Morgunblaðið - 03.05.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu þess að draga ekki ályktanir af
ófullkomnum staðreyndum. Láttu allar
áhyggjur lönd og leið og mundu það fram-
vegis að lofa ekki upp í ermina á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú vekur athygli annarra og finnst
notalegt að láta hana leika um þig. Ef einhver
lætur þér líða illa, er viðkomandi sennilega
ekki réttur félagsskapur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert jarðbundin/n og hjartahlý/r
og tekur lífinu með jafnaðargeði. Þú hefur
gott skopskyn og nýtur vinsælda. Næstu vik-
ur munu færa þér mikilvæga þekkingu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert einbeitt/ur og tilbúin/n. Verk
sem tengjast útgáfu- og ferðamálum, lög-
fræði og framhaldsmenntun ganga sér-
staklega vel. Bregstu vel við samkeppni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að halda að maður þurfi að eyða pen-
ingum í það sem er best í lífinu er misskiln-
ingur. Andstæðingar þínir munu gefast upp
og þá stendur þú uppi með pálmann í hönd-
unum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hafðu ekki áhyggjur af dagdraumum.
Mundu samt að dramb er falli næst og að
ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú grennist ekki við að borða sellerí
frekar en að þú verðir að dýrlingi af því að
fara í kirkju. En mundu að enginn er annars
bróðir í leik.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gerðu ráð fyrir að í brýnu slái
milli þín og einhvers annars í dag. En vertu
þolinmóð/ur því sannleikurinn stendur nær
þér en þú heldur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð hverja hugmyndina á
fætur annarri en gengur illa að gera þær allar
að raunveruleika. Ekki fara fram úr þér og
hafðu gaman af þessu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ráðleggingar þínar geta komið sér
vel fyrir samstarfsmann þinn. Hlustaðu líka á
drauma þína. Nú er tími til þess að láta sér
líða vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú veist að það gerist ekkert ef þú
situr með hendur í skauti. Brettu upp erm-
arnar og láttu ganga undan þér. Og ótrúlegt
en satt, þá þarftu ekki að kaupa neitt til þess.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt fátt hrófli við þér máttu ekki
gleyma þeim sem standa þér næst því þeim
getur sárnað fyrir þína hönd. Gættu þess
bara að það er misjafn sauður í mörgu fé.
Fyrir viku var þessi vísnagátaeftir séra Svein Víking:
Þessi styrkir þak og veggi.
Þrælslega á sjó er ráðist á ’ana.
Horað sprund með spóaleggi.
Úr spýtum oft í hliði ég sá ’ana.
Sigurður Hallur Stefánsson á
þessa lausn:
Grindur húsin gera fín,
grindhvalirnir sæinn prýða.
Grindhoruð er Guðrún mín,
grindahliðin sjáum víða.
Þessi var ráðning Hjartar Hjálm-
arssonar:
Grind í húsið góða þarft.
Grind menn reka af miði.
Kvenmannsgrind ég vildi vart.
Víða er grind í hliði.
Og Harpa Jónsdóttir, Hjarð-
arfelli, leysir gátuna þannig:
Burðargrind í byggingunum er.
„Bægsla“ grindin hvalur út í sjó.
Horgrindin er helft af sjálfri sér,
en hliðgrindinni lokað getur þó.
„Þú varst að biðja um gátur,“
segir hún síðan og bætir við; „Hér
er ein frumsamin“:
Víða sést um götur ganga
Gnæfir upp í himininn.
Sumum þessi sveið á vanga.
Sauðfjár er þar staðurinn.
Lausn birtist að viku liðinni og
verða svör að berast ekki síðar en á
miðvikudagskvöld til að ná laug-
ardagsblaðinu.
Fyrir viku birti ég þessa vísu eft-
ir Grím Sigurðsson á Jökulsá, en
fór vitlaust með föðurnafnið sem ég
biðst afsökunar á.
Ég hef reynt til þrautar það:
þeim mun logar minna,
sem menn skara oftar að
eldum vona sinna.
Helgi Hálfdanarson segir í bók
sinni Molduxa að þannig hafi Grím-
ur ort vísu þessa í öndverðu og
þannig komi hún sér jafnan í hug.
Einhver hafði haft orð á því við
Grím, að til þess að lífga eld í glóð-
um væri „skarað í“ þær en ekki
„skarað að“ þeim; það gerðu menn
hinsvegar þegar eldur væri „fal-
inn.“ Þetta tók Grímur svo nærri
sér að hann breytti vísunni:
Ég hef kynnst til þrautar því
að þeim mun logar minna
sem menn skara oftar í
eldinn vona sinna.
Helgi bætir síðan við: „Því hvað
sem líður bókstaf eldhúsfræða
hygg ég að upphafsgerðin hæfi
mun betur þeirri yfirfærðu merk-
ingu sem í vísunni er fólgin.“ Um
það er ég Helga sammála.
Halldór Blöndal
Vísnahorn
Af skáldskap og
eldhúsfræðum
Í klípu
FUNDUM LAUK ALLTAF MEÐ
HÓPFAÐMLÖGUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI HLÆJA, KONAN MÍN HELDUR
AÐ ÉG SÉ Í SUÐUR-AMERÍKU MEÐ TVÖ
HUNDRUÐ MILLJÓNIR KRÓNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta ykkur dreyma
um stóra daginn.
VASAÞJÓFA-
SAMTÖKIN
ÉG BRENNDI
BRAUÐIÐ...
VILJANDI! ENN EINN ÖMURLEGUR
MÁNUDAGSMORGUNN!
MANSTU EFTIR LEIKNUM „EINN, TVEIR,
ÞRÍR, FJÓRIR, FIMM, DIMMALIMM“?
BRÚÐKAUPSBÚÐIN
Sjálfur eða „Selfie“ tröllríða vin-sælustu samfélagsmiðlunum um
þessar mundir. Tekið skal fram að
íslenska orðið sjálfa er stolið frá
einum liprum kollega. Nafngiftin er
nokkuð góð, gegnsæ og skýr.
Það er svei mér þá nokkuð gaman
að þessum sjálfum. Það er mun
skemmtilegra að sjá hóp-sjálfur. Í
frétt á mbl.is þegar þetta er skrifað
er fullyrt að nú þegar eru um 37.000
ljósmyndir á Instagram sem hafa
fengið hashtagið „selfie“ og nokkur
þúsund myndir hafa birst á sam-
skiptavefnum Twitter.
x x x
Víkverji spjallaði við vinkonu sínaá dögunum. Vinkonan sagði
sögu af sjálfri sér í einu sjálfu-
kastinu. En hún viðurkenndi að hún
stundaði það grimmt að taka sjálfu
af sér við hin ýmsu tilefni. Afrakst-
urinn hefur þó ekki verið sýnilegur
Víkverja til þessa. Það er skýring á
þessu. Hún er eitthvað á þessa leið:
Vinkonan stóð sjálfa sig að verki við
að svekkja sig yfir því að vera ekki
nógu „sæt“ á sinni eigin sjálfu. Hún
sagðist ekki vera nógu sæt til að
geta sett myndina inn á samfélags-
miðilinn facebook. En sem betur fer
áttaði hún sig á þessum tilfinn-
ingum sínum. Hún sá að sér og
sagði, „vá hvað maður getur verið
langt leiddur – ekki nógu „sætur“ á
sjálfu!“
x x x
Jamms þetta er veruleikinn í dag.Taka myndir af sjálfum sér sem
uppfylla ekki alltaf ströngustu skil-
yrði um fegurðarstaðla. Fegurð-
arstaðla sem eru heimatilbúnir. Í
aðra röndina þykir Víkverja sjálf-
hverfan vera fullmikið áberandi í
nútímasamfélagi. En hins vegar þá
er gaman að því í aðra röndina. Það
er nefnilega gaman að því að sjá
hóp-sjálfu þar sem allir eru lausir
við tilgerð.
x x x
Það er samt dulítið einkennilegtað merkja myndir sem sjálfu
þegar það er jafn augljóst af flest-
um myndunum að um sjálfsmynd sé
að ræða. Er það ekki – eða þarf að
taka það fram? Maður bara spyr
sig. Annars var ein yndisleg sjálfa
tekin af samstarfsfélögunum á dög-
unum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni verk þín og þá bera áform
þín árangur. (Orðskviðirnir 16:3)
360° snúningur
Leður 249.000.-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
WAVE Lounge