Morgunblaðið - 03.05.2014, Page 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Volkert Van der
Graf var sleppt
lausum úr fang-
elsi í gær en
hann sat inni fyr-
ir morðið á sam-
kynhneigða
stjórnmála-
manninum Pim
Fortuyn árið
2002. Van der
Graf hlaut átján ára dóm og hefur
því afplánað tvo þriðju hluta dóms-
ins. Honum er þó gert skylt að til-
kynna sig til yfirvalda einu sinni í
viku auk þess sem ferðafrelsi hans
er takmarkað en hann mun bera
ökklaband. Fortuyn var vinsæll
stjórnmálamaður en hann var leið-
togi hægriflokks í Hollandi og tal-
aði opinskátt m.a. um innflytjenda-
mál. Morðið vakti á sínum tíma
mikla reiði almennings og hafa
margir varað við því að lausn Van
der Grafs gæti ýft upp gömul sár.
HOLLAND
Morðingja Fortuyns
sleppt úr fangelsi
Pim Fortuyn
Árekstur tveggja neðanjarðarlesta
í Seoul í Suður-Kóreu varð þess
valdandi að um 200 manns slös-
uðust en samkvæmt upplýsingum
frá yfirmanni slökkviliðsins er að-
eins ein kona talin alvarlega slösuð.
Slysið átti sér stað fyrri partinn í
gær en um þúsund manns voru um
borð í lestunum þegar annarri lest-
inni var ekið aftan á hina sem var
kyrrstæð. Orsök slyssins er talin
vera bilun í búnaði sem á að fyr-
irbyggja það að lestir komist of ná-
lægt hver annarri.
Slys þetta er ekki til þess fallið að
bæta álit almennings á öryggi al-
menningssamgangna þar í landi en
stutt er síðan suðurkóresk ferja
sökk og um þrjú hundruð manns
létu lífið, flest skólabörn.
Ferjuslysið hefur valdið reiði og
vakið spurningar um hvort örygg-
ismál hafi verið látin sitja á hak-
anum í hagsældarkapphlaupinu í
Suður-Kóreu, sem nú er fjórða
stærsta hagkerfi Asíu.
SUÐUR-KÓREA
Hundruð manna
slösuðust í lest-
arslysi í Seoul
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Tvær úkraínskar þyrlur voru skotn-
ar niður í átökum í Slaviansk í suður-
hluta Úkraínu í gær. Alls létust sjö í
átökunum, þrír aðskilnaðarsinnar,
tveir óbreyttir borgarar og tveir
úkraínskir hermenn sem voru um
borð í þyrlunum. Borgin Slaviansk
er undir stjórn aðskilnaðarsinna sem
eru hliðhollir rússneskum yfirvöld-
um.
Úkraínsk stjórnvöld hafa lýst því
yfir að hernaðaraðgerðir séu hafnar
þar og vilja ná borginni úr höndum
aðskilnaðarsinna.
Rússland hefur óskað eftir að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna komi
saman og fundi um stöðu mála í
Úkraínu en það yrði þá þrettándi
fundurinn um Úkraínu síðan deilur
hófust fyrir alvöru. Yfirvöld í
Moskvu hafa sagt að hernaðar-
aðgerðir Úkraínu gætu leitt til styrj-
aldar. Forsætisráðherra Rússlands
Dmítrí Medvedev sagði í gær að yf-
irvöld í Kænugarði þyrftu að hætta
að drepa eigin borgara. Þá hefur
Rússland hótað því að skrúfa fyrir
gas til Úkraínu berist þeim ekki fyr-
irframgreiðsla fyrir júnímánuð í lok
maí. Það gæti haft áhrif á flutning
gass til Evrópu en margar leiðslur
liggja í gegnum Úkraínu.
Sjö biðu bana í átökum
AFP
Átök Sjö létu lífið í Slaviansk í gær
og tvær þyrlur voru skotnar niður.
Hernaður
hafinn í Úkraínu
Lítill drengur hélt á lofti leikfangabyssu í mót-
mælendagöngu stuðningsmanna Fatah- og Ha-
mas-hreyfinganna í Hebron í Palestínu í gær.
Gengið var til stuðnings palestínskum föngum
sem sitja í fangelsum í Ísrael. Undanfarið hefur
verið unnið að friðarviðræðum á milli Ísraels og
Palestínu en þær eru komnar í hnút. Mál á borð
við lausn fanga og stækkun landtökusvæða Ísr-
aela hafa verið í brennidepli.
Hamas og Fatah snúa bökum saman
AFP
Styðja palestínska fanga sem afplána í Ísrael
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Ríkisstjórn Sýrlands og uppreisnar-
liðar hafa náð samkomulagi um að
uppreisnarliðar dragi sig í hlé í borg-
inni Homs. Þetta þýðir að öll svæði
borgarinnar nema eitt lúta aftur
stjórn ríkisins og hersins.
Vopnahlé hófst í gær í Homs og
nálægum svæðum sem uppreisnar-
liðar hafa haft á valdi sínu fram að
þessu en Homs hefur stundum verið
kölluð höfuðborg byltingarinnar
enda hefur einna harðast verið geng-
ið fram þar í ófriðnum.
Þrátt fyrir miklar óeirðir og
mannfall stendur til að halda for-
setakosningar í Sýrlandi í byrjun
júní. Talið er að sitjandi forseti Sýr-
lands, Bashar al-Assad, muni bera
sigur úr býtum en aðeins hann og
tveir aðrir njóta stuðnings þings,
sem þarf til þess að komast á kjör-
seðilinn. Ekki hefur verið varpað
ljósi á það hvernig kosningar munu
fara fram í stríðshrjáðu landi. Hluti
landsins lýtur ekki stjórn ríkisins og
um helmingur landsmanna hefur
neyðst til þess að flýja heimili sín.
AFP
Ófriður Átján létust í sjálfsmorðsárás í Homs í Sýrlandi á fimmtudag.
Samið um vopnahlé
í borginnni Homs
Uppreisnarliðar draga sig í hlé
Leiðtogi aðskilnaðarsinna í
austurhluta Úkraínu segir að sjö
eftirlitsmenn frá ÖSE verði ekki
leystir úr haldi enn um sinn
vegna hernaðaraðgerða úkra-
ínskra yfirvalda í Slaviansk.
„Þessi árás mun tefja lausn
þessara manna sem eru í haldi.
Ákvörðun um lausn þeirra hefur
ekki verið tekin,“ sagði Denis
Pusjilín, leiðtogi uppreisnar-
mannahreyfingarinnar Lýðveld-
isins Dónetsk.
Sjö gíslar
enn í haldi
ÚKRAÍNA