Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 26

Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 ✝ Friðrik Har-aldsson bakarameistari fæddist á Sandi í Vestmannaeyjum 9. ágúst 1922. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 21. mars 2014. Foreldrar hans voru hjónin Krist- jana Einarsdóttir, f. 1891, d. 1964, og Haraldur Sigurðsson á Sandi, f. 1876, d. 1943. Friðrik átti þrjú alsystkin, Harald, Rú- rik og Ásu. Hálfsystkin sam- feðra; Unnur, Ragna, Kalmann, Hörður, Guðmundur Trausti, Sigurður og Fjóla Guðbjörg. Hálfsystkin sammæðra; Björg- vin, Guðmunda Margrét og Einar Valgeir. Öll eru systkini hans látin, nema Ása. Friðrik kvæntist eftirlifandi konu sinni, Steinu Margréti Finnsdóttur, f. 10. júní 1926, í desember 1945. Hún er dóttir hjónanna Þórunnar Ein- arsdóttur, f. 1898, d. 1970, og Finns Sigmundssonar, f. 1889, d. 1966 í Uppsölum, Vest- mannaeyjum, yngst þriggja systkina, en bræður hennar voru Flosi og Sigmundur. Börn þeirra hjóna, Steinu og Frið- riks, eru: 1) Haraldur, f. 1944, Selfoss og starfaði í Bakaríum Kaupfélags Árnesinga; tvö ár á Eyrarbakka og fjögur á Sel- fossi. Árið 1952 flutti hann í Kópavog og þar stofnuðu þau hjónin Bakarí Friðriks Haralds- sonar, síðar Ömmubakstur. Þar störfuðu þau saman og lögðu áherslu á bakstur hefðbundins íslensks brauðmetis á borð við flatkökur, kleinur og laufa- brauð. Friðrik helgaði Skáta- hreyfingunni krafta sína frá barnæsku, var einn af stofn- endum skátafélagsins Faxa í Vestmannaeyjum 1938. Hann endurreisti skátafélagið Kópa í Kópavogi 1957 og var þar fé- lagsforingi um margra ára skeið. Árið 1959 stóð Friðrik að stofnun Lionsklúbbs Kópa- vogs og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Árið 1971 stóð hann svo að stofnun ann- ars Lionsklúbbs í Kópavogi, Lionsklúbbsins Munins, og starfaði þar svo lengi sem kraftar leyfðu. Til æviloka starfaði Friðrik í skátaflokkn- um Útlögum, flokki sem brott- fluttir skátar frá Vest- mannaeyjum stofnuðu árið 1942, og er flokkurinn talinn elsti starfandi skátaflokkur í veröldinni í dag. Útför Friðriks fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 9. apríl 2014, og hefst athöfnin kl. 13. kvæntur Ásrúnu Davíðsdóttur. 2) Finnur Þór, f. 1951, kvæntur Jó- hönnu Björns- dóttur, börn þeirra eru: a) Steina Mar- grét f. 1978, gift Sorin Lazar, börn þeirra eru Vic- toría, f. 2001, Finn- ur Alexander, f. 2005, og Haraldur Aron, f. 2009. Steina Margrét eignaðist son með Baldri Einarssyni, Baldur Steinar, f. 1997, en hann lést samdægurs. b) Rúna Birna, f. 1979, í sam- búð með Helga Páli Jónssyni, þeirra sonur er Rúrík, f. 2012. 3) Dröfn, f. 1960, gift Arnþóri Þórðarsyni, börn þeirra eru a) Ásrún Lára, f. 1984, í sambúð með Davíð Má Sigurðssyni, þeirra dóttir er Emilía Rakel, f. 2013. b) Friðrik Þór, f. 1987. c) Rebekka Katrín, f. 1994. Friðrik ólst upp í Vest- mannaeyjum en dvaldi mikið hjá ættingjum sínum á Búð- arhóli í A-Landeyjum. Hann lærði bakaraiðn hjá Magnúsi Bergssyni í Vestmannaeyjum og hóf þar starfsferil sinn í faginu. Friðrik stundaði fram- haldsnám í bakaraiðn í Kaup- mannahöfn. Eftir það flutti hann á Eyrarbakka og síðan á Elsku pabbi minn, nú er komið að kveðjustund og þá kemur fyrst í hugann þakklæti fyrir allt gamalt og gott, allar þær ánægjustundir sem þú veittir okkur, óendanleg hjálpsemi og góðvild í allra garð, þolinmæði og alltaf varstu úr- ræðagóður. Það sem lýsir því einna best var þegar þið Halli bróðir voruð að mála þakið á Þinghólsbrautinni og enginn friður fyrir mér, þessu prí- lupriki, þá líklega fjögurra ára, alltaf kominn upp í stigann og upp á þakið, þrátt fyrir boð og bönn. Þá leystir þú úr því á þann ein- falda hátt að ná bara í litla tóma Ora-baunadós, lítinn pensil og bandspotta sem brugðið var utan um mig miðjan og hinn endann ut- an um skorsteininn. Mikið var ég montinn að fá að taka þátt í máln- ingarvinnunni og málið leyst. Ógleymanlegar eru allar þær tjaldútilegur, skátamót og ferða- lög sem þið mamma voruð svo dugleg að fara með okkur í, sem endaði svo með þessum dásam- lega sælureit sem þið komuð ykk- ur upp í Grímsnesinu, sumarbú- staðnum Uppsölum, sem öll ættin, vinir og kunningjar hafa fengið að njóta. Hvíl í friði pabbi minn. Þinn sonur, Finnur Þór. „Hann er nú samt góður, hann afi“ hefur orðið að máltæki innan fjölskyldunnar. Tengdaforeldrar mínir, Friðrik og Steina, voru ný- komin í sumarbústaðinn og með í förinni var barnabarn og nafni; Friðrik, fjögurra eða fimm ára gamall. Afi var fljótur að snara vistum helgarinnar inn í ísskáp- inn, hendast í vinnufötin og út að sinna aðkallandi verkum. Í fram- haldinu lá amma á hnjánum við ís- skápinn „því amma kann að raða“ og fjargviðraðist út í fráganginn. Friðrik litli hlustaði um stund, gekk svo til ömmu og tók utan um hana: „Hann er nú samt góður, hann afi.“ Já, hann Friðrik var góður, var einstakur maður, dugn- aðarforkur, hjartahlýr og vildi öll- um hjálpa, allra vanda leysa. Hann var mjög virkur í fé- lagsstörfum, „eitt sinn skáti, ávallt skáti“ í fararbroddi innan Lions- hreyfingarinnar, alltaf hægt að leita til hans, „ávallt viðbúinn“. Það sem hann tók að sér, á annað borð, var í höfn. Ég kynntist Frið- riki þegar ég gekk í skátafélagið Kópa 1958, þau kynni urðu dýpri þegar við Haraldur tengdumst tryggðaböndum. Milli okkar Frið- riks hefur alltaf ríkt gagnkvæm virðing og vinátta. Þau Steina og Friðrik hafa búið í Kópavogi und- anfarin 62 ár, nú síðustu árin var heimilið Sunnuhlíð og þar naut hann góðs atlætis starfsfólksins, var umvafinn kærleik og um- hyggju. Ég kveð tengdapabba minn með ást og virðingu og þakka fyrir öll okkar samskipti í áranna rás, samveru á heimilum okkar, í sum- arbústaðnum, ferðalögum hér heima og erlendis. Hann átti innst í hugarfylgsnum draumastað, sem hann, kominn til ára sinna, þráði og leitaði að. Draumsýnin hét Sandakot. Draumar hans hafa ræst, hann er kominn heim, heim í Sandakot. Ásrún Davíðsdóttir. Elsku Rikki afi minn, nú ertu farinn og söknuðurinn er mikill en minningarnar ljúfar og góðar. Ég er þér svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar, flestar eru þær úr sumarbústaðnum þar sem alltaf var tekið upp á ýmsu og ýmislegt brallað. Þú kenndir mér og öllum barnabörnunum þínum að flagga. Þú kenndir okkur allt um fána- reglurnar því þú varst jú skáti í húð og hár. Ég man þegar ég var lítil stelpa og við öll mætt í bústað- inn, þá voru mjög svo oft haldnar litlar kvöldvökur þar sem skáta- söngvar voru sungnir og einn og einn dans læddist með. Þú varst líka vanur að halda fallegar og skemmtilegar ræður við hin ýmsu tækifæri sem oft á tíðum enduðu með tári á hvarmi en alltaf var stutt í hláturinn. Við systurnar fengum oft að koma í heimsókn til þín og Halla í bakaríið þar sem við fengum að fylgjast með gangi mála og vorum ávallt leystar út með fullum kassa af Ömmubakst- urskræsingum. Minning þín mun lifa með okk- ur öllum og við verðum þér æv- inlega þakklát fyrir þann fallega arf sem þú skilur eftir þig og er uppáhaldsstaður okkar allra, Uppsalir. Elsku afi, takk fyrir mig, takk fyrir þig, takk fyrir allt. Ég elska þig og sakna og veit að þér líður vel þar sem þú ert núna. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. Hann afi lifa mun um eilífð alla til æðri heima stíga þetta spor. Og eins og blómin fljótt að frosti falla þau fögur lifna aftur næsta vor. (Guðrún Vagnsdóttir) Þín afastelpa, Steina M. Lazar Finnsdóttir. Í dag er kvaddur Friðrik Har- aldsson, skátaforingi um langt skeið. Um Friðrik átti við: Hann var „hæverskur í hugsunum, orð- um og verkum“. Og hann var „tryggur“ hverju málefni sem hann kom að. Skátar sjá að vísað er í tvær upprunalegar greinar skátalaganna. Uppeldisfrömuðurinn Jónas B. Jónsson hóf 1941 skátastarfið við Úlfljótsvatnið blátt og skrifaði dagbók fyrir Skátablaðið. Hér eru skrif hans frá vorinu 1942: „Fyrsta heimsóknin er mér einna minnisstæðust. Það var á mánudegi, kl. að ganga fimm, er við Jón Sigurðsson (fyrsti skóla- stjóri Laugarnesskóla og stofn- andi skátafélagsins Völsunga) vorum önnum kafnir við að grafa fyrir grunni eldhússins. Vitum við þá ekki fyrri til en tveir skátar með fyrirferðarmikla bakpoka og skátastafi í hönd koma hlaupandi niður hólinn. Þetta voru tveir skátar úr Vestmannaeyjum, þeir Friðrik Haraldsson deildarforingi og Sigmundur Finnsson. Þeir komu frá Reykjavík, höfðu farið á bíl upp að Kolviðarhóli, gengið þaðan um Hengil að Hveragerði. Þaðan gengu þeir til Þingvalla um Nesjavelli og komu svo þaðan til okkar. Að Ljósafossi fréttu þeir, að á Úlfljótsvatni væru skáta- tjaldbúðir og lögðu því lykkju á leið sína, til þess að heimsækja okkur. Þeir dvöldu hjá okkur í tvær nætur en gengu síðan til Hveragerðis, beint yfir, en þang- að eru um 12 km. Ég kann þeim beztu þakkir fyrir komuna og vona, að þeir hafi haft bæði gagn og gaman af ferðinni. Veit ég, að þeir bera sitt ferðalangsmerki með réttu. Framkoma þeirra, dugnaður og prúðmennska sýndu greinilega, að þar voru sannir skátar á ferð.“ Skátastarf var endurreist 1938 í Eyjum (1925 voru stofnuð bæði félög stúlkna og drengja). Nýja félagið hlaut nafnið Faxi og mark- aði sér strax sess með kröftugu skátastarfi. Þeir brugðust skjótt við er forysta BÍS ákvað að hverfa frá því að halda landsmót 1942 og sögðu það ekki vera hægt því að þeir væru langt komnir með und- irbúning fyrir mótið. Skátafélag Reykjavíkur brá þá við og hélt mótið. Víða um land hleyptu ungir skátar heimdraganum til að afla sér menntunar. Haustið 1942 gerði Friðrik það og margir skátafélagar hans. Brátt varð til hópur þeirra sem bjuggu í „út- legð“ við Faxaflóa. Þorsteinn Ein- arsson íþróttafulltrúi og áður fé- lagsforingi Faxa safnaði „drengjunum“ saman og Útlagar hófu starf haustið 1942. Enn halda þeir hópinn og 2002 kom út bók um sögu þeirra. Starfi Friðriks með ungum skátum lauk ekki er á land kom heldur sneri hann sér að ungu fólki í Kópavogi og var lengi fé- lagsforingi Kópa. Steina, kona hans, og fleiri skátamæður stofn- uðu „Urtur“ til stuðnings og „Sel- irnir“, sem teknir eru við, eru öfl- ugt bakland Kópa. Það er að sjálfsögðu eðlilegt hlutskipti að eldast. En mikilvægt er fyrir unga skáta að þekkja kraft og dugnað, sem þeirra öldnu for- ingjar sýndu sem ungir, og einnig hvernig þeir lögðu sig fram um að skapa ungu fólki tækifæri, reynslu og gleði. Um leið og við Arnlaugur send- um fjölskyldunni samúðarkveðjur óskum við skátafélögunum Faxa og Kópum, félögum Friðriks, vel- farnaðar í starfi sínu. Anna Kristjánsdóttir. Það er með miklu þakklæti sem ég minnist Friðriks Haraldssonar, félagsforingja okkar Kópavogs- skáta til margra ára. Með rólynd- islegri framkomu sinni vakti hann traust og fékk okkur til að hlusta. Hann var akkerið í skátastarfinu og við litum upp til hans. Oft hefur mér orðið hugsað til þess hvað það var ómetanlegt fyr- ir félagsskap sem samanstóð að mestu leyti af börnum og ungling- um að fullorðinn einstaklingur skyldi ekki bara gefa sér tíma, heldur líka alla athygli til að halda utan um þessa kviku hjörð. Þrátt fyrir að vera fjölskyldumaður sem stóð í rekstri vaxandi fyrirtækis, þá fann Friðrik sér tíma. Þetta var ekki sjálfgefið. Forystuhæfileikar Friðriks nutu sín ekki síst þegar hann tal- aði til okkar. Hugvekjur hans voru áhugaverðar, þær náðu eyrum okkar og við skildum þær. Hann veitti okkur gott veganesti út í líf- ið. Ólafur Hauksson. Friðrik Haraldsson, félagi okk- ar í Útlögum, lést að kvöldi föstu- dags 21. mars á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi eftir langvarandi veikindi. Var hann á 92. aldursári, fæddur á Sandi í Vestmannaeyjum 9. ágúst 1922. Friðrik varð skáti á unglings- aldri, gekk í Skátafélagið Faxa skömmu eftir stofnun þess 1938, varð sveitarforingi og svo deildar- foringi félagsins, þar til hann flutti úr Eyjum. Í annál Faxa 1942 seg- ir: „2. október var Friðriki Har- aldssyni haldið samsæti, en hann er á förum úr bænum.“ Þegar Friðrik kom til Reykja- víkur hittist svo á að unnið var að stofnun Útlaga, flokks Eyjaskáta í Reykjavík. Í annál Útlaga frá 1942 segir: „Föstudaginn 23. október 1942 var stofnfundur flokksins haldinn í heimkynnum Þorsteins Einarssonar félagsforingja í Mið- stræti 3a. Drukkum við þar kaffi, sem Ásdís kona Þorsteins bauð okkur.“ Svo koma nöfn þeirra átta, sem voru á fundinum, og var Friðrik Haraldsson þar á meðal. Hann varð flokksforingi Útlaga fyrsta starfsárið, en fór svo til Kaupmannahafnar til framhalds- náms í bakaraiðn. Í desember 1945 kvæntist hann unnustu sinni Steinu Margréti Finnsdóttur frá Uppsölum í Vestmannaeyjum, stúlku sem starfaði líka í skáta- hreyfingunni af lífi og sál. Friðrik stundaði iðn sína fyrst í Vestmannaeyjum, svo á Eyrar- bakka og Selfossi og flutti loks til Kópavogs 1952 og stofnaði þar, ásamt konu sinni, Bakarí Friðriks Haraldssonar, sem síðar varð Ömmubakstur. Friðrik og Steina tóku þátt í skátastarfi Birkibeina á Eyrarbakka, meðan þau dvöldu þar, og einnig í starfsemi Skátafé- lagsins Kópa í Kópavogi. En að- alvettvangur Friðriks á sviði skátastarfs var skátaflokkurinn Útlagar og voru félagarnir í Út- lögum öflugur hópur, sem lét gott af sér leiða og lagði skátastarfi í Eyjum og Bandalagi íslenskra skáta lið á margvíslegan hátt. Stigið var heillaspor með stofnun hans. Og enn starfar flokkurinn og enn hittast gömlu félagarnir mán- aðarlega, síðasta miðvikudag hvers mánaðar árið um kring. Nú er 72. starfsár og marsfundurinn var sá 783. í röð þeirra funda sem skráðir hafa verið. Á síðasta fundi sátu flokksmenn hljóðir og minnt- ust Friðriks í þökk og virðingu. Við fráfall hans eru flokksmenn sjö talsins. Á níræðisafmæli Friðriks, 9. ágúst 2012, komu vinir og vanda- menn Friðriks saman í Sunnuhlíð og fögnuðu tímamótunum. Skálað var í kampavíni og borin fram af- mælisterta. Friðrik var glaður og reifur og naut stundarinnar þótt hann gæti ekki tjáð sig með orð- um. Á sjötíu ára afmæli Útlaga, 27. október 2012, var efnt til hátíð- arfundar í Nauthól. Friðrik og Steina komu á fundinn með hjálp ættmenna sinna og voru þá Út- lagar allir samankomnir. Þau lögðu hart að sér að koma. Þetta var í síðasta sinn sem Friðrik kom á Útlagafund. Við kveðjum félaga okkar með trega og vottum Steinu og fjöl- skyldunni djúpa hluttekningu á sorgarstund. Blessuð sé minning Friðriks Haraldssonar. Óskar Þór Sigurðsson. Friðrik Haraldsson endurreisti skátafélagið Kópa og var fé- lagsforingi þessi frá 1957 í tæpa tvo áratugi. Það var mikil gæfa fyrir ungmenni í Kópavogi. Sem félagsforingi lagði Friðrik grunn- inn að einu öflugasta skátafélagi landsins. Hann laðaði ungmenni til ábyrgðar og leiðtogastarfa. Hann sá til þess að félagið eign- aðist góða aðstöðu í bænum og skála til útivistar. Hann byggði upp traust og stuðning hjá bæj- aryfirvöldum. Hann stuðlaði að því að þúsundir ungmenna í Kópavogi hafa um lengri eða skemmri tíma átt athvarf í skát- unum og upplifað skátaævintýrið. Öflug Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi, sem spratt úr frjósömum jarðveg Kópa, er einn af mörgum vitnisburðum um farsælt leið- togastarf Friðriks. Frá 15 ára aldri og þar til ég hélt til náms erlendis sat ég í fé- lagsráði skátafélagsins Kópa. Þar sat Friðrik í forsæti yfir hópi um 20 ungmenna á aldrinum 15 til 20 ára; þetta voru sveitarforingjar 300 til 400 skáta í Kópavogi. Stundvíslega fyrsta þriðjudag hvers mánaðar var fundur settur með skátaheitinu og liðlega klukkustund síðar slitið með bræðralagssöng skáta. Á þessari klukkustund voru allar ákvarðan- ir um félagið og starfið teknar með lýðræðislegum hætti og verkefnum úthlutað. Friðrik sat yfirvegaður í öndvegi, gætti þess að allir fengju að komast að og nytu hæfileika sinna. Það var stjórnfesta í sameiginlegum mál- um skátafélagsins og fjármálin í föstum skorðum. Sveitarforingj- arnir, sem oft eru mjög ungir að árum, nutu trausts félagsforingj- ans til að leið starf þeirra hópa sem þeim höfðu verið faldir. „Frelsi með ábyrgð“ er góð lýsing á starfsháttum hans. Síðar gegndi ég hlutverki félagsforingja Kópa í um fjögur ár og varð þá stundum hugsað til þess hvað Friðrik hefði nú gert í mínum sporum. Nú þegar Friðrik er fallinn frá í hárri elli lít ég til baka með þakk- læti fyrir þann tíma sem ég naut þess að vera í hans foringjaliði á áttunda tug síðustu aldar. Það var góður skóli sem veitti mér reynslu sem komið hefur sér vel í flestu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur síðar á lífsleiðinni. Bless- uð sé minning Friðriks Haralds- sonar, félagsforingja Kópa. Tryggvi Felixson, f.v. félags- foringi skátafélagsins Kópa. Friðrik Haraldsson var einn af frumkvöðlum Lionshreyfingar- innar í Kópavogi og einn stofn- enda fyrsta klúbbsins þar, Lions- klúbbs Kópavogs árið 1959. Á þessum árum var mikill uppgang- ur í Lionshreyfingunni á Íslandi og þegar grundvöllur var kominn fyrir stofnun nýs klúbbs í Kópa- vogi var Friðriki falið að sjá um það. Niðurstaðan varð sú að Lionsklúbburinn Muninn var stofnaður í apríl árið 1971. Friðrik var fyrsti formaður klúbbsins og félagi í honum til æviloka. Hann var mjög virkur í skátahreyfing- unni og eitt af markmiðum hins nýja klúbbs var að styrkja skáta- starfið í Kópavogi og var það gert. Friðrik Haraldsson var ekki bara faðir Lionsklúbbsins Mun- ins. Vegna hlýju hans og alúðlegr- ar framkomu litum við félagar í Munin á hann sem föður. Hann var ráðagóður og réttsýnn. Í mál- efnum klúbbsins var álits hans leitað og þegar það lá fyrir var farið eftir því. Þegar kom til tals árið 1990 að Lionsklúbbarnir í Kópavogi keyptu húsnæði og inn- réttuðu það fyrir starfsemi sína voru skoðanir nokkuð skiptar. Þegar Friðrik sagði að þetta væri happdrættisvinningur og að við skyldum koma okkur að verki þá var það gert. Hafist var handa og verkinu lauk farsællega. Í Lionsklúbbnum Munin var einkum áður fyrr unnið að ýmsum verkefnum þar sem reyndi nokk- uð á líkamlegt þrek. Friðrik sá til þess að halda því þreki við með kleinum og flatkökum úr bakaríi sínu. Hann bakaði mikið, en hann bakaði aldrei vandræði. Ef slík mál komu upp voru þau leyst í ró- legheitum og af yfirvegun. Vegna veikinda sótti Friðrik lítið fundi klúbbsins undanfarin ár. Við fylgdumst með líðan hans og fengum nokkuð reglulega fréttir af honum. Nánustu fé- lagarnir heimsóttu hann og þá voru endurminningarnar frá bernsku- og æskuárum í Vest- mannaeyjum ofarlega í huga hans. Við þökkum Friðriki farsæla og gifturíka samfylgd og vottum Steinu, konu hans, afkomendum þeirra og öðrum ættingjum inni- lega samúð. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Munins. Matthías Frímannsson. Einn af þeim sem mörkuðu djúp spor í sögu skátastarfs í Kópavogi er farinn heim. Svo segjum við skátar þegar félagar okkar kveðja þennan heim. Þegar við kveðjum Friðrik sem var fé- lagsforingi Skátafélagsins Kópa um langt skeið minnumst við hans með hlýju og virðingu. Bæði fyrir ómetanleg störf hans en ekki síð- ur þau áhrif hann hafði á marga skáta með leiðsögn í skátaanda. Friðrik hóf ungur þátttöku í skátastarfi og var sannur skáti allt sitt líf. Besta dæmi um tryggð hans við að vera skáti er flokk- urinn hans Útlagar en þar störf- uðu æskufélagar hans ásamt hon- um alla ævi í anda skáta. Við sem kynntumst Friðriki í skátastarfi í Skátafélaginu Kóp- um minnumst hans sem leiðtoga sem leiddi skátastarfið áfram í fé- laginu sínu af hógværð, festu og virðingu við yngri skátana. Friðriki ásamt því góða fólki sem starfaði með honum í stjórn Kópa eða kom með öðrum hætti að starfi félagsins verður seint þakkað hvernig það kom að upp- byggingu húsnæðis fyrir félagið. Á þeim tíma sem Friðrik var fé- lagsforingi eignuðust Kópar hús- næði á Borgaholtsbraut 7 undir Friðrik Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.