Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 stjórnmálamenn hafi verið manna iðnastir við að koma á sig óorði og þetta hefur orðið mörgum yrkisefni. Árið 2005 sendi Hanne-Vibeke Holst frá sér skáldsöguna Kongemordet sem nú er loks komin út í íslenskri þýðingu, níu árum síðar. Bókin Konungsmorðið segir frá ósigri jafnaðarmanna og sögulegri hægrisveiflu í dönskum stjórnmálum, þar sem augum er fyrst og fremst beint að tvöföldu lífi fráfar- andi fjármálaráðherra, valdabaráttu, ósvífni, ruddamennsku, ofbeldi og viðbjóði í bland við undanlátssemi og undirgefni. Frasinn „hún er undarleg tíkþessi pólitík“ er þreytturog útslitinn en hvað eftirannað kemur hann upp og ekki að ástæðulausu. Svo virðist sem Þetta er frábær bók og lýsir vel því andrúmslofti sem ætla má að ríki víða í pólitíkinni. Auðvitað er þetta skáld- saga en oft hefur verið greint frá því hvernig sumir stjórnmálamenn sví- fast einskis til þess að ná sínu fram. Hanne-Vibeke Holst fangar vel þessa sviðsmynd og frásögnin virkar í raun mjög sannfærandi og trúverðug. Sagan er ekki aðeins um reykfyllt bakherbergi stjórnmálanna heldur varpar ljósi á ýmis samfélagsleg vandamál sem tengjast valdabrölti stjórnmálamanna. Höfundur tvinnar þessi mál vel saman og ætla má að álit lesenda á stjórnmálamönnum aukist ekki við lesturinn. Þetta er löng frásögn en hún held- ur nær allan tímann. Rýni finnst loka- kaflinn óþarfur en kannski er ekki um neina aðra útgönguleið að ræða, þeg- ar stjórnmálin eru annars vegar. Kratar í klípu Spennusaga Konungsmorðið  Eftir Hanne-Vibeke Holst. Halldóra Jónsdóttir þýddi. Kilja. 582 bls. Vaka-Helgafell 2014. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Morgunblaðið/Kristinn Höfundurinn Sagan varpar ljósi á ýmis samfélagsleg vandamál. Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Gluggar og garðhús Glæsilegir sólskálar lengja sumarið og gera sælureitinn ómótstæðilegan Nánari upplýsingar á www.solskalar .is Yfir 40 litir í boði! Viðhaldsfríir gluggar og hurðir Sólskálar -sælureitur innan seilingar Kvartett gítarleikarans Ásgeirs Ás- geirssonar kemur fram á djass- kvöldi KEX hostels í kvöld, þriðju- dagskvöld. Auk Ásgeirs skipa hljómsveitina þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Þeir félagar hyggjast leika nokkrar af perlum amerísku djass- söngbókarinnar, án efa af sinni al- kunnu smekkvísi, með sérstakri áherslu á tónlist gítarleikarans Wes Montgomerys. Flutningur kvartettsins hefst kl. 20.30 og stendur í um það bil tvær klukkustundir með hléi. Gítarleikarinn Kvartett Ásgeirs leggur áherslu á tónlist Wes Montgomerys. Perlur úr amerísku söngbókinni Útskriftar- tónleikar Bald- vins Ingvars Tryggvasonar verða haldnir í Salnum í Kópa- vogi í kvöld klukkan 20. Hann útskrifast með BMus-gráðu í klarinettuleik frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands nú í vor. Á efnisskránni eru „Duo Con- certant“ op. 351 fyrir klarínettu og píanó eftir Darius Milhaud, „Blik“ fyrir einleiksklarinettu eftir Áskel Másson, „Andstæður“ (Konstraszt- ok) fyrir klarinett, fiðlu og píanó eftir Béla Bartók, „Vier Stücke“ fyrir klarínettu og píanó op. 5 eftir Alban Berg og „Gran Duo Concert- ant“ sem er eitt af sérstæðustu klarínettuverkum Carls Maria von Weber. Meðleikarar eru Richard Simm á píanó, Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og Erna Vala Arn- ardóttir á píanó. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónleikar Baldvins Tryggvasonar Baldvin Ingvar Tryggvason Örlagasaga velska skáldsins Dylans Thomas, sem lést aðeins 39 ára gamall ár- ið 1953, hefur löngum vakið áhuga bók- menntaunnenda. Nú þegar senn verður öld liðin frá fæðingu skáldsins hefur verið tilkynnt að breski leikarinn Rhys If- ans muni leika Thomas í kvikmynd sem verður byrjað að taka á næst- unni og fjallar um síðustu daga skáldsins, í New York. Kvikmyndin kallast Dominion og fer John Malkovich með annað aðalhlutverk. Malkovich mun leika skáldið John Brinnin sem bauð Dylan Thomas til New York, kynnti hann á ferðum þeirra um borgina og fór með ljóð hans. Í kvikmyndinni verð- ur sjónum einkum beint að síðustu dögunum sem Thomas lifði, en hann drakk sína síðustu skál á veit- ingastaðnum White Horse Tavern í Greenwich Village. Rhys Ifans leikur Dylan Thomas Rhys Ifans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.