Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Opið: 8 :00 - 18 :00 mánud .– fimm tud., 8:00 - 1 7:00 fö stud, bílalakk frá þýska fyrirtækinu Ekki bara fyrir fagmenn líka fyrir þig Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla. HÁGÆÐA BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn eykurfylgi sitt verulega í sveit-arstjórnarkosningunum áAkranesi í vor, fær tvo nýja fulltrúa kjörna í bæjarstjórn. Nýtt framboð Bjartrar framtíðar fær tvo menn kjörna. Meirihlutinn í bænum er fallinn. Meirihlutaflokkarnir, Framsóknarflokkur, Samfylking og Vinstri-græn, tapa miklu fylgi. Þetta eru meginniðurstöður nýrr- ar skoðanakönnunar Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið á fylgi lista og flokka á Akranesi. Könnunin var gerð dag- ana 25. apríl til 1. maí. Meirihlutinn fallinn Núverandi meirihluti í bæjar- stjórn Akraness er skipaður fulltrú- um Framsóknarflokks og óháðra, Samfylkingarinnar og Vinstri- grænna. Flokkarnir hafa sjö fulltrúa í níu manna bæjarstjórn, en fá sam- tals þrjá gangi niðurstöður könn- unarinnar eftir í kosningunum. Samkvæmt könnuninni er Sjálf- stæðisflokkurinn stærsti flokkurinn á Akranesi með 43,1% fylgi þeirra sem afstöðu taka. Það þýðir að hann fær fjóra bæjarfulltrúa. Þetta er veruleg aukning frá kosningunum 2010 þegar flokkurinn fékk 25,2% atkvæða og tvo menn kjörna. Þetta er líka talsverð aukning frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar á Akranesi í janúar, en þá mældist fylgi flokksins 34,1%. Rétt er þó að hafa í huga að vikmörk í niður- stöðum fyrir flokkinn eru há, 6%. Björt framtíð vinsæl Björt framtíð, sem ekki hefur áð- ur boðið fram til sveitarstjórna, mælist með 20,5% fylgi. Hún fengi tvo fulltrúa í bæjarstjórn. Þetta er veruleg aukning á fylgi miðað við könnunina í janúar þegar fylgið mældist 12% og gaf þá einn fulltrúa. Vikmörk eru 4,9%. Samfylkingin tapar miklu fylgi samkvæmt könnuninni, fær 19,2% fylgi og tvo bæjarfulltrúa. Í kosing- unum fyrir fjórum árum fékk flokk- urinn 34,8% atkvæða og fjóra menn kjörna. Fylgið hefur einnig minnkað frá því í könnuninni í janúar þegar það mældist 23,4%. Vikmörk eru 4,8% Framboð Frjálsra með Framsókn, sem er arftaki framboðs Framsókn- arflokksins og óháðra, mælist með 11,2% fylgi. Framboðið fengi einn mann í bæjarstjórn. Í kosningunum 2010 fengu framsóknarmenn og óháðir 23,8% atkvæða og tvo menn kjörna. Fylgið núna er minna en í könnuninni í janúar, þegar það mældist 16,8%.Vikmörk eru 3,8%. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð bíður afhroð samkvæmt könn- uninni og tapar sínum eina bæj- arfulltrúa. Fylgið mælist aðeins 5,4%. Í kosningunum 2010 var flokk- urinn með 16,3% atkvæða og í síð- ustu könnun í janúar með 10,2% fylgi. Vikmörk eru 2,7%. Margir enn óákveðnir Í könnuninni nefndu 0,6% þeirra sem afstöðu tóku að þeir vildu kjósa annan flokk en einhvern ofan- greindra. Spurt var: Ef sveitarstjórnar- kosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa. 3,5% þátttakenda sögðust ekki ætla að kjósa í vor, 7,2% sögð- ust ætla að skila auðu og 1,7% þeirra sem í náðist vildu ekki svara. 18,9% sögðust ekki hafa gert upp hug sinn. Í könnuninni voru tvær leiðir not- aðar til að ná til kjósenda. Annars vegar var hringt í 380 manna tilvilj- unarúrtak úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 18 ára og eldri. Hins vegar var send netkönnun til 220 manna úrtaks úr netpanel Félagsvísinda- stofnunar. Alls fékkst 381 svar frá þátttakendum á aldrinum 18 til 90 ára og var svarhlutfall 66%. Vigt- aður svarendafjöldi var einnig 381. Hátekjufólk vill Sjálfstæðisflokkinn Ekki er mikill munur á afstöðu þátttakenda í könnuninni til fram- boðanna eftir kynferði. Helst er áberandi að fleiri karlar en konur styðja Sjálfstæðisflokkinn og fleiri konur en karlar styðja Samfylk- inguna. Björt framtíð nýtur meira fylgis meðal yngsta kjósendahópsins, fólks á aldrinum 18 til 29 ára, en annarra aldurshópa. Þar er fylgi hennar 31% en Sjálfstæðisflokksins 40%. Meðal elstu kjósendanna, fólks 60 ára og eldri, styðja flestir Sjálfstæðisflokk- inn, 45%. Sem fyrr er stærsti hópur vænt- anlegra kjósenda Samfylking- Mikið tap meirihlutaflokkanna  Ný könnun á fylgi flokka á Akranesi  Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 43,1% fylgi  Meirihlutinn í bæjarstjórn tapar þremur af sjö fulltrúum  Björt framtíð fær tvo menn kjörna Ann an flok k eð a lis ta ? Bjö rt f ram tíð *Fylgi Framsóknarflokksins, í síðustu kosningum og skv. könnun 15.-23. janúar Frjá lsir m. F ram sók n Vin stri -græ n Sam fylk ing Sjá lfst æð isfl. Niðurstöður kosninga 2010 Fylgi skv. könnun 15.-23. jan. Fylgi skv. könnun 25. apríl - 1. maí Svör alls: 304 Svarhlutfall: 63% Nefndu einhvern flokk: 167 Veit ekki: 54 Skila auðu/ógildu: 17 Ætla ekki að kjósa: 22 Vilja ekki svara: 44 Fylgi stjórnmálaflokka samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25. apríl - 1. maí 2014 vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 43,1% 20,5% 19,2% 11,2% 5,4% 0,6% 25,2% 34,1% 12,0% 34,8% 23,8%* Fjöldi bæjarfulltrúa, eftir síðustu kosningar. Fjöldi bæjarfulltrúa, væri gengið til kosninga nú. 4 2 122 4 2 1 23,4% 16,8%* 16,3% 10,2% 3,6% SKOÐANAKÖNNUN AKRANES „Ég er mjög ánægður með þessa útkomu. Hún blæs okkur bar- áttuþreki í brjóst. En það er enn mánuður til kosninga og við þurf- um að vinna gríðarlega vel næstu vikurnar til að tryggja að þessar niðurstöður verði að veruleika,“ sagði Ólafur Adolfsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, í samtali við Morgunblaðið, þegar könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi flokka í bænum var borin undir hann. Oddvitaskipti Ólafur, sem er lyfsali í Apóteki Vesturlands, er nýr oddviti Sjálf- stæðisflokksins. Fyrri oddviti, Gunnar Sigurðsson, ákvað í vetur að draga sig í hlé eftir tuttugu ár starf í bæjarstjórninni. Ólafur kvaðst telja að skýringin á fylgisaukningu sjálfstæðismanna væri öflugur framboðslisti sem kjósendur í bænum vissu hvað stæði fyrir. „Það er kallað eftir nýjum áherslum,“ sagði hann og kvað mikilvægt að bæjarfélagið legði áherslu á að sinna vel lög- bundnum verkefnum sínum. Við- hald gatnamannvirkja í bænum hefði til dæmis verið í lágmarki og því þyrfti að breyta. Önnur verk- efni mættu ekki verða til þess að skerða lögbundna þjónustu við bæjarbúa. „Það er ljóst samkvæmt þessum tölum að meirihlutinn í bæj- arstjórn er fallinn. Mikilvægt er að Sjálfstæðisflokkurinn fái skýrt umboð frá kjósendum til að mynda nýjan meirihluta,“ sagði Ólafur. Fylgið til Bjartrar framtíðar „Það er kominn nýr flokkur sem ekki hefur boðið fram áður, Björt framtíð. Innan hans eru að hluta til okkar félagsmenn. Þeir eru að taka fylgið frá okkur. Samanlagt er fylgi okkar og Bjartrar fram- tíðar meira en Samfylkingarinnar síðast,“ sagði Ingibjörg Valdi- marsdóttir, bæjarfulltrúi og odd- viti Samfylkingarinnar. Ingibjörg taldi að ekki væri Vinna þarf vel næstu vikurnar  Oddviti Samfylkingarinnar segir Bjarta framtíð taka fylgið af flokknum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.