Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
● Iðnfyrirtækið
Promens skilaði
31,4 milljóna evra
hagnaði á síðasta
ári, jafnvirði 4,9
milljarða króna, og
hækkaði hann um
10% frá 2012. Sal-
an á árinu nam
samtals 594,5
milljónum evra og
hélst nánast
óbreytt milli ára.
Í tilkynningu er haft eftir Jakobi Sig-
urðssyni, forstjóra Promens, að enn eitt
farsælt ár sé að baki. Stefnt er að
skráningu Promens á markað 2014.
Promens hagnast um
fimm milljarða króna
Jakob
Sigurðsson
útistandandi hlutar er 17,62 evrur
eða 27,3 krónur, eins og fyrr segir.
Þetta er lítillega yfir lægri mörk-
um í útboði félagsins sem hófst á
mánudaginn og lýkur á morgun,
fimmtudag.
Eftirvænting en hátt verð
Töluverð eftirvænting hefur skap-
ast um skráningu HB Granda, enda
hefur sjávarútvegsfyrirtæki ekki
verið í boði á aðalmarkaði kauphall-
arinnar í liðlega áratug. Í almennu
útboði á hlutabréfum félagsins
hyggjast Arion banki, Vogun hf. og
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. selja
27-32% hlut í félaginu. Ákvörðun um
endanlega stærð útboðsins og skipt-
ingu þess milli tilboðsbóka mun taka
mið af eftirspurn í útboðinu. Verðbil
áskrifta er 26,6 krónur til 32,5 krónur
á hlut, eins og fyrr segir.
Það liggur fyrir að samkvæmt
verðmati greiningaraðila eru bréfin
nokkuð hátt verðlögð í útboðinu, en
verðmatsútreikningar Íslandsbanka,
Landsbanka og IFS eru allir í kring-
um lægri mörk útboðsgengisins.
Útboði HB Granda
lýkur á morgun
IFS metur virði nálægt neðri mörkum útboðsgengis
Morgunblaðið/Eggert
HB Grandi Útboð á hlutabréfum í stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins er
undanfari þess að félagið verði skráð á Aðalmarkað kauphallarinnar.
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Greiningarfyrirtækið IFS gaf í gær
út greiningu á HB Granda í tengslum
við útboð hlutabréfa í félaginu sem
hófst í vikunni og lýkur á morgun,
fimmtudag. Niðurstaða útreikninga
IFS á virði hlutafjár er að það sam-
svari genginu 27,3 krónum á hlut, en
sölugengi í almennum hluta útboðs-
ins liggur á bilinu 26,6 krónur til 32,5
krónur á hlut.
Stærsta sjávarútvegsfyrirtækið
Til grundvallar sjóðssteymisverð-
matinu liggur rekstrarspá sem IFS
hefur unnið. HB Grandi er stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins og
hefur yfir að ráða um 12% aflahlut-
deild á Íslandsmiðum. Félagið getur
því ekki aukið kvóta sinn samkvæmt
núgildandi lögum, en kvóti þess er
hlutfallslega meiri í karfa, ufsa og
uppsjávartegundum en í þorski og
ýsu.
Spá um aukna loðnu á ný
Um 24% af tekjum HB Granda á
síðasta ári voru af loðnuveiðum. Eftir
verulegan samdrátt í ár, áætlar IFS
að tekjur af loðnuveiðum aukist á ný
á næsta ári og að 200 þúsund tonn af
loðnu veiðist af innlendum aðilum á
komandi árum. Gert er ráð fyrir 7-8%
aukningu í þorskveiðum næstu tvö
árin. Veruleg óvissa er hins vegar um
makrílveiðar í framtíðinni, en veiðar
á makríl hafa að hluta bætt upp
loðnuleysið á fyrrihluta þessa árs.
Í rekstrarspá IFS er gert ráð fyrir
2,5% tekjuvexti til frambúðar og tek-
ur það mið af spá um að afurðaverð
muni hækka um 2,5% á ári í erlendri
mynt næstu árin. Telur IFS forsend-
ur um framlegð raunhæfar í sögulegu
ljósi.
Óvissa hækkar ávöxtunarkröfu
Í sjóðssteymisverðmati er gerð
14,8% arðsemiskrafa á eigið fé. Í því
er sérstakt 5% álag á ávöxtunarkröfu
vegna óvissuþátta, annars vegar
vegna efnahagsástands og gjaldeyr-
ishafta á Íslandi og hins vegar vegna
óvissu um framtíðarskipan kvóta-
kerfisins, þar á meðal makrílstofns-
ins. Miðað er við að hluti eigin fjár í
fjármögnun sé 55%.
Niðurstaða verðmats IFS er að
virði hlutafjár í HB Granda sé 319,6
milljónir evra eða um 49,5 milljarðar
króna. Það þýðir að verðmæti hvers
Útboð HB Granda
» Í útboðinu eru 27-32%
hlutafjár boðið fjárfestum til
kaups.
» Útboðið stendur yfir frá 7. til
10. apríl og er verðbil áskrifta
26,6-32,5 krónur á hlut.
» Greining IFS metur virði
hlutfjár í félaginu á 27,3 krónur
á hlut.
!
!"
#
$"
$
!!
$"%
%%#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#
$$
!$
! #
$
$
!##
$"
%"%
%
!!
!$%
%
$#
$!
!#$
$"
%"#
!%$#$%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heildarvelta á millibankamarkaði
með gjaldeyri í marsmánuði nam 110
milljónum evra, jafnvirði 17,2 milljarða
króna. Hlutur Seðlabanka Íslands á
markaði var um 3,7 milljarðar króna,
eða 21,7% af allri veltu í mánuðinum.
Samtals hefur Seðlabankinn keypt
gjaldeyri á markaði fyrir tæplega 30
milljarða króna á síðustu fjórum mán-
uðum.
Á það er bent í Hagsjá Hagfræði-
deildar Landsbankans að um þriðjungur
af veltu mánaðarins átti sér stað á ein-
um degi, en fimmtudaginn 27. mars
skiptu 34 milljónir evra um hendur.
Þetta er fjórða mesta velta á einum
degi síðan í byrjun árs 2009. Þar af
keypti Seðlabankinn 15 milljónir evra.
Seðlabankinn keypt
gjaldeyri fyrir 30 millj-
arða síðan í desember
SÍ Hefur keypt mikið af gjaldeyri.
Stuttar fréttir ...