Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
F
A
S
TU
S
_H
_2
1.
04
.1
4
Verið velkomin í verslun okkar í Síðumúla 16, 2.h.
Fastus • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900
fastus@fastus.is • www.fastus.is • Opið mán - fös 8.30 - 17.00
200ml
300
kcal
3g
trefjar
1000 IU
D3
vítamín
20g
prótein
Veit á vandaða lausn
Næringarvörur
eru í samningi við
Sjúkratryggingar
Íslands
Kominn í helstu
apótek -
Fæst einnig
í verslun Fastus
Sérhannaður
næringardrykkur
fyrir aldraða
Inniheldur öll helstu næringarefni sem líkaminn þarfnast.
Sérstaklega ríkur af:
• D-vítamíni
• Próteini
• B-vítamínum
• Omega3 fitusýrum
• Kalsíum
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Keppnin leggst vel í strákana,“ segir
Valgeir Magnússon, umboðsmaður
hljómsveitarinnar Pollapönks, en
sveitin keppir fyrir Íslands hönd í
fyrri undankeppni Eurovision 2014 í
Kaupmannahöfn í kvöld kl. 19 og
verður sýnt beint frá keppnini á
RÚV. Alls keppa 16 lönd í kvöld.
„Viðtökurnar hafa verið mjög góð-
ar og það er greinilegt að fólk tengir
vel við litina og boðskapinn. Okkur
fannst sérlega gaman að upplifa hvað
áhorfendur tóku undir það sem við
vorum að segja á rauða dreglinum í
gær [sunnudag],“ segir Valgeir og
vísar þar til þess að strákanir í Polla-
pönki klæddust kjólum í móttöku
yfirborgarstjóra Kaupmannahafnar í
Ráðhúsinu þar í borg. Í tilkynningu
frá hljómsveitinni kom fram að með
því að klæðast kjólum vildu hljóm-
sveitarmeðlimir leggja áherslu á jafn-
rétti allra og m.a. mótmæla launamis-
rétti kynjanna.
Íslandi spáð 12. sæti í kvöld
„Allar æfingar hafa gengið eins og í
sögu,“ segir Jónatan Garðarsson, far-
arstjóri íslenska Eurovision-hópsins í
Kaupmannahöfn. Í gærdag fóru fram
tvö rennsli og í dag verður síðasta
rennslið fyrir keppniskvöldið. Í gær-
kvöldi var síðan svokallað dómara-
rennsli. „Það rennsli er mjög mikil-
vægt því atkvæði dómnefnda vega
50% á móti símakosningunni,“ segir
Jónatan og bendir á að af þeim sér-
fræðingum, aðdáendum og blaða-
mönnum sem staddir séu í Kaup-
mannahöfn sé Pollapönki spáð 12.
sæti í kvöld, en tíu lönd komast
áfram. „Ef við komumst áfram þá er-
um við rosalega heppin,“ segir Jón-
atan og tekur fram að íslenski hóp-
urinn hafi vakið mikla athygli á
umliðnum dögum. „Þeir eru
skemmtilegir og klárir og það nær vel
til fólks. Vonandi ná þeir athygli bæði
dómnefnda og áhorfenda sem eru að
kjósa í símakosningunni.“
Danir halda nú keppnina í þriðja
sinn, en Emmelie de Forest sigraði
eftirminnilega í Malmö í fyrra með
„Only Teardrops“, en áður höfðu Ol-
sen-bræður sungið til sigurs árið
2000 með „Fly On The Wings Of
Love“ sem og Grethe og Jørgen Ing-
mann með „Dansevise“ 1963.
Spurður hvernig skipulagið sé hjá
Dönunum samanborið við keppnir
síðustu ár segir Jónatan allt sem snúi
að því sem áhorfendur, jafnt heima í
stofu sem og á staðnum, fái að sjá og
heyra sé til mikillar fyrirmyndar.
„Allt sem snýr að framleiðslunni á
sýningunni sjálfri er mjög fagmann-
lega unnið, hvort heldur það snýr að
ljósi, hljóði eða myndavélum. Það
mun enginn sjá að keppnin sé haldin í
svona skrýtnu húsi,“ segir Jónatan og
vísar þar til þess að keppnin er haldin
í gamalli skipasmíðastöð. „Þetta er
risabygging sem búið er að smíða inn
í svið og áhorfendabekki. Í kringum
bygginguna eru síðan sjö eða átta
risatjöld sem hvert um sig er á stærð
við fótboltavöll og þar er t.d. aðstaða
fréttamanna, búningsherbergin og
græna herbergið,“ segir Jónatan og
tekur fram að Danirnir hafi hins veg-
ar klikkað aðeins á samgöngumálum.
„Við erum lengst úti á eyju sem heitir
Refshalaeyjan og þangað eru engar
almenningssamgöngur. Við erum því
föst hér frá morgni til kvölds og hóp-
urinn kemst t.d. ekki heim á hótel
milli rennsla til að hvíla sig og safna
kröftum. Þetta eru því mjög langir
dagar,“ segir Jónatan.
Þess má að lokum geta að sérstök
stigablöð fyrir keppnina eru aðgengi-
leg á vef Morgunblaðsins, mbl.is.
„Keppnin leggst vel í strákana“
Pollapönk flyt-
ur lag sitt „No
Prejudice“ í kvöld
Ljósmynd/Thomas Hanses
Pollapönk Snæbjörn Ragnarsson, Arnar Þór Gíslason, Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason stíga á svið í Kaupmannahöfn í kvöld.
Ljósmynd/Sander Hesterman
Jafnrétti Heiðar Örn Kristjánsson, Guðni Finnsson, Haraldur Freyr Gísla-
son og Arnar Þór Gíslason vöktu mikla athygli íklæddir kjólum.
Keppendur kvöldsins í
01 Armenía Aram MP3 / Not Alone
02 Lettland Aarzemnieki / Cake to bake
03 Eistland Tanja / Amazing
04 Svíþjóð Sanna Nielsen / Undo
05 Ísland Pollapönk / No Prejudice
06 Albanía Hersi / One Night’s Anger
07 Rússland Tolmachevy Sisters / Shine
08 Aserbædsjan Dilara Kazimova / Start A Fire
09 Úkraína Mariya Yaremchuk / Tick - Tock
10 Belgía Axel Hirsoux / Mother
11 Moldóva Cristina Scarlat / Wild Soul
12 San Marínó Valentina Monetta / Maybe (Forse)
13 Portúgal Suzy / Quero Ser Tua
14 Holland The Common ... / Calm After The Storm
15 Svartfjallaland Sergej Cetkovic / Moj Svijet
16 Ungverjaland András Kállay-Saunders / Running
2014