Morgunblaðið - 06.05.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
29.990
Reykjavík - Reykjanesbæ
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
Ársfundur Land-
spítala fer fram á
Hilton Reykjavík
Nordica í dag,
þriðjudaginn 6.
maí, og stendur
frá kl. 13-16. Yfir-
skrift fundarins er
„Þjóðarsjúkrahús
á tímamótum“ og
mun Kristján Þór
Júlíusson heil-
brigðisráðherra ávarpa fundinn.
Eins og yfirskrift ársfundarins
gefur til kynna þá stendur Landspít-
alinn á tímamótum og verður seinni
hluta ársfundarins varið í sérstakt
málþing um húsakost og uppbygg-
ingu spítalans, segir í fréttatilkynn-
ingu. Fundarstjóri verður Guðfinna
S. Bjarnadóttir. Fundurinn er öllum
opinn og fer skráning fram á heima-
síðu spítalans, landspitali.is.
Uppbygging
Landspítala í for-
grunni á ársfundi
Páll Matthíasson for-
stjóri Landspítala.
Andri Karl
andri@mbl.is
Saksóknari hjá sérstökum saksókn-
ara krafðist þess við aðalmeðferð í
Imon-málinu svonefnda í gærdag að
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, yrði
dæmdur í að minnsta kosti fimm ára
fangelsi. Þá krafðist saksóknarinn
þess að Sigríður Elín Sigfúsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs sama banka, og
Steinþór Gunnarsson, fyrverandi
forstöðumaður verðbréfamiðlunar
bankans, yrðu dæmd í ekki minna en
fjögurra ára fangelsi. Stefnt er að
því að ljúka aðalmeðferð málsins í
dag.
Arnþrúður Þórarinsdóttir, sak-
sóknari hjá sérstökum saksóknara,
átti sviðið ein í dómsal 101 í gærdag
þegar hún hélt rúmlega þriggja tíma
málflutningsræðu sína. Augljóst var
á hinum ákærðu og verjendum
þeirra að ekki fór allt vel ofan í þau
sem saksóknari sagði. Þeim gefst
hins vegar kostur á að segja sína hlið
á málinu í dag.
Í Imon-málinu er ákært vegna
sölu Landsbankans á eigin bréfum
til tveggja félaga, Imon ehf. og Al-
zaela Resources Ltd. og lúta ákæru-
liðirnir að umboðssvikum og mark-
aðsmisnotkun. Sigurjón er ákærður í
fjórum liðum, Sigríður Elín í tveimur
og Steinþór í tveimur. Saksóknari
sagði viðskiptin blekkingarleik og til
þess gerð að losa Landsbankann við
eigin bréf til þess eins að hann gæti
haldið áfram að kaupa fleiri eigin
bréf á markaði í lok september og
byrjun október 2008. Þannig hefði
verði bréfanna verið haldið uppi og
markaðurinn blekktur, þegar engin
raunveruleg eftirspurn var eftir
bréfunum.
Tilkynnt án fjármögnunar
Til stóð að Landsbankinn fjár-
magnaði kaupin og hefðu samtals
þrettán milljarðar verið lánaðir til
félaganna ef allt hefði gengið eftir.
Hins vegar varð „aðeins“ af einni
lánveitingu af þremur, upp á fimm
milljarða króna til Imon. Fjármögn-
un hinna viðskiptanna lauk ekki en
engu að síður var Kauphöllinni til-
kynnt um viðskiptin og sagði sak-
sóknari að það hafi verið gert til að
blekkja markaðinn.
Saksóknari sagði að á þessum
tíma hefði enginn fjárfestir verið
tilbúinn að taka fjárhagslega áhættu
og kaupa bréf í Landsbankanum.
Enda hefði komið á daginn að eig-
endur Imon og Azalea lögðu ekki
krónu út heldur létu eignalaus félög
taka lán fyrir kaupunum. Sömu eig-
endur hefðu hagnast ef bréfin hefðu
hækkað í verði en gátu ekki tapað á
viðskiptunum. Landsbankinn hlaut
hins vegar alltaf að tapa á þeim. Inn í
bankann hefðu þannig komið fjár-
festar sem ekki voru tilbúnir að
leggja fram neinar tryggingar, engu
að síður fengu eignalaus félög þeirra
hlutabréf fyrir milljarða króna. Gríð-
arlegt tap á viðskiptunum hefði verið
fyrirsjáanlegt en nauðsynlegt til að
halda kerfisbundinni markaðsmis-
notkun áfram.
Saksóknari sagði að brotin ættu
sér fá fordæmi varðandi umfang og
alvarleika. Þau vörðuðu gríðarlega
háa fjárhæð og markaðssvikin hefðu
gefið alranga mynd af eftirspurn eft-
ir hlutabréfum í bankanum. „Alvar-
legar og langvarandi afleiðingar fyr-
ir kröfuhafa bankans og íslenskt
samfélag þekkja síðan allir.“
Þá kom fram hjá saksóknara að
enn væri verið að rannsaka önnur
mál sem tengdust sama tímabili hjá
Landsbankanum.
Krefst 5 ára fangelsis hið minnsta
Saksóknari sagði að athafnir bankafólks hefðu haft alþekktar, alvarlegar og langvarandi afleiðingar
Morgunblaðið/Þórður
Sóknin Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari á milli aðstoðarkvenna sinna.
Hermann Þorsteins-
son, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, lést í
gærmorgun, 92 ára að
aldri. Hermann fædd-
ist 7. október 1921 í
Reykjavík. Foreldrar
hans voru Guðrún Her-
mannsdóttir húsfreyja
og Þorsteinn Ágústs-
son, húsgagnasmiður í
Reykjavík. Hermann
var fjórði af sex systk-
inum og lifði hann þau
öll.
Hermann starfaði hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga í nákvæm-
lega hálfa öld, eða frá fjórtán ára af-
mælisdegi sínum árið 1935 til sama
dags árið 1985. Á þeim tíma sinnti
hann ýmsum störfum fyrir Sam-
bandið, dvaldi um árabil á þess veg-
um í Kaupmannahöfn. Eftir að þaðan
var komið veitti hann forstöðu Líf-
eyrissjóði SÍS í 25 ár.
Hermann var virkur í félags-
störfum og lagði mörgum góðum
málefnum lið. Hermann starfaði
bæði fyrir KFUM og var einn af
stofnendum Gídeon-félagsins. Her-
mann var jafnframt ólaunaður fram-
kvæmdastjóri Hins íslenska biblíu-
félags frá 1965 til ársins 1990 og sá
meðal annars um útgáfu Biblíunnar
árið 1981. Hermann vann þar að
endurreisn og eflingu þessa elsta fé-
lags á Íslandi, ásamt þá-
verandi biskupi Íslands,
hr. Sigurbirni Ein-
arssyni, og Ólafi Ólafs-
syni kristniboða, en
starf þess hafði þá legið
niðri um árabil.
Eitt helsta hugðar-
efni Hermanns var
bygging Hallgríms-
kirkju, en hann tók sæti
í sóknarnefnd kirkj-
unnar árið 1960 og tók
við forstöðu fram-
kvæmdanna árið 1965.
Hermann fór á eftirlaun 1985, ári áð-
ur en kirkjan var vígð, og eyddi þá
öllum starfskröftum sínum næsta ár-
ið sem ólaunaður byggingarstjóri þar
til kirkjan var loks vígð hinn 26. októ-
ber 1986, þremur vikum eftir 65 ára
afmæli Hermanns og 41 ári eftir að
byrjað var að reisa hana. Er óhætt að
segja að þakka megi Hermanni öðr-
um fremur að lokið var við kirkjuna,
þó að margir hafi lagt þar hönd á
plóg. Frú Vigdís Finnbogadóttir
sæmdi Hermann fálkaorðunni með
þessum orðum: „Fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir trúna í landinu.“
Hermann var tvígiftur. Fyrri kona
hans hét Ingibjörg Magnúsdóttir, en
þau giftust 10. maí 1947. Ingibjörg
lést 19. september 1993. Eftirlifandi
eiginkona Hermanns er Helga Rakel
Stefnisdóttir.
Andlát
Hermann Þorsteinsson