garner
Robert James Clarke
Stanislovas Spiegys
Tomasz Lasiewicki
Yana Vladimirovna
Budaeva Saliu
Ýr Þrastardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ingibjörg ólst upp
í Mosfellsbæ, býr í
Reykjavík, lauk prófum í
lyfjatækni og starfar við
Landspítalann.
Maki: Friðrik Theodórs-
son, f. 1987, slökkviliðs-
maður hjá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins.
Foreldrar: Hjörtur Frið-
riksson, f. 1947, lang-
ferðabílstjóri í Kópavogi,
og Ása Björk Sigurð-
ardóttir, f. 1960, fram-
kvæmdastjóri í Kópavogi.
Ingibjörg G.
Hjartardóttir
30 ára Alma ólst upp á
Staðarhóli í Eyjafjarð-
arsveit, býr í Reykjavík,
lauk BA-prófi í sagnfræði
og MA-prófi í hagnýtri
menningarmiðlun frá HÍ
og er safnfræðslufulltrúi í
Víkinni.
Foreldrar: Sigurgeir Sig-
urgeirsson, f. 1960, fyrrv.
bóndi og starfsmaður við
Slippstöðina á Akureyri,
og Ásta Heiðrún Stef-
ánsdóttir, f. 1961, starfs-
maður á Laugalandi.
Alma Sigrún
Sigurgeirsdóttir
30 ára Hrafnhildur býr á
Siglufirði, lauk prófi í
tækniteiknun og er nú
heimavinnandi.
Maki: Guðmundur Óli
Sigurðsson, f. 1980, sjó-
maður.
Börn: Nadia Ósk, f. 2006
(dóttir Guðmundar) Sig-
urður Arnar, f. 2012.
Foreldrar: Magnús G.
Jensson, f. 1933, d. 2008,
byggingameistari, og
Kristín G.H. Sveinbjörns-
dóttir, f. 1937, húsfreyja.
Hrafnhildur G.
Magnúsdóttir