Morgunblaðið - 06.05.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
PARKETFLÍSAR
ekkert að pússa og lakka
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Stýrishúsið og allt sem í því var er ónýtt og
strandveiðisumarið er búið,“ segir Sigmar
Hrafn Eyjólfsson, sjómaður á smábátnum
Siglunesi SH-22. Eldur kom upp í bátnum á
Breiðafirði í gærmorgun en Sigmar náði að
slökkva hann. Björgunarskip dró bátinn til
Grundarfjarðar.
Kaldaskítur á miðunum
Margir strandveiðibátar voru á Breiðafirði.
„Ég held að mönnum hafi ekki gengið neitt sér-
staklega vel að ná þessu. Það er óvenjulega
tregt fiskirí, miðað við árstíma,“ segir Sigurjón
Hilmarsson í Ólafsvík, formaður smábáta-
félagsins Snæfells. Það hjálpaði ekki til að þeg-
ar leið á morguninn var kominn kaldaskítur á
miðunum, eins og einn strandveiðimaður á
Breiðafirði tók til orða.
Óvenjumargir bátar voru úti í gær enda var
fyrsti strandveiðidagur sumarsins. Samkvæmt
upplýsingum frá Vaktstöð siglinga voru um 800
bátar úti. Þar af voru á fjórða hundrað strand-
veiðibátar.
Fyrir utan brunann í Siglunesi og vélarbil-
anir hjá nokkrum bátum gengu hlutirnir vel
fyrir sig. Menn hjálpuðu félögum sínum og
drógu þá í land þegar vélar biluðu. Vaktstöð
siglinga vissi um fjögur slík tilvik. Svo þurfti að
reka tvo í land þar sem fjareftirlitsbúnaður
þeirra virkaði ekki.
Sigmar telur að það hafi kviknað í mælaborð-
inu í Siglunesi. Eldur braust út strax svo hann
komst ekki inn í stýrishúsið. Hann var með far-
símann í vasanum og gat hringt í bróður sinn
sem er á öðrum bát. Þannig var neyðarkallið
sent út. Sjómenn á bátum í nágrenninu voru
snöggir að bregðast við og voru komnir að
Siglunesi eftir fáeinar mínútur. Þá hafði Sig-
mari tekist að slökkva eldinn. „Ég náði að
deyfa eldinn með fötu og sjó það mikið að ég
komst inn í stýrishúsið og kláraði svo með
slökkvitæki sem þar var,“ segir Sigmar.
Öryggisbúnaður brann
Sigmar var einn á bátnum og sakaði ekki.
Sjómenn eru ávallt í hættu þegar eldur kemur
upp í skipum. Sigmar segir að báturinn hefði
getað fuðrað upp á skömmum tíma og þá hefði
hann verið illa staddur. Það fyrsta sem brann
var björgunargalli og björgunarvesti í stýr-
ishúsinu. Þá var björgunarbáturinn uppi á
stýrishúsinu og erfitt að komast að honum. „Ég
hefði þurft að stökkva út í, ef ég hefði ekki náð
að slökkva,“ segir hann.
Björgunarskipið Björg frá Rifi dró Siglunes
til Grundarfjarðar. Sigmar segir að stýrishúsið
sé ónýtt. Hann hefur ekki áttað sig til fulls á
stöðunni, segir að tryggingafélagið verði að fá
að vinna sína vinnu. Hann reiknar þó með að
það taki sumarið að laga það sem hefur eyði-
lagst. Því sé sumarvinnan farin. Sigmar er sjó-
maður á stærri bát en hefur stundað strand-
veiðar á sumrin frá því þær voru fyrst leyfðar.
Tregt í upphafi strandveiða
Ef Sigmar Hrafn Eyjólfsson hefði ekki náð að slökkva eld í stýrishúsi hefði hann
þurft að kasta sér í sjóinn án öryggisbúnaðar Segir strandveiðisumarið búið
Ljósmynd/Sverrir Karlsson
Heimahöfn Björgunarskipið Björg frá Rifi dró Siglunes SH til hafnar í Grundarfirði. Báturinn var að veiðum á Grundarfjarðarbrún.
Strandveiðar
» Nærri 430 umsóknir um strandveiðileyfi
höfðu í gær borist Fiskistofu. 380 þeirra
voru virkjuð í gær og 50 voru óafgreidd.
» Flestir strandveiðibátarnir voru að veið-
um við Vesturland og Vestfirði. Ekki voru
gæftir við Suðausturland.
Morgunblaðið/Alfons
Afli Sigurjón Hilmarsson landar úr Nonna í Vík.
„Þetta er mjög skemmtilegt. Hóp-
urinn er þannig, þetta eru heil-
brigðir guttar. Við höfum unnið áð-
ur með Pollapönkurunum,“ segir
Halldór Einarsson, eigandi Henson
sem saumar hina litskrúðugu
íþróttagalla sem hljómsveitin Polla-
pönk hefur notað.
Halldór segir að góð sala hafi
verið í barnagöllunum sem merktir
eru Pollapönki. Það hafi einnig ver-
ið áður, til dæmis þegar hann seldi
Latabæjargalla. „Svo er alltaf
spurning um framhaldið, hvort
þetta dettur út þegar keppninni
lýkur. Ég held ekki. Krakkarnir
þurfa svona galla og það er bara já-
kvætt.
Mikið er að gera á saumastofunni
hjá Henson um þessar mundir,
meðal annars unnið um helgar.
Halldór vill þó fremur tengja það
árstímanum en þátttöku Polla-
pönks í Eurovision. „Það er eins og
það kvikni líf og fjör á Íslandi eftir
sumardaginn fyrsta. Margir eru á
ferðinni og við verðum einnig vör
við stór íþróttamót,“ segir Halldór.
Verður í Kaupmannahöfn
Saumaðir voru Pollapönksgallar
á fullorðna fyrir forgöngu Félags
áhugafólks um Eurovision á Ís-
landi. „Ef ég færi í galla yrði hann
rauður,“ segir Halldór Valsari. Svo
vill til að hann verður í Kaup-
mannahöfn í vikunni þegar söngva-
keppnin fer fram en tekur fram að
ferðin sé ótengd tónlistarviðburð-
inum og hann verði ekki meðal
áhorfenda. helgi@mbl.is
Myndi
velja rauð-
an galla
Mikið að gera hjá
Henson þessa dagana
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Henson Halldór Einarsson segir að
oft sé mikið að gera á vorin.
Ákveðið hefur verið að auka hlutafé
365 miðla um nálega einn milljarð
króna. Aukningin er á vegum núver-
andi eigenda og nýrra hluthafa. Ekki
er upplýst hverjir nýju hluthafarnir
eru. Ari Edwald forstjóri segir að
gengið verði frá hlutafjáraukning-
unni í júní og þá verði skýrt frá því
hverjir þeir eru.
Hlutafjáraukningin verður í nýj-
um flokki hlutafjár, svokölluðum c-
flokki, sem kemur til viðbótar a- og
b-flokki sem fyrir eru. Ari segir að c-
hlutabréfin séu með sama fyrir-
komulagi og b-hlutabréfin, þau njóti
forgangs við arðgreiðslur en hafi
ekki atkvæðavægi við stjórnun.
Ingibjörg Pálmadóttir og félög
henni tengd eiga nú um 90% hluta-
fjár félagsins. Aukningin svarar til
um fjórðungs af heildarhlutafé 365
þannig að meirihlutinn er áfram í
höndum hennar.
Skuldir greiddar
Aukningunni verður að hálfu varið
til niðurgreiðslu á vaxtaberandi
skuldum félagsins en að öðru leyti til
að styrkja veltufé félagsins og
styrkja vöxt þess, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. „Við töld-
um þörf á því að styrkja fjárhag fé-
lagsins,“ segir Ari og bendir á að fé-
lagið hafi greitt um 4 milljarða í vexti
og afborganir til lánveitenda frá
árinu 2010. Hann segir að einnig
skapist borð fyrir báru vegna nýrra
verkefna og nefnir endurnýjun í
tækjabúnaði sem unnið hafi verið að
og aukningu á sviði fjarskipta.
Sævar Freyr aðstoðarforstjóri
Samhliða þessu var tilkynnt í gær
að Sævar Freyr Þráinsson, fyrrver-
andi forstjóri Símans, hefði verið
ráðinn aðstoðarforstjóri 365. Hann
mun hefja störf 1. júní. Á sama tíma
mun Stefán H. Hilmarsson fjármála-
stjóri hverfa til annarra starfa fyrir
eigendur félagsins.
helgi@mbl.is
Nýir fjárfestar koma
með hlutafé í c-flokk 365
Tilkynnt í júní hverjir standa að aukningunni
Ari
Edwald
Sævar Freyr
Þráinsson