Morgunblaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 24
Fallegir
sumar-
kjólar
Kringlunni 4
Sími 568 4900
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Stuttar fréttir ...
● Sala á nýjum fólksbílum í apríl jókst
um 18,1% og var 684 á móti 579 í
sama mánuði 2013. Þetta kemur fram
á heimasíðu Bílgreinasambandsins.
Samtals hafa verið skráðir 2.257
fólksbílar á fyrstu fjórum mánuðum
ársins sem er 17,8% aukning frá 2013.
Mest er aukningin í sölu á atvinnubíl-
um en 30 vörubílar voru nýskráðir frá
1. janúar og til loka mars. Það eru
100% fleiri bílar en á sama tíma í
fyrra.
18% aukning í bílasölu
● Bandarískt atvinnulíf skapaði 288
þúsund ný störf í apríl, sem er mesta
fjölgun starfa í tvö ár. Hún var vel dreifð
á vinnumarkaði og þykir þessi þróun
gefa til kynna að fyrirtæki vestanhafs
séu bjartsýn á að efnahagslífið sé að
rétta úr kútnum eftir dýfu á fyrsta árs-
fjórðungi, meðal annars vegna slæms
veðurs.
Atvinnuleysi minnkaði að sama skapi
úr 6,7% niður í 6,3%, en það hefur ekki
verið minna síðan í september 2008.
Minna atvinnuleysi er þó talið skýrast af
samdrætti í virku vinnuafli engu síður
en nýráðningum.
Fjölgun starfa merki um
bjartsýni vestanhafs
Frumvarp efnahags- og fjármála-
ráðherra um stofnun fjármálastöð-
ugleikaráðs, sem hefði ríkar vald-
heimildir til að afla víðtækra
upplýsinga um fjármálastarfsemi og
framkvæma reglulegt kerfisbundið
áhættumat fyrir fjármálakerfið, nýt-
ur stuðnings allra sem hafa skilað
inn umsögn til efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis. Þær um-
sagnir sem hafa borist eru m.a. frá
Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftir-
litinu (FME), Samtökum atvinnulífs-
ins, Samtökum fjármálafyrirtækja
og Bankasýslu ríkisins.
Hlutverk fjármálastöðugleikaráðs
er að vera formlegur samstarfsvett-
vangur stjórnvalda um fjármálastöð-
ugleika – og samhæfa stefnumótun
og viðbúnað opinberra aðila við fjár-
málakreppu. Í fjármálastöðugleika-
ráðinu sitja ráðherra, sem er jafn-
framt formaður ráðsins,
seðlabankastjóri og forstjóri FME.
Fyrir ráðið starfar kerfisáhættu-
nefnd, en auk seðlabankastjóra og
forstjóra FME er gert ráð fyrir því í
frumvarpinu að nefndina skipi fram-
kvæmdastjóri fjármálastöðugleika-
sviðs Seðlabankans, aðstoðarfor-
stjóri FME og einn sérfræðingur í
málefnum fjármálamarkaða eða
hagfræði sem ráðherra skipar án til-
nefningar til fimm ára.
Í umsögn Seðlabankans er hins
vegar gagnrýnt að sá stjórnenda
bankans sem fer með málefni fjár-
málastöðugleika, Sigríður Bene-
diktsdóttur, sitji í nefndinni en ekki
aðstoðarseðlabankastjóri, Arnór
Sighvatsson. Í minnisblaði fjármála-
ráðuneytisins segir að miðað við
skipulag Seðlabankans og verka-
skiptingu milli stjórnenda „kemur
gagnrýni þessi ráðuneytinu á óvart“.
SA nefna í umsögn sinni að ekki sé
að finna nein áform um sameiningu
Seðlabankans og FME en eðlilegt sé
að skoða slíkt í tengslum við frum-
varpið. Í minnisblaði fjármálaráðu-
neytisins segir að hafinn sé undir-
búningur heildstæðrar skoðunar á
þeim málum innan ráðuneytisins.
hordur@mbl.is
Almennur stuðningur við
fjármálastöðugleikaráð
Morgunblaðið/Árni
Fjármálastöðugleiki Seðlabankastjóri er formaður kerfisáhættunefndar.
SA segja eðlilegt
að skoða samein-
ingu SÍ og FME
Horfur í efnahagsmálum á Íslandi
eru góðar og mun hagvöxtur mælast
3,2% í ár og 3,3% á því næsta. Hag-
vöxtur verður hins vegar drifinn
áfram af öðrum þáttum en á síðasta
ári en von er á talsvert hraðari vexti í
innflutningi en útflutningi. Mun
framlag utanríkisviðskipta, ólíkt því
sem var reyndin á árinu 2013, verða
neikvætt á þessu ári.
Þetta kemur fram í nýrri þjóð-
hagsspá Greiningar Íslandsbanka en
samkvæmt henni verður verðbólga
undir 2,5% markmiði Seðlabankans
stóran hluta af árinu, gengi krónunn-
ar mun haldast stöðugt og peninga-
stefnunefnd Seðlabankans mun fyrir
mitt árið lækka stýrivexti. „Árið
mun því einkennast af óvenjumiklu
jafnvægi í ýmsum mikilvægum efna-
hagsstærðum,“ segir í spánni.
Raungengi krónunnar ætti að
hækka nokkuð samhliða því að slak-
inn hverfur úr hagkerfinu en sam-
kvæmt þjóðhagsspánni mun það
gerast að nokkru marki með því að
verðbólga verður hærri hérlendis en
í viðskiptalöndum Íslands á tíma-
bilinu. Þrátt fyrir að nafngengi krón-
unnar gæti styrkst eitthvað telja
greinendur Íslandsbanka ólíklegt að
Seðlabankinn vilji sjá gengið hækka
í bráð. Því sé líklegt að bankinn nýti
það misvægi í gjaldeyrisstraumum
til og frá landinu sem að öðrum kosti
myndi styrkja krónuna til að efla
óskuldsettan gjaldeyrisforða sinn.
Þjóðhagsspá Íslandsbanka 2014-2016
Yfir 3% hagvöxtur næstu tvö ár
Morgunblaðið/Styrmir
Einkaneysla Hagvöxtur verður drif-
inn áfram af innlendri eftirspurn.
ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK
Aðgangur að hreinu vatni er ekki sjálfgefinn.
Hjálparstarf kirkjunnar gerir fólki kleift að byggja
brunna í Afríku – og þitt framlag skiptir sköpum.
Þú getur hjálpað núna með því að
greiða valgreiðslu í heimabanka.
EINNIG:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á g jofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334-26-886, kt. 450670-0499
Gefðu gjöf sem skiptir máli
HREINT VATN
BJARGAR
MANNSLÍFUM
Hugbúnaðarfyrirtækið TM Soft-
ware áætlar að bæta við 30 starfs-
mönnum á árinu. Tekjuvöxtur fyr-
irtækisins var 32% milli fyrsta
ársfjórðungs 2014 og 2013. Afkom-
an var betri á öllum einingum en
áætlun gerði ráð fyrir, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Erlendar tekjur félagsins jukust
um 90% milli ára og nú um 42% af
heildartekjum. Áætlun TM Soft-
ware gerir ráð fyrir að erlendar
tekjur fyrirtækisins haldi áfram að
aukast og verði sífellt stærri hluti
heildartekna. Félagið áætlar að
heildartekjur á
þessu ári verði
um 1,7 milljarðar
króna. Í dag er
starfsmanna-
fjöldi félagsins
um 100 manns.
„Ágæt verk-
efnastaða hefur
verið í sérhæfð-
um hugbúnaðarlausnum innan-
lands og mikil sala á Tempo-
hugbúnaði erlendis,“ er haft eftir
Ágústi Einarssyni, framkvæmda-
stjóra TM Software.
Bæta við 30 manns
TM Software ætlar að fjölga starfs-
fólki 90% aukning erlendra tekna
Ágúst Einarsson