Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
Söngkonan Rósalind Gísladóttir
kemur fram á hádegistónleikum í
Hafnarborg í dag kl. 12 ásamt Ant-
oníu Hevesi píanóleikara.
Yfirskrift tónleikanna er Ástir og
óvissa og á efnisskránni eru aríur
eftir Bizet, Mascagni og Verdi.
„Ég er í raun búin að vera að
skipta svolítið um fag,“ segir Rósa-
lind. „Undanfarið hef ég verið að
hoppa á milli þess að vera mezzó-
sópran og sópran og þessi tónleikar
verða blanda af því.“
Rósalind nam söng hjá Ólöfu Kol-
brúnu Harðardóttur í Söngskólanum
í Reykjavík og hélt síðan til Spánar í
framhaldsnám. Árið 2012 vann hún
til fyrstu verðlauna í Barry Alexand-
er International Vocal Competition,
alþjóðlegri söngvarakeppni, og söng
í kjölfarið á tónleikum í Carnegie
Hall í New York. Einnig tók hún þátt
í verðlaunagjörningi Ragnars Kjart-
anssonar, Bliss, á listahátíðinni Per-
forma í New York 2011. Rósalind er
meðlimur Óp-hópsins og hefur tekið
þátt í yfir 30 tónleikum og sýningum
á hans vegum, þar á meðal „Svari
Maríu“, „Verdi og aftur Verdi“ og
Hans og Grétu eftir Humperdinck
þar sem hún fór með hlutverk Grétu.
Rósalind hefur einnig tekið þátt í
mörgum uppfærslum Íslensku óp-
erunnar, nú síðast í óperunni Ragn-
heiði eftir Gunnar Þórðarson.
„Við byrjum á Carmen, aríu fyrir
mezzósópran, en færum okkur síðan
upp í hinn dramatíska sópran,“ segir
Rósalind.
Að sögn söngkonunnar tengist
efnisskráin yfirskrift tónleikanna,
Ástum og óvissu. „Það er voða mikil
togstreita í gangi hjá þessum per-
sónum,“ segir Rósalind en þær per-
sónur eru meðal annars Don Carlo
og fleiri.
Aðspurð um ástæður þess að hún
syngur bæði mezzósópran og sópran
segir Rósalind að það sé bara þann-
ig sem rödd hennar liggur. „Ég er
akkúrat þarna á milli. Ég byrjaði
sem mezzósópran og var oft að
syngja svona skrautaríur. Nýlega
söng ég til dæmis aríu Næt-
urdrottningarinnar á geisladisk en
sú aría er náttúrlega þekkt fyrir að
fara hátt.“ Að sögn Rósalindar mun
sá diskur fylgja barnabók sem kem-
ur út í haust. „Ég er með ýmis verk-
efni í gangi, er það ekki nauðsynlegt
hér á landi?“ spyr Rósalind en þær
Antonía hafa áður starfað saman.
„Við Antonía erum saman í Óp-
hópnum. Ég er búin að vera þar frá
upphafi en ég er ein af stofnendum
hans.“
Um tónleikana í dag segir hún:
„Þetta verður gífurlega skemmti-
legt, svo skemmir ekki fyrir hvað
allir tónleikar í Hafnarborg eru allt-
af vel sóttir.“ audura@mbl.is
Togstreita í Hafnarborg
Rósalind Gísladóttir og Antonía Hevesi á hádegistón-
leikum í dag Úr mezzósópran í dramatískan sópran
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtilegt „Undanfarið hef ég verið að hoppa á milli þess að vera mezzó-
sópran og sópran,“ segir Rósalind. Þær Antonía Hevesi koma fram á hádegis-
tónleikum Hafnarborgar í dag og flytja aríur eftir Bizet, Mascagni og Verdi.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Fáránlega skemmtilegt! Síðdegissýning fyrir alla fjölskylduna þann 10.maí!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn Lau 17/5 kl. 19:30 25.sýn
Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn Sun 18/5 kl. 19:30 26.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fim 8/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn Fim 5/6 kl. 19:30 13. sýn
Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/6 kl. 19:30 14. sýn
Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn Mið 28/5 kl. 19:30 11. sýn Lau 14/6 kl. 19:30 15. sýn
Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn Sun 1/6 kl. 19:30 12. sýn
Sýning sem enginn ætti að missa af. Sýningartímabil: 25.apríl til 14. júní.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 14:00 Lau 24/5 kl. 14:00
Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 16:00 Lau 24/5 kl. 16:00
Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/5 kl. 14:00 Sun 25/5 kl. 14:00
Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn Sun 18/5 kl. 16:00 Sun 25/5 kl. 16:00
Fimm stjörnu sýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 9/5 kl. 20:00 Fös 9/5 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Lorca og skógarkonan - Bergmál (Stóra sviðið)
Þri 6/5 kl. 19:30
Leikhúsið á Sólheimum og leikfélagið AFANIAS frá Spáni sýna í Þjóðleikhúsinu
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★- HA, DV
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fim 8/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Sun 11/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 14:00 Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 17/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Þri 6/5 kl. 10:00 * Lau 10/5 kl. 13:00 ** Fim 15/5 kl. 10:00 *
Mið 7/5 kl. 10:00 * Sun 11/5 kl. 13:00 Fös 16/5 kl. 10:00 *
Fim 8/5 kl. 10:00 * Þri 13/5 kl. 10:00 * Sun 18/5 kl. 13:00
Fös 9/5 kl. 10:00 * Mið 14/5 kl. 10:00 *
Harmsaga Hamlets fyrir byrjendur. * Skólasýningar. **Táknmálstúlkuð sýning
Der Klang Der offenbarung Des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Fuglinn blái (Aðalsalur)
Þri 13/5 kl. 20:00
Leiklestur
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Stund milli stríða (Aðalsalur)
Fös 9/5 kl. 20:00
AF LISTUM
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Að upplifa leikhús með börnum get-
ur bætt miklu við upplifun okkar
fullorðna fólksins. Þegar ég fór með
son minn á sjötta ári í leikhús á Sól-
heimum um helgina hvísluðumst við
á meðan á sýningunni stóð og túlk-
uðum hvort á okkar hátt það sem
var að gerast á sviðinu.
Leikfélagið á Sólheimum og
leikfélag AFANIAS frá Madríd hafa
í vetur átt með sér merkilegt sam-
starf. Hvor leikhópur hefur kynnt
sér sögu og menningu þess lands
sem hinn kemur frá. Úr þeirri rann-
sóknarvinnu vann svo hvor hópur
sviðsverk. Leikfélagið á Sólheimum
vinnur út frá verkinu um skóara-
konuna dæmalausu eftir Federico
García Lorca (1898-1936), eitt
þekktasta leikskáld Spánverja, og
úr verður frísklegt gamanverk.
Spænski hópurinn býður upp á
dramatískt og fallegt dansverk inn-
blásið af íslenskri sögu og náttúru.
Lorca og Skóarakonan nefnist
verk leikfélagsins á Sólheimum, en
Edda Björgvinsdóttir á heiðurinn af
leikgerð auk þess sem hún leik-
stýrir verkinu.
Húmorinn er í fyrirrúmi hjá
Leikfélagi Sólheima og andi stað-
arins nær sterkt í gegn því sjálf
Sesselja Sigmundsdóttir, stofnandi
Sólheima, er látin skiptast á skoð-
unum við Lorca í drepfyndnu atriði.
Í sýningu spænska hópsins ræður
dulúðin ríkjum og dansararnir stíga
á svið einn af öðrum og túlka ýmis
náttúruöfl, tilfinningar og annað
sem hópurinn tengir við Ísland.
Bæði undirrituð og sonur hrif-
ust af gamanleik Sólheimahópsins.
Litrík leikmynd, innilegur lát-
bragðsleikur og fjörug tónlist eiga
sinn þátt í að gera verkið að ákjós-
anlegu verki fyrir börn. Spænska
dansverkið er heldur meira krefj-
andi fyrir unga áhorfendur, þótt
fimi dansaranna hafi heillað und-
irritaða upp úr skónum. En þegar
ungviðið er farið að ókyrrast þarf
oft að beita lagni svo allir haldist í
sínu sæti út sýninguna. Við mæðg-
inin fórum því þá leið að skiptast á
skoðunum (með hvísli auðvitað til
að trufla ekki) um það hvað við
héldum að dansararnir væru að
túlka hverju sinni. Til dæmis var
auðvelt að sjá hvenær þau voru
undir áhrifum frá íslenskri veðráttu
og túlkuðu rokið í dansi. En stund-
um var það ekki eins ljóst og þá
giskuðum við til dæmis á að þau
væru að túlka nóttina, þokuna,
morguninn, vorið og fleira. Í miðju
tilfinningaþrungnu dansatriði hjá
einum af dönsurum hvíslaði litli
maðurinn: „Mamma, ég held að
þetta sé ást“ og hélt svo áfram að
horfa einbeittur á svip. Allir ættu að
geta notið hinnar einstöku spænsk-
íslensku sýningar sem sett verður
upp í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þessi
hálffertuga móðir sem þetta ritar
var allavega ekki svikin af hörku-
gamanleik Sólheimafólks og sá
stutti gat gleymt sér í djúpum pæl-
ingum um túlkun tilfinninga í dansi.
Upplifunin var einstök fyrir bæði
tvö.
„Mamma, ég held
að þetta sé ást“
Ljósmyndari/Pétur Thomsen
Gaman Lorca og skóarakonan er sýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld kl. 19.30.
» Sýning LeikfélagsSólheima og
spænsks danshóps er
einstök upplifun fyrir
börn og fullorðna.