Morgunblaðið - 06.05.2014, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 06.05.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014                              !"#   $  % & ''' ()* % & ()* + ,  + Innréttingar Hillu- og skúffukerfi Fyrir allar gerðir bíla • Þrautreynt kerfi • Öryggisprófað • Tryggir þig gegn tjóni F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is Eyrnalokkagöt Sumarlegt :-) Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Bolur kr. 7.900 - Fleiri litir Buxur kr. 5.900 - Fleiri litir Loftrýmisgæsla Atlantshafs- bandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 12. maí nk. með komu flugsveitar bandaríska flug- hersins. Alls munu um 220 liðsmenn taka þátt í verkefninu, þar af um fimmtán manns á Akureyri þar sem staðsettar verða þotugildrur og flugviti. Flugsveitin kemur til landsins með F-15 orrustuþotur, C-130 björgunarflugvélar, ásamt eldsneytisbirgðavél. Gera má ráð fyrir aðflugsæf- ingum að varaflugvöllum á Ak- ureyri og hugsanlega Egilsstöðum 14.-16. maí nk. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrým- isgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og samninga sem í gildi eru. Ráð- gert er að verkefninu ljúki í byrjun júní, segir í frétt á heimasíðu Land- helgisgæslunnar. Þjálfunarverkefnið „Iceland Air Meet 2014“ stóð yfir hér á landi í febrúar sl. Þáttakendur komu frá Íslandi, Noregi, Hollandi og Banda- ríkjunu. Einnig tóku þátt í æfing- unni flugsveitir frá Finnlandi og Svíþjóð. Á meðan verkefnið stóð yf- ir annaðist flugsveit Norðmanna loftrýmisgæslu NATO hér við land. Bandaríkin gæta loft- rýmisins  220 liðsmenn taka þátt í verkefninu Morgunblaðið/ÞÖK Samtökin Hjartað í Vatnsmýri afhentu Einari K. Guð- finnssyni, forseti Alþingis, tæplega 70.000 undirskrift- ir fólks í gær sem lýsir þar yfir vilja sínum til óskertrar flugstarfsemi í Vatnsmýri. Aldrei hefur jafn mörgum undirskriftum verið safnað í sögu þjóðarinn- ar, en þær höfðu áður verið afhentar borgarstjóranum í Reykjavík, Jóni Gnarr, fyrir rúmum sjö mánuðum. „Í kjölfar þeirrar afhendingar var ákveðið að koma á fót svokallaðri Rögnunefnd sem átti að leita að öðr- um kostum en Vatnsmýri fyrir flugvöll,“ segir Friðrik Pálsson, annar tveggja formanna Hjartans í Vatns- mýri. „Við reiknuðum með því að friður yrði um nefnd- arstarfið en komið hefur í ljós að borgaryfirvöld vinna markvisst að því að skipuleggja Vatnsmýrina þannig að flugvöllurinn verði þar ekki til frambúðar. Við telj- um því brýna þörf á að vekja athygli Alþingis á stöðu mála áður en það fer í sumarfrí.“ Spurður um hvort það hafi ekki staðið til frá upp- hafi að Alþingi fengi undirskriftirnar segir Friðrik að það hafi alltaf verið ætlunin. „Áskorunin beinist bæði gegn ríki og borg. Við ákváðum að sjá til og gefa Rögnunefndinni frið til að vinna. En borgin hefur, þrátt fyrir þetta samkomulag, unnið ósleitilega að því að gera þær ráðstafanir sem gera það útilokað að flugvöllurinn verði þarna áfram. Því afhentum við undirskriftirnar aftur, til að leggja áherslu á mik- ilvægi málsins.“ annalilja@mbl.is Afhentar í annað sinn Stór bunki Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, með undirskriftirnar, allar 70.000, í gær.  Tók við 70.000 flugvallarundirskriftum á Alþingi í gær Karlmaður er grunaður um að hafa reynt að tæla ungan dreng upp í bifreið í Stakkahlíð í Reykjavík síð- degis á föstudag. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu bauð maðurinn drengnum sælgæti. Pilturinn brást hins vegar rétt við og forðaði sér og lét foreldra sína vita. Lögreglan segir að atvikið hafi átt sér stað um kl. 17 við húsnæði Kennaraháskóla Íslands. Drengur- inn, sem er níu ára gamall og nem- andi við Háteigsskóla, var einn á gangi þegar maðurinn stöðvaði stóran jeppa sinn, gekk út og bauð drengnum sælgæti. Að sögn lög- reglu var ekki talað um að maður- inn hefði beðið piltinn um að koma með sér en lögreglan lítur aftur á móti á atvikið sem tælingarmál. Pilturinn gat gefið lögreglunni lýs- ingu á manninum sem gengur enn laus. Grunaður um að reyna að tæla dreng Yfir 500 jarðskjálftar mældust við Herðubreiðartögl frá því snemma á laugardagsmorgun og fram á há- degi á sunnudag. Samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofu Íslands kom stærsti skjálftinn aðfaranótt sunnudagsins og mældist hann 3,9 á stærð. Varð skjálftans lítillega vart á Akureyri. Síðan þá hefur hrinan verið í rénun og fáir skjálftar hafa náð 2 á Richter-kvarða. Skv. upplýsingum frá Veðurstof- unni eru slíkar hrinur algengar á eldgosabeltinu norðan Vatnajökuls og engin mælanleg merki um að þessi hrina muni leiða til eldgoss. Jarðskjálftahrina við Herðubreið í rénun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.