Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 9
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Listaverki Sigurjóns Ólafssonar,
Skyggnst bak við tunglið, var í gær
komið fyrir á nýjum stað við Suður-
strönd á Seltjarnarnesi. Verkið var
tekið niður á fyrri stað árið 2007
vegna byggingarframkvæmda en hef-
ur nú verið sett
upp á nýjum stað
ekki langt frá hin-
um fyrri, en það
er nú fyrir framan
heilsugæslustöð
bæjarins. Tengist
þetta 40 ára kaup-
staðarafmæli bæj-
arins sem verður
haldið hátíðlegt í
dag, 9. apríl.
Hápunktur
dagsins á Seltjarnarnesi er hátíðar-
dagskrá á Eiðistorgi sem hefst kl.
17.10. Þar flytur Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, sem í ára-
raðir bjó á Seltjarnarnesi, afmælis-
kveðju. „Það skiptir miklu máli að
fagna saman 40 ára afmælinu, slíkt
vekur samkennd og samhug íbúa. Á
þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá
því Seltjarnarnes varð kaupstaður
hefur miklu verið áorkað, en það sem
mér finnst standa upp úr er að tekist
hefur að gera bæinn að fjölskyldu-
vænu bæjarfélagi og snyrtilegu bæj-
arfélagi,“ segir Ásgerður Halldórs-
dóttir bæjarstjóri.
Búum að góðu skólastarfi
„Brýnasta verkefnið okkar í dag er
bygging hjúkrunarheimilis, en á
næstu vikum verður tekin skóflu-
stunga að byggingunni. Einnig að
halda áfram að styrkja innviði bæj-
arfélagsins en hér búum við að góðu
skóla- og íþróttastarfi. Það á sinn þátt
í því að hér er til staðar sérstakur
bæjarbragur og eins er Seltjarnar-
nesið þekkt fyrir góða aðstöðu fyrir
almenningsíþróttir,“ segir Ásgerður.
Þó að mest verði um að vera á Nes-
inu í dag, á formlegum afmælisdegi,
er meira framundan. Skemmtilegir
atburðir verða út árið og má þar
nefna Gróttudaginn 1. maí þar sem
íbúum á höfuðborgarsvæðinu er boðið
út í eyjuna að kynnast þar náttúru og
fuglalífi. Þá er ritið Seltirningabók
eftir Heimi heitinn Þorleifsson vænt-
anlegt í rafrænni endurútgáfu, en það
kom fyrst út á prenti 1991. Þar er vítt
og breitt farið yfir sögu byggðarinn-
ar, sem má rekja til þjóðveldisaldar.
Var hluti af Kópavogi
Fyrsti landlæknir á Íslandi, Bjarni
Pálsson, sem skipaður var í embætti
1760 hafði aðsetur í Nesstofu við Sel-
tjörn. Seltjarnarneshreppur hinn
forni náði yfir allt Nesið, sem liggur á
milli Kollafjarðar og Skerjafjarðar og
allt til fjalla. Það var fyrst 1948 sem
Nesið varð alfarið sjálfstætt byggð-
arlag, en áður tilheyrði það Kópavogi.
Tunglið flutt í fertugum bæ
Fjölbreytt dagskrá á Seltjarnarnesi í dag Gamall Seltirningur á Bessastöðum
flytur ávarp Bygging hjúkrunarheimilis er brýnt verkefni, segir bæjarstjóri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
List Verk Sigurjóns Ólafssonar, Skyggnst bak við tunglið, var í gær sett upp við heilsugæslustöðina á Nesinu.
Ásgerður
Halldórsdóttir
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
GlæSilEGur
sparifatnaður
fyrir veislur
sumarsins!
Stærðir 36-52
Skoðið
sýnishorn
af úrvalinu á
facEbook
MÖRKIN 6 - 108 RVK. - S: 520-1000
facebook.com/sportis
www.sportis.is
SPORTÍSVerð frá kr. 49.900.- (3 gerðir)Mikið úrval af aukahlutum!
(4 x hraðara*)
Rafhlaða með 30% meiri
endingu*
Allt að 240 rammar á
sekúndu.
upplausn
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
BUXUR-BUXUR
fyrir allar konur
GERRY WEBER - GARDEUR
Niðurmjóar - beinar
mörg snið - margir litir
Afmælisdagskráin á Seltjarnarnesi í dag er fjöl-
breytt. Í morgunsárið fer Lúðrasveit Tónlistar-
skóla Seltjarnarness um bæinn og blæs í af-
mælislúðra. Í Mýrarhúsaskóla verður sýning
sem nemendur hafa unnið út frá sögu og nátt-
úru. Hannyrðakonur í félagsstarfi aldraðra
verða með opið hús frá kl. 13.30 til 16 og sýna
altarisdúk sem þær hyggjast gefa Seltjarnar-
neskirkju.
Á hádegi verður listaverk Sigurjóns Ólafs-
sonar afhjúpað á nýjum stað og við hátíðardag-
skrá á Eiðistorgi síðdegis flytur Jóhann Helga-
son lagið Seltjarnarnes. Þá kemur fram fjöldi listamanna og kl. 20 eru
tónleikar í Seltjarnarneskirkju með Selkórnum og tónlistarnemum. –
Fyrirtæki í bænum eru mörg hver með afsláttartilboð í tilefni dagsins
og það er frítt í vinsæla sundlaug bæjarins.
Lúðrablástur og frítt í sund
FJÖLBREYTT AFMÆLISDAGSKRÁ
Jóhann Helgason