Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
Hryðjuverkamenn eiga sérengar málsbætur og viðþá verður ekki samið.Þetta er yrkisefnið í
Paradísarfórn Kristina Ohlsson og
verður ekki ann-
að sagt en að
sænska glæpa-
sagnahöfund-
inum takist vel
upp.
Sagan fjallar
um rán þotu með
yfir 400 farþega á
leið frá Stokk-
hólmi til New
York. Krafa flug-
ræningja er ein-
föld: Verði ekki gengið að kröfum
þeirra verður flugvélin sprengd í
tætlur.
Málið snertir fyrst og fremst
stjórnvöld í Svíþjóð og Bandaríkj-
unum en teygir anga sína víðar,
meðal annars til Þýskalands. Spenn-
an magnast með hverri síðu enda
kapphlaup við tímann. Eldsneyti
þotunnar endist ekki nema í ákveð-
inn tíma.
Þetta er frábær spennusaga. Tím-
inn er naumur og leysa þarf marga
hnúta eigi ekki illa að fara. Allt kapp
er lagt á að finna þá sem standa að
ráni flugvélarinnar og tengsl þeirra
við framlagðar kröfur. Málið er snú-
ið og útlitið dekknar stöðugt eftir því
sem lengra líður á flugið vestur sam-
fara eldsneytiseyðslunni.
Persónurnar eru trúverðugar,
jafnt rannsakendur sem hugsanlegir
sakamenn. Persónuleg vandamál ýta
undir óvissuna og tortryggnina og á
tímabili virðist enginn geta treyst
neinum öðrum. Frábær uppbygging.
Lokakaflinn er æsispennandi. At-
hygli vekur samt að nokkrir hnútar
eru óleystir en höfundur greinir frá
ákvörðun sinni í því efni í eftirmála.
Kristina Ohlsson gefur jafnframt til
kynna að nokkrar persónur bók-
arinnar eigi eftir að koma við sögu í
einni eða fleiri bókum til viðbótar.
Þeirra verður beðið með mikilli eft-
irvæntingu.
Háspenna í
háloftunum
Spennusaga
Paradísarfórn bbbbn
Eftir Kristina Ohlsson. Jón Daníelsson
þýddi. Kilja. 444 bls. JPV útgáfa 2014.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Kristina Ohlsson Sænska glæpa-
sagnahöfundinum tekst vel upp.
siminn.is/thjonusta/sjonvarp
N
M
62
47
7
Nú er hægt að finna vel valin, íslensk Eurovision lög í karókístíl í Sjónvarpi Símans. Hitaðu upp fyrir úrslitin, stilltu
sjónvarpið í botn og leyfðu partígestunum að syngja aðal- og bakraddir af innlifun.
Enga fordóma – leyfðu leyndum hæfileikum að blómstra!
Hringdu í 8007000 og fáðu þér Sjónvarp
Símans!
Nú verður þú Eurovision
stjarna heima í stofu
Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land.
Háralitir fyrir konur sem velja náttúrulegan
háralit og hárið glansar af heilbrigði
• Inniheldur ekki Paraben, algengasta innihaldsefni
sem veldur ofnæmisáhrifum í háralitun
• Hylur grá hár 100%
• 24 náttúrulegir háralitir
• Hárlýsingarlitur (strípuefni) plasthetta og
hárpinni innifalin
• Náttúrulegar jurtir sem gefa hárinu gljáa og mýkt
• Varanlegur háralitir sem helst fallegur í 3 mánuði
• Ofnæmisprófaður
• Íslenskar leiðbeiningar