Morgunblaðið - 06.05.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 06.05.2014, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. M A Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  106. tölublað  102. árgangur  HERMANNA- BRAGGI SELDUR FYRIR TRAKTOR KEPPNIN LEGGST VEL Í STRÁKANA DRAUMABÍLAR OG DRAUM- ÓRABÍLAR EUROVISION 30 MERKILEG SÝNING BÍLARÁ SLÓÐUM ÓLA SKANS 10 „Þó svo að vöxtur gagnavera Ad- vania og Verne hafi verið þónokkur erum við að dragast aftur úr með hverju árinu sem líður. Vöxtur gagnaveramarkaðarins er slíkur að við þyrftum að vera að vaxa marg- falt á við það sem við gerum í dag,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Advania og formaður Samtaka gagnavera, um þróun gagnavera hér á landi. Aðeins tvö gagnaver eru starfandi; Advania Thor Data Center í Hafnarfirði og Verne Global á Ásbrú, en ekkert hefur orðið af öðrum áformum. Eyjólfur segir Ísland í harðri sam- keppni við önnur lönd, einkum Ír- land, Svíþjóð, Finnland og Noreg. Þangað hafi stórfyrirtæki á borð við Google og Microsoft leitað með sín gagnaver. Kallar Eyjólfur eftir meiri stuðningi stjórnvalda við að skapa samkeppnishæft umhverfi. Þó eru jákvæð teikn á lofti. Ad- vania undirbýr nú byggingu 2.500 fermetra gagnavers á Fitjum í Reykjanesbæ og hugar að stækkun í Hafnarfirði. »20 Ísland að dragast aftur úr  Hörð samkeppni um gagnaverin Lítil breyting milli ára » Að mati Vinnumála- stofnunar voru 1.620 háskóla- menntaðir án vinnu í mars 2013, en 1.571 í mars sl. » Þeir voru 1.907 í mars 2012 og 2.169 í mars 2011. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vinnumarkaðurinn er ekki að skapa nógu mörg störf fyrir háskólamennt- að fólk og er áfram útlit fyrir tölu- vert atvinnuleysi meðal þessa hóps. Þetta segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, sem telur að vegna fárra tækifæra muni margir sem ljúka háskólanámi í sum- ar kjósa að fara í lengra nám. „Ef nú væri eðlilegt árferði væri verið að ráða fólk inn í fyrirtæki sem eru af stærri gerðinni. Þar má nefna stór þjónustufyrirtæki og fjármála- stofnanir. Þau eru hins vegar ekki að taka við nýju fólki.“ Katrín bendir á að störfum fyrir sérhæft starfsfólk muni fækka með því að slitastjórnir, skilanefndir og bankar draga saman seglin. „Það munar gríðarlega um þetta,“ segir Katrín sem áætlar að þarna sé samtals um að ræða hundruð starfa. Lárus Blöndal, deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands, telur Vinnumála- stofnun beita aðferð sem mæli minna atvinnuleysi en Hagstofan áætlar. „Við hjá Hagstofunni myndum því að öllu jöfnu telja að atvinnuleysið hjá okkur væri hærra – að skráð at- vinnuleysi hjá Vinnumálastofnun myndi vanmeta atvinnuleysið.“ MTelur atvinnuleysi »12 Gráður ekki ávísun á störf  Sérfræðingur telur háskólafólk munu velja frekara nám í stað atvinnuleysis  Deildarstjóri hjá Hagstofunni telur Vinnumálastofnun vanmeta atvinnuleysi Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð eru stærstu flokkarnir á Akranesi samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Ís- lands fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í bænum. Meirihlutinn í bæjarstjórn er fall- inn. Flokkarnir þrír sem mynda meirihlutann, Framsókn, Samfylk- ingin og Vinstri-græn, tapa allir miklu fylgi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 43,1%. Fengi flokkurinn fjóra fulltrúa í bæjarstjórn en hefur nú tvo. Björt framtíð mælist með 20,5% fylgi. Hún fengi tvo fulltrúa. Samfylkingin tapar miklu fylgi. Stuðningur við hana mælist nú 19,2% og fengi hún tvo bæjar- fulltrúa kjörna. Í kosningunum 2010 fékk flokkurinn 34,8% at- kvæða og fjóra bæjarfulltrúa. Frjálsir með Framsókn njóta stuðnings 11,2% kjósenda. Fram- boðið, sem er arftaki framboðs framsóknarmanna og óháðra 2010, fengi einn mann í bæjarstjórn en hefur nú tvo. VG mælist með 5,4% fylgi og fær engan bæjarfulltrúa, en hefur nú einn. »16-17 Fylgissveifla til Sjálfstæðisflokksins  Ný könnun á Akranesi  Meirihlutinn fellur  Björt framtíð með tvo menn Fylgi flokka í bæjarstjórn Akraness Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25. apríl - 1. maí 2014. Sjálfstæðisflokkurinn 43,1% Björt framtíð 20,5% Samfylkingin 19,2% Frjálsir með Framsókn 11,2% Vinstri - grænir 5,4% Aðrir 0,6% 43,1% 20,5% 19,5% 11,2% 5,4% 0,6 % Borgarbúar hafa notað vel hlýindin sem verið hafa síðustu daga. Gönguskórnir og reiðhjólin eru tekin úr geymslum. Margir hafa skráð sig í átakið Hjólað í vinnuna sem hefst á morgun. Spáð er mildu veðri áfram en búast má við vætu á Suður- og Vesturlandi í dag. Morgunblaðið/Kristinn Hjólað út í vorið  Þrír veitinga- staðir sem leggja áherslu á fisk- meti hefja þessa dagana starfsemi í nágrenni við Reykjavíkurhöfn. Í Tryggvagötu eru Icelandic Fish and Chips og Reykjavík Fish. Þá var nýverið opnaður sjávarréttastaðurinn Kjall- arinn í Aðalstræti 2. Veitingamenn hafa ekki áhyggjur af offramboði staða, ferðamönnum fjölgi enn og þeir þurfi að borða. »4 Ferðamannafjöldinn þarf að borða Icelandic Fish and Chips, Hafnarhvoli.  Veggjald sem yrði rukkað inn með hraða- myndavélum myndi fjármagna framkvæmdir við Reykjanesbraut svo hægt yrði að auka leyfðan ökuhraða upp í 110 km/klst. Þetta er meðal hugmynda Sam- göngufélagsins en það sendi nýver- ið bréf til Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum með tillögum um úr- bætur á Reykjanesbraut til að geta hækkað hraðatakmörk þar og stytt ferðatímann á milli höfuðborg- arsvæðisins og Keflavíkur. »6 Fjármagnað með gjaldi á 110 km hraða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.