Morgunblaðið - 03.05.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Sumarið
ER KOMIÐ!
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Circle garðborð
109.900,- Click garðstóll
24.900,-
Garðborð. Bambusoggranít ímiðju. Ø110cm109.900,- Ø150cm139.900,- Stóll, plast.
Hvítur, svartur eðablágrænn. 24.900,-
Circle garðborð og Click stóll
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gert er ráð fyrir fjölbreyttri þjón-
ustu við ferðafólk í nýrri þjónustu-
miðstöð sem áformað er að reisa við
Jökulsárlón. Sótt hefur verið um
framkvæmdaleyfi til Sveitarfé-
lagsins Hornafjarðar og munu fram-
kvæmdir hefjast þegar leyfi fæst.
Áætlað er að þær taki tíu mánuði.
Í deiliskipulagi sem sveitarstjórn
samþykkti á síðasta ári var gert ráð
fyrir uppbyggingu á nýjum stað,
norðan við nýtt vegstæði hringveg-
arins um Breiðamerkursand. Á nýja
framkvæmdasvæðinu er gert ráð
fyrir fjórum byggingalóðum fyrir
þjónustuhús, auk bílastæða.
Þingvangur byggir
Landið er í einkaeigu. Sam-
eigendafélag jarðarinnar Fells hef-
ur samið við verktakafyrirtækið
Þingvang um uppbyggingu mann-
virkja á svæðinu, í samræmi við
deiliskipulagið. Uppbyggingunni er
ætlað að stórbæta aðstöðu og auka
þjónustu fyrir ferðafólk við lónið. Í
tillögum Arkþings að útliti og um-
hverfi nýrrar þjónustumiðstöðvar
kemur fram að gert er ráð fyrir
gestastofu, veitingahúsi, verslun og
annarri þjónustu, auk bátaskýlis.
Útsýnispallur verður ofan á einu
húsanna.
Friðjón R. Friðjónsson, tals-
maður Þingvangs, segir að fyr-
irtækið muni byggja þjónustu-
miðstöðina og leigja aðstöðuna út til
þeirra sem vilja stunda þar ferða-
þjónustu. Störfum mun fjölga þegar
mannvirkin komast í notkun.
Í deiliskipulaginu er ekki gert ráð
fyrir hóteli enda hugmyndin að
helga svæðið ferðamönnum sem
staldra við hluta úr degi til að njóta
náttúrunnar. Þá gerir skipulagið ráð
fyrir að eitt mannvirkjasvæði verði
við Jökulsárlón og núverandi þjón-
ustuhús rifið þegar ný mannvirki
rísa.
Við hönnun mannvirkjanna er
lögð áhersla á að útlit og yfirbragð
mannvirkja verði samræmt og
mannvirki falli vel að landslagi og
staðháttum við lónið.
Samið um uppbyggingu
þjónustu við Jökulsárlón
Beðið eftir framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins
Þjónusta Gert er ráð fyrir útsýnispalli ofan á þaki þjónustumiðstöðvar. Þjónusta við ferðafólk eykst.
Staður Mannvirkjasvæðið er austan við Jökulsá, ofan nýs hringvegar.
Jökulsárlón
Þjónustumiðstöð
Bátageymsla
Bílastæði
Fyrirhugaður vegur
Núverandi vegur
Áningarstaður
» Jökulsárlón er eitt sérstæð-
asta náttúrufyrirbrigði á
Íslandi.
» Talið er að um 250 þúsund
manns leggi leið sína að Jök-
ulsárlóni á hverju ári. Umhverf-
ið liggur undir skemmdum.
» Tvö fyrirtæki bjóða siglingar
á lóninu. Önnur þjónusta er
ekki fyrir hendi.
Minni áhugi virðist vera á strandveiðum í vor en und-
anfarin ár ef marka má það hvernig umsóknir berast.
Veiðarnar hefjast næstkomandi mánudag. Í gær höfðu
350 sótt um strandveiðileyfi til Fiskistofu sem er talsvert
minna en á sama tíma síðustu tvö árin.
Á síðasta ári höfðu 407 bátar leyfi til að veiða á fyrsta
strandveiðidegi og alls höfðu borist 462 umsóknir á þess-
um tíma. Þá höfðu 464 umsóknir borist á sama tíma vorið
2012.
Róleg byrjun á strandveiðunum kemur Erni Pálssyni,
framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda, á
óvart. Hann telur að skýringin hljóti að liggja í því að
strandveiðarnar voru ekki eins gefandi í fyrrasumar og
undanfarin ár. Ógæftir voru miklar og erfiðara að ná
„skammtinum“. Þá hefði verð fyrir aflann verið heldur
lægra en á árinu 2012. Örn bætir við þeirri skýringu að
eigendur smábáta kunni að eiga erfitt með að gera upp
við sig hvort þeir eigi að fara á strandveiðar eða makríl-
veiðar. Áætlað er að um 100 bátar veðji á makrílinn, eins
og í fyrra.
Á síðasta ári stunduðu 674 bátar strandveiðar á móti
757 á árinu 2012.
Búist er við að þeir bátar sem fengið hafa strand-
veiðileyfi frá Fiskistofu fari til veiða strax á mánudag.
Ágæt veiði hefur verið á handfæri víða við landið und-
anfarna daga. helgi@mbl.is
Færri hafa sótt um strand-
veiðileyfi en undanfarin ár
Morgunblaðið/Frikki
Strandveiðar Hundruð smábáta halda til veiða.
Veiðar hefjast á mánudag
Upp er komin nóróveirusýking á
hjúkrunardeild Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands á Egilsstöðum,
HSA. Sýni úr vistmanni HSA stað-
festa tilfellið en enn fremur leikur
grunur á fleiri tilfellum, þar á með-
al hjá starfsmönnum, en beðið er
niðurstöðu sýnatöku. Deildin hefur
verið einangruð og lokuð og því
geta ættingjar ekki heimsótt skyld-
fólk sitt fyrr en smithætta er liðin
hjá og sótthreinsun lokið.
Nóróveiru-
sýking á HSA
Dregið verður í
lottóinu í kvöld og
er potturinn að
þessu sinni sjö-
faldur. Til mikils
verður að vinna,
því að samkvæmt
upplýsingum á
heimasíðu Íslenskr-
ar getspár stefnir í að potturinn
verði 80 milljónir króna að þessu
sinni. Þetta er í sjöunda sinn í sögu
lottósins sem potturinn er sjöfaldur.
Af fyrri sex skiptum hefur fyrsti
vinningurinn gengið út fimm sinn-
um, en í desember síðastliðnum varð
potturinn áttfaldur og nam þá um
140 milljónum króna. sgs@mbl.is
Sjöfaldur í
sjöunda sinn
Varðskipið Týr sigldi undir norskum
fána úr Reykjavíkurhöfn í gær áleið-
is til Svalbarða þar sem ný verkefni
bíða. Varðskipið hafði áður verið
málað í norsku fánalitunum, fyrir
verkefnið.
Fáfnir Offshore hefur tekið að sér
útvegun skips til eftirlits- og björg-
unarstarfa sem og almennra lög-
gæslu og þjónustustarfa fyrir
norska sýslumanninn á Svalbarða.
Fyrirtækið er að láta smíða fyrir sig
nýtt og öflugt skip í þessum tilgangi
en leigir Tý þangað til nýja skipið
tekur við keflinu.
Áformað er að Týr verði í þessu
verkefni í fimm mánuði og skrýðist
sínum hefðbundna gráa lit að því
loknu.
Morgunblaðið/Þórður
Sigling Varðskipið Týr leggur úr
höfn í norsku fánalitunum.
Siglir undir
norskum fána
Lið Reykjavíkur bar sigur úr býtum
í Útsvari en spurningakeppninni
lauk í gærkvöldi með viðureign liða
Reykjavíkur og Akraness.
Reykjavík sigraði með 106 stig-
um gegn 77 í úrslitaviðureigninni í
kvöld. Sigurliðið skipuðu þar Börk-
ur Gunnarsson rithöfundur, Auður
Tinna Aðalbjarnardóttir laganemi
og Óttar Proppé, þing- og tónlist-
armaður.
Reykjavík sigraði
Akranes í Útsvari
Skjáskot/RÚV
Sigurvegarar Lið Reykjavíkur.
Viðræður Sjúkraliðafélags Íslands
við ríkið um nýjan kjarasamning
hafa legið niðri um tíma. Félagið hef-
ur óskað eftir fundi sem fyrst til að
ljúka samningum.
Félagið leggur áherslu á lagfær-
ingar á launatöflu í kröfugerð sinni.
Reykjavíkurborg mun svara henni á
fundi næstkomandi mánudag.
Fjórir fundir hafa verið haldnir
með Samtökum fyrirtækja í velferð-
arþjónustu eftir að deilunni var vísað
þangað. Verkföll hafa verið boðuð
hjá fyrirtækjunum frá 12. maí.
Sjúkraliðar
vilja svör
Morgunblaðið/Golli
Hrafnista Verkfallið er boðað á 22
stofnunum og hjúkrunarheimilum.