Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2014 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki Malín Brand malin@mbl.is H inir ýmsu gönguhópar eru til um allt land og misjafnt hvar áhersl- urnar liggja. Í göngu- hópi eldri borgara á Álftanesi eru nokkrir góðir sögu- menn og þar er fróðleiknum miðlað óspart og má ef til vill segja að hver gönguferð sé sögustund á sinn hátt. Reynir Hlíðar hefur verið virkur í gönguhópnum um nokkurra ára skeið og á þessum tíma hefur áhugi hans á Álftanesi aukist til muna. Hann flutti þangað fyrir sex árum og getur hvergi annars staðar hugs- að sér að búa. Reynir gengur um svæðið á hverjum degi ásamt labra- dortíkinni Töru sem fer sömuleiðis með í gönguferðir eldri borgara. „Við erum á bilinu tuttugu til þrjátíu í gönguhópnum og göngum saman tvisvar í viku. Þetta er mjög góður hópur. Við förum alltaf klukk- an tíu á morgnana og göngum rösk- lega í svona klukkutíma og svo er farið í kaffi í okkar samastað sem heitir Litla-Kot,“ segir Reynir. Óli Skans Fyrir skemmstu tók hópurinn kaffið með sér og var áð í Skans- inum þar sem niður aldanna heyrð- ist vel. „Það var mjög gaman að fá sér kaffi hjá Óla Skans,“ segir Reynir glaður í bragði. Skansinn er yst á nesinu, innan við Seiluna. Þar var byggt vígi til varnar konungsgarðinum ár Bessa- stöðum. Það þótti öruggara ef ske kynni að sjóræningjar kæmu þar að. Óttinn við sjóræningjana reyndist á rökum reistur því árið 1627 sigldu tyrkneskir sjóræningjar inn á Seil- una en skip þeirra strandaði á skeri. Um hálfri öld síðar var virki hlaðið með nokkrum fallbyssum sem nota átti ef leikurinn endurtæki sig. Ekki kom til þess og byssurnar í Skans- inum voru aldrei notaðar. Enn sést vel móta fyrir Skansinum en sá Óli er við hann er kenndur var einka- barn hjónanna Eyjólfs og Málfríðar sem þar bjuggu. Kannast flestir við kvæðið um Óla sem kenndur var við fæðingarstað sinn, Skansinn. Brighton-kampur Reynir brá sér í stuttan en áhugaverðan bíltúr með blaðamanni og var fyrsta stoppið við bæinn Jörfa þar sem María B. Sveinsdóttir býr. Steinsnar frá Jörfa er afar heil- legur varðturn sem breski herinn reisti. Turninn stóð við Brighton- kampinn en þar bjuggu um fimm hundruð hermenn í tugum bragga. Enn má sjá móta fyrir bröggunum á Seldu hermanna- bragga fyrir traktor Gönguhópur eldri borgara á Álftanesi hefur orðið margs vísari um Íslandssöguna á gönguferðum sínum. Gengið er rösklega tvisvar í viku og ferðirnar oft nýttar til fróðleiks í góðum félagsskap. Fjölskrúðugt og mikilfenglegt fuglalífið á nesinu er sannarlega á söguslóðum því þar strandaði tyrkneskt sjóræningjaskip í fyrndinni rétt við Skansinn og 500 Bretar bjuggu á Álftanesi í síðari heimsstyrjöldinni. Morgunblaðið/Malín Brand Varðturninn Turn vaktmanns breska hersins við Bessastaðatjörn. Morgunblaðið/Malín Brand Heillegt María B. Sveinsdóttir í neðanjarðarbyrginu við Jörfa. Græna máln- ingin er síðan 1940 og ljóst að vandað var til verks við byggingu byrgisins. Þær eru litríkar og fullar af krafti myndirnar hennar Sigurdísar Hörpu Arnarsdóttur en hún opnaði sýningu um liðna helgi í gallerí Listamönnum við Skúlagötu 32-34 í Reykjavík. Sigurdís heldur sýninguna í tilefni af fimmtíu ára afmæli sínu en hún fæddist og ólst upp í Vestmanna- eyjum. Hún segir áhrifa frá uppvext- inum þar gæta í verkunum. Sigurdís starfar sem myndlistarmaður en einnig kennir hún myndlist. Endilega … … njótið kraftmikilla málverka afmælisbarnsins Sigurdísar Dans Þessar frjálsu kjólklæddu konur tilheyra mynd sem heitir Trylltur dans. Skokkklúbbur Icelandair stendur fyr- ir Icelandair-hlaupi n.s, fimmtudag hinn 8. maí kl. 19. Hlaupið fer að venju fram í kringum Reykjavíkur- flugvöll. Vegalengdin er 7 km. For- skráning fer fram á hlaup.is en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á hlaupdegi. Sérverðlaun verða veitt fyrir fyrsta sæti í öllum flokkum og glæsileg útdráttarverðlaun verða veitt, meðal annars ferðavinningar. Icelandair-hlaupið Hlaupið í kring- um flugvöllinn Morgunblaðið/Ernir Hlaup Gaman að hlaupa saman. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Málefni innflytjenda verða í brenni- depli í hádeginu í aðalsafni Borgar- bókasafnsins í Tryggvagötu þessa vikuna. Meðal þess sem er á dag- skrá eru kynningar á rannsóknum, reynslusögur innflytjenda og kvik- myndasýning. Dagskráin er haldin í tilefni Fjölmenningardags Reykjavík- urborgar hinn 10. maí og er í sam- starfi við Mannréttindaskrifstofu. Í dag, þriðjudag, verður kynning á rannsóknum um málefni hælisleit- enda, um fatlaða hælisleitendur, réttindastöðu þeirra og félagslega reynslu. Einnig verður fjallað um tækifæri og þátttöku hælisleitenda til að takast á við dagleg viðfangs- efni. Á morgun, miðvikudag, mun dr. Hoda Thabet kynna doktorsritgerð sína um arabískar kvennabók- menntir. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Á fimmtudag verður kynning á Móðurmáli, samtökunum um tví- tyngi og umræður um móðurmáls- kennslu. Á föstudag verður bíósýn- ing: Fæddur í Absúrdístan, opnunarmynd kvikmyndahátíðar- innar Evrópa hlær. Myndin segir frá hugsanlegum ruglingi, sem á sér stað á fæðingardeildinni á barni tyrknesks verkafólks, sem stendur til að vísa úr landi, og barni starfs- manns austurríska útlendingaeft- irlitsins og ófyrirsjáanlegum afleið- ingum þess. Vefsíðan www.borgarbokasafn.is Allskonar Fjölbreytileiki er góður fyrir alla, konur og karla, stelpur og stráka. Hvað gerist ef ruglast er á barni á fæðingardeildinni?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.